Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1991, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1991.
'iÞPi 'wuri tc 'aTT.’itrnmm-TO
Idi. Til varnar eru Cikanauskas og Petkevicius, markahæstu leikmenn Litháa, en
DV-mynd GS
kílokin
Is, 22-20, á Litháen 1 gærkvöldi
ari, þar af eitt vítakast.
Hjá Litháen var Valdemaras Novitsk-
is, fyrrum fyrirliði sovéska landsliðs-
ins, í mikilvægu hlutverki og batt sam-
an vamarleikinn. Vigantas Petkevicius
var einnig íslensku vörninni erfiður
viðureignar.
Mörk íslands: Júlíus Jónasson 7/4,
Valdimar Grímsson 4, Siguröur Bjarna-
son 4/1, Stefán Kristjánsson 2, Birgir
Sigurðsson 2, Einar G. Sigurðsson 1,
Jón Kristjánsson 1, Konráð Olavsson
1/1. Aðrir sem léku voru Patrekur Jó-
hannesson, Jakob Sigurðsson og Gústaf
Bjarnason, sem lék sinn fyrsta lands-
leik.
Mörk Litháen: Petkevicius 8/3, Cika-
nauskas 4/1, Tchepulis 3, Milaschiunas
2, Novitskis 1, Malakauskas 1, Sakou-
kynas 1.
Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erl-
ingsson voru í erfiðri aðstöðu sem
heimadómarar en komust þokkalega
frá dómgæslunni.
Lækkað miðaverð á
leikinn í kvöld
Síðari leikur þjóðanna fer fram í Laug-
ardalshöllinni í kvöld klukkan 20.
Miðaverð hefur verið lækkað í 500
krónur fyrir fullorðna og aðgangur
verður ókeypis fyrir börn. „Við skorum
á alla þá sem vilja styðja sjálfstæðis-
baráttu Litháen að mæta í Hölhna og
fylla hana,“ sagði Jón Hjaltalín Magn-
ússon, formaður HSÍ. -VS
I
I
í
a
í
g
í
n
;i
i-
>i
i,
d
t-:
[S
ir
á
S
íslandsmótið í borðtennis
íslandsmótið í borðtennis hefst á morgun, skírdag, í íþróttahúsi TBR
í Reykjavík og lýkur á sama stað síðdegis á laugardaginn. Keppni
hefst í fyrramáhð klukkan 10 og leikið verður fram eftir degi. Undanúr-
slit hefjast síðan klukkan 14 á laugardaginn og úrslitin í meistaraflokk-
um karla og kvenna byrja um klukkan 16.30. í meistaraflokki karla
er 21 keppandi en 10 keppa í meistaraflokki kvenna. Það er borðtennis-
deild Víkings sem hefur umsjón með mótinu.
-VS
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Lögreglan í Reykjavík óskar eftir húsnæði til kaups
eða leigu fyrir bifreiðaverkstæði og aðra starfsemi
lögreglunnar. HúSnæðið þarf að vera á bilinu
600-800 m2. Tilboð sendist lögreglustjóranum í
Reykjavík, Hverfisgötu 115, eigi síðar en föstudaginn
5. apríl 1991, merkt „Verkstæði".
Allar nánari upplýsingar veitir Valgeir Guðmundsson
í símum 33820 og 672693.
íþróttir
Sport-
stúfar
r-~rr| Chicago Bulls mátti
I jjrLjjl sætta sig við ósigur á
\/y I heimavelli i fyrrinótt
'-----} þegar hðið fékk Hous-
ton Rockets í heimsókn í banda-
rísku NBA-deildinni í körfu-
knattleik. Þetta var 12. sigur Ho-
uston í röð. Úrslit urðu annars
þessi:
Orlando -Golden State.115-106
Washington - NJ Nets..113-106
Chicago - Houston. 90-100
Denver-Detroit.. 94-118
Utah - Milwaukee......109-98
LA Clippers - Phoenix.106-94
Sacramento-LALakers.... 89-99
Bröndby og Frem
efst í Danmörku
Bröndby og Frem eru
efst í dönsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu eftir 2. umferð
sem var leikin á sunnudaginn.
Þau eru einu félögin sem hafa
unnið tvo fyrstu leiki sína. Úrslit
urðu þessi:
Bröndby -Ikast...........2-1
Lyngby - B1903...........4-1
OB-AGF...................0-0
Silkeborg-AaB............1-1
Vejle - Frem.............1-2
Frem er með 4 stig, Bröndby 4,
Lyngby 2, Ikast 2, AaB 2, Silke-
borg 2, Vejle 1, AGF 1, B 1903 1
og OB 1 stig,
Evrópuleikir í kvöld
Fjórir leikir verða í Evrópu-
keppni landsliða í knattspymu í
kvöld. Skotar og Búlgarir leika í
Glasgow, San Marinó leikur
heima gegn Rúmeníu, Englend-
ingar og Irar leika á Wembley í
London og Belgía og Wales leika
í Brussel.
