Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1991. Ámi ísleifsson tónlistarmaður: Skipuleggur fjórðu djass- hátíðina á Egilsstöðum Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum: Árni ísleifsson, djassisti og tón- merintakennari, spilaði í mörgum hljómsveitum í Reykjavík á árum áður og á mörgum skemmtistöð- um, þ.á m. 10 ár í Naustinu. Eigin- lega ætlaði hann ekki endilega að leggja tónlistina fyrir sig. Hann var logsuðumaður. „En ég fékk illt í lunga og læknirinn minn sagði mér að það væri illskárra að vera í reykingasvælu en logsuðulofti," segir Árni og kímir. Árni hefur verið mikilvirkur á tónlistarsviðinu eftir að hann flutti á Egilsstaði 1976 sem tónmennta- kennari við Tónskóla Fljótsdals- héraðs. Meðal annars hefur hann staðið fyrir djasshátíð undanfarin þrjú ár og nú er sú fjóröa í undir- búningi. í tilefni af því hitti DV Árna og lagði fyrir hann nokkrar spurningar og fyrst þetta: Hvers vegna í ósköpunum Egilsstaðir? „Ég hafði kynnst Magnúsi Magn- ússyni, skólastjóra Tónskólans, lít- iilega en Egilsstaði haföi ég ekki séð nema á póskorti. Hálft í hvoru var ég þó með það bak við eyrað að setjast hér að, enda er ég hér enn og líkar að mörgu leyti vel. En ég tek eftir því að ég fer oftar til Reykjavíkur nú seinni árin en áður án þess að ég sé endilega að hugsa mér til hreyfings suður á bóginn.“ Stofnaði djasssmióju - Þú spilaðir mikið dansmúsík í bænum. Hélstu því áfram eftir að austur kom. „Já, ég spilaði í mörgum hljóm- sveitum hér á Egilsstöðum. Slag- brandur hét ein og Náttfari. Ein hljómsveitin var kennd við mig, hljómsveit Árna ísleifs. Síðan stofnaði ég Djasssmiðju Austur- lands fyrir sjö árum og hún starfar enn. Það hafa þó orðiö mikil mannaskipti en hún hefur alltaf verið skipuð Austfirðingum ein- göngu." - Snúum okkar þá að djasshátíð- inni. Hver varð kveikjan að því ævintýri? „Það var góður vinur minn, Steinþór Steingrímsson, sem sló því fram á góðum degi að hér ætti að koma á djasstónleikum. Ég tók hann á orðinu og ári síðar, 1988, fimmtíu flytjendur koma fram á hátíðinni Stórsveit Húsavikur er meðal þeirra hljómsveita sem leika á tónleikunum. var hér þriggja daga djasshátíð. Hún heppnaðist mjög vel og síðan hefur þetta verið árlegur viðburö- ur. Þessar hátíðar hafa allar verið vandaðar og umfang þeirra aukist ár frá ári. Á hátíðinni núna, sem verður 25.-29. júní, eru flytjendur um 50 og hafa aldrei verið svo margir." Stórsveit Húsavíkur leikur - Ekki eru þeir allir héðan að aust- an? „Nei, aldeihs ekki. Það verður t.d. 17 manna stórsveit frá Húsavík. Stjómandi hennar er Norman H. Dennis, foringi í Hjálpræðishern- um. Guðmundur Ingólfsson djass- píanisti verður á staönum ásamt Birni Thoroddsen gítarleikara. Þá má nefna fiðluleikarann Kuran, sem er 1. fiðlari í Sinfóníuhljóm- sveit íslands, Viöar Alfreðsson trompetleikara, Rúnar Georgsson saxófónleikara og gestur með tríói Árna ísleifs verður Stefán Stefáns- Árni ísleifs við píanóið. Hann er nú að fara af stað með sína fjórðu djasshátíð á Egilsstöðum. son saxófónleikari. Svo er að sjálfsögðu Djasssmiðja Austurlands. í henni eru núna fjór- ir Norðfirðingar, þrír Hornfirðing- ar og þrír frá Egilsstöðum en með okkur spfla nú á hátíðinni tveir gestir frá Reykjavík. Þá megum við ekki gleyma Bláa blúsbandinu frá Stöðvarfirði með Garðar Harðar- son, söngvara og gítarista, í broddi fylkingar. Blúsbandið spilaði hér á Egilsstöðum 8. júní sl. þegar krabbameinshlaupið fór fram. Það fékk til liðs við sig tvo Norðfirðinga og varð þá að sjálfsögðu að kalla sig Rauöa blúsbandið. Allt í allt eru þetta um 50 flytjendur." Fimm tónleikar - Hvað verða margir tónleikar? „Það verða fimm tónleikar á jafn- mörgum dögum. Einnig mun Vern- harður Linnet flytja fyrirlestur um sögu djassins og sýna myndbönd. Þá má geta þess að föstudagskvöld- ið 28.6. verður sjónvarpið á staðn- um og tekur upp tónleika með Djasssmiðju Austurlands ásamt Viðari Alfreðssyni og Rúnari Ge- orgs." - Verða þessir tónleikar allir á Egilsstöðum? „Já, þeir verða allir í Hótel Vala- - skjálf og allir að kvöldi til. Á laug- ardagskvöldið verður svo dansleik- ur þar sem þrjár hljómsveitir spila.“ - Verður framhald á þessum djass- hátíðum? „Ég ætla alla vega að komast upp í fimm en helst tíu hátíöir áður en ég legg upp laupana. Aðsókn hefur farið stöðugt vaxandi þessi þrjú skipti svo að ég er bjartsýnn á framhaldið." - Þú hefur komið víöar við í tón- listinni en í kennslu og djassi. „Já, fyrir utan dansmúsíkina, sem ég nefndi áöan, þá tók ég tfl við kórstjórn. Starf Karlakórs Fljótsdalshéraðs haíði legið niðri um 16 ára bil og ég dróst á að reisa hann við: Hann hefur nú starfað í fimm ár undir minni stjóm og haldið tónleika á hverju ári. Við verðum t.d. með tónleika á Þórs- höfn og Vopnafirði 15. júní. Ég held að bæði ég og kórinn hafi eflst í þessu samstarfi." RHEINLAND-PFALZ - Ferðaævintýri í eigin bíl Njótið fegurðar Rínarlanda, þar sem hið heimsfræga Rínarvín er ræktað. Sjáið og siglið á fljótunum Rin-Mosel-Ahr og Lahn með fallega kastala og hallir á árbökkunum. Sköðið miðaldabæi með markaðstorgum og uppruna- legum miðaldahúsum. Rínarhéruð eru frábær staður til að skoða sig um, en jafnframt að njóta hvíldar. Flugáætlun Flugleiða er kjörin til þess að koma þér og þínum í þægilegt og skemmtilegt frí í Þýskalandi. Luxemborg 10 sinnum í viku Frankfurt 5 sinnum í viku Hamborg 2 sinnum í viku Amsterdam 5 sinnum í viku BÍLALEIGUR: Flugleiðir sjá um pöntun á bílaleigubílum á hagstæðum kjörum. SUMARHÚS/íBÚðlR: Sérstaklega hagstæðir samningar í Hunsrúck í miðju Rínarhéraðí. í Hunsrúck er skemmtilegt að dvelja og njóta lífsins í fallegu umhverfi eða fara í spennandi ferðir um nágrennið. HÓTEL: Flugleiðir hafa samninga við úrval hótela á góðu verði í Þýskalandi. Upplýsingar og bókanir: FLUGLEIDIR símí 690300 opio 7 daga í viku eða ferðaskrifstofur og umboðsmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.