Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Side 19
■
,
■ : . . ■ ' ' ■
Lottó:3-17-19-20-25-(36)
Getraunir:112-X11-112-X1>
Einar náði
risakasti
í Texas
kastaði 86,42 m sem var hárfínt ógilt íslandsmetið 84,66 m.
„Er í dúndurformi,“ segir Einar Vilhjálmsson
„Þetta var mjög skrítið allt saman. Ég er alls ekki hissa á
þessum árangri og tel mig mun betur undirbúinn fyrir
keppnistímabOið nú en í fyrra,“ sagði Einar Vilhjálmsson
spjótkastari í samtali við DV í gær. Einar keppti í spjót-
kasti á móti í Texas í Bandarikjunum í gær og var hársbreidd frá
því að bæta íslandsmet sitt yerulega. Einar kastaði 86,42 metra en
gerði kastið naumlega ógOt. íslandsmet Einars er 84,66 metrar.
• Einar Vilhjálmsson náði frábæru kasti i Texax i gær á fyrsta móti
ársins. Risakast hans mældist 86,42 m en var hárfint ógilt. íslandsmet
Einars er 84,66 m. DV-mynd BrynjarGauti
„Þetta var nú hálfgert klúður. Ég
var heima hjá mér í rólegheitum
að undirbúa mig fyrir mótið þegar
síminn hringdi og mér var tjáð að
spjótkastkeppnin væri að byrja.
Það hafði fallið út heOl riðill í
kringlukastkeppninni og þvi færð-
ist spjótkastið framar á dagskrána.
Ég þaut út í bíl og haíöi lokið
keppni aðeins 25 mínútum síðar.
Það gefur því augaleið aö ég gat
ekkert hitað upp fyrir keppnina,“
sagði Einar og hló að öllu sam-
an.
Menn stóðu agndofa
yfír risakastinu
Þegar spjótkastkeppnin hófst var
80 metra markið vandlega merkt
og áttu menn ekki von á lengra
kasti. Lengsta kast Einars sveif
hins vegar langt fram fyrir merkiö
og stóðu starfsmenn og dómarar
agndofa er spjótið hafði numiö
staðar. Einar sagði í gær: „Það
munaöi mjög htlu að ég gerði þetta
kast gOt. Ég steig aðeins fram fyrir
línuna. Ég er í dúndurformi núna
og var ekki rpjög svekktur þótt
kastiö væri ógilt. Ég á mikiö inni
og mun mæta grimmur á næsta
mót sem verður í lok júní. Síðan
taka Grand Prix mótin við í sum-
ar.“
65 metrar án atrennu
Þess má geta að hamagangurinn
var svo mikOl þegar Einar var að
kasta að hann varð að tryggja sig
í keppninni með þvi að kasta einu
kasti án atrennu og mældist það
65 metrar. Það sýnir vel hve Einar
virðist öflugur um þessar mundir.
Á sama tíma í fyrra og á sama stað
kastaöi Einar 83,66 metra og þá við
eðlúegar aðstæöur. „Ég er allur
annar maður en í fyrra og hef ekki
misst úr dag við æfmgar vegna
meiðsla. Þetta lítur óneitanlega
mjög vel út og ég er mjög bjartsýnn
á góðan árangur í sumar,“ sagði
Einar Vilhjálmsson við DV.
-SK
Viggó þjálfar
Hauka eða Mayo
- önnur félög koma ekki til greina
„Ég hef ekki enn tekið ákvörðun
um hvort ég fer til Tres De Mayo eða
ekki. Ég reikna með að þau mál ský-
rist í næstu viku. Þó verður það að
segjast eins og er að það eru viss at-
riði sem gera það að verkum að mað-
ur er kannski ekki alltof spenntur,"
sagði Viggó Sigurðsson handknatt-
leiksþjálfari í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Ef Viggó fer ekki til Spánar og þjálf-
ar lið Tres De Mayo mun hann taka
við þjálfun 2. deildar liðs Hauka í
Hafnarfirði en Viggó hefur sem
kunnugt er þjálfað hitt Hafnarfjarð-
arliðið, FH, síðustu árin. Haukum
yrði eflaust mikill fengur í Viggó en
Haukamenn munu leggja mikla
áherslu á að komast í 1. deild að
loknu næsta keppnistímabili. Sam-
kvæmt öruggum heimildum DV eru
nokkuð meiri líkur á því að Viggó
þjálfl lið Hauka en Tres De Mayo en
málin skýrast endanlega í næstu
viku. Munu það ekki síst vera mjög
löng ferðalög milli leikstaða á Spáni
sem vefjast fyrir kappanum.
-SK
• Viggó Sigurðsson - liklegra að hann þjálfi Hauka en Tres De Mayo.
Vilja Valsmenn f á 2 milljónir fyrir Sigga?
sjá bls. 25