Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1991, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1991, Page 24
-24 MIÐVIKUDAGUR 27. MA.RS 1991. Víkingurinn sem kom út úr ísskápnum og skoradi þrennu: Harkan hér er gífurleg - DV í heimsókn hjá Eyjólfi Sverrissyni, knattspymumanni í Stuttgart Eyjólfur Sverrisson og Anna Pála, kona hans, á heimili sínu í bænum Buch i Þýskalandi. Sonurinn, Hólmar örn, undi sér hið besta þótt það væri orðið framorðið. Jóhanna S. Sigþórsdóttir, DV, Þýskalandi: „Það var náttúrlega mjög mikil breyting fyrir mig að koma hingað miðað við það sem hafði verið þegar ég spilaði heima. Harkan hér er svo gífurleg. Hér eru eingöngu toppmenn í liðinu, og ekki nóg með það. Á bekknum sitja líka toppmenn sem eru að bíða eftir að komast inn á. í rauninni erum við sex leikmennimir hér sem erum að berjast um tvær stöður í liðinu. Auðvitað er erfitt að standa í þessari stöðugu samkeppni því það er ekki bara í leikjum sem þú tekur á öllu sem þú átt, heldur hka á æfmgum.“ Við erum sest inn í stofu hjá Eyj- ólfi Sverrissyni knattspyrnumanni og konu hans, Önnu Pálu Gísladótt- ur, í Þýskalandi. Á gólfinu liggur sjö mánaða sonur þeirra, Hólmar Örn, og blandar sér öðru hvoru í samræð- urnar. Fjölskyldan býr í bænum Buch sem er skammt frá Stuttgart. Þar er hún búin að koma sér nota- lega fyrir í nýrri „penthouse“-íbúð á rólegum stað. Það er stutt fyrir Ey- jólf að fara á æfingar hjá VíB Stuttg- art en með því liði hefur hann sem kunnugt er leikið síðasthðið ár. Hann er raunar kallaður „Jolh“ í Þýska- landi, enda yrði líklega messufall á áhorfendabekkjunum ef þýskir aðdáendur ættu að hvetja hann með því að hrópa „Eyjólfur!“ Það væru of mikhr fimleikar fyrir þýska tungu. Hvaö um það, Eyjólfur vakti heil- mikla athygli þegar hann skoraði þrennu í fyrsta heila leik sínum á keppnistímabilinu á dögunum. Þar leiddu saman hesta sína Dortmund ogVíB Stuttgart og vann síðarnefnda hðið, 7-0. Þýskir íjölmiðlar urðu náttúrlega uppvægir, birtu frásagnir og myndir af leiknum og fjölluðu mikið um „ljóshæröa víkinginn" sem kominn væri til þess að bjarga Stuttgart frá því að lenda á botninum og annað í þeim dúr. Síðan hefur Eyjólfur fengið sinn skerf af athygl- inni, ekki síst hjá fjölmiðlum. Þaö var einmitt eftir þrennu-leikinn sem eitt dagblaðanna skrifaöi: „Víkingur- inn kemur út úr ísskápnum!" „Annars eru þeir ekkert aö kenna mig sérstaklega við ísland, hér þykir ekkert tiltökumál að vera þaöan. Það er í mesta lagi að þeir skjóti á mig „víkingur“ ef ég hrindi einhverjum duglega frá mér á æfingu," sagði Eyjólfur en beinir síöan talinu aftur að þessari minnisstæðu frumraun sinni. „Það var auðvitað gaman að skora þrennu þótt ég heföi nú heldur viljað dreifa þessu svohtið og skora þessi þrjú mörk í þrem leiKjum. En þetta var góður leikur, mannskapurinn var mj[ög frískur og viö vorum stað- ráðnir í að vinna. Við vorum grimm- ir, pressuöum þá og skoruðum mjög snemma. Þetta var óskabyrjun sem við fengum," sagði Eyjólfur þegar talið barst að þessari frumraun hans í upphafi nýs keppnistímabils. Eftir leikinn við Dortmund lék VfB Stuttgart við Herta Berlín og vann, 2-0. Reiðarslagið var svo leikurinn við Bayem Munchen, því honum töpuðu Eyjólfur og félagar, 0-3. Enn niku dagblöðin upp til handa og fóta en nú kvaö við annan tón heldur en eftir fyrsta leikinn. Liðið fékk óbóta- skammir fyrir lélega frammistöðu. „Þetta er alltaf svona. VfB Stuttgart á aö vera eitthvað alveg sérstakt og blaðamenn hreinlega rífa okkur í sig ef viö stöndum okkur ekki. Ef við töpum leik er sú knattspyrna sem við leikum sú lélegasta sem sést hef- ur fyrr og síðar. En öll lið geta náttúr- lega átt lélega leiki og við eram eng- in undantekning á því.