Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
Fréttir
Sandkom dv
Jón R. Steindórsson flugstjóri:
Hún er eins og
sportbfll með öllu
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Þetta var alveg rosalega gaman.
Hún er eins 'og sportbíll meö öllu,“
sagði Jón R. Steindórsson, flugstjóri
Aldísar, hinnar nýju Boeing 737-400
þotu Flugleiða, en hún kom til lands-
ins í fyrsta sinn á laugardagsmorgun.
„Þetta gekk allt mjög vel. Við þurft-
um aö taka eldsneyti í Montreal en
veður hefði mátt vera betra í Reykja-
vík. Ætlunin var að taka einn hring
og leyfa borgarbúum að sjá vélina
en veðursins vegna var það ekki
hægt,“ sagði Jón. Aðstoðarmaður
hans í fyrsta fluginu var Árni Sig-
urðsson.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, gaf þotunni nafnið Aldís með
því að ausa hana vatni úr fljótum
allra landsfjórðunganna þegar þot-
unni var fagnað við hátíðlega athöfn
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þeir sem fluttu ávörp og óskuðu
Flugleiðum til hamingju voru Stein-
grímur J. Sigfússon samgönguráð-
herra, Pétur Einarsson flugmála-
stjóri, Þorgils Óttar Mathiesen, fyrir-
liði landsliðsins í handknattleik, og
Borge Boeskov, aðstoðarsölustjóri
Boeing verksmiðjanna. Athygli vakti
að hann talaði íslensku. Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, og Sig-
urður Helgason stjórnarformaður
fluttu einnig ávörp.
Aldís er fyrsta vélin af fimm sem
Flugleiðir hafa fest kaup á. Að lokn-
um ávörpum var gestum boðið að
þiggja veitingar og skoða vélina.
Sumarvinna á KeflavíkurfLugveUi:
Ráðningar svipaðar
og undanfarin ár
„Ætli við ráðum ekki um 100
manns i sumarafleysingar. Það örlar
á aðeins meiri eftirspum eftir vinnu
nú en verið hefur undanfarin ár en
það er fullsnemmt að svara nokkru
endanlegu um það,“ sagði Baldur
Guðjónsson hjá ráöningarþjónustu
varnarliösins í samtali viö DV.
Heyrst höfðu raddir um að mun
meiri ásókn væri í sumarvinnu á
Keflavíkurvelli í ár en í fyrra, þegar
vantaði í einhver störf, og að Skand-
inavar væm meðal umsækjenda.
„Það eru engir Skandinavar á skrá
hjá okkur ennþá. Ástæðan fyrir því
aö vantaði í störf hjá okkur í fyrra
er sú að vamarliðið baö seint um
fólk í sum störf, þar á meðal í ágúst.
Var þá um tveggja mánaða störf að
ræða sem fólk vildi ekki ráða sig í.
Vanalega ráðum við 90-120 manns í
sumarvinnu en þörfm fyrir vinnuafl
er ekki alveg jöfn allan sumartím-
ann.“
Hjá íslenskum aðalverktökum var
DV tjáð að hvert sumar væri ráðið
töluvert af sumarfólki. Fengju flestir
vinnu sem sæktu stíft eftir því en
aldurstakmark væri 17 ár. Vinnu-
framboö er háð verkefnum en þau
byrjuðu í seinna lagi í fyrra. Þá var
ráðið í á annað hundrað sumaraf-
leysingastöður.
-hlh
Jón R. Steindórsson yfirflugstjóri sýnir forseta íslands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur, flugstjórnarklefa hinnar nýju þotu Flugleiða.
