Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1989, Side 44
44
SKÓLARITVÉLAR
kennslubók í vélritun fylgir
^IVC | öllum ritvélunum frá okkur.
Tölvuland kynnir skólaritvélar
TA GABRIELE 100
Sjálfvirk feitletrun, undirstrikun, niiðju-
setning, 120 stafa leiðréttingaminni,
5,2 kg, v-þýsk, 11 slög á sek.
stgr.: 17.900
afb.: 18.975
OLYMPIA CARRERA
Sjálfvirk feitletrun, gleiðletur, 24 stafa
minni, lóðrétt lína, tölvutengi, 12 slög st9r-: 17-900
á sek. afb.: 18.900
SILVER REED EX 20
40 stafa minni, hljóðlát, síriti, hægt að
fá 5 gerðir leturhjóla. 11 slög á sek.
BROTHER AX-15
Leiðréttir heila línu, heilt orð, einn staf,
sjálfvirk undirstrikun, gleiðletur, miðju-
stilling. 12 slög á sek.
stgr.: 19.800
afb.: 20.988
stgr.: 17.500
afb.: 18.500
SENDUMí PÓSTKRÖFU
TOLVULAND - VERSLUN
LAUGAVEGI 116 V/HLEMM - SÍMI 621122
Skrifstofutæknir
EiUlivat)
fyrir þig?
Innritun í námið í haust er hafin.
'Hringið í síma 687590 og við sendum
bækling um hæl.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
q%q! HaaMST'taa tr íFTOAcnr/A:
MÁNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1989.
Merming
Spor í sandi
Nú stendur yfir á anddyri Nor-
ræna hússins sýning á ljósmynd-
um eftir Nönnu Buchert sem er
dönsk kona, hálfíslensk þó. Nanna
mun hafa stundaö ljósmyndun í
hátt á annan áratug. Hún hefur á
þeim tíma unnið fyrir blöö og tíma-
rit og jafnframt starfaö að persónu-
legum markmiðum í iðn sinni.
Myndimar hér mimu flestar eða
aUar vera teknar á íslandi; bróður-
parturinn í ferð um Homstrandir
síðasthðið sumar.
Augljóst er af sýningunni að ljós-
myndun er fyrir Nönnu skemmti-
legur leikur og alvara í senn enda
er ánægja að skoða þessar myndir.
Nanna virðist hafa það verklag að
einbeita sér um stund að ákveðnu
mótífi og kanna það frá mörgum
sjónarhomum svo afraksturinn
verður myndröð. Hér gefur að hta
fjórar slíkar myndraðir og auk þess
eina mynd staka.
Myndröðin „Esso blues“ fjahar
um trjáhríslur í umheimi olíutanka
og er tekin í Reykjavík árið 1983.
Ljósmyndun
Davíð Þorsteinsson
Þessar myndir eru afar vel og ná-
kvæmlega uppbyggðar. Þær era
kópéraðar í Ijósum og léttum tón-
um, eins og reyndar flest hin svart-
hvítu verkin, og samsvara sér vel.
Þetta era fahegar myndir, einkum
nr. 3 og 8. En það er eins og hnit-
miðun merkingar hafi verið látin
víkja fyrir formlegri fágun því
þrátt fyrir kosti sína verkuðu
myndirnar á mig meir sem bragð-
góður drykkur en áfengur.
Serían „unglingsár" er hlýleg
hugleiðing um unga stúlku og ekki
átakamikil.
Bestar þóttu mér myndimar af
föram í sjávarsandi á Homströnd-
um, margbreythegar að formi og
ríkar af upplifun. „Sjálfsmyndin"
er náskyld þeim og ágætlega
heppnuð. Það er eina myndin þar
sem Nanna gefur sér lausan taum-
inn og bregður dálítið á leik með
náttúranni.
Litmyndaröðin er fremur dútl-
kennd og veik þótt óneitanlega séu
sumar myndanna í henni heldur
snotrar.
Flestir munu vel njóta að virða
þessar myndir fyrir sér enda eru
þær unnar af einlægni og vand-
virkni.
Andlát
Stefán Geir Ólafsson lést að heimili
sínu, Kambsvegi 27, 7. september.
Baldur Nikulásson, Mávabraut 7,
Keflavík, lést á heimili sínu 6. sept-
ember.
Elísabet Elíasdóttir, Langholtsvegi
165, andaðist í Borgarspítalanum að-
faranótt 8. september.
Óli Bjarnason, frá Sveinsstöðum í
Grímsey, er látinn.
Jarðarfarir
Guðrún Guðmundsdóttir lést 27.
ágúst sl. Hún fæddist á Úlfarsfehi í
Mosfehssveit 25. mars 1894. Foreldr-
ar hennar voru Sigríður Jónsdóttir
og Guðmundur Sigurðsson. Hún gift-
ist Bjarna Þórðarsyni, en hann lést
árið 1975. Þau hjónin eignuðust þrjú
börn. Útför Guðrúnar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Bryndís Þórarinsdóttir lést 3. sept-
ember sl. Hún fæddist 14. ágúst 1958,
dóttir hjónanna Öldu Andrésdóttur
og Þórarins Ámasonar. Bryndís lauk
námi frá Fósturskólanum og vann
lengst af á Hagaborg. Útfór hennar
veröur gerð frá Áskirkju í dag kl.
13.30.
Gíslína Þorgeirsdóttir, Flókagötu 64,
lést 23. ágúst. Jarðarförin hefur farið
fram.
Sigurjón Hákonarson frá Hafþórs-
stöðum í Norðurárdal, Haukshólum
6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskapehu í dag, 11. september,
kl. 13.30.
