Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1989, Page 5
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 1989.
5
Fréttir
Húsavík:
Minkar skotnir
í miðbænum
Jóhannes Sigmjónsscn, DV, Húaavík:
Dýrallf í bæjum landsins er ekki
verulega Qölbreytt, kettir og hundar
hér og hvar, hestar og húsamýs. Og
sjálfsagt er enginn bær á landinu sem
getur atátað af villidýrum í mið-
bænum nema Húsavík.
Við Búðará, sem er í hjarta bæjar-
ins, hafa alltaf annað veifið verið-
villiminkar sem gert hafa sér greni
í árbakkanum gegnt skrúðgarðinum
og þá grafið sig inn undir viðkom-
andi lóðir.
Á dögunum vann Ámi Logi Sigur-
bjömsson, meindýraeyðir á Húsavík,
minkahjón sem höfðust við í garðin-
um við húsið Berg. Læðuna skaut
hann þar sem hún var á sundi yfir í
hólma á stíflunni en karldýrið tók
hann ofar í ánni.
Minkar hafa verið unnir á þessum
slóðum með nokkurra ára millibih
undanfarin ár.
Það er friðsælt við Búðarána og ekki furða þó minkar vilji búa þarna enda
nóg af andarungum.
Bifreiöaskoðun íslands:
Enn engin
ameríska
bíla
Eigendur amerískra bfia geta enn
ekki fengið rétt númer á bfia sína hjá
Bifreiðaskoðun íslands. Númer, sem
sérstaklega em gerð fyrir ameríska
bfia, koma ekki fyrr en í fyrsta lagi
í næsta mánuði.
Þegar eigendur amerískra bfia
koma til skráningar er þeim annað-
hvort bent á að bíða eða að þeir fá
númer sem ætluð em fyrir vélhjól
að aftan og venjuleg númer að fram-
an.
Margir bfieigendur hafa óskað eftir
vélhjólanúmerum að framan þar
sem ekki er hægt að koma venjulegu
númerunum fyrir nema að beygja
þau. Því hefur verið hafnað. Ástæðan
er sú að ætlunin er að innkalla öll
númer sem gefin hafa verið út á
ameríska bíla þegar sérstök amerísk
númer koma. Starfsmenn bifreiða-
skoðunarinnar telja að þeir sem hafi
fengið htil bifhjólanúmer að framan
munisíðurskilaþeiminn. -gse
Fiskeldi og hafbeit:
Afurðalán
of dýr
- ósk um nýtt kerfi
Almennur félagsfundur Lands-
sambands fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva, sem haldinn var 30. júní,
samþykkti að beina þeim tfimælum
til landbúnaðarráðherra að komið
verði á nýju afurðalánakerfi í líkingu
við það sem gerist í samkeppnis-
löndunum. í fréttatilkynningu frá
sambandinu kemur fram að sumir
framleiðendur fái engin afurðalán og
sumir fái ekki lán nema með við-
bótarveðum. Þau lán verði of dýr
með ábyrgðum og tryggingum,
kostnaður verði yfir 30% ofan á doh-
ar. Einnig fer sambandið fram á að
endurgreiðslu söluskatts af rekstri
fyrir 1988 verði hraðað og lántöku-
skattur verði endurgreiddur nú þeg-
ar. -JJ
Kindum mikið
beitt á tún
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Friðmey Guðmundsdóttir, Bílds-
felh í Grafningshreppi í Ámessýslu,
sagði mér að sláttur hefði byrjað þar
29. júní og er það heldur með seinna
móti á þeim bæ. Kindum var mikið
beitt á túnin í vor en sláttur hófst
þar sem þeim var ekki beitt. Á góðum
sumrum er heyskap lokiö þar um 20.
júh að sögn hinnar glæsilegu konu í
Bfidsfelh.
Opin leið á
Bandaríkjamarkað
Hefur þú hug á að koma vörum þínum á
Bandaríkjamarkað? Ótal spurningar vakna í
því sambandi sem þörf er á að fá svör við.
Veistu hver staða vöru á borð við þína er á
AMERICAN
EXPRESS
B A N K
Bandaríkjamarkaði? Ertu vel að þér um lög og reglugerðir sem
varða innflutning til Bandaríkjanna? Sérðu í hendi þér hve
mikið kynningarstarf þyrfti að fara fram áður en þú getur
boðið þíná vöru á Bandaríkjamarkaði? Og hvað með
dreifingu?
Að afla grunnupplýsinga á borð við þessar
er ekki aðeins tímafrekt heldur óhemju
kostnaðarsamt. International Trade
Consulting Group (ITC) er deild
innan American Express Bank
í New York sem hefur sér-
hæfí sig á sviði upplýsinga
öflunar og ráðgjafar fýrir meðal-
stór og smærri fyrirtæki sem ekki hafa
bolmagn til að leggja út í dýrar markaðs-
rannsóknir eða afla annarra nauðsynlegra
upplýsinga.
í gegnum Landsbankann er hægt að gerast áskrif-
andi að fjölbreyttu safni nýjustu upplýsinga sem varða
innflutning til Bandaríkjanna, sérhæfðra fyrir þitt fyrirtæki,
jafnt sem almennra. Auk upplýsinga sem berast reglulega skipu-
leggur ITC stutt námskeið og hefur milligöngu um viðskipta-
fundi með hugsanlegum innflutningsfyrirtækjum í Bandaríkjun-
um, svo dæmi sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar um þjónustu ITC fást á Markaðssviði
Landsbankans og bæklinga er auk þess hægt að fá á öllum af-
greiðslustöðum bankans.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna