Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1989, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1989.
Iþróttir
„Æfingarnar
innanhúss
eru mjög
mikilvægar"
- segir John Gardner, landsliðsþjálfari fslands
í golfi, í viðtali við DV
• John Gardner, landsiiðsþjálfari til vinstri, og John Barnwell, atvinnu-
maður og golfkennari á Akureyri, glugga í gögn og athuga frammistöðu
einstakra kylfinga. DV-mynd gk, Akureyri
„Þegar ég var að fara til Islands fyrst spurði fólk
mig hvert ég væri eiginlega að fara og ég sagðist vera
að fara til íslands. „Já, ertu að fara í frí, á skíði?“ var
þá spurt. Nei, ég er að fara þangað til að kenna golf.
„Golfl Eiga þeir einhverja golfvelli þar? Já, þeir eiga
28 golfvelli sagði ég þá. Þá loksins fóru menn að
hugsa. Sjáðu til, í Evrópu kemur snjór fyrst upp í
hugann þegar fólkið heyrir orðið ísland og það er
reyndar ekki hægt að spila golf í snjó. Ég segi fólki
að hér sé ekki alltaf snjór, ísland sé mjög fallegt land
og ég tek með mér myndir heim til að sýna fólkinu
og reyni að segja því hvernig ísland er.“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það er Englendingurinn John
Gardner, landsliðsþjálfari íslands í
golfi, sem hefur orðið en DV hitti
hann að máli er hann var að kenna
unglingum á Akureyri í síðustu
viku. John, sem réðst til Golfsam-
bands íslands á síðasta ári sem
landsliðsþjálfari, er stórkostlegur
persónuleiki. Það geislaöi af hon-
um við kennsluna. Hann hafði aga
á hlutunum en ávallt var stutt í
húmorinn og með þessari blöndu
hélt hann athygli um 20 unglinga
vel vakandi.
Enginn samningur
„Til eilífðarnóns,“ sagði Gardner
þegar hann var spurður aö því
hversu lengi samningur hans við
Golfsamband íslands varaði. „Ég
hef engan samning og vil engan
samning. Ég er heiöarlegur náungi
sem ætla að starfa hér lengi, fram
á næstu öld eða jafnvel svo lengi
sem ég lifi, eða eins lengi og þið
viljiö mig.“
Það er fróðlegt að velta þessu fyr-
ir sér. Sá maður sem þetta segir er
enginn „meðaijón“ þegar golf og
golfkennsla er annars vegar. John
Gardner, sem hefur verið atvinnu-
maður í golfi í 26 ár, var i fremstu
röð kylfmga í Evrópu og lék i Evr-
ópuúrvali (Ryder-Cup hði) 1971 og
1973. Hann gerðist landsliösþjálfari
írlands 1967 og undir hans stjórn
unnu írsk landslið alla titia sem
hægt var að vinna í Evrópu. Það
er því ljóst að annan eins hvalreka
pg að fá þennan mann til starfa
hefur ekki áður rekið á fjörur kylf-
inga hér á landi.
Verst við flatirnar
Gardner sagði við hina ungu kylf-
inga á Akureyri að það sem ein-
kenndi kylfmga hér á landi væri
aö frá teig og ^ð flöt væru þeir jafn-
góðir ogáÚrir kylfmgar en við flat-
irnar kæmi helsti veikleiki þeirra
fljós.
„Þetta er ekki alfarið ykkur að
kenna því það stafar af því m.a.
hversu stutt sumarið er hér,
hversu stuttur sá tími er sem hægt
er að æfa og leika við bestu aðstæð-
ur. En það er hægt að laga þetta
mikið.
Það er hægt að æfa innandyra þá
hluti sem framkvæma þarf nærri
flötunum og á þeim, innáskotin,
púttin og þetta allt saman. Æfingar
innanhúss á þeim tíma, þegar ekki
er hægt að leika golf úti, eru geysi-
lega mikilvægar og raunar grund-
vallaratriði ef árangur á að nást.
íslendingar ná ekki árangri i hand-
boita ef þeir æfa bara 4 mánuði á
ári. Það þarf að æfa allt árið og
auðvitað gilda ekki aðrar reglur
varðandi golfið.