DV-mynd Ægir Már
Sverrir Hermannsson bankastjóri:
Ríkisendurskoðun
nær ekki yfir
Landsbankann
„Eg átta mig ekki á þessari ósk
fyrrum félaga minna í Sjálfstæðis-
flokknum um sérstaka skýrslu
Ríkisendurskoðunar um trygging-
ar Landsbanka íslands vegna
skulda Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga við bankamr. Bankinn
heyrir ekki undir Ríkisendurskoð-
un þótt hann sé í ríkiseign. Hann
hefur sína kjörnu endurskoðendur
og til er sérstakt bankaeftirlit sem
fylgist með bönkunum," segir
Sverrir Hermannsson, bankastjóri
Landsbankans, um ósk Guðmund-
ar H. Garðarssonar og átta annarra
þingmanna Sjálfstæðisflokksinns
um sérstaka skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um tryggingar bankans
vegna skulda SÍS við hann.
Að sögn Sverris er Landsbankinn
í viðamiklum viöræðum við Sam-
band íslenskra samvinnufélaga um
stöðu fyrirtækisins og skulda j>ess
viö bankann. Sverrir er fulltrúi
bankans í þessum viðræðum.
-JGH
Árla á laugardagsmorgun komu nokkrir lögregluþjónar að læknum í Naut-
hólsvík og báðu viðstadda um að fara til síns heima. Eitthvað mun mönnum
hafa vegnað misvel i samskiptum sínum við Bakkus. Ástandið var misjafnt
- sumir enn sprellfjörugir en aðrir i fastasvefni.
Kópavogur:
Skemmdir unnar á bílum
Um helgina voru unnar skemmd-
ir á tíu bílum í Kópavogi; rúður
voru brotnar og loftnetsstengur
beygðar eöa brotnar. Aðfaranótt
laugardags voru sjö bílar skemmd-
ir í vesturbænum en ekki náöust
þeir sem þar voru aö verki. Aö-
faranótt sunnudags voru þrír bílar
skemmdir og náðust skemmdar-
vargamir. Að verki voru ungir
menn nokkuð vel ölvaðir og fengu
þeir að sofa úr sér í fangageymslum
lögreglunnar. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvort þeir handteknu eiga líka
sök á skemmdunum sem unnar
voruaöfaranóttlaugardags. -JJ
Fiski ekið frá Suður-
nesjum til Eyjafjarðar
Að undanförnu hefur á annað þús-
und tonnum af slægðum og ísuðum
fiski verið ekið á Eyjafjarðarsvæðið
frá Suðurnesjum. Veiði hefur verið
fremur lítil á Norðurlandi. Aðilar þar
hafa keypt fiskinn til skreiðarfram-
leiðslu og hefur hann m.a. farið til
Grenivíkur, Svalbarðseyrar, Ár-
skógssands og Dalvíkur. Ætlunin er
að hann fari í skreið til Ítalíu.
Guðmundur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hóps í Grindavík, seg-
ir að ítalir vilji frekar fá skreið sem
kemur frá Norðurlandi.
„Fiskurinn er veiddur í djúpkönt-
unum og hentar prýðilega í skreið.
Við teljum okkur ekki hafa minna
upp úr því aö slægja hann og hausa
og selja hann norður í körum en að
vinna hann í salt,“ segir Guömund-
ur.
ÓTT
Norræna nemakeppnin 1989:
íslenskir þjóna-
nemar sigruðu
Tveir íslenskir þjónanemar, Níels
Hafsteinsson og Svava Björk Jóns-
dóttir, báru sigur úr býtum í fram-
reiðslu hluta norrænnar keppni fyrir
framreiðslu- og matreiðslunema sem
haldin var í Sandviken í Svíþjóö dag-
ana 21.-23. apríl. íslensku keppend-
umir í matreiðslu, Jón Daníel Jóns-
son og Hafsteinn Sigurðsson, urðu í
fjórða sæti.
Að sögn Níelsar stóð keppnin í þrjá
daga og samanstóð bæði af verkleg-
um og skriflegum verkefnum. ís-
lensku keppendurnir voru valdir eft-
ir forkeppni sem haldin var í lok jan-
úar.
Þau Níels og Svava Björk hlutu að
launum farandbikar, eignarbikar
sem og önnur verðlaun.
Árið 1991 verður norræna nema-
keppnin haldin á íslandi.
