Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1990, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990. Fréttir________________________________________________________________ Málamaður Evrópu skrifaðist á vlð sjómann á Akranesi: „Kynntist honum úti í Leirvík" - segir Karl Ragnarsson sem hitti Derick Heming 1970 en Skotinn talar 22 tungumál Hluti bréfs sem Skotinn skrifaði Karli Ragnarssyni, matsveini á Akranesi, fyrir hartnær 20 árum. Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi: Skotinn Derick Heming, sem fyrir stuttu var útnefndur „málamaður Evrópu" fyrir að tala 22 tungumál, skrifaðist lengi á viö Karl Ragnars- son, sjómann á Akranesi. Til stað- festingar því sýndi Karl fréttaritara DV bréf sem Herning haföi skrifað honum 1972. „Ég kynntist honum eitt sinn þegar við vorum í höfn í Leirvík á Hjalt- landi þar sem Derick býr,“ sagði Karl. „Ætli þetta hafi ekki verið í kringum 1970. Viö vorum á síldveið- um í Norðursjó og komum oft að landi í Leirvík. Derick kom um borð til okkar á Óskari Magnússyni frá Akranesi, þar sem ég var matsveinn, og ég var sá eini úr áhöfninni sem gaf mig að honum." Að sögn Karls skrifuðust þeir á í nokkur ár áður en tengshn slitnuðu. „Ég var orðinn pennalatur, hafði í nógu að snúast og fór þess á leit við Hjálmar Þorsteinsson kennara að hann tæki upp þráðinn þar sem ég hvarf frá. Hjálmar var þá kennari eins og Derick. Þeir skrifuðust á lengi og Skotinn fékk sendar héðan marg- ar bækur.“ Málamaðurinn Derick Herning. Myndin er tekin 1972. Þegar bréf Skotans er skoöað grannt má glöggt sjá að hann hefur ágætt vald á málinu þótt í því megi að sjálfsögðu finna einstaka beyging- arvillur. Orðaforði hans er hins veg- ar mjög góður og gæti margur íslend- inguriim verið fullsæmdur af. Þess má geta að Derick Heming hefur aldrei til landsins komið. Eyjabátar losnuðu við afla sinn í gær og allt fór fram með friði. DV-mynd ÓG Ró og spekt viö útskipun á gámafiski í Friðarhöfn: „Hann fór bara af og það verður að hafa það, svona er veiðin,“ sagði Karl Ómar Jónsson og Ólöf Stefánsdóttir, kona hans, sem hafði gaman af öliu saman. 11 laxar veiddust i Norðurá fyrsta hálfa daginn. DV-mynd G.Bender Feiknabyrjun í Norðurá „Það var gaman að setja í laxinn en hann fór bara af eftir stutta bar- áttu,“ sagði Karl Ómar Jónsson, verkfræðingur í samtali við DV við Stokkshylsbrotið en hann á heiður- inn af að setja í fyrsta lax sumarsins og missa hann snemma í gærmorgun en þá voru Norðurá og Þverá opnað- ar en Laxá á Ásum eftir mat. „Opunin var góð og þaö komu 11 laxar á þurrt en margir fóru af eftir stutta baráttu. Flestir laxarnir veidd- ust uppi við Laxfoss, sex laxar og þar veiddi Halldór Þórðarson fyrsta lax- inn rétt um níu í gærmorgun. Einn veiddist í Myrkhyl, þrír í Stokks- hylnum og hinir tveir í æðandi straumi Norðurár sem er vatnsmik- il. Töluvert virðist vera komið af laxi í ána, stærsti laxinn á land var 11 pund,“ sagði Ólafur H. Ólafsson, stjórnarmaður í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, seinni partinn í gær. „Þverá var köld, við sáum laxa en þeir tóku ekki,“ sagöi Jón Ólafsson í veiöihúsinu við Helgavatn við Þverá í gærdag. „Það verður reynt eftir matinn og ég á von á að fyrsti laxinn komi seinni partinn í dag,“ sagði Jón og hugðist reyna víða í strengjum Þverár. Veiðimenn í Laxá á Ásum voru aö gera sig klára upp úr hádeginu en veiði mátti hefjast seinnipartinn. -G.Bender Allt fór friðsamlega fram við höfn- ina í Vestmannaeyjum þegar útskip- un á gámafiski fór fram í gær. Engir gámar voru teknir um borð í flutn- ingaskip