Ég er svo heppinn að þeir erlendu
golfkennarar, sem eru hér á íandi,
tala sama tungumál og ég og þá á
ég ekki við enskuna. Ég á við að
þeir tala „John Gardners tungu-
mál“ við kennsluna. Þetta er afar
mikilvægt."
Nýtt landslið
John Gardner hefur ákveðnar hug-
myndir um hversu langan tíma það
taki að byggja upp sterkt landsliö
íslands í öllum flokkum. Varðandi
karlaliðið segir hann að það taki
4-5 ár að endurnýja liðiö. Hann
nefnir þó sterka kylfinga af „eldri
kynslóðinni" sem séu góðir og æfi
vel og þeir yngri þurfi auðvitað að
sanna hæfni sína í samkeppni við
þessa menn. En hann er bjartsýnn.
„Eftir 4 ár verða íslendingar fær-
ir um að keppa á öllum mótum í
Evrópu," segir hann og það er al-
veg Ijóst að hann hefur trú á ís-
lenskum kylfingum.
„Það eru greinilegar framfarir
þjá yngri kylfingum hérlendis, þær
eru áberandi þar sem aðstaða er
góð til inniæfinga, t.d. í Reykjavík,
á Akranesi og hér á Akureyri.
David Barnwell, kennari hér á
Akureyri, hefur gert mjög góða
hluti hér t.d. og komiö upp mjög
góöri aðstöðu og þaö-skilar sér.“
- Hvemig líst þér á þehnan hóp
sem þú hefur verið með hér á Ak-
ureyri?
„Mjög vel. Krakkarnir hafa
greinilega mjög mikinn áhuga á að
ná árangri. Þeim hefur farið mikið
fram og þeir hafa aðstöðu til þess
að æfa vel innanhúss þangað til
snjórinn verður farinn."
Nú leit Gardner út um gluggann
en snjóskaflinn fyrir utan var vel
á annan metra á hæð. Hann hristi
höfuðið og sagði: „Þetta er ótrú-
legt.“
Pat er frábær
Talið barst að Pat Smillei, ungri
golfkonu frá Skotlandi sem hefur
einnig verið ráðin sem kennari við
Golfklúbb Akureyrar. Gardner
þekkir vel til Pat því hann hefur
alla tíð séð um þjálfun hennar en
hún er með 0 í forgjöf og hefur get-
iö sér gott orð sem kennari. „Hún
er stórkostleg og hefur mjög alhliða
þekkingu á golfi, er mjög góður
kennari sem gengur ákveðið eftir
hlutunum. Ég hef áhuga á aö hjálpa
fleiri golfklúbbum hér varðandi
ráöningu á kennurum og er að
vinna að því, t.d. fyrir Akranes og
Hafnarfjörð.“
Lífleg kennsla
Það var gaman að fylgjast með
kennslunni hjá Gardner á Akur-
eyri. Unglingunum var skipt niður
í hópa sem æfðu ýmis atriði golfs-
ins. Jafnframt kallaði hann einn
og einn fyrir og tók golfsveiflu við-
komandi upp á myndband. Síðan
sýndi hann þessar myndir í lok
kennslunnar og viðkomandj fékk
þá skriflegt hvað væri að hjá hon-
um og hvað hann þyrfti að bæta.
Þegar Gardner kemur svo næst til
Akureyrar, eftir 3 vikur, verður
farið yfir hlutina aftur og þá sér
hann hvort viðkomandi hefur tekið
sig á og lagað það sem að var. Sagt
er að hann sé lítt hrifinn ef hann
sér ekki breytingu í rétta átt. En
er þetta ekki einmitt rétta leiðin til
að ná árangri? Ef litið er á feril
Johns Gardner sem þjálfara er ör-
ugglega hægt að svara þeirri
spurningu játandi. Hann er maður
sem veit hvað hann syngur þegar
golfþjálfun er annars vegar og á án
efa eftir að gera kraftaverk á ís-
lenskum kylfingum.
• „Þú átt að gera þetta svona,“ segir John Gardner landsliðsþjálfari við áhugasaman kylfing. Svipur lands-
liðsþjálfarans ber vott um mikla einbeitingu og áhuga. DV-mynd gk, Akureyri