Ekkert kaupfé-
lagsfundan/eður
Þaðhefur
veriðhaftáorði
að þegar aðal-
fundurKaup-
félagsEyfinl-
ingaséhaldinn
ár hvert bresti :
áhiðversta
veðurogdaani;
eruþessaö
fundurinn hafi
verið haldinn í
kulda og jafnvel snjóhraglanda í lok
maí. Fundurinn íár var haldinnsl.
föstudag og brá þá svo við að veður-
guðimir skörtuðu sínu fegursta, sól
skein í heiði og því var sólbráð mik-
il. Þetta á ekki aö koma á óvart þ ví
veöurglöggir menn hafa spáð snjó-
léttu sumri á Norðurlandi í ár eftir
fádæmaharðan vetui'. En þótt bjart
liafi verið yfir veðurguðunum þenn-
an dag var víst ekki jafnbjart yfir
reikningum KEA að þessu sinni og
oftast áður því þeir sýndu tap á
rekstri félagsins sem var yfir 200
milljónir króna á síðasta ári.
Beta og
móttökutækið
Þeirerulíf-
seigirHafnar-
ijarðarbrand-
amirogsífellt
finnast tleiri og
fleiri brímdar-
arsemekkiem
bemlínissamd-
ir um I hifnfirð-
ingaheldur
heimfærðir
uppáþáefúr
kúnstarinnar reglum. Víkurblaðið
eina og sanna á Húsa vík sagði frá þ ví
á dögunum að Hafnfirðingur einn
hefði verið spurður að þvi hvað væri
10 sentímetra fyrir neðan mittismál
ElisabetarBretadrottningar. Þetta
vafðist ekki fyrir Hafhfirðingnum
frekar en annað sem þeir þurfa við
að glíma, blessaöir, og svarið kom
strax: „Philips móttökutæki"!
Æ, æ, æ..!
Þeiremlíf-
seigirmjög
sumirþessara:
Hafnarijarðar-
brandara.
Mörgum finnst
þaðhinsvegar
skemmadáhtið
fyrirvarðandi
þá hversu létt
Hafnfirðing-
arnirsjálfir
taka þeim og segja þá jafnvel sjálfir.
Sumir taka hins vegar þessa Hafnar-
fjarðarbrandara og heimfæra þá upp
á íbúa annarra sveitarfélaga og hefur
dálítið borið á þvi á Akureyri að þar
segi raenn þessa brandara um Hús-
víkinga í stað Hafnfirðinga. Einn slík-
anraká fjörar okkar i síðustu viku
og hljóðaöi þannig: Veistu hvað kom
fyrir Húsvíkinginn sem var að fikta
í naflanum á sér með skrúfjámi? -
Nei, hvað gerðist? - Þaö duttu af hon-
um báðar rasskinnarnar!
Starramirtveir
Starri í Garði
í Mývatnssveit
erlöngulands-
kutmurmaöur,
ennúerannar
Starri kominn
ákreikíÞing- .
e.vjarsýslunni
oglæturmikið
aðsérkveða.Sá
erreyndar
Hjartarsonog
berst fyrir því að varaflugvöllur fyrir
millilandaflug verði byggður í Aöal-
dai en það mun eldri Starranum mjög
á móti skapi. Eldri Starrinn kvartaði
undan því í Vikurblaðinu að ungi
Starrinn, sem hefur ferðast um sveit-
ir með undirskriftalista flugvellinum
til stuðnings, hefði ekki hcimsótt sig.
, ,Hann kom að vísu hér heim í hlað,
akandi og skimaði í kringum sig en
líklega hefur hann þekkt okkur feðga
sem voram úti við og þá áttaö sig á
því hverthann var kominn,“ segir
eldi Starri. Ungi Starrinn scgisthins
vegar hafa bankað upp á hjá þeim
eldri en hann hafi ekki verið við og
ber þarna mikið á milli eins og gjarn-
an hefur verið haft á orði síðustu vik-
urnar.
Umsjón: Gylti Kristjánsson
-StB