Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1989, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1989, Síða 15
MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1989. 15 Áfengisskattur á dreifbýlið Enga bæklinga er að finna á útsölustöðum ÁTVR um áfengi, svo sem um mismunandi styrkleika, geymsluþol, samræmingu borðvína með mat o.s.frv. - Slíkir bæklingar yrðu eflaust vel þegnir af viðskiptavinum. Þórshafnarbúi skrifaði lesenda- bréf í DV á dögunum og krafðist þess að bjór yrði seldur í öllum verslunum landsins og alls staðar á sama verði. Fram kom að fólk í dreifbýli, sem pantar bjórkassa frá næstu útsölu ATVR, þarf að greiða 600 krónur í sendingarkostnað ofan á útsöluverðið. Ekki á ég von á að krafan um bjór í allar búðir eigi fylgi að fagna meðal meirihluta þjóöarinnar. Hitt er svo annað mál að mig hefur lengi undrað það langlundargeð sem dreifbýlisfólk sýnir ÁTVR eða fjár- málaráðuneytinu varðandi það at- riði að leggja sendingarkostnað of- an á útsöluverð. Það er nú einu sinni svo að ríkið hefur einkarétt á að selja áfengi hérlendis og því væri það sanngjarnt að áfengi væri selt á sama verði til neytenda hvar sem þeir búa á landinu. Krafan um sama verð fyrir alla landsmenn heyrist þó sjaldan. - Kannski að ástæðan sé sú að öll umræða um áfengi og áfengismál hérlendis er svo einhæf? Öðrum megin eru þeir sem helst vilja láta banna allt áfengi og svo eru hinum megin þeir sem vilja að áfengi sé selt í hverri sjoppu. Hinir sem standa mitt á milli þegja þunnu hljóði. En miðað við þessa opinberu umræðu má búast við að þeir sem vilja taka upp baráttu fyr- ir sama veröi á áfengi til allra verði úthrópaðir sem drykkjusvolar og útsendarar áfengisauðvaldsins. Það er því ekki nema von að flest- ir dreifbýlismenn láti sér nægja að nöldra í barm sér þegar þeir þurfa að borga 600 krónum hærra verð fyrir bjórkassann en þeir sem hafa aðgang að útsölu ÁTVR í sínum bæ. KjallaiTim Sæmundur Guðvinsson blaðamaður Sjálfsagt að krefjast sama verðs Umræða um þetta mál á ekkert skylt við áróður með eða móti áfengi og neyslu þess. Hér er ein- faldlega um að ræða lið í að jafna aðstöðu fólks án tillits til búsetu. Við getum litiö til Noregs í þessu sambandi. Norðmenn er frægir fyrir ýmis- legt annað en frjálslyndi hvað varð- ar meðferð og sölu áfengis, að minnsta kosti ef litið er á Dani til samanburðar. Sveitarstjórnir á hverjum stað ráða því hvort áfeng- isútsala er sett á laggirnar eða ekki. Áfengi er eingöngu selt í sérstökum ríkisverslunum eins og hér, með þeirri undantekningu þó, að bjór er hægt að kaupa í fjölda matvöru- verslana. Hins vegar er það svo í Noregi að þeir dreifbýlisbúar, sem eru út- sölulausir, ef svo má taka til orða, panta sitt vín úr næstu útsölu og fá það sent á kostnaðarverði, þaö er að segja ríkið greiðir sendingar- kostnaðinn. Norömenn segja aö þetta sé alls ekki gert í þeim tilgangi að reyna að örva vínsölu út um dreifðar byggðir heldur sé það réttlætismál að allir sem vilja geti keypt sitt vín á sama verði, burtséð frá því hvar þeir búa í landinu. Þetta finnst mér mjög eðlileg af- staða og shkt fyrirkomulag ætti auðvitað að taka upp hér á sömu forsendum. Auövitaö er þetta aðeins eitt at- riöi af mörgum til að jafna aðstööu fólks í dreifbýli miðað við okkur þéttbýlisbúa. En það eru nógir til að fjalla um allt annað þótt þeir vilji ekki ræða opinberlegá þennan aukaskatt á áfengi til sveitamanna