Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989. Fréttir Greiða- og leigubíl stjórar í illdeilum Um klukkan fimm á sunnudags- morgun laust saman leigubOstjór- um, lögreglunni og greiðabQstjóra við Umferðarmiðstöðina í Reykjavík. „Það fréttist af greiðabflstjóra sem var með fimm farþega í bfl sínum og mælinn í gangi. Ekki nóg með að hann væri aö aka farþegum gegn gjaldi heldur var hann með tveimur farþegum fleira í bflnum en hann hafði leyfi tfl,“ sagði leigubflstjóri í samtali við DV. Tveir leigubílar frá Hreyfli króuðu greiðabflinn af við Umferðarmið- stöðina svo hann komst hvorki aftur á bak né áfram. Síðan kölluðu leigu- bílstjóramir á lögregluna en hún kvaðst ekki hafa tíma til að sinna málum sem þessum og kallaði á dráttarbfl tfl að færa leigubifreiðam- ar af staðnum. Meðan á þessu mála- vafstri stóð dreif að fleiri leigubif- reiðar. Ekki líkaði leigubflstjóram þessi málalok og króuðu þeir af dráttarbíl- inn svo hann sat fastur líkt og greiða- bíllinn. Þá var kallað á lögregluvarðstjóra og hann lét færa farþega greiðabif- reiðarinnar og bílstjóra hennar á lög- reglustöðina við Hverfisgötu þar sem skýrslur vora teknar. „Samkvæmt reglugerð, sem tók gfldi þann 1. júlí síðastiiðinn, er kveðið svo á að greiða- eða sendibílar megi ekki aka farþegum gegn gjaldi nema viðkomandi sé að fylgja hlut á milli staða. Leigubifreiðar era hins vegar eingöngu ætiaðar tfl farþega- flutninga en mega aka skjölum eða bréfum á mflli staða,“ sagöi sami leigubflstjóri í samtali við DV. -J.Mar Trúnaöarmaöur starfsmanna: Fékk ekki að siQa aðalfund ísal - boðið var afturkallað „Dr. Roth bauð mér að sitja aðal- fund ísal þann 30. júní síðastliðinn. En það var áður en kannað hafði verið hvort stjómarmeðlimir hjá ísal væra því samþykkir - reyndar er forstjórinn ekki stjómarmeðlimur og því greindi forstjórinn frá. Síðan var boðiö afturkallað og við höfum heimfldir fyrir því að íslenskir full- trúar í stjóminni hafi verið mótfalln- ir setu fulltrúa starfsmanna á fund- inum. Erlendis era reglur um að nái fyrirtæki ákeðinni stærð fái fulltrúar frá starfsmönnum að sitja aðalfundi. Þess vegna held ég að dr. Roth hafl fundist boðiö mjög eðlilegt," sagði Gylfi Ingvarsson, aðaltrúnaðarmað- ur hjá ísal, í samtali við DV í gær. „Ég veit að Ragnar Halldórsson, fyrrverandi forstjóri, var hlynntur boðinu. En við leyfum okkur hins vegar að draga þá ádyktun að íslensk- ir fulltrúar hafi verið mótfallnir setu minni á fundinum. Við höfðurn ekki lagt fram neina beiðni um að sitja fundinn og munum ekki gera það. Mér og varatrúnaðarmanni var síð- an greint frá því sem fram fór á fund- inum. Samt er fróðlegt að vita af- stöðu ýmissa stjómarmanna tfl starfsmanna. -ÓTT Þetta glæsilega skip var þjóðargjöf Dana til krúnunnar á sínum tíma. DV-mynd S Konungleg heimsókn Dannebrog í Reykjavíkurhöf n Dannebrog, skip dönsku krúnunn- ar lagði upp að Faxagarði í Reykja- víkurhöfn í gærmorgun. Skipiö er að koma frá Grænlandi þar sem Margrét Danadrotting hefur verið í heimsókn síðastliðnar þijár vikur í tflefni 10 ára afmælis heimastjómar Grænlendinga. Drottningin bjó í skipinu á meðan á dvölinni stóð og sigldi hún á milli hinna ýmsu staða á Grænlandi. Skipið er um 60 ára gamalt en það var þjóðargjöf Dana tfl krúnunnar í tíð Kristjáns tíunda. Sextíu manna áhöfn er um borð. Skipið stoppaði hér við land tfl að taka vistir og elds- neyti. Það heldur héðan á miðviku- dag. -gh Minnisvarðinn í Selnesi. DV-mynd Sigursteinn Breiðdalsvík: Minnis- varði um Selnes- hjónin Sigursteirin Melsted, DV, Breiðdal svflc Minnisvarði var reistur á Selsnesi á Breiðdalsvík í síðustu viku um þá sem fyrstir tóku sér fasta búsetu á Breiðdalsvík. Það var 1903 að hjónin Sigríður Ámadóttir og Erlingur Eyj- ólfsson, Helga Sigurðardóttir og Guðni Árnason ásamt systkinum Guðna, þeim Jóni, Áma og Þóra, reistu.sér bú að Selsnesi. Guðni var síðar fyrsti símstöðvar- stjóri staðarins. Við því starfi tók seinna Gísli, sonur Guðna og Helgu, og kona hans, Ingibjörg. Þau tóku við búi á Selsnesi ásamt Oddnýju, dóttur Erlings, og Þorgrími, manni hennar. Tfl gamans má geta þess aö núver- andi símstöðvarstjóri er Kristin E. Hauksdóttir, sonardóttir