Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Page 27
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
27
Tveir landsleildr gegn Færeyingum í blaki um helgina:
Mér f annst vanta
kraft í strákana“
i
- íslendlngar unnu örugga sigra 1 báðum leikjunum
„Þetta er ákveðin frumraun hjá þessu liði, þjálfarinn er með til-
raunastarfsemi og er að leita að því byrjunarliði sem hann kemur
til með að nota. Mér fannst vanta kraft í strákana, það var ekki
nógu mikil harátta í þeim en vonandi verður búið að kippa þeirri
hlið mála í lag fyrir smáþjóðaleikana, sem verða á Kýpur, eftir rúma
viku,“ sagði Kjartan Páll Einarsson, formaður Blaksambandsins,
eftir seinni viðureign íslendinga og Færeyinga í blaki um helgina.
Fyrri leikurinn fór fram í Haga-
skóla á laugardag. Áhorfendur
voru vart fleiri en fimmtán og
eflaust hefur það hjálpað til við að
gera leikmenn áhugalausa og ann-
ars hugar. Leikurinn var heldur
bragðdaufur og þessir fáu áhorf-
endur fengu lítið bitastætt tii að
smjatta á.
íslenska liðið var töluvert sterk-
ara en það færeyska, en gerði of .
mikiö af mistökum. Færeyingar
voru með heldur lágvaxið lið og
sóknir þeirra voru ekki öflugar. í
gegnum árin hefur þeirra aðal ver-
ið góð vörn, en þennan dag ein-
kenndi áhugaleysi leik þeirra og
þurfti íslenska liðið ekki mikið að
leggja á sig til að sigra. Enda fór
leikurinn 3-0 á aðeins 55 mínútum.
ísland komst strax yfir í fyrstu
hrinu, Færeyingar jöfnuðu, 3-3, en
síðan varla söguna meir því ísland
vann, 15-4. Önnur hrinan var tölu-
vert skemmtilegri og þurftu okkar
menn að hafa meira fyrir sigrinum
í henni. Mikið var haft fyrir hverju
stigi og liðin skiptust bróðurlega á
stigum upp í 12-12, en þá kom ágæt-
ur kafli hjá íslenska liðinu og það
vann, 15-12. í þriðju hrinu ákvað
Zhao ShanWen, þjálfari íslendinga,
að skipta algerlega um lið og setti
fimm af sex varamönnum inn á.
_Þeir virtust vera aðeins ráðvilltir í
fyrstu, en náðu síðan yfirhöndinni
og unnu hrinuna létt, 15-5. Bestir
ísiendinga voru Vignir Hlöðvers-
son, Sigurður Þráinsson og Leifur
Harðarson fyrirliði. Dómarar
leiksins voru Gunnar Árnason og
Björn Guðbjörnsson.
Seinni leikurinn fór síðan fram í
Digranesi í gær. Allt annað var að
sjá til liðanna enda nokkuð meira
af áhorfendum en daginn áður.
Færeyingar byrjuðu leikinn af
krafti og komust strax yfir, 4-0, ís-
land jafnaði, 5-5, og náði síðan for-
ystunni, 12-11, en baráttuglaðir
Færeyingar nýttu sér þau mistök
sem íslendingar gerðu og unnu
hrinuna, 15-12. Þetta voru okkar
menn ekki ánægðir með, þeir
mættu öllu ákveðnari í næstu
hrinu og unnu hana létt, 15-6.
Næstu hrinu unnu þeir einnig eftir
að bafa verið undir, 6-1, en henni
lyktaði 15-13. Fjórða hrinan varð
sú síðasta. ísland vann hana, 15-9,
og leikinn þar með, 3-1. Leikurinn
stóð í 93 mínútur og var síðasta
hrinan 29 mínútur, sem þykir ansi
langt. Bestir íslensku leikmann-
anna voru Stefán Jóhannsson,
Vignir Hlöðversson og Þorvarður
Sigfússon. Dómarar voru Ólafur
Árni Traustason og Marteinn Guð-
geirsson.
Þessir leikir voru liður í undir-
búningi íslenska landsliðsins fyrir
þátttöku í Smáþjóðaleikunum á
Kýpur. Liðið hefur einungis æft
síðan 20. apríl og bar leikur liðsins
oft merki þess að samæfingu vant-
aði. Athygli vakti að Jón Árnason,
sem nýiega var kjörinn besti leik-
maður deildarinnar, fékk lítið að
spreyta sig. Þó stóð hann sig ágæt-
lega þegar hann kom inn á.
