Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1991, Blaðsíða 51
L](ubkRÍ)AGUÍÍ'l5’/jtíl4l; Í991.
65
Afmæli
Bergþóra Kristinsdóttir
Bergþóra Kristinsdóttir, húsmóðir,
skrautritari og trúboði, Lágholti 2 í
Stykkishólmi, verður sextug 17.
júní.
Starfsferill
Bergþóra er fædd á Akureyri og
ólst þar upp. Hún lauk prófi frá
barnaskólanum á Akureyri. Vetur-
inn 1951-1952 var hún við nám í
húsmæðraskólanum á ísafirði.
Strax að barnaskóla loknum fór
Bergþóra aö vinna við iðnað því
sama ár dó faðir hennar.
Bergþóra íluttist til Stykkishólms
1953 og bjó þar ásamt manni sínum
í sex ár. Þau fluttust þá til Reykja-
víkur en ári síðar til Hafnarfjarðar.
Eftir tólf ára búsetu í Hafnarfirði
fluttust þau að Kotmúla þar sem þau
sáu um barnaheimilið þar í eitt ár.
Þá fluttust þau til Ólafsfjarðar. Þar
voru þau hjónin brautryðjendur í
trúboðsstarfi Betesda. Stjórnaði
Bergþóra söng og spili. Hún kenndi
einnig föndur og skrautskrift og
æfði börn í söng. Bergþóra hefur
samið milli tuttugu og þrjátíu söng-
lög.
Bergþóra fluttist ásamt manni sín-
um til Akureyrar árið 1981 og
bjuggu þau þar í eitt og hálft ár en
þá fluttust þau aftur til Stykkis-
hólms til að veita söfnuði Fíladelfíu
forstöðu. Bergþóra býr enn á Stykk-
ishólmi ásamt manni sínum og
starfar þar sem trúboði.
Fjölskylda
Bergþóra giftist 29. ágúst 1953
Benjamín Þórðarsyni, f. 28.4.1927,
stýrimanni og trúboða, frá Hergils-
ey á Breiðafirði. Foreldrar hans
voru Þorbjörg Sigurðardóttir og
Þórður Benjamínsson, bóndi í Herg-
ilsey og síðar í Flatey á Breiðafiröi.
Bergþóra og Benjamín eiga eina
dóttur: Björgu, f. 15.6.1954, gifta
Ólafi J. Pálssyni. Börn þeirra eru:
Rut, Benjamín og Bergþóra. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Systkini Bergþóru eru: Sigurjóna
Kristinsdóttir, f. 27.9.1929, maki
Hreinn Óskarsson, múrari á Akur-
eyri. Börn þeirra eru: Margrét,
Kristin, Agnea Björg, Hreindís Guð-
rúnogKristinn.
Kári Kristinsson, f. 4.8.1938, bif-
vélavirki, maki Þuríður Björnsdótt-
ir og dóttir þeirra er Elín Helga
Káradóttir. Þau eru búsett á Akur-
eyri.
Foreldrar Bergþóru voru Kristinn
Jóhannesson, f. 14.5.1886, d. 28.10.
1945, sjómaður frá Nolli í Höfða-
hverfi, og Björg M. Ósland, f. 21.5.
1896, d. 23.6.1975, húsmóðir.
Bergþóra Kristinsdóttir.
Bergþóra verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Pálína Siguijónsdóttir
Pálína Sigurjónsdóttir hjúkrunar-
forstjóri, til heimilis að Arnartanga
18, Mosfellsbæ, veröur sextug 17.
júní.
Starfsferill
Pálína fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk hjúkrunarprófi
frá Hjúkrunarskóla íslands 1953,
stundaði framhaldsnám í heilsu-
vernd við Danmarks Sygeplejerske
hojskole ved Árhus Universitet
1968—6ð og nám í kennslu og uppeld-
isfræði við KHÍ sumarið 1976. Þá
hefur Pálína sótt ýmis námskeið á
vegum Hjúkrunarfélags íslands og
norrænna samtaka hjúkrunarfræð-
inga.
