Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Blaðsíða 8
8
*»* T-i.tr c ti :i/r ir..i
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989.
Viðskipti
Innflutningsverslumn of flölmenn:
Nú er komið að versl-
uninni að gera sitt
- segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra
„Þaö hefur verið fullyrt viö mig
að engin ríkisstjórn haft gert meira
fyrir verslunina. Nú er hins vegar
komiö aö versluninni aö gera eitt-
hvaö á móti. Ég hef ekki orðiö var
viö aö þær aðgerðir, sem ríkisstjórn-
Plasteinangr-
un og Sæplast
sameinast
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ákveöiö hefur veriö að sameina
fyrirtækin Plasteinangrun hf. á
Akureyri og Sæplast hf. á Dalvík.
Sameiningin felur í sér aö Sæ-
plast kaupir öll hlutabréfin í
Plasteinangrun en lætur í staðinn
35% hlut í Sæplasti.
Ástæður sameiningarinnar eru
margar. Fyrirtækin framleiða
vörur fyrir sömu kaupendur,
hafa bæði flutt mikið af sinni
framleiðslu á erlendan markað
og hafa í mörg ár starfað mikið
saman.
Vegna rekstrarvanda fyrir-
tækja í útgerð og fiskvinnslu hafa
fyrirtæki í þessum rekstri lent í
samdrætti og vanskilum. Plast-
einangrun og Sæplast afskrifuöu
t.d. tæplega 20 milljónir króna af
útistandandi kröfum gagnvart
þessum íyrirtækjum um síðustu
áramót. Auk þess hafa almenn
rekstrarskilyröi verið erfiö og
hefur verið gengið á eigið fé fyrir-
tækjanna
Endurskipulagning rekstursins
mun fela í sér margvíslegar að-
gerðir, s.s. uppsagnir og fækkun
starfsmanna, sölu eigna, sam-
þjöppun starfseminnar, endur-
skipulagningu fjárhagsins og
veröur hlutafé jafnframt aukið til
aö styrkja stöðu fyrirtækisins.
Áætluð velta þess er tæpar 500
milljónir króna á ári og verður
það með fjölbreytta framleiðslu
fyrir fiskvinnslu, útgerð og aðrar
atvinnugreinar.
Pétur Reiraarsson, sem verið
hefur frarakvæmdastjóri Sæ-
plasts, verður framkvæmda-
sljóri.
Mariane Danielsen:
Endurbyggð
í Póllandi
Eigendur Mariane Danielsen
gerðu á föstudaginn samning við
pólskt fyrirtæki um að sækja
skipið til íslands, draga þaö til
PóUands og gera viö þaö. Skipið
strandaði við Grindavik i vetur
en var komiö á flot í byrjun apríl.
Finnbogi Kjeld, einn eigend-
anna, vildi ekki gefa upp hvað
viögeröin muni kosta en sagöi
samninginn vera nálægt þeim
áætlunum sem gerðar heföu ver-
ið. Samkvæmt heimildum DV
hljóöar samningurinn upp á um
30 milljónir króna.
Samkvæmt samningnum á við-
gerð að ljúka á 60 dögum. Mar-
iane Danielsen verður því komið
á fiot um mánaöamótin júni júlí.
„Það er mjög líklegt að við
munum sjálflr gera skipiö út,“
sagöi Finnbogi Kjeld en hann var
einn aðaleigenda skipafélagsins
Víkurskipa sem lýst var gjald-
þrotafyrirskömmu. -gse
in hefur verið að gera fyrir verslun-
ina, t.d. með því að breyta safnsend-
ingum og greiðsludögum söluskatts,
hafi skilað sér í lægra vöruverði. Þó
var fullyrt við okkur að hvor aðgerð
um sig sparaöi mörg hundruð millj-
ónir,“ segir Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra.
Utanríkisráöherra tók undir gagn-
rýni forsætisráðherra, sem hefur
heyrst fyrr í vetur, um verslunina,
og sagði að innflutningsverslunin
hér á landi væri allt of fjölmenn og
ekki sæjust nein merki um að vinnu-
brögð í innflutningi hefðu breyst.
-SMJ
Fiskiðjuver KASK á Höfn. DV-mynd Ragnar
Aðalfondur Kaupfélags Austur-Skaftfellinga:
Rekstrartapið
112 milljónir
JúKa Imsland, DV, Höfa:
Heildarvelta Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga (KASK) á síðasta ári
var rúmlega tveir milljarðar króna.
Árið var KASK erfitt og var rekstr-
artap 111 milljónir og 776 þúsund
krónur og fjármagnsstreymi sýnir
beint peningalegt tap að fjárhæö 42
milljónir og 124 þúsund.
Vegna taprekstrarins hefur eigið fé
félagsins rýrnað og var í árslok 288
milljónir 468 þúsund eða 18,9% en
var 29% í árslok 1987. Laun voru
greidd til 1151 einstakhngs þar af 379
utanhéraðsmanna, alls 82 milljónir
936 þúsund krónur. Þetta kom fram
á aðalfundi Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga sem haldinn var á Hótel
Höfn 16. apríl sl. Um 100 manns sátu
fundinn, þar meö taldir fulltrúar
allra deilda KASK og forstjóri SÍS,
Guðjón B. Ólafsson.
Ástæður þessa mikla tapreksturs
eru margar, til dæmis lækkandi verð
á frystum fiski bæði i Bandaríkjun-
um og Evrópu. Mjög tilfmnanleg
verðlækkun á saltfiski í mars hafði
áhrif á meginhluta saltfisksfram-
leiðslunnar á liðnu ári. Humarvertíð
sumarsins 1988 varð sú lélegasta frá
því sumariö 1979. Rekstrartap versl-
ana KASK var 39 milljónir 97 þúsund
og er það miklu meira tap en var síð-
ustu tvö ár.
