Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1991, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1991
Eileen Ford skoöar hér myndir af níutíu stúlkum sem sendu myndir
af sér í Fordkeppnina. Hún valdi sautján úr bunkanum. DV-myndir -ELA
Fordkeppnin:
Úrslitin
verða kynnt
14. apríl
Fordkeppnin verður haldin með
pompi og prakt í Súlnasal Hótel
Sögu sunnudagskvöldið 14. apríl.
Eileen Ford og eiginmaður hennar
Jerry koma hingað til lands og
velja íslenska stúlku til að taka
þátt í keppninni Supermodel of the
World sem fram fer í Los Angeles
um miðjan júlí.
Fordkeppnin verður með öðru
sniði en venjulega þar sem ávallt
hefur veriö um einkasamkvæmi að
ræða þegar stúlkur hafa verið vald-
ar. Vegna komu fyrirsætumóður-
innar Eileen Ford til landsins verð-
ur öllum sem áhuga hafa gert kleift
að sjá keppnina að þessu sinni gegn
vægu gjaldi.
Heiðar Jónsson mun kynna
stúlkurnar sautján sem keppa til
úrslita. Þá verða Módel 79 og Mód-
elsamtökin með glæsilega tísku-
sýningu.
Stúlkurnar sautján, sem keppa til
úrslita, verða allar kynntar í helg-
arblaði DV 6. apríl nk. Þá birtast
andlitsmyndir af þeim en Biggi og
Simbi, sem reka eina vinsælustu
hárgreiðslustofu landsins um þess-
ar mundir, Hjá Jóa og félögum,
munu greiða stúlkunum sautján.
Lína Rut Karlsdóttir förðunar-
meistari mun sjá um snyrtingu.
Hér er því fagfólk í öllum hlutverk-
um.
Mjög mikill áhugi er á Ford-
keppninni hér á landi. Fyrirsætu-
starflð er heillandi og eins og Eile-
en Ford sagði í viðtali við DV á
laugardaginn var er ekki amalegt
að fá borgað fyrir að vera falleg.
-ELA
Eileen Ford velur sigurveyara Fordkeppninnar í Súlnasal Hótel Sögu
14. april nk.
Sviðsljós
Hver er
líkust Barbie?
- 4000 kepptu um titilinn
Brúðan Barbie er nú komin af
léttasta skeiði en hún er fullra 32
ára um þessar mundir. Vinsældir
hennar hafa lengi verið með ein-
dæmum eins og flestir foreldrar
ungra stúlkna geta borið vitni um.
Leikfangaframleiðandinn Mattel,
höfundur og faðir Barbie gekkst
fyrir sérkennilegri keppni í London
nýlega. Markmið keppninnar var
að fmna stúlku sem líktist Barbie
dúkkunni sem mest. 4.000 stúlkur
sýndu málinu áhuga og vildu
gjarnan taka þátt en úr þeirra hópi
voru valdar 50 sem kepptu til úr-
slita. Þær mættu allar til leiks í
fylgd með mæðrum sínum og sum-
ar voru svo forsjálar að hafa unn-
ustann meðferðis, vandlega klædd-
an og faröaðan eins og Ken vin
Barbie.
Það var síðan hin 24 ára gamla
Harley Spicer sem sigraði. Margir
höföu reyndasr búist við að Natalie
Johnson myndi sigra en hún var
að mati áhorfenda nákvæmlega
eins og Barbie.
„Ég varð mjög undrandi og glöð
yfir að sigra,“ sagði Hayley Spicer
sem vann. Hana dreymir um aö
ferðast um heiminn og stunda fyr-
irsætustörf.
„Mér eru þetta mjög mikil von-
brigði," sagði Natalie, helsti keppi-
nautur Hayley. „Ég bjóst fastlega
við að vinna og dómararnir voru
óskaplega hrifnir af mér.“
-Pá
Natalie var mjög sár yfir aö sigra