nema þar sem útflutnings- leyfi var fyrir hendi. Um borð í Reykjafoss fóru aðeins tveir gámar og nokkrir fóru með skipi frá Skipadeild Sambandsins. Starfsmönnum Eimskipafélagsins þótti þetta heldur rýr gámadagur. Hefur verið algengt að 15-20 gámar fari um borð við útskipun í flutninga- skip sem sigla á erlenda markaði á föstudögum. Þrír gámar, sem komu frá Aust- fiörðum, voru kyrrsettir þar sem ekki voru útflutningsleyfi fyrir þeim afla. Átti aö reyna að koma þeim gámum á Fiskmarkaðinn í Hafnar- firði. Tveir íslenskir kaupendur fóru víða um í höfninni í Eyjum í gær og buðu í gámafisk - 94 krónur fyrir kílóið af stórum og góðum þorski á bryggjunni. Árni Kjartansson, stýri- maöur á Sólborgu SU, var einn af þeim heppnu. Sólborgin var með um 35 tonn og hafði áhöfnin útflutnings- leyfi fyrir tveimur gámum, eða um 28 tonnum. Sá fiskur fór með Reykja- fossi. Eftir því sem DV kemst næst, munu þeir bátar sem lönduðu í gær- morgun hafa losnað við allan sinn afla - ýmist á markaði í Reykjavík og Hafnarfirði eða í frystihúsin í Eyjum. Menn voru misjafnlega ánægðir með það verö sem þeir fengu fyrir aflann. ÓG/ÓTT Engum fiski skipað út án útflutningsleyfa - aöeins tveir gámar fóru með Reykjafossi Jóhann tapaði Jóhann Hjartarson tapaði fyrir Georgiev frá Búlgaríu í áttundu umferð undankeppninnar fyrir heimsbikarkeppnina í skák i Moskvu í gær. Skák Jóns L. Ámasonar við Sovétmanninn Vaganjan fór í bið. Biðskákin var tefld í gærkvöldi en hún var ekki til lykta leidd þegar DV fór í prentun. Sovétmaðurinn Bareev er nú efstur á mótinu eftir að hafa sigr- að Portisch í áttundu umferöinni í gær. Hann er nú með sex vinn- inga. Jóliann er með þijá og hálf- an vinning en Jón var með fióra vinninga fyrir biðskákina sem tefldvarígærkvöldi. -ÓTT Neytendasíða DVer ómetanleg - segir Guömundur J. „Þaö er ljóst að það verða allír að taka höndum saman í stríðinu við verðhækkanir og ég vil þakka neytendasíðu DV þvi hún hefur reynst fádæma góð í þessu stríði og nánast ómetanleg,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar, en hann seg- ist hafa miklar áhyggjur af þeim verðhækkunum sem þegar hafi verið leyfðar og hann telur að séu á leiðinni. Guðmundur sagði aö það væri ljóst aö allir yrðu að taka höndum saman því það hefði til dæmis sannast í tilfelli kókmálsins að það væri hægt að berjast gegn hækkunum og sagði hann að forráðamenn Vífilfells ættu heið- ur skihnn að taka við þeim ábendingum sem þar var beint til þeirra. „Það verðlagseftirlit sem felst til dæmis í neytendasíðu DV er bráðnauðsynlegt og fólk verður einmitt að hafa svona tækifæri til að sjá verðbreytingar og verðmismun. - Og þá á fólk að fara eftir þessu,“ sagði Guð- mundur. -SMJ myndanir í Kópa- vogiog á Akureyri Þegar DV fór í prentun í gær- kvöldi haföi fulltrúaráð Sjálf- stæðisflokks í Kópavogi sam- þykkt samning um myndun meirihluta aö bæjarstjóm með Framsóknarflokki. Fulltrúaráð Framsóknarflokks sat hins vegar enn á fundi þegar síðast fréttist. Fullt samkomulag naföi hins vegar náöst um meirililutamynd- un bæjarstjórnar á Akureyri hjá sjálfstæðismönnum og Alþýðu- bandaiagi í gærkvöldi. Sam- komulagið verður lagt fyrir flokkana á þriöjudag. Ýmsir hafa verið tilefhdir til bæjarsfióra, þar á meöal Halldór Jónsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra- hússins, Larus Jónsson, fyrrver- andi alþingismaður Sjálfstaföis- flokksins, og Tómas Ingi Olrich menntaskólakennari. Nái sam- komulagið fram að ganga veröur Sigfús Jónsson þvi ekki bæjar- stjóri áfram. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.