Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 26
26
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
Iþóttir
Steffi Graf frá Vestur-Þýskalandi, besta tennlskona heimsins í dag, er gengin út. Á myndinni hér að ofan sjást hennar nánustu fylgjast
með henni í keppni á dögunum. Lengst til hægri er Alexander Mronz, 24 ára unnusti tenniskonunnar sem er 19 ára. Margir kynnu að halda að Graf
sæti sjálf við hlið hans en þar er systir hennar, Heidi Graf. Til vinstri á myndinni er Michael, bróðir Graf, og fremst er elsti bróðir hennar, Peter Graf.
Símamynd Reuter
Frétta-
stúfar
Argentlnska knatt-
spyrnugoðiö Diego
Armando Maradona,
sem leikur sem
kunnugt er með ítalska liðinu
Napolí, þykir hafa hrapaö víða
í áliti eftir fyrri úrshtaleik Na-
polí og Stuttgart.
Þar handlék Maradona knött-
inn viljandi er hann fiskaði
vítaspyrnu. Eftir leikinn viður-
kenndi Maradona að hann
hefði reynt allt til aö fiska um-
rædda vítaspymu.
Mörgum þykir kappinn hafa
lagst lágt og víst er að fram-
koma hans er ekki til fyrir-
myndar ungum knattspymu-
mönnum sem dá þennan óum-
deiianlega snilling. Vonandi
lætur Maradona af þessum
ósið, að reyna að blekkja dóm-
arann aftur og aftur.
Fékk dómarinn
sumarhúsið?
Uppi eru háværar
raddir þess efnis að
dómaranum, sem
dæmdi leik Napolí og
Stuttgart á dögunmn, hafi verið
mútaö af forráöamönnum
ítalska liðsins.
Er því haldiö fram aö dómar-
inn hafi þegið sumarhús í
Grikklandi af forráöamönnum
Napolí ef hann hagræddi hlut-
um ítalska liðinu í hag í leikn-
um.
Dómarinn, sem er grískur,
var að dæma sinn síðasta leik
og þykir það geta rennt stoðum
undir ásakanirnar sem einkum
hafa komið frá forráðamönn-
um Stuttgart. Margt annað
varöandi fyrri leik Uðanna fór
í taugar Þjóðverjanna og er
ekki enn séð fyrir endann á
kvörtunum þernra varöandi
ýmsa hluti.
Sæmundur og Elísa-
bet hlutskörpust
- á golfinóti íslendinga á Spáni
Með vorkomunni fara kylfmgar að keppa á hverju mótinu á fætur öðru
en fyrsta mótið, þar sem íslendingar eru einir keppendur, fór fram í síðasta
mánuði á Spáni. Það voru 50 hressir kylfingar á ferð á vegum Samvinnu-
ferða-Landsýnar sem reyndu með sér á Benidorm. Leiknar voru 18 holur
og vegleg verðlaun voru í boði sem ferðaskrifstofan gaf.
í keppni karla án forgjafar sigraði Sæmundur Pálsson, GR, á 69 höggum.
Annar varð Baldvin Jóhannsson, GK, á 82 höggum og þriðji Helgi Eiríksson,
GK, á 83.
í keppni kvenna án forgjafar sigraði Elísabet Gunnlaugsdóttir, GR, á 98
höggum. í 2. sæti varö Kristín Zoega, GR, og þriðja Sigríður Mathiesen, GR.
í karlaflokki með forgjöf sigraði Hannes Ingibergsson, GR. í kvennaflokki
með forgjöf sigraði Herdís Siguröardóttir, GR. Mótsstjóri var fararstjórinn
kunni, Kjartan L. Pálsson.
-SK
• Frá verðlaunaafhendingunni á Benidorm. Kjartan L. Pálsson afhenti
verðlaunin. Hér tekur Elsa Wium, GR, við verðlaunum sínum.
vinstri: Morten Ottesen, born hans, Tinna og Atli, og Gisli Gislason.
DV-mynd G.Bender
Enginn snjór í Hvammsvík
„Golfvöllurinn hér í Hvammsvík
er í mjög góðu ásigkomulagi og hér
er enginn snjór," sagði Ólafur
Skúlason hjá Laxalóni og aöalmað-
ur á útivistarsvæðinu í Hvamms-
vík í ’samtali viö DV.
Kylfingar víða um land hafa átt
í erfiðleikum með aö leika golf á
völlum sínum vegna snjóþyngsla.
Því er þó ekki fyrir að fara í
Hvammsvíkinni og þegar DV-menn
voru á staðnum á dögunum var
greinilegt að völlurinn kemur miög
vel undan vetri. „Við erum aö hefja
vinnu við völlinn og munum meðal
annars búa til „bönkera1' nú í vor.
Og ef ekki rignir mikið í þessum
raánuði verður völlurinn mjög góð-
ur í sumar," sagði Ólafur Sktilason |
ennfremur. Völlurinn i Hvamm-
svík hefur {regar verið opnaöur og I
hafa kylfingar verið iðnir viö að
leika þar siðustu daga. Til merkis
um gott ástand vallarins má nefna
að þar er hægt að leika svo tii
„hreyfingarlaust" golf.
-SK