“ Um síðustu helgi bættu Stuttgart- menn svo ráð sitt því þá unnu þeir Numberg, 1-0. Kom úrTindastóIi En hver er hann, þessi ungi maður sem allt í einu var kominn á samning hjá öflugu hði úti í Þýskalandi án þess að hafa gert garðinn frægan hjá einhveiju af 1. deildar liðunum heima? Hann er fæddur á Sauðárkróki, sonur hjónanna Sverris Björnssonar húsasmiðs og Guðnýjar Eyjólfsdótt- ur. Það varð snemma séð hvert hug- urinn hneigöist þvi strax sem smá- patti var hann farinn að sprikla í öllum þeim íþróttagreinum sem hann gat mögulega spreytt sig á, svo sem sundi, frjálsum, körfubolta - og auðvitað fótbolta. „Það var talsvert íþróttalíf á Sauöárkróki á þeim tíma og strákarnir, sem ég ólst upp með, voru allir meira eða minna í íþrótt- um. Fyrst vorum við í öhu sem hægt var aö vera í. Svo þegar við stækkuð- um fór þetta að rekast hvaö á annað. Æfingar í sundi og fótbolta voru kannski á sama tíma og þá var kom- ið að því að velja og hafna. Fótboltinn varð fyrir valinu hjá mér eins og mörgum hinna strákanna. Þá spilaöi ég fótbolta á sumrin og körfubolta á veturna." Eyjólfur spilaði að sjálfsögðu með sínu heimaliði, sem er Tindastóh, er þá var í 2. deild. Hann var þó ekki eini liðsaukinn, sem foreldrar harts lögöu liðinu, því á tímabili vora þeir bræðurnir hvorki fleiri né færri en fjórir talsins sem spiluðu með því. Eyjólfur er næstyngstur þeirra. í bræðrahópnum standa leikar nú þannig að sá yngsti er farinn að leika með KA, Eyjólfur meö Stuttgart-lið- inu en hinir tveir elstu ætla að halda sig við Tindastól, að minnsta kosti um sinn. Þegar „Þýskalandsævintýriö" knúði dyra var Eyjólfur enn í skóla. Hann dreif sig í að ljúka stúdents- prófmu til að eiga það ekki eftir ef eða þegar hann færi út. Raunar haföi hann hugsað sér að fara í íþrótta- kennaraskólann og ljúka honum. Síðan ætlaði hann að sjá til og hafði jafnvel hug á því að fara í frekara nám en það mál er auðvitað aht í biðstöðu nú. Anna Pála, konan hans, er einnig Sauðkrækingur. Hún er að vísu fædd í Vestmannaeyjum en flutti tíu ára til Sauöárkróks ... og þar er allt mitt fólk,“ sagði hún. Til Þýskalands Það var í gegnum landslið 21 árs leikmanna og yngri sem leið Eyjólfs lá til Þýskalands. Hann haföi leikiö með því liði, bæði heima og í Þýska- landi. í Evrópukeppni landsUða voru þeir ekki langt frá því að komast í úrslit þótt þeir lentu á móti sterkum Uðum svo sem Þjóðverjum og Hol- lendingum. „Það var í framhaldi af því sem Ásgeir Sigurvinsson hringdi í mig með tilboð um að koma og æfa með Stuttgart. Ég sló til og æfði með liðinu í tíu daga. Svo kíktu þeir aftur á mig i leik í Saarbraggen, þar sem ég var að spila með 21 árs landsliðinu og eftir þann leik fékk ég boð um samning.“ Stuttgart var þó ekki eina liðið sem hafði áhuga á aö fá Eyjólf til liðs við sig. Félögin Brann í Noregi og Bever- en í Belgiu vora einnig á höttunum eftir honum „... en ég lét allt bfða því ég vildi vita hver niðurstaðan yrði hjá Stuttgart. Hún varð sú að þeir buðu mér samning eins og áöur sagði.“ Það var svo fyrir um það bil ári sem Eyjólfur hélt til Þýskalands. „Þá var mikið í gangi hjá liðinu. Þeir voru þá í lægð og skömmu eftir að ég kom út skiptu þeir umþjálfara. Hann varð þó ekki langlífur hjá félaginu því hann var fljótlega látinn fara og ann- ar ráðinn í staðinn. Daum heitir sá og hann er staðráðinn í að koma liö- inu áfram.