Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 23
LAÚGARIÍAGUR 27. APRÍL 199Í. 23 dv Meiming Mozart- tónleikar Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónieika í Háskólabíói að kvöldi sum- ardagsins fyrsta þar sem eingöngu voru leikin verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Hljómsveitarstjóri var Petri Sakari en einleikari á píanó var Markus Schirmer. Þess er minnst víða um heim að á árinu 1991 eru tvö hundruð ár síðan Mozart lést og voru þessir tónleikar liður í há- tíðahöldum af því tiiefni. Mozart var vel undir tvítugu þegai hann samdi sinfóníu nr. 25 í g moll og er það mikið undrunarefni að svc þroskað verk skuli samið af svo ung- um manni. Verk Mozarts urðu síðar Wolfgang Amadeus Mozart. Þess er minnst víða um heim að tvö hundruð ár eru síðan hann lést. Tónlist Finnur Torfi Stefánsson á ævinni dýpri og viðameiri en þetta verk hefur engu að síður mörg þau einkenni ágætis sem nafnið Mozart er tákn fyrir. Má þar nefna formlegt jafnvægi, glæsileika og tilfinninga- lega dýpt þar sem öllum markmiðum er náð með afslöppuðum einfaldleika geislandi hugvits. Allir þessir kostir koma enn betur fram í píanókonsert nr. 21 í C dúr, einni af fegurstu perl- um tónbókmenntanna sem Mozart hristi fram úr erminni á nokkrum vikum 1785 í röð margra annarra stórvirkja. Hér er lífssýn Mozarts orðin víðfeðmari og reynsla hans dýpri og gætir þess í tónlistinni sem er björt og glaðvær við fyrstu kynni en reynist dramatískari eftir þvi sem betur er hlustað. Haffner serenaðan, sem flutt var eftir hlé, stendur fyrrgreindu verk- unum mjög að baki. Hún er löng, eiginlega fullöng sem konsertverk og hálfsamtíningsleg í formi. Þannig eru nokkrir þættir framan af skrifað- ir sem einleiksþættir fyrir fiðlu en síðan er því hætt. Margt er fallegt í verkinu engu að síður og hefði ef til vill mátt flytja verkið í styttri mynd. Guðný Guðmundsdóttir lék einleiks- hlutverkiö og gerði þaö mjög fallega. Sinfóníuhljómsveitin spilaöi þessi verk í aðalatriðum vel. Sú breyting var gerð á uppröðun hljómsveitar- manna að annarri fiðlu var skipað á pallinn fremst til hægri og heyrðist nú betur en áður. Hins vegar hefði mátt heyrast meir í sellóum og lágf- iðlum. Hljómsveitin hafði ekki á valdi sínu það sambland nákvæmni í hljóðfalli og fingerðra styrkbrigða sem einkennir hina bestu Mozart- flytjendur. Það hafði hins vegar ein- leikarinn, Markus Schirmer, sem töfraði alla nærstadda með leik sín- um. Ásláttur hans var skemmtilega léttur en túlkunin tilflnningarík og full blæbrigða og er hvort tveggja mjög í anda tónlistarinnar. Áheyr- endur fógnuðu hinum unga virtúós vel og innilega og var hann kallaður fram margsinnis. vegna gatnaframkvæmda / sumar veröa Vonarstrceti, Templarasund og noröurhluti Tjarnargötu endurgeröar þannig, aö göturnar veröa steinlagöar og settar snjóbrœöslulagnir í þœr. Jafnframt veröur noröurbakki Tjarnarinnar endurbyggöur. Nauösynlegt er aö loka götunum meöan á framkvcemd stendur. Verkiö veröur unniö i áföngum. A meöfylgjandi mynd má sjá áfangaskipti. Eftirfarandi er áœtlun um verktima einstakra áfanga. m @ © o e Vonarstrœti austan nr. 10.................30. apríl - 75. ágúst. Templarasund...............................5. júlí - 15. ágúst.. Vonarstrœti frá nr. 8 aö Tjarnargötu og Tjarnargata frá Vonarstrœti aö nr. 4.1. júlí - 1. sept. Tjarnargata frá nr. 4 aö Kirkjustrœti.. 7. júní - 75. júlí. Tjarnargata frá Vonarstrœti aö nr. 12...75. júlí - 15.sept. Á tímabiJinu 30. apríl - 7. sept. veröur ekki unnt aö aka um Vonarstrœti frá Lœkjargötu aö Suöurgötu. Þess í staö er ökumönnum bent á aö aka Skólabrú, Pósthússtrœti og Kirkjustrœti. Framkvcemdum viö Tjarnargötu milli Vonarstrœtis og Kirkjustrœtis veröur hagaö þannig, aö aökoma veröur möguleg aö bílastœöi Alþingis. 30. apríl hefst J.áfangi verksins. Þá veröur Vonarstrceti austan nr. 10 lokaö. Einstefna á vesturhluta Vonarstrœtis veröur þá afnumin. Viö upphaf hvers áfanga veröur auglýst nánar um lokanir gatna og breytingar á umferö. LATTU EKKI OF MIKINN HRAÐA VALDA ÞER SKADA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.