-gje
„Held að íslenska liðið
hafi aldrei verið betra“
- sagöi Leifur Haröarson fyrirliöi
„Þegar við sáum það í fyrri leikn-
um hver munur var á liðunum fór-
um við að reyna alls kyns fléttur
sem ekki gengu allar upp. í seinni
leiknum voru þeir mun sprækari
en daginn áður en við kannski
heldur öruggir með okkur vegna
úrslitanna í fyrri leiknum. Ég held
að íslenska landsliðið hafi aldrei
verið betra, bæði er móttakan
miklu betri, sem gerir það að sókn-
ir okkar geta verið mun fjölbreytt-
ari, og þar að auki er hávörnin mun
sterkari. Þetta er áð þakka hinum
kínversku þjálfurum sem hér hafa
verið undanfarin ár,“ sagði Leifur
Harðarson, fyrirliði íslenska lands-
liösins, eftir leikinn í gær. Leifur
hefur átt fast sæti í landsliðinu síð-
an 1976 og hefur verið fyrirliði þess
síðan 1980.
-gje
Nokkuð ánægður“
- sagði landsliðsþjálfarinn, Zhao ShanWen
„Ég er nokkuð ánægður með leik minna manna, sóknin var ágæt
en svolítið vantaði upp á að vörnin væri nógu góð. Liðið hefur æft í
mjög stuttan tíma, leikmenn þekkja ekki vel hver inn á annan og
þessa tvo leiki gegn Færeyingum varð ég að nota til þess að ákveða
hvemig byijunarliðið kemur til með að verða á Kýpur,“ sagði Zhao
ShanWen, þjálfari islenska liðsins, eftir seinni leikinn.
Aðspurður hvers vegna hann hefði valið þijá uppspilara í hóp sinn
i stað tveggja, eins og vani hefði verið, sagöi hann að það væri gert
vegna þess stutta tíma sem hann hefði til að þjálfa liðið.
-gje
• Hávörn íslensku leikmannanna Stefáns Magnússonar og Jóns Arnasonar er ekki árennileg enda reynir færeyski leikmaðurinn Jan Hentze hér
að lauma yfir hana. Þjóðirnar léku tvo landsleiki um helgina og unnu íslendingar örugga sigra í þeim báðum. DV-mynd GS
fþróttir
• Alexander Mogilny - hvarf á
braut í Svíariki.
Símamynd/Reuter
Alexander
strokinn
Það gerist æ algengara að íþrótta-
menn austan járntjalds láti sig
hverfa þegar þeir eru á keppnisferð
á Vesturlöndum.
Á dögunum lauk heimsmeistara-
keppninni í íshokkí en mótið fór fram
í Svíþjóð. Sovétmenn urðu heims-
meistarar eftir að hafa sigraö Tékka
í úrslitaleik. Eftir að mótinu lauk
hvarf einn leikmanna sovéska liðs-
ins, Alexander Mogilny. Þjálfari sov-
ésku heimsmeistaranna, Viktor Tik-
honov, sagði í samtali við sovésku
fréttastofuna Tass að Mogilny hefði
ætlað sér að komast að hjá banda-
rísku íshokkíliði.
-SK
Jafntefli
hjá Inter
í Torino
Inter Milan, sem trónir í efsta sæti
í ítölsku knattspyrnunni, gerði jafn-.
tefli viö Juventus, 1-1, í gær. Á sama
tíma gerði Napoli sömuleiðis jafntefli
við Bologna. Rui Barros kom Juvent-
us yfir en Aldo Serena jafnaði fyrir
Inter. Careca skoraði mark Napoli
gegn Bologna og mátti Napoli teljast
heppið aö ná jafntefli. Maradona lék
ekki með Napoli. Að loknum 27 um-
ferðum er Inter með 46 stig en Na-
poli er í öðru sæti með 40 stig.
Úrslit í 1. deild:
Atalanta-Cesena.. Bologna-Napoli... 5-1 1-1
Fiorentina-Como. 3-0
Verona-Pisai 1-0
Juventus-Inter.... 1-1
Pescara-Lazio 0-0
Roma-Ascoli 1-1
Lecce-Sampdoria 1-0
-JKS
-NM- veitti
Real Madrid
harða keppni
Real Madrid þurfti að hafa fyrir
jafnteflinu gegn Bilbao í Baskalandi
í gær. Þrátt fyrir jafnteflið er Real
Madrid með örygga forystu í 1. deild.
Úrslit í deildinni í gær:
Ovideo-Elche..................3-0
Espanol-Valencia..............0-1
Malaga-Osasuna................1-2
Cadiz-Sporting................0-3
Atletico-Real Sociedad........3-0
Bilbao-Real Madrid............1-1
Logrones-Real Zaragoza........0-2
Celta-Real Valladolid.........1-1
Sevilla-RealBetis.........Frestað
Real Murcia-Barcelona.....Frestað
-JKS