“ - Voru það ekki talsverð viðbrigði fyrir þig að koma til Þýskalands? „Jú, það er ekki hægt aö segja ann- að. En mér var vel tekiö og það hjálp- aði mikið. Ég var að vísu í vandræö- um með þýskuna því hér tala þeir mállýsku, svokallaða „schwábisch," sem er svolítið annað en það sem maður lærir heima. Ég talaði því sambland af þýsku og ensku í fyrstu en þetta kom allt mjög fljótlega." - Hvað kom þér helst á óvart þegar þú fórst að leika með Stuttgart-lið- inu? „Það sem hefur líklega komið mér einna mest á óvart var geta leik- manna. Þeir eru allir afskaplega sterkir líkamlega, alhr skotfljótir og allir... já, eiginlega búnir öllum þeim eiginleikum sem þeir þurfa að hafa til að bera.“ Fyrst með varaliðinu Þegar Eyjólfur kom fyrst út spilaöi hann með varaliðinu svokallaða. Það leikur í 3. deildinni og kemst ekki upp úr henni hversu vel sem það leikur. Þjálfari aöalliðsins fylgist síð- an vel með leikmönnunum ungu og ef þeir standa sig vel með varaliðinu fá þeir tækifæri til að spreyta sig í liðinu hjá honum. Allt tekur þetta þó sinn tíma og menn hoppa ekkert á milli liða fyrirhafnarlaust. Eyjólfi var þó alltaf ætlað betra hlutskipti en að spila í 3. deildinni til langframa þvi hann æfði frá upphafi með aðalliðinu enda var hann á sér- stökum samningi. í fyrrahaust var hann svo settur inn á í tveim leikjum. í fyrri leiknum tókst honum að skora mark sem líklega hefur ekki spillt fyrir gangi mála. Síðan hefur hann veriö aö færa sig upp á skaftið og hefur leikið með aðalliöinu síðan keppnin hófst aftur eftir vetrarhléið. Þetta hefur þó ekki gengið sjálfkrafa fyrir sig því þrír leikmannanna hafa verið að berjast um stöðu framlínu- manns. Eyjólfur er einn af þeim sem bítast um hana og tókst honum að hreppa hnossið. Þar með var hann kominn í liðið. „Þetta er feiknabarátta enda til mikils að vinna. Það er til dæmis ekkert gefið eftir á æfingum. Þar leggja menn sig alla fram. Ef maður lendir svo í meiöslum kemur einhver annar inn á í staðinn. Ef hann spilar vel kemst maður kannski ekkert inn í liðiö aftur fyrr en næsti leikmaður meiðist. Æfingarnar eru því eins og hverjir aðrir leikir, þar sem menn „tækla" hver annan og berjast virki- lega. Maður verður að passa sig vel og vera ekkert að fórna sér. Auðvitað er það talsvert álag að vera alltaf undir slíkri pressu en maður verður að venjast þvr. Það reynir líka oft á þolinmæðina ef illa gengur, en þá má maður ekki láta bugast." - Eruð þið ekki undir miklum aga? „Jú, aginn er mjög mikill og menn verða aö vera harðir við sjálfa sig, til dæmis hvaö þeir borða og fleira í þeim dúr. Maður fær engan matseðil í hendurnar enda veit maður það svo sem best sjálfur hvað gott er og hvað slæmt. Þaö er einungis árangurinn sem sýnir hvernig maður hefur búiö að sjálfum sér.“ Strangar æfingar Nýi þjálfarinn, Daum, boðaði breytta tíma hjá Stuttgart. Hann setti þrjá unga menn inn í liðið, aftasta mann í vörn, annan á hægri kantinn og svo Eyjólf. „Hann lagði áherslu á að efla keppnisskapið og grimmdina á ný í leikmönnunum. Hann lét menn beita sér betur á æfingum og æfa mun meira heldur en fyrri þjálfar- inn. Vissulega hefur hann breytt stöðunni hjá liðinu. Við vorum mjög langt niðri fyrir áramótin en nú er- um við allir að hressast. í fyrstu fannst mér erfitt hvað við æfðum mikið. Þá var „bundesligan“ að byija og þetta var mikið stress.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.