Gísla. í dag mælir Dagfari Beðið eftir kóngi Þá er Jóhann Karl Spánarkon- ungur kominn og farinn. Hann var aufúsugestur og hefur vonandi haft ánægju af ferð sinni tfl íslands. Hann sótti margar veislur, hitti ógrynni af fólki, skoðaði þorskana í Vestmannaeyjum og þorskana í landi og virtist huggulegur og aöl- aðandi maður. Ekki var heldur að sjá nein þreytumerki á Jóhanni Karli þegar haim kvaddi og þó hefði maður haldið að það væri þreyt- andi að hitta allt þetta fólk og skoða alla þessa þorska og vera á sífelld- um þeytingi milli veislna. Jóhann Karl er sennflega vanur maður og í góðri þjálfun. En meðan enginn bflbugur var á Jóhanni Karh var annað upp á ten- ingnum hjá gestgjöfunum. Þaö er að segja ráðherrunum okkar, sem að vísu vora ekki formlegir gest- gjafar, heldur fastagestir í veislun- um og móttökunum eins og vera ber. Ráöherrar era ekki sælir af þessu hlutverki fyrir utan öll önn- ur skyldustörf sem þeir þurfa að sinna. Fimdur hér og loðdýr þar. Steingrímur þarf að stjóma landinu og Jón Baldvin þarf að stjóma heiminum. Ólafur Ragnar þarf að stýra lögregluaðgerðum og Steingrímur Sigfusson þarf að bjarga loðdýrunum og þrotabúun- um út um allt land. Jón Sigurðsson þarf að útskýra það að hann hafi ekki gefið Útvegsbankann og sjálf- sagt era hinir ráðherramir líka afar uppteknir við að bjarga því sem bjargað verður áður en allt fer á hausinn. Halldór Ásgrímsson þurfti tfl dæmis að fara upp á Vatnajökul tfl að gefa þýska sjávarútvegsráð- herranum að borða og menn verða auðvitað afar þreyttir af öllum þessum reddingum og matarveisl- um hér og hvar um öræfin. Þá skilja menn líka vel þótt svefnhöfgi komi yflr Steingrím og Jón Baldvin þegar þeir loks staðnæmast í biðröð úti á flugvelli og bíða eftir konung- inum. Þeir era ekki vanir að standa kyrrir í tíu mínútur og Steingrímur hefur sjálfsagt verið aö koma beint úr laxveiðinni og Jón Baldvin beint frá EFTA og svo lætur kóngurinn bíða eftir sér. Það er von að men- imir geispi og geispi í takt. Segið svo að ekki sé samstaða í ríkis- stjóminni um neitt! Myndin sem birtist á forsíðu DV á fimmtudaginn og birt er aftur með þessum pistii er öflugásta vopn stjómarinnar og ráðherranna gegn þeim áróðri að ekkert sé aö gerast í ríkissljóminni og engin samstaða sé um aögerðir. Hvar í veröldinni era menn svo samstiga að þeir geispi í kór? í vísunni segir: Hlær nú og flissar hver heimsk- ingja sál/ ef ein kýrin pissar er annarri mál. Nú er að vísu ekki upplýst hvor þeirra geispaöi á undan, Steingrím- ur eða Jón, þannig að það er ekki vitaö hvorum hafi orðið mál við aö sjá hinn geispa. En ef myndin er skoðuö vel, sést að Steingrímur er kominn lengra með sitt geisp og þar að auki geispar hann betur ef mið- að er við munnvídd. Enda sér mað- ur það á forsætisráðherrafrúnni að hún lítur með nokkurri vanþóknun á Jón Baldvin, að svo miklu leyti sem hún heldur sér vakandi. Sennilega verið í laxveiði með manni sínum. Þama vora fleiri ráðherrar sam- ankomnir enda dugar ekki minna en heil ríkisstjóm þegar beðið er eftir kóngi. Hins vegar hefur Ijós- myndarinn því miður ekki náð aö festa þaö á fflmu hvort hinir ráð- herramir hafi náð því að geispa í takt við þá sem sjást á myndinni, en það gerir ekki svo mikið tfl, því Steingrímur og Jón Baldvin era aðalmennimir og ef þeir era sam- einaðir og samstiga í vöku og svefni er ríkisstjóminni borgið á meðan. Lesendur mega ekki gleyma því aö þessi mynd er tekin við upphaf konungsheimsóknarinnar. Hvem- ig skyldi ráðherrunum hafa liðið eftir að henni lauk? Skyldu þeir hafa náð því að leggja sig? Eða er þetta kannski alls ekkert þreytu- merki, heldur bara ný aðferð tfl að afla sér vinsælda? Hver veit nema að ráðherrarnir séu búnir að ráða sér auglýsinga- og áróöursmeistara tfl að hressa upp á ímynd ríkis- stjórnarinnar og með því að geispa í takt, vilji ráðherramir koma þeim skilaboðum tfl þjóðarinnar aö þeir séu mannlegir og geispi eins og annaö fólk. Það er ekki eintómur dans á rósum að bíða eftir konung- um eða stjórna heiminum og þurfa að vakna á morgnana og standa úti í rigningunni. Þetta verða þeir að skflja sem ekki era ráðherrar. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.