Pálína hefur verið hjúkrunarfor-
stjóri við Heilsugæslustöðina í efra
Breiðholti frá 1978. Hún var fulltrúi
Hjúkrunarfélags íslands á alþjóða-
þingi hjúkrunarfræðinga í Seoul í
Kóreu 1989. Pálína var formaður
trúnaðarráðs Hjúkrunarfélags ís-
lands 1977-80, sat í stjórn Hjúkrun-
arfélags íslands frá 1983, var vara-
formaður þess frá 1985, formaður
Hjúkrunarfélagsins 1986-88 og var
fulltrúi Hjúkrunarfélagsins í sam-
'tökum norrænna hjúkrunarfélaga
um árabil. Hún var fulltrúi heil-
brigöisráðuneytisins í skólanefnd
Nýja hjúkrunarskólans um árabil
og sat í stjórn hollustuverndar ríkis-
ins í fjögurár.
Fjölskylda
Pálína giftist 16.6.1954 Sigmundi
Ragnari Helgasyni, f. 7.12.1927,
skrifstofumanrti, en hann er sonur
Helga Kristins Jónssonar, verslun-
arstjóra í Reykjavík, og konu hans,
Ingibjargar Sigmundsdóttur hús-
móður.
Börn Pálínu og Sigmundar eru
Ingibjörg, f. 11.1.1955, hjúkrunar-
fræðingur í Hafnarfirði, gift Valde-
mar Pálssy ni kennara og eiga þau
tvö börn, Sigmund Helga, f. 25.4.
1986, og Inger Helgu, f. 4.1.1988;
Helga, f. 11.4.1956, húsmóðir og
kaupmaður á ísafirði, gift Króknes
Torfasyni, trésmiði og kaupmanni á
ísafirði, og eiga þau tvö börn, Torfa,
f. 11.2.1977, og Pálínu, f. 29.1.1981;
Helgi Kristinn, f. 15.6.1967, lækna-
nemi.
Systkini Pálínu eru Finnur Sigur-
finnur, f. 14.11.1919, bókavörður á
Seltjarnarnesi; Sigurjón Helgi, f.
14.11.1919, d. 24.12.1936; Henný
Dagný, f. 29.8.1922, húsmóðir í
Reykjavík, var gift Einari Þorsteins-
syni rakarameistara, sem er látinn,
og eru börn þeirra tvö; Ólöf Ingi-
björg, f. 4.10.1923, húsmóðir í
Reykjavík, gift Helga Eiríkssyni,
aðalbókara hjá Ríkisskip, ogeiga
þau sex börn; Jóhanna Kristín, f.
31.5.1935, húsmóðir í New York,
gift Fróða Kristni Jóhannssyni Ell-
erup vélfræðingi og eiga þau tvær
kjördætur.
Foreldrar Pálínu voru Sigurjón
Pálsson, f. 12.8.1896, d. 15.8.1975,
sjómaður og vélgæslumaður í Vest-
mannaeyjum og Keflavík, síðar
starfsmaður Reykjavíkurborgar, og
kona hans, Helga Finnsdóttir, f. á
Stóru-Borg undir Eyjafjöllum, d.
25.4.1989, húsmóðir og saumakona.
Ætt
Sigurjón var sonur Páls, útgerðar-
manns og sjómanns í Hjörtsbæ í
Keflavík, Magnússonar, járn- og tré-
smiðs í Hjörtsbæ, Hjartarsonar, frá
Járngerðisstöðum, Jónssonar. Móð-
ir Magnúsar var Guðrún Jónsdóttir,
b. í Stóru-Garðhúsum í Höfnum og
síðar á Hópi í Grindavík, Sighvats-
sonar, og konu hans, Þuríðar Páls-
dóttur, b. í Hópi, Þorkelssonar. Móð-
Pálína Sigurjónsdóttir.
ir Páls var Valgerður Ólafsdóttir,
b. á Minni-Þverá í Holtasókn í Fljót-
um í Skagafirði, Þorsteinssonar.