Útfor Aðalsteins Halldórssonar frá
Litlu-Skógum, áður th heimihs aö
Bólstaðarhlíð 30, fer fram frá Bú-
staðakirkju þriðjudaginn 12. sept-
ember kl. 13.30.
Útför Páls Kristins Maríussonar,
Skipholti 28, Reykjavík, fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 12.
september kl. 10.30.
Hjörtur Viðar Hjartarson, Álfatúni
18, Kópavogi, veröur jarðsunginn frá
Kópavogskirkju þriðjudaginn 12.
september kl. 15.
Sturla Simonarson lést 5. september
sl. Hann fæddist á Kaðalstöðum 14.
ágúst 1920. Foreldrar hans voru
hjónin Viktoría Kethsdóttir og Sím-
on Sturlaugsson. Um tvítugt gerðist
Sturla bílstjóri, fyrst á eigin vörubh
og síðan um tuttugu ára skeið hjá
Kaupfélagi Ámesinga og Mjólkurbúi
Flóamanna á Selfossi. Síðustu 15 árin1
vann Sturla hjá Rafmagnsveitum
ríkisins. Sturla eignaðist í sínu
hjónabandi tvo syni, áður hafði hann
eignast dóttur. Útför hans verður
gerð frá Stokkseyrarkirkju í dag kl.
13.30.
Tapað fundið
Myndavél tapaðist
Rauð Chinon auto gx myndavél tapaðist
sl. fóstudag á leiðinni frá Landspítalan-
um að Hlemmi. Finnandi vinsamlegast
hringi í sima 31665.
Námskeið
Námskeið í skyndihjálp
Kópavogsdeild RKI heldur námskeið í
skyndihjálp. Það hefst 14. september kl.
20 og stendur fjögur kvöld, þrjár stundir
í senn. Námskeiðið verður haldið í Digra-
nesskóla. Öllum 15 ára og eldri er heimil
þátttaka. Þeir sem hafa áhuga á að kom-
ast á námskeiðið geta haft samband við
skrifstofu Rauða kross íslands í síma
26722. Meðal þess sem kennt verður er
endurlifgun, en það er einmitt hún sem
skiptir máli þegar um líf eða dauða getur
verið að tefla.
Heimspekinámskeið
fyrir börn
í samvinnu við Heimspekistofnun Há-
skóla íslands býður Heimspekiskólinn
10-15 ára bömum að sækja 12 vikna
heimspekinámskeið nú í vetur. Þetta er
þriðja starfsár skólans sem starfar í yngri
og eídri deild. Unniö er út frá skáldsögum
sem bandaríski heimspekingurinn Matt-
hew Lipman hefur samið fyrir þennan
aldurshóp. Námskeiðin verða haldin í
gamla Verslunarskólanum við Grundar-
stíg. í hverjum hópi verða 10-14 nemend-
ur sem hittast einu sinni í viku, einn og
hálfan klukkutíma í senn. Leiðbeinandi
verður Hreinn Pálsson Ph. D. sem hefur
sérhæft sig í heimspekikennslu bama og
unglinga. Innritun stendur til 17. sept-
ember og kennsla hefst daginn eftir.
Framhaldsnámskeið verða í boði á vor-
misseri 1990. Innritun og upplýsingar em
í síma 628083.
Tilkyimingar
Taiji í Kramhúsinu
Dagana 11.-18. september nk. fer fram í
Kramhúsinu við Skólavörðustíg nám-
skeið í Taiji. Leiðbeinandi verður Khin
Thitsa. Hún fæddist í Rangoon árið 1952,
stundaði nám í austurlenskum listum og
heimspeki í London og var jafnframt um
tíu ára skeið lærisveinn Gerdu Geddes,
frumkvöðuls Taiji-kennslu í Evrópu.
Khin Thitsa hefur kennt Taiji í rösk tíu
ár. Síðan 1982 hefur hún einnig starfaö
með dönsurum við London Contempor-
ary Dance School. Þess má að lokum geta
að áður en hijómsveitin Strax hélt upp í
Kínaferðina frægu naut hópurinn leið-
sagnar Khin Thitsa.
Hallgrímskirkja - starf
aldraðra
Nk. miðvikudag, 13. september, verður
farið í Viðey. Sr. Þórir Stephensen hefur
helgistund í kirkjunni og leiðsögn um
eyna. Kaffiveitingar. Lagt verður af stað
frá Hallgrímskirkju kl. 13.30. Nánari upp-
lýsingar gefur Dómhildur í síma 39965.
Bækur
Málvísi 1
Hjá Námsgagnastofnun er komin út Mál-
vísi 1 eftir Indriða Gíslason. Málvísi 1
kom fyrst út árið 1974 og hefur tekið litl-
um breytingum efnislega þangað til nú.
Bókin hefur verið í endurskoðun á sama
tíma og aðalnámskrá grunnskólans. Sú
útgáfa af Málvísi 1, sem sem nú birtist,
er það mikið breytt frá eldri gerðum bók-
arinnar að réttast er að tala um nýja
bók. Mestum hluta bókarinnar er varið
í umfjöllun um orðaflokka og einkenni
þeirra. Fjallað er um gerð setninga, mál
í samskiptum manna, merkingabreyting-
ar, orðtök og málshætti. Sérstakur þáttur
er í bókinni um talað mál og mun það
vera nýjung í námsefni fyrir grunnskóla.
Málvísi 1 er einkum ætluð 7. bekk grunn-
skóla en ljóst er að bókin getur einnig
komið að gagni í 8. og 9. bekk. Bókin er
88 bls., prýdd fjölda ljósmynda eftir Rut
Hallgrímsdóttur ljósmyndara, en Halldór
Baldursson teiknaði myndir. Prentstofa
G. Benediktssonar prentaði.