af ótta við aö verða fyrir árásum þeirra sem ekki geta rætt áfengis- mál án ofstækis. Leiðbeiningar og viðvaranir Norðmenn fara ekki varhluta af áfengisbölinu fremur en aðrar þjóðir og vilja gæta fyllstu varúðar í sölu og meðferð áfengis. En það hindrar þá ekki í að veita almenn- ingi mun betri þjónustu hvað varð- ar upplýsingar um vín og vínteg- undir en hér þykir við hæfi. Norska ríkið gefur út vandaöan bækling sem liggur frammi í áfeng- isútsölum. í ritinu er að fmna verð- skrá, upplýsingar um styrkleika hinna ýmsu tegunda, fróðleik um borðvín og hvernig vín skuli drekka með hinum og þessum rétt- um og í hvernig glösum skuli fram- reiða hinar ýmsu tegundir áfengis. Sömuleiðis er rekin símaþjónusta sem er fólki til leiðbeiningar á þessu sviði. Mér er ekki kunnugt um að þetta hafi verið flokkað und- ir áróður fyrir drykkju. Um leið og reynt er að koma til móts við óskir almennings með hlutlausri fræðslu á þennan hátt gleymist ekki að reka áróður gegn áfengisneyslu. Má nefna sem dæmi að gefnir eru út litskrúðugir bækl- ingar þar sem þekkt fólk úr heimi viðskipta, íþrótta og hsta lýsir því yfir að það þurfi á öllum sínum kröftum að halda óskertum í starfi og leik og því neyti það ekki áfeng- is. Shkir bæklingar hggja líka frammi á útsölustöðum. Mér skilst að ÁTVR hafi fengið leyfi til að nota norska bækhnginn um vín og meðferð þess sem fyrirmynd aö sambærilegu riti sem ætlunin er að gefa út hérlends og er það vel. Hlutlaus fræðsla á þessu sviði sem öðru getur ekki skaðað neinn. Þeir sem á annað borð misnota áfengi gera það hvort sem svona upplýsingar eru fyrirliggjandi eða ekki en ahir hinir sem neyta áfeng- is í hófi ættu að hafa gagn og ánægju af aukinni fræðslu. Sæmundur Guðvinsson „Mig hefur lengi undrað það langlund- argeð sem dreifbýlisfólk sýnir ÁTVR eða fjármálaráðuneytinu varðandi það atriði að leggja sendingarkostnað ofan á útsöluverð.“ Eru skotveiðimenn sóðar? Skotveiðimenn kanna bráðina. Eg skemmti mér við það fyrir skemmstu að ganga eilítið með- fram sjónum vestur á Mýrum. Meðal annars varð mér gengiö út eftir fahegu nési vestur undir Ökr- um. Þetta nes er ekki merkt með heiti á þeim kortum sem mér eru tiltæk, en framundan því eru sker sem heita munu Pohsker, ef kunn- ugir verða þá einhverju nær um hvaða nes ég er að tala um. Þetta nes er ákaflega fahegt, með háum, lábörðum klöppum norðan og hér og hvar liggja sund ofan í gegnum þessar klappir. Sjórinn dynur á klöppunum, jafnvel í þeirri kyrru sem var þegar ég gekk þarna um. Inn af klöppunum er gróið land fram á lægri klappir hinum megin. Þar liggur mjór vogur inn í landið með þeim tærasta sjó sem ég hef lengi séð og þar býr selur sem hug- ar að mannaferðum úr hæfilegri fjarlægð. Eins og eftir styrjöld Það sem vakti athygli mína alveg sérstaklega á þessum fallega og kyrrláta stað var hvílík ókjör af haglaskothylkjum lágu út um allar trissur. Á tveimur stöðum utarlega á nesinu, þar sem klappirnar forma sérstök afdrep, var eins og styrjöld hefði verið háð. Af þessu vaknaði sú spurning hvort skotveiðimenn væru sóðar. Spurningunni er auðsvarað: Já. Það fer ekki á milli mála að þeir sem þarna hafa staðið með fret- hólka sína eru einstakir sóðar. Og það rifjar upp hve víöa má sjá spörðin (skothylkin) eftir þá. Spörð þeirra eru. verri en eftir aðrar skepnur. Þau eru gerð úr málmi og plasti og eyðast seint eða ekki. Æth tóm skothylki séu verri flutningur