Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Blaðsíða 7
7 vs kffi Reitur A: Skattskyld velta, þ.m.t. úttekttil eigin nota, sala rekstrar- fjármunaog innborganír fyrir afhendingu. Fjárh^ðin færist án virðisaukaskatts. Reitur B. Undanþegin velta. Hér er m.a. átt við útflutning, sölu dagblaða og aðra sölu sem ber „núllskatt". Ekki skal færa hér upplýsingar um undanþegna starfsemi. Reitur C: Útskattur, sáskattursem á uþþgjörs- tímaþilinu hefur fallið á skattskylda veltu, þ.e. reiknaður útskattur af allri sölu eða afhendingu skv. reitA. Reitur D: Innskattur, sá skattur sem á uppgjörs- tímabilinu hefur fallið á kaup eða eigin innflutning á vörum eða þjónustu til nota í rekstrinum, þ.e. aðföng sem varða sölu á vöru, vinnu eða þjónustu skv. reitumAog B. Reitur E: Fjárhæð til greiðslu eða inneign. Ef útskattur, skv. reit C, er hærri en innskattur, skv. reit D, skal merkja við í reitinn „Til greiðslu" en ef innskattur er hærri en útskattur skal merkja við í reitinn „Inneign". Athygli skal vakin á því að ef skilafjárhæð er núll eða engin starfsemi hefur farið fram á tímabilinu ber samt að fylla skýrsluna út og skila henni. Fyrirfram árifaðir gíróseðlar v; iröisaukaskattsskýrslan er í formi gíróseöils. Gjaldanda ber að nota þá skýrslu sem honum berst árituð. Berist skattskyldum aðila ekki árituð skýrsla skal hann nálgast hana hjá skattstjóra eða innheimtumanni í sínu umdæmi og árita hana. Athygli skal vakin á því að bankar, sparisjóðir og pósthús taka aðeins við skýrslum sem áritaðar hafa verið af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna sjálfur eða breytir áritun verður að skila henni til innheimtumanns ríkissjóðs. Hvenær á að skila skýrslu? G jalddagi virðisaukaskatts er 5. júní. Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á gjalddaga. Athygli skal vakin á því að ekki nægir að póstleggja greiðslu á gjalddaga. Inneignarskýrslur r JL f innskattur er hærri en útskattur, þ.e. gjaldandi á að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti, skal skila skýrslunni til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. Hvar má greiða? C kJ kýrslum til greiðslu, þ.e. þegar útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má greiða hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, sýslumenn og bæjarfógetar í kaupstöðum, bæjum og sýslum, og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.