Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ1991.
9
dv Sviðsljós
Albert prins af Mónakó.
Prins Albert:
Hefekki
fundið
þá réttu
Albert prins af Mónakó er ekki
ástfanginn þessa stundina og segist
ekki vera í giftingarhugleiðingum.
Erlend blöð eru sífellt aö búa til
væntanlegar furstynjur fyrir Món-
akó en Albert prins hefur nú borið
allt slíkt til baka.. „Ég ætla ekki að
kvænast fyrir fólkið heldur sjálfan
mig,“ segir hann. „Ég hef ekki enn
fundið þá réttu.“
Albert býr höll fjölskyldunnar í
Mónakó. Hann segir að fólk sé sífellt
að spyrja hvenær hann taki við af
fóður sínum. „Ég vil ekkert segja um
hvort það verður eftir eitt ár, tvö eða'
tíu. Það kemur í ljós. Ef ég myndi
lýsa yfir aö ég væri farinn að bíða
eftir að komast í stólinn myndi fólk
segja að nú væri ég að ýta fóður mín-
um burt. Ef ég segi að ég viti ekkert
hvenær ég taki við segir fólk mig
ekki nógu ákveðinn. Það er því erfitt
að svara svona spurningu," segir
Albert.
Albert, sem er 33 ára gamall, hefur
ferðast mikið um Bandaríkin þar
sem hann var einnig í námi. Hann
hefur nú ýmsum ábyrgðarhlutverk-
um að gegna fyrir ríki sitt, þar á
meöal er hann forseti Rauða kross-
ins. Albert hefur í nógu að snúast og
veitti meðal annars verðlaun á tón-
hstarhátíðinni World Music Awards
fyrir stuttu.
Albert segir að tónlist hafi ahtaf
verið stór þáttur í lífi fjölskyldunnar.
„Systur mínar, Karólína og Stefanía,
voru báðar í píanókennslu og ég
lærði á gítar. í háskóla söng ég í kór
sem var mjög skemmtilegt. Núna
syng ég bara í baði eða í félagi með
nánum vinum við píanóundirleik,"
segir hann. World Music Awards
tónlistarhátíðin er tengd Mónakó-
fjölskyldunni og á að koma í stað
Grammy-verðlauna sem veitt eru í
Ameríku.
Albert er mest hrifmn af popp- og
rokktónhst. Hins vegar hefur honum
ahtaf líkað vel við söng Nat King
Cole. Albert var spurður hvort hann
hefði langað til að hitta einhvern
hstamann sérstaklega sem kom á
hátíðina í þetta skiptið. Hann segist
hafa hitt Elton John áður og alltaf
hkað tónhst hans. Einnig sá hann
Status Quo á tónleikum á síðasta
ári. Albert hafði hins vegar aldrei
hitt Cliff Richard fyrr, en hann var
einn af þeim sem fengu verðlaun á
hátíðinni.
Systir Alberts, Karólína, hefur ekki
mikið sést opinberlega eftir lát eigin-
manns hennar í október. Hún mætti
ekki á tónlistarhátíöina enda hefur
hún mikið að gera. „Karóhna fær
mikið af bréfum og svarar þeim öll-
um. Hún vinnur öllum stundum á
skrifstofu sinni en auk þess hefur
hún nóg að gera með að annast böm-
in sín þrjú,“ segir Albert.
Fjölskyldan í Mónakó er samhent
enda hefur hún þurft að takast á við
sorgina oftar en einu sinni. Prins
Albert er hins vegar ekkert æstur í
að kvænast strax og fjölmiðlar verða
að bíða með að segja frá brúðkaupi
hans, að minnsta kosti þar til hann
finnur þá réttu.
Nýr og stórlega
endurbættur
farsími frá
A MITSUBISHI
Upplýsingar:
MITSUBISHI
Verðdæmi á Mitsubishi-bíleiningu:
■■■■■
Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt
símtóli, nettri burðargrind. rafhlöðu
1,8 AH, loftneti og leiðslu í vindlaKveikjara.
Verð aðeins 126.980,- eða
Fullkomin tvíátta handfrjáls notkun.
(Símalínan er opin í báðar áttir í
einu við símtöl).
Styrkstillir fyrir öll hljóð sem
fra símanum koma s.s.hringing,
tónn frá tökkum o.fl. Einnig er
hægt að slökkva á tóninum frá
tökkum símtólsins.
Fullkomið símtól í réttri stærð.
Léttur, meðfærilegur, lipur í notkun.
Bókstafa- og talnaminni. Hægt er
að setja 98 nöfn og símanúmer í
minni farsímans.
Tímamæling á símtölum.
Gjaldmæling símtala. Hægt er að hafa
verðskrá inni í minni símans og láta hann
síðan reikna út andvirði símtalsins.
Hægt að láta símann slökkva sjálfvirkt á sér,
t.d. ef hann gleymist í gangi.
Getur gefið tónmerki með 1 mín. millibili á
meðan á samtali stendur.
Stillanlecjt sjónhorn skjás þannig að auðveldara
er að sjá á símtólið.
Tónval, sem er nauðsynlegt t.d. þegar hringt er í Símboða.
Stilling á sendiorku tií að spara endingu rafhlöðunnar.
Hægt er að tengja aukabjöllu eða flautu við farsímann,
sem síðan er hægt stjórna frá símtólinu.
6 hólfa skammtímaminni. Hægt er að setja símanúmer
eða aðrar tölur í minni á meðan verið er að tala í farsímann.
Endurval á síðasta númeri.
Langdrægni og öryggi Mitsubishi-farsímanna er þegar landsþekkt.
japönsk gæði tryggja langa endingu.
Mitsubishi FZ-129 D 15 farsími ásamt
símtóli, tólfestingu, tólleiðslu (5 mj,
sleoa, rafmaqnsleiðslum, hand-
frjálsum nljóðnema, loftneti
og loftnetsleiðslum.
Verð aðeins 115.423,- eða
99«990f"!lgr
3.628,- 109.990,-
kr. á mán. í 30 mán. m/Munaláni*
* Útreikningar mibast vib ab um jafngreibslulán sé ab ræba (annuitet), 25% útb., eina afb.
á mánubi til allt ab 30 mán. og gildandi vexti á óverbtryggbum lánum íslandsbanka hf.
Greiðslukjör til allt að 12 mán.
MUNALÁN
Bjóðum hin
vinsælu
Munalán, sem er
greiðsludreifing á
verðmætari
munum
til allt að 30 mán.