Sigurbjörn vann
páskamót Víkings
Hið árlega páskaeggja-
mót Nóa og Siríus og
borðtennisdeildar Vík-
ings var haldið ífyrra-
kvöld. Góð þátttaka var í mótinu
og var forgjafarfyrirkomulag á
mótinu. Keppt var upp í 51 og
voru borðtennisspilarar með
misjafna forgjöf eftir punkta-
stöðu manna. Glæsileg verðlaun
voru í mótinu frá Nóa og Síríus
í formi páskaeggja og fór enginn
tómhentur heim. Sigurbjöm Sig-
fússon sigraði, Ólafur Eggertsson
varð annar en þeir Pétur Ó.
Stephensen og Siguröur Jónsson
deildu með sér þriðja til íjórða
sætinu.
Landskeppni íslands
og Færeyja í sundi
Landskeppni milh ís-
lands ogFæreyja verð-
ur haldiö í Sundhöll
Reykjavíkur á annan í
páskum, 1. apríl. Keppendur
verða bestu sundmenn úr lands-
liðum beggja landa. Upphitun
hefst klukkan 9 og keppnin kl. 10.
Hlé verður gert á keppninni síö-
degis en hún hefst að nýju kl. 18.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um: 50 m skrið, 100 m bak, 200 m
ijór, 200 m bringa, 100 m flug,
4x100 m skrið, 200 m flug, 100 m
skrið, 200 m bak, 100 m bringa,
200 m skrið og 4x100 m íjór.
60 keppendur á vormóti TBR
Um siðustu helgi var
haldið vormót TBR í
badminton. Keppt var
með forgjöf og vom
þátttakendur um 660 talsins frá
Reykjavík og Keflavík. Kristján
Daníelsson, TBR, sigraði Ragnar
Jónsson, TBR, í einliðaleik, 15-10,
og 15-4. Kristján Daníelsson og
Gunnar Petersen, báðir úr TBR,
sigruðu þá Sigfús Ægi Árnason
og Skarphéðinn Garðarsson úr
TBR, 15-10, og 15-12.
í einliðaleik kveima sigraði Mar-
ía Thors, KR, Áslaugu Jónsdótt-
ur, TBR, 11-6, og 11-2. Gunnar
Petersen og Anna Steinsen úr
TBR sigruðu Áslaugu Jónsdóttur
og Tryggva Nilsen TBR í tvennd-
arleik, 15-8, og 15-12.
47
VÖRUBILAEIGENDUR,
ATHUGIÐ.
Höfum á lager
| undirakstursvörn
á vörubíla.
Mjög hagstætt verð.
Járnsmiðjan Varmi h/f
Hjalteyrargötu 6, Akureyri. Sími 96-26525
✓
O VARMI-
C-stigs þjálfaranámskeið KSÍ
verður haldió í íþróttamiðstöðinni Laugardal 5.-7.
apríl nk. Skráning er hafin á skrifstofu KSl, sími
84444. Þátttökugjald kr. 7.500. Góð þjálfun - betri
knattspyrna.
Fræðslunefnd KSÍ
Kjörskrá vegna alþingiskosninga sem fram fara 20.
apríl nk. liggur frammi almenningi til sýnis á Mann-
talsskrifstofu Reykjavíkurþorgar, Skúlatúni 2, 2. hæð,
alla virka daga frá 2. apríl til 20. apríl nk. Þó ekki á
laugardögum. Kjörskrárkærur skulu hafa borist skrif-
stofu borgarstjóra eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi
þriðjudaginn 9. apríl.
Kjósendur eru hvattir til þess að athuga hvort nöfn
þeirra séu á kjörskránni.
Reykjavík 25. mars 1 991
Borgarstjórinn í Reykjavík
Framboðsfrestur
til alþingiskosninga í Reykjavík 20. apríl 1991 rennur
út fnstudaginn 5. apríl nk., kl. 12.00 á hádegi.
Framboðum skal skila til oddvita yfirkjörstjórnar á
skrifstofu hans, Austurstræti 16. Einnig tekur yfirkjör-
stjórn á móti framboðum að Austurstræti 16, 5.
hæð, kl. 11.00-12.00 föstudaginn 5. apríl 1991.
Á framboðslista í Reykjavík skulu að lágmarki verða
18 nöfn og eigi fleiri en 36. Fjöldi meðmælenda í
Reykjavík er að lágmarki 360 og eigi fleiri en 540.
Fylgja skal tilkynning um hverjir séu umboðsmenn
framboðslista.
25. mars 1991
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur
Jón G. Tómasson
Borghildur Maack Guðríður Þorsteinsdóttir
Kristján J. Gunnarsson Skúli J. Pálmason