Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Qupperneq 44
44
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
Jarðarfarir
Björn Þórarinsson er látinn. Hann
fæddist í Kílakoti í Kelduhverfi hinn
30. mars 1905, sonur hjónanna Ing-
veldar Björnsdóttur og Þórarins
Sveinssonar.' Eftirlifandi eiginkona
hans er Guörún Ásbjörnsdóttir. Þau
hjónin eignuðust átta börn. Útfor
Björns verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
Pálmi Jósefsson lést 26. apríl. Hann
fæddist 17. nóvember 1898 að Finna-
stööum, Sölvadal, Eyjafirði. Foreldr-
ar hans voru hjónin Jósef Jónasson
og Sigríður Jónsdóttir. Pálmi lauk
kennaraprófi frá Kennaraskóla ís-
lands 1923. Að námi loknu réðst hann
til starfa að Miðbæjarskólanum í
Reykjavík en þar var starfsvettvang-
ur hans alla tíð. Pálmi var tvigiftur.
Fyrri kona hans var Helga Níels-
dóttir en eftirlifandi eiginkona hans
er Elín Elísabet Siguröardóttir. Þau
eignuðust tvær dætur og er önnur
þeirra á lífi. Útför Pálma verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Kristín Snæbjörnsdóttir, Hjallavegi
54, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Áskirkju þriðjudaginn 9. maí kl. 15.
Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Ingvar Jónsson vörubílstjóri verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 9. maí kl. 15.
Axel Arnar Þorgilsson, Brekkubyggð
20, Garðabæ, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðju-
daginn 9. maí kl. 15.
Steinunn Pálsdóttir, frá Hofi í Öræf-
um, Laugarásvegi 5, lést á uppstign-
ingardag. Kistulagning fer fram í
Fossvogskapellu í dag, 8. maí, kl. 14.
Ólafur Haukur Ólafsson læknir verð-
ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni
þriöjudaginn 9. maí kl. 13.30.
Útför Hermanns Jónssonar frá Sæ-
bóli, Aðalvík, til heimilis í Bleikar-
gróf 5, fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 9. maí kl. 13.30.
Járnbrá Kristrún Sveinbjörnsdóttir,
Hátúni lOb, lést 20. apríl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Tilkyiinmgar
Kirkjulistahátíð í
Hallgrímskirkju
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju verð-
ur haldin í annað sinn dagana 5.-15.
maí. Óratorían Elia verður flutt laugar-
daginn 6. maí. í hádeginu alla virka daga
frá 8.-12. maí verða orgeltónleikar í kirkj-
unni. Við setningu kirkjulistahátíðarinn-
ar í dag verður opnuð myndlistarsýning
í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýndar
verða vatnslitamyndir eftir Karólínu
Lárusdóttur. Myndirnar hefur Karólína
gert sérstaklega fyrir þessa sýningu en
þær tengjast lífi Krists. Alla virka daga
hátíðarinnar verða kvöldbænir kl. 18.
Árni Rúnarsýnir
á Mokka
Nýlega opnaði Árni Rúnar Sverrisson
sýnlngu á málverkum, klippimyndum og
teikningum á Mokkakaffi viö Skóla-
vörðustíg. Sýningin, sem er sölusýning,
stendur út maímánuð.
Aðalfundur íþrótta-
félagsins Leiknis
verður haldinn miðvikudaginn 10. maí
kl. 20.30 að Austurbergi 1. Dagskrá: 1.
Venjuleg aðalfundarstörf. 2. lagabreyt-
ingar. 3. Önnur mál.
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
heldur spilakvöld mánudaginn 8. maí kl.
20.30 i Þinghól, Hamraborg 11, 3. hæð.
Allir velkomnir.
Safnaðarfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
Konur úr kvenfélagi og safnaðarfélagi
Fríkirkjunnar í Reykjavík ætla að hittast
á Café.Hressó í Austurstræti mánudag-
inn 8. maí kl. 20.30. Fundarefni: Hvað er
framundan? Tökum þátt í starfinu meö
sannleikann að leiðarljósi.
LOKAÐ
þriðjudaginn 9. maí vegna jarðarfarar
HERMANNS JÓNSSONAR
Rekstrarvörur
Draghálsi 14-16
Meiming________________dv
Hvörf Hlrfar
íslenski dansflokkurinn: Hvörf, 4 ballett-
ar eftir Hlif Svavarsdöttur
Tónlist: Hjálmar H. Ragnarsson, Erik
Satie, Þorkell Sigurbjörnsson
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson
Búningar: Sigurjón Jóhannsson, Hlif
Svavarsdóttir, Sigrún Úlfarsdóttir
Frumsýning í Þjóóleikhúsinu 6. maí
Sýning íslenska dansflokksins á
íjórum ballettumn eftir Hlíf Svav-
arsdóttur var merkileg fyrir
ýmissa hluta sakir. Samkvæmt
yfirliti yfir fimmtán ára starfsferil
flokksins sem birt er í leikskrá, er
þetta í fyrsta sinn sem heil sýning
er öll helguð einum íslenskum
dansahöfundi, sem hlýtur að teljast
markverður áfangi.