Móðir Sigurjóns var Þuríður
Nikulásdóttir, b. í Berjaneskoti und-
ir Eyjafjöllum, Nikulássonar, og
konu hans Halldóru Jónsdóttur, b.
í Hátúnum og Dalbæ í Landbroti,
Marteinssonar.
Meðal bræðra Helgu var Friðfinn-
ur, kafari og sóknarnefndarmaður
í Vestmannaeyjum. Helga var dóttir
Finns, b. á Stóru-Borg undir Eyja-
fjöllum, bróður Sigurðar, hrepp-
stjóra og athafnamanns í Vest-
mannaeyjum, fóður Einars ríka,
föður Sigurðar, forstjóra í Eyjum,
og Ágústs, prófessors við HÍ. Finnur
var sonur Sigurfinns, b. í Ystabæli
og Ystabæliskoti, Runólfssonar, Sig-
urðssonar Ögmundssonar, prests að
Krossi, Högnasonar prestaföður og
prófasts á Breiðabólstað, Sigurðs-
sonar. Móðir Helgu var Ólöf Þórðar-
dóttiráStóru-Borg.
Hallbjöm G. Guðmundsson
Hallbjörn Guðlaugur Guðmundsson
vélstjóri, Hjallavegi 2, Suðureyri við
Súgundaíjörö, verður sjötíu og fimm
áralð.júní.
Starfsferill
Hallbjörn er fæddur á Suðureyri
við Súgundafjörð og ólst þar upp.
Hann hefur verið sjómaður frá unga
aldri. Hallbjörn er lærður vélstjóri
og starfaði lengst af sem slíkur en
seinni ár sín til sjós starfaði hann
sem matsveinn. Síðustu árin starf-
aði hann sem verkamaður þar til
fyrir nokkrum árum að hann varð
að hætta sökum veikinda.
Fjölskylda
Hallbjörn kvæntist 6. desember
1941 Svövu Hansdóttur, f. 28.12.1921,
verkakonu og húsmóður. Móðir
hennar var Ingibjörg Friðsemd
Magnúsdóttir.
Börn Hallbjörns og Svövu eru:
Guðmundur Valgeir Hallbjömsson,
f. 24.6.1942, sjómaður á Suðureyri,
kvæntur Þóru Þórðardóttur, f. 6.7.
1939, og eiga þau átta börn og þrjú
barnabörn.
Gísli Hallberg Hallbjörnsson, f.
18.7.1943, sjómaður á Akranesi,
kvæntur Málfríði Skúladóttur og
eiga þau þrjár dætur og eina dóttur-
dóttur. Þau misstu ungan son, Björn
Skúla.
Róbert Eðvarð, f. 14.6.1945, sjó-
maður á Suðureyri, sambýliskona
hans er Ósk Bára Bjarnadóttir og
eigaþauþrjúbörn.
Valgerður Friðrika, f. 3.9.1947, gift
Kristjáni Grétari Schmidt, f. 4.3.
1947, þau eiga tvær dætur og eru
búsett á Suðureyri.
Systkini Hallbjörns eru: Maria
Guðríður Guðmundsdóttir, f. 28.9.
1918; Jón P. Guðmundsson, f. 4.3.
1923; Ásgeir Þórður Guðmundsson,
f. 13.9.1925, d. 15.10.1935; Guðrún
Sesselja Guðmundsdóttir, f. 16.9.
1927.
Foreldrar Hallbjörns voru: Guð-
mundur Þorleifur Geirmundsson, f.
Hallbjörn Guðlaugur Guðmunds-
son.
24.10.1885, d. 24.10.1946, sjómaður
og Valgerður Friðrika Hallbjörns-
dóttir, f. 