að bera heim aftur en fuh á skotstaðinn? KjaUaiinn Sigurður Hreiðar ritstjóri Skothylkjum skilað móti nýjum skotum Nú hefur verið sett skilagjald á einnota umbúðir undan gosi og bjór. Það sýnist ekki vanþörf á að setja skilagjald á tóm skothylki skotveiðimanna. Eða setja það í lög að enginn skotveiðimaður fái að kaupa íleiri ný skot en hann getur skilað tómum skothylkjum fyrir á móti. Það var heldur ekki nóg að leggja skilagjald á umbúðir undan gosi og bjór. Fjórðungsfernur undan svala og öðrum viðlíka drykkjum, einnig lítersfernur undan mjólk, aldinsafa og þvtiíku, er víða að finna þar sem farið er um landið. Eru þær umhverfisvinsamlegar? Eyðast þær á skömmum tíma? Hvernig stendur á að ekki er til einhvers að vinna að skUa þeim, úr því fólk getur ekki skihð aö það er engu meira til kostað að taka rusl með sér tU baka þangað sem hægt er að koma því í eðhlega sorp- hirðu heldur en það var að fara með það í áningarstað. Hvernig valda gamlir bílar mengun? Á næsta þingi er áætiað að leggja fram frumvarp um skilagjald á bíla. Það er Jón Sigurösson- ráð- herra sem ber þetta frumvarp fyrir brjósti. Hann segir að „gömul bíl- hræ“ séu stórkostiegur mengunar- valdur. Mig langar að vita hvernig. Að vísu veit ég að í hverju meðal- bílhræi, sem enn hefur allt á sínum stað, leynast aUt upp í átta lítrar af smurolíu sem hugsanlega gætu farið út í jarðveginn um síðir. Ég veit ekki hvað annað í „bílhræi" er til mengunar. Nema verið sé að tala um sjónmengun en þá erum við komin í afstætt hugtak. Ég sé ekki aö hvaða leyti fornbíll, sem hætt er aö nota, er meiri sjón- mengun en gamalt akkeri, vagnhjól eða einhvers konar landbúnaðar- tæki, sem þykir hið mesta skraut í garði. Eða bara sum hús eða önnur mannvirki, sem ekkert skUagjald er á. Varla er heldur hægt að meina mönnum aö stUla upp gömlum bU-, höfðingjum á sínu eigin landi ef þeir kjósa svo.' Mér þætti fengur að því ef Jón Sigurðsson vildi svara því hér í þessu blaði hvaða mengun er af því, önnur en þessi litla, hugs- anlega olíumengun, að gamlir bílar fái að standa óáreittir heima hjá sér, utan almannafæris, meðan úr því fæst skorið hvort einhver viU hugsa frekar um þá tU endurbygg- ingar eða endanlegs niðurrifs, og þá tU þess að framlengja líf annarra áhka. Lög gegn fornminjum Við skulum minnast þess að bílar verða fyrr fornminjar en margt annað. Við höfum nú þegar eyði- lagt svo mikið af þessum forn- minjum að við eigum ekki eintak af öUum þeim bUum sem hér hafa gist land og verið vinsæhr, jafnvel brotiö blað í samgöngusögu þjóðar- innar. Og nú á að setja lög sem beinlínis miða að því að ekkert fái að verða fornminjar - á sama tíma og unnið er að því sumar eftir sum- ar að grafa eftir öðrum fomminjum upp á von og óvon. Við verðum að skUgreina skýrt hvenær aflagður bUl er orðinn „bíl- hræ“. Þaö eitt að af honum hafi verið tekin númer eða á hann vanti einhvern hlut sem hann hafði í upphafi er ekki nóg til þess að hann sé orðinn „bflhræ" og „mengun" og skuli þar með urðaður - eða heygður, eins og nú á að fara með sorp höfuðborgarsvæðisins í Álfs- nesi. Sjálfur tel ég miklu meiri mengun að skothylkjum sportveiöimanna sem hggja eins og hráviði úti um allt land. Hafi þeir skömm fyrir sóðaskap- inn. Sigurður Hreiðar „Spörö þeirra eru verri en eftir aðrar skepnur. Þau eru gerö úr málmi og plasti og eyðast seint eöa ekki.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.