Sýningin færir okkur einnig
heim sanninn um það hve marg-
þættur dansahöfundur Hlíf er, ef
til vill að því marki að okkur reyn-
ist erfltt að fylgja henni eftir, koma
auga á „rauðan þráð“ í þeirri heild
sem starf hennar er.
Svo ólíkir eru þeir fjórir ballettar
sem sýndir eru undir samheitinu
Hvörf, hvort sem litið er til heildar
þeirra eða blæbrigða innbyrðis.
Rauöur þráður (frumflutningur) er
til dæmis sérdeilis ágengt verk,
uppfullt af niðurbældum ofsa, Inn-
sýn I er knappt og ljóðrænt, Innsýn
II jaðrar við melódrama, en Af
mönnum er í íróníska kantinum,
sem undirstrikaö er af púkablístri
og búkhljóðum í tónlist Þorkels
Sigurbjörnssonar.
Hnykkur á línunni
Fyrst nokkur almenn orð um
sýninguna. Vöntun á samæfmgu
er enn sem fyrr höfuðverkur
flokksins. Þegar samstilltar hóp-
hreyfmgar fara úr skorðum, kemur
hnykkur á þá línu sem dansahöf-
undur dregur í sviðsrýmiö. Þetta
gerðist allt of oft á -frumsýningu,
einkum í Rauðum þræði og Innsýn
II, sem ef til vill má skrifa á frum-
sýningarskrekk.
Ég var heldur ekki viss um að
lýsingin gerði nógu mikið fyrir
dansana. Er ég fylgdist meö stíl-
færðum átökunum í Rauðum
þræði, sem eiga sér staö innan
ámóta stílfærðrar sviðsmyndar,
truflaði það mig að sjá í sífellu
skugga dansaranna bylgjast í tjöld-
Ásdís Magnúsdóttir, Hany Hadaya
og Robert Bergquist í Innsýn I.
Ballett
Aðalsteinn Ingólfsson
unum til hliðar, mynda hrynjandi
sem vinnur á móti hrynjandi sjálfs
dansins. Ekki þótti mér heldur
nógu sniðugt að fylgjast með dökk-
klæddum dönsurunum í Innsýn II
gegnt dökkum bakgrunni. En
þarna er náttúrlega við fleiri en
ljósameistara að sakast.
Ótti, flótti
Eins og áður er drepið á er Rauð-
ur þráður átakaverk, afstrakt til-
brigði um ótta, flótta, yfirgang og
togstreitu, sem dansararnir tjá
ekki aðeins sín á meðal heldur með
samskiptum sínum við sviðsmynd-
ina. Hallandi svið sem endar á
hvassri brún gerir þeim erfitt fyrir,
er aukin heldur sú ysta nöf sem er
leiðarstef dansins. Öðrum megin á
sviðinu standa (og hallast) einnig
tvær stórar hellur, sem dansararn-
ir hjúfra sig að, lesa sig upp eða
kasta sér (og öðrum) á. Flestar
hreyfmgár eru hastarlegar, ágeng-
ar og ógnandi, eða þá að þær snú-
ast upp í hið fáránlega, enda svo
kannski í labbi eða valhoppi.
Rauður þráður (rauðir þræðir
eru á búningunum) er erfitt verk,
bæði að dansa og horfa á, en það
er án efa metnaðarmesta verk Hlif-
ar til þessa, morandi í sláandi til-
tækjum, nýstárlegum lausnum,
áhrifamiklum sjónhornum. Á tón-
list Hjálmars H. Ragnarssonar er
ég ekki dómbær, en hún var öll i
sama stíl og dansinn, allt að því
frumstæð.
Ég var þegi hrifmn af hvítu klæð-
inu sem dansaö er á í byrjun. Marr-
iö í því svarar ekki kostnaði, auk
þess sem samanvöðlað skemmir
það „dansmynd" upphafsatriðis.
Hvítt og svart
Innsýn I var algjör andstæða við
Rauðan þráð, hófstillt, allt að því
klassískt verk með einhverjum
fallegustu paradönsum (og þrí-
dönsum) sem íslenskur dansahöf-
undur hefur samið. Sérstaklega
hugnuðust mér atriði þeirra Ás-
dísar Magnúsdóttur og Roberts
Bergquist annars vegar og þeirra
Sigrúnar Guðmundsdóttur og
Hany Hadaya hins vegar.
Innsýn II, dans dökkklæddra
meyja, var síðan hnýtt aftan við
dans hvítklæddra í Innsýn I. Það
verk var satt best að segja heldur
leiðinlegur samsetningur, fullt af
innihaldslausum og útjöskuðum
hreyfmgum og melódramatískum
ýkjum. Ekki get ég ímyndað mér
annað en verkið hafi verið samið
til uppfyllingar. En allt um þaö var
túlkun Snorra Sigfúss Birgissonar
á píanóskissum Satie afar ljúf.
Af mönnum, verðlaunaballett
Hlífar, veröur æ ásjálegri við frek-
ari kynni. í þetta sinn varð ég var
við kímni, jafnvel glettnislega írón-
íu, í dansinum sem ég ekki skynj-
aöi fyrr.
AI
Flóamarkaður FEF
Félag einstæðra foreldra heldur flóa-
markað í Skeljanesi 6, Skerjafirði, alla
laugardaga í mai kl. 14-17. Alltaf eitthvað
nýtt á hverjum laugardegi.
Andlát
Jón Ingi Guðmundsson sundkennari,
Skúlagötu 54, lést í Landakotsspítala
föstudaginn 5. maí.
Sigurlilja Þórðardóttir lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði þann 3. maí sl.
Andrés Markús Þorleifsson, Efsta-
lundi 2, Garöabæ, lést af slysförum
þann 4. maí.
Jakob Jóhann Thorarensen andaðist
í sjúkrahúsinu á Hólmavík flmmtu-
daginn 4. maí.
Jón Bjarnason lést á Hrafnistu, Hafn-
arfirði, 5. maí.
Reykjavík
Kvíkmyndir_______
Leikbræður
Síðasti dansinn (Sweet Hearts Dance)
Aðalhlutverk: Don Johnson, Jeff Daniels
Leikstjóri: Robert Greenwald
Handrit: Ernest Thompson
Sýnd i Stjörnubiói
Wiley Boon (Don Johnson) og
Sam Manners (Jeff Daniels) hafa
verið vinir frá æsku. Wiley er giftur
Söndru (Susan Sarandon) og á þrjú
börn en Sam er enn ólofaður. Sam
eyðir miklum tíma með Boon fjöl-
skyldunni, einkum Wiley. Þeir gera
nánast allt saman og haga sér oft
eins og þeir væru enn í gaggó. Wi-
ley á í innri baráttu og hjónabandið
gengur ekki vel. Sam kynnist Adie
Nims (Elizabeth Perkins) og verður
ástfanginn í fyrsta sinn á ævinni.
Á meöan ástin blómstrar hjá Sam
dofnar hún hjá Wiley. Á endanum
flyst Wiley úr húsinu og sest að í
hjólhýsi við vinnustað sinn. Sam
og Wiley halda áfram leikaraskap
sínum, sem þeir hafa stundað árum
saman, eins og aö fara á skauta og
á sleða. Kyle (Justin Henry), sonur
Wileys, á erfitt með að sætta sig
við brottför fóður síns og það
myndast þrúgandi samband á milli
þeirra. Sam biður Adie að giftast
sér en hún neitar bónorði hans.
Bæði Sam og Wiley eiga erfitt með
að tjá tilfmningar sínar og hnút-
arnir leysast því ekki fyrr en máhn
eru rædd af fullri hreinskilni.
Don Johnson er þekkastur sem
hörkutólið í Miami Vice en hér
sýnir hann allt aðra og mannlegri
hlið á sér. Honum tekst að ná góð-
um tökum á hinum vansæla Wiley.
Jeff Daniels (Something Wild, The
House on Carrol Street) hefur leik-
ið svipaðar persónur áður og fer
létt með það. Susan Sarandon (Bull
Durham) og Elizabeth Perkins
(About last Night) standa sig báðar
ágætlega en það er Justin Henry
(Kramer vs Kramer, Martins Day)
sem stendur sig einna best sem
unglingurinn Kyle. Leikstjórn Ro-
berts Greenwald (The Burning
Bed, Xanadu) er máttlaus og mynd-
uppbyggingin leiðinleg og veikir
myndina mikiö. Handritið gerir
persónunum ágæt skil en það er
heldur langdregið og meðferð leik-
stjórans á því gerir þaö sunílur-
laust og laust í reipunum. Kvik-
myndataka og tónlist gerir ekkert
til að styrkja myndina. Þrátt fyrir
veika punkta þá eru í myndinni
mörg góð og vel leikin atriði en
heildarútkoman er ekki sérlega
sterk. Þetta er mynd um fólk, leik
þess og störf, ástir og tjáningu til-
fmninga:
Stjörnugjöf: * ★
Hjalti Þór Kristjánsson