Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Blaðsíða 13
-T«a 55ot m aaöAaaftaiiftj
LAU G-ARÐAGUR JÚNÍ-1991, ■
■■■I1
.
:
f - f
.
Skop.......................................
Þaft sem ua$m> Russuni 0nnst i rnun.........
Hlutvierk fyrtr Chife.......................
Exlenoír efofchujjat........................
GiaKpastarfwrnifn Mfn$osýsfcr...............
feyfvi Co'if.nyí ítyHr sfcjöðm'inl...........
Ptfg-ar betm or að þcjgja...................
KauÖunfiKúvcrts:............................
HqpKUMlauii fcroi lýíair petsómifeíltaruim
Ævintýrabeimuí Dísnevs......................
SismbtVwdlKAi ÖarnssrtfcjumiKv uppi'Ætt....
Hugf'Un í oröwm.................................
buö wim bornin gcts fccnnt ukfcur...........
I.ífthfcattttuíe^ivnfun4arhtíii - .......... .......
Maðuiinn í iestfnni.........................
Ny tekni keknar stam ....................*
Attst JS&Wtðíff íil áð skitja nkfcl yið fconunu....
á fcrosstc-fmtúíu
FUolunoi vifi.................-
Bemitan vr5 hjartasjúfcrfðmana
Mmnfngax-ífeisjurmor............
EnjjHf í háiofttr.n«rn..............,..
Ahrif tSftnnlnga á hdir.Btttta.......
Svoms íet meft atrakana hérna
Krossiölujjátan.....................
- mér leiðist aldrei, segir Héðinn Hannesson
„Það líða stundum svona sjö
mánuðir milli þess sem ég fer í
kaupstað og ég fer þá kannski
tvisvar á ári,“ sagði Héðinn Hann-
esson, bóndi og einyrki í Böðvars-
dal í Vopnafirði, þegar DV kom að
máli við hann á dögunum.
Ekkert að sækja
til Reykjavíkur
„Ég kom til Reykjavíkur einu
sinni fyrir svona 10 árum og var
þar nokkra daga en mér líkaði það
alls ekki, þangað hefur er ekkert
að saekja," sagöi Héðinn sem býr
einn ásamt 225 kindum.
Böðvarsdalur er ysti bær við
sunnanverðan Vopnafjörö og um
eins og hálfs tíma ferð í kaupstað
á Vopnafirði á traktornum sem er
eina farartækið á heimilinu.
„Ég átti einu sinni bíl en það var
tónit amstur. Hann var alltaf bilað-
ur,“ sagði Héðinn sem er fæddur
og uppalinn í Böðvarsdal og hefur
dvalið þar allan sinn aldur. Þó ekki
alltaf einn þvi þegar hann ólst þar
upp var þríbýli á torfunni og margt
í heimili. En fólkinu fækkaði og
síðustu 10-12 árin hefur hann verið
aleinn. Ekki er ýkja gestkvæmt í
Böðvarsdal því nokkurra kíló-
metra langur aíleggjari út að bæn-
um er ekki fær nema jeppum eða
dráttarvélum.
Síðastkom gestur
um miðjan apríl
„Hann kom hingað forðagæslu-
maðurinn um miðjan apríl og leit
á féð,“ sagði Héðinn. „Mér finnst
ég ekki endilega þurfa mikið á sam-
skiptum við aðra að halda enda hef
ég símann til þess ef nauðsyn her
til.“
Héðinn er ekki áskrifandi að
blöðum utan héraðsfréttablaðinu
Austra. Hann hefur ekki sjónvarp,
ekki rafmagn og enga upphitun í
íbúðarhúsinu sem er rösklega 50
ára gamalt. Hann eldar því og held-
ur á sér hita með gastæki. En leið-
ist honum aldrei?
Þarf enga
dægrastyttingu
„Onei, ég þarf ekki að gera mér
neitt til dægrastyttingar. Hjá mér
er dagurinn aldrei lengi að líða. Það
er nóg að snúast í kringum kind-
urnar og dugar varla dagurinn til
þess. Svo hef ég útvarpið sem er
alveg dásamlegt ef mér skyldi leið-
ast,“ segir hann og brosir feimnis-
lega.
Héðinn fær sent úr kaupstaðnum
hrauð, mjólk og kaffi en segist ekki
geta boðið okkur inn, það sé allt í
drasli hjá sér. Við spyrjum hvort
hann vilji ekki auglýsa eftir ráðs-
konu í DV en hann virðist frábitinn
því.
„Ég hef ekkert með svoleiðis að
gera,“ segir hann og veðurbitið
andlitið lifnar í brosi.
Líf sauðkindar-
innar er okkar líf
Þessi fáskipti maður, sem unir í
afskekktri sveit við ysta haf,
minnir á Bjart í Sumarhúsum sem
Halldór Laxness gerði ódauðlegan
en allir Austfirðingar þykjast
þekkja og telja að eigi sér fyrir-
myndir í þessum fjórðungi. Bjartur
hélt því fram að í þessu landi væri
líf sauðkindarinnar okkar líf og
Héðinn tekur undir það.
„Það er dásamlegt að búa með
sauðfé," segir hann og virðist ekki
ílnna fyrir kulda þar sem við ræð-
um saman í norðannepjunni sem
er rétt ofan við frostmark.
„Hér er gott að búa. Þetta er ein
hesta sauðjörð í Vopnafirði. Þetta
hefur verið gott vor og kindumar
eru flestar bornar. Ég er ekkert að
gefast upp á búskapnum. Ég er
búinn að vera hérna lengi og er
ekkert á forum. Ég verö hér þar til
yfir lýkur."
-Pá
tvisvar
áárí
DV-mynd GVA
3. HErn - 50. ÁR - MSÍ - JÚMÍ 1991
iimarít mir aiia
Kr. 425
... 2
103
114
160
Einbúinn í Böðvarsdal:
í kaup-
stað