Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989.
Utlönd
Arafat í
Frakklandi
T
Ró sú er ríkti í Beirút í fjóra daga hefur nú verið rofin. Bardagar brutust út
á nýjan leik í morgun. Símamynd Reuter
Vopnahlé rof-
ið í Líbanon
Bjami Hiniiksson, DV, Bordeaux:
Heimsókn Yassers Arafats, leið-
toga Frelsissamtaka Palestínu-
manna, PLO, til Parísar og viöræður
hans við franska ráðamenn er á
margan hátt mikilvægur áfangi fyrir
Palestínumenn og um leið umdeild í
Frakklandi. Arafat kom til Frakk-
lands í morgun og mun dvelja hér
fram á fimmtudag. Mun hann hitta
bæði Mitterrand forseta og Rocard
forsætisráðherra.
Arafat hefur áður heimsótt fjöl-
mörg lönd í Evrópu og jafnvel talað
við páfann en nú sex mánuðum eftir
að PLO viðurkenndi tilverurétt ísra-
elsríkis og opinberar viöræður hafa
farið fram við Bandaríkjamenn er
þetta fyrsta heimsókn Arafats til
vestræns ríkis sem er fastur fulltrúi
í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Frakkland hefur þar að auki leikið
stórt hlutverk í Austurlöndum nær
síðastliðna tvo áratugi. í landinu eru
stærstu hópar múhameðstrúar-
manna og gyðinga í Evrópu og Mitt-
errand hefur löngum lagt sérstaka
rækt yið samband sitt við æðstu
menn ísraels.
Bæði utan og innan Frakklands er
þessi heimsókn álitin hápólitísk.
Rúmlega sextíu fulltrúar kínver-
skra námsmanna fóru í morgun hjól-
andi með úrslitakosti til aðalstöðva
yfirvalda. Ef yfirvöld vilja ekki við-
ræður ætla námsmenn að efna til
fjöldamótmæla á fimmtudaginn.
Námsmennimir sextíu, sem eru
fulltrúar nefndar nýrra stúdenta-
samtaka sem skipulagt hafa mót-
mælin í Peking undanfarnar tvær
vikur, afhentu embættismanni mót-
mælaskjal sitt. í því krefjast þeir
meðal annars viöurkenningar á hin-
Gyðingar mótmæla komu Arafats til
Frakklands og viðræðum hans við
franska ráðamenn. Þessir náms-
menn úr röðum gyðinga i París
mótmæltu með því að fara í gervi
Arafats og Mitterrands.
Símamynd Reuter
Yfirvöld í ísrael hafa lýst yfir
óánægju sinni og samtök gyðinga í
Frakklandi telja heimsóknina ótíma-
bæra. 30. apríl er í Frakklandi helg-
aður minningu þeirra sem fluttir
um nýstofnuðu samtökum sem
námsmenn í um fjörutíu háskólum í
Peking eru aðilar að.
Yfirvöld hafa fengið frest þar til á
hádegi á morgun til að svara. Ef ekk-
ert svar berst ætla námsmenn að
gera alvöru úr þeirri hótun sinni að
efna til fjöldamótmæla á fimmtudag-
inn en þá eru sjötíu ár hðin frá þvi
að fjöldi kínverskra námsmanna
mótmælti íhlutun erlendra aðila í
Kína.
Reuter
voru í útrýmingarbúðir nasista og
2. maí minnast gyðingar um allan
heim hlutskiptis síns í síðari heims-
styrjöldinni. Mitterrand sendi gyð-
ingasamtökunum bréf í síðustu viku
þar sem hann fullvissar þau um sam-
'úö sína og stuðning sinn við málstað
ísraels. Hefur það róað leiðtoga gyð-
inga sem engu að síður skipuleggja
mótmælagöngur.
Franskir stjórnmálamenn eru
ýmist með eða móti. Arafat mun hitta
formenn sósíalista og Kommúnistá-
flokksins en leiðtogar hægri manna
eru ýmist fjarverandi eða neita að
hitta Arafat. Miðjumenn eru frekar
jákvæðir gagnvart heimsókninni.
Eins og oft áður skipta innanlands-
stjórnmál miklu máli í viðbrögðum
flokkanna. Sósíalistar hafa gegnum
tíðina tengst gyðingum sterkum
böndum og atkvæði hinna síðar-
nefndu fallið þeim í skaut.
Fyrir PLO er þessi heimsókn bæði
viðurkenning á starfi undanfarinna
mánaða og undirbúningur fyrir þá
komandi. Frakkar sýna hins vegar
að þeir láta sig varða málefni Austur-
landa nær og að utanríkisstefna
þeirra er sjálfstæð þrátt fyrir gott
samstarf við ísrael.
Mótmæli geta veriö þreytandi. Þessi
kinverski námsmaöur notaöi tæki-
færið til að hvila sig þegar færi galst.
Símamynd Reuter
Sprengjuárásir og skothríð dundi
á ný á íbúum Beirút í Líbanon í
morgun. Bardagar geisuðu einnig í
fjöllunum í kringum Beirút og nær-
liggjandi þorpum. Þar með hefur
fiögurra daga vopnahlé kristinna
manna og múhameðstrúarmanna
verið rofið.
Heimildir innan Beirút segja aö
þrír hafi beðið bana og átta særst í
árásum sem hófust fyrir dögun í
morgun. Eitthvað dró úr skotbardög-
um þegar daga tók.
Bardagarnir í morgun eru þeir
verstu síðustu 10 daga. Margir óttast
að þeir hafi bundið enda á vopnahlé
það er Arababandalagið kom á milli
kristinna manna undir stjórn Aouns
herforingja og múhameðstrúar-
manna sem Sýrlendingar styðja.
Sex vikna bardagar hafa nær því
lagt borgina í rúst og neytt rúmlega
2 milljón íbúa hennar til að flýja
heimih sín og hafast viö í neðanjarð-
arbyrgjum. Rúmlega 380 hafa látiö
lífið og meira en 900 særst.
Þessir nýju bardagar geta komið í
veg fyrir að fulltrúar Arababanda-
lagsins, sem koma áttu til Líbanon í
dag eða á morgun, komist.
Reuter
Yfirvöldum settir
úrslitakostir
DREFING A VÖRUM FRA aita.
■ D
r
Mixerar - effektar - míkrófónar - heyrnartæki - mælitæki - spennugjafar - hleðslutæki og rafhlöður - reykskynjarar « ## „ , . _
- bilhátalarar - Ijósasjó - dyrasímar - 100 V linukerfi - verkfæri - alls konar spray - snúrur og tengi. O wm OTTftVlll Trt otangarnyl O,
Besta verð á islandi og þó viðar væri leitað. Sendum mynda- og verðlista. ÖlliaVUl U.J. U1 • s. 674099