Hermann Hansson kaupfélagsstjóri.
Meiri kostnaður
Fjármagnskostnaöur KASK hækk-
aöi úr rúmlega 67 milljónum króna
árið 1987 í 205 milljónir 1988 og af
þessari íjárhæð eru rúmlega 52 millj-
ónir gengistap af afurðalánum sjáv-
arafurða.
Ekki er þó allt á niðurleið því í hin-
um hefðbundna landbúnaði ríkti
meira jafnvægi árið 1988 en verið
hefur nokkur undanfarin ár. Bænd-
um virðist hafa tekist að aðlagast
settum framleiðslutakmörkunum og
þó að tíöarfar hafi verið óhagstætt
sl. sumar virðist afkoma bænda í
sýslunni vera betri en að undan-
förnu.
Breytingar á rekstri
Um þessar mundir er aö verða
veruleg breyting á rekstri afurða-
stöðva KASK og hefur rekstri slátur-
húss á Djúpavogi veriö hætt. Sláturfé
af því svæði er flutt til Hafnar en því
sem er norðan Hamarsár er slátrað
í Breiödalsvík. Einnig er hætt viö
slátrun á Fagurhólsmýri svo að
næsta haust veröur einungis starf-
rækt sláturhús á Höfn. Um síðustu
áramót var rekstri mjólkursamlags
á Djúpavogi hætt og nú er öll mjólk
úr Berufirði og Álftafirði flutt til
vinnslu á Höfn.
í ræðu sinni í upphafi fundarins
sagði Hermann Hansson kaupfélags-
stjóri aö nú væri nauösynlegra en
nokkru sinni fyrr aö ná viðunandi
árangri í starfsemi félagsins með
meiri verömætasköpun í framleiðsl-
unni, bættri nýtingu vinnuafls og
fjárfestinga ásamt sparsemi og hag-
sýni á öllum sviðum. Þá mun takast
að snúa halla í hagnaö.
Um síðustu áramót voru félags-
menn í Kaupfélagi Austur-Skaftfell-
inga 788.
Akureyri:
Samherji
keypti
Álftafell
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Útgerðarfyrirtækiö Samherji
hf. á Akureyri hefur keypt togar-
ann Álftafell frá Stöðvarfiröi, og
mun gera togarann út sem ís-
fiskskip frá Akureyri.
Álftafell var smíðað árið 1979
og er því 10 ára. Skipið er 39
metra langt og 299 tonn og því
fylgir 1500 tonna kvóti.
Kristján Vilhelmsson, einn af
eigendum Samherja, sagði i sam-
tali við DV aö kaupverð Álftafells
væri ekki gefið upp. Hvort þessi
kaup myndu breyta áformum
Samherjamanna um aðfá að láta
smíða nýtt skip í stað Þorsteins
EA-610 sagði hann að svo væri
ekki. Það mál væri hins vegar
enn fast í ráðuneytinu. „Við ger-
um okkur hins vegar vonir um
að úr því máli fari að leysast, við
lifum í voninni,“ sagði Kristján.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 14-15 Vb.Ab,- Sp.Lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 14-17 Vb
6mán. uppsögn 15-19 Vb
12 mán. uppsögn 15 16,5 Ab
18mán. uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar.alm. 3-8 Vb.lb,- Ab.Sp,- Lb
Sértékkareikningar 4-17 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2-3 Allir nema Úb
Innlán með sérkjörum 23.5-27 Lb.Bb,- Úb.Vb,- Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 8,75-9 lb,V- b.Ab.S-
Sterlingspund 11,75-12 Sb.Ab,- Vb.Bb
Vestur-þýskmörk 4,75-5,5 Ab
Danskarkrónur 6,75-7,5 Bb,Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv) 25-27,5 Lb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 26,5-30 Lb.Úb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 28,5 31 Lb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,25-9,25 Lb,
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 25-29,5 Lb
SDR 9,75-10 Lb
Bandaríkjadalir 11,75 Allir
Sterlingspund 14,5-14.75 Sb
Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Allir nema Sb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 33,6 ~
MEÐALVEXTIR
överðtr. apríl 89 20,9
Verðtr. apríl 89 8,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala april 2394 stig
Byggingavísitala april 435stig
Byggingavisitalaapríl 136,1 stig
Húsaleiguvisitala 1,25% hækkun 1. april
VERÐBREFASJOÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,766
Einingabréf 2 2.100
Einingabréf 3 2,463
Skammtimabréf 1,301
Lífeyrisbréf 1.893
Gengisbréf 1.697
Kjarabréf 3.747
Markbréf 1,990
Tekjubréf 1,656
Skyndibréf 1.141
Fjolþjóóabréf 1.268
Sjóðsbréf 1 1,807
Sjóðsbréf 2 1,486
Sjóðsbréf 3 1,280
Sjóðsbréf 4 1.064
Vaxtasjóðsbréf 1.2770
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv
Sjóvá-Almennar hf. 278 kr.
Eimskip 340 kr.
Flugleióir 162 kr.
Hampiðjan 158 kr.
Hlutabréfasjóður 122 kr.
Iðnaðarbankinn 147 kr.
Skagstrendingur hf. 247 kr.
Útvegsbankinn hf. 134 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvorugeymslan hf. 103 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum
og við-skiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnu-
banki kaupa viðskiptavíxla gegn 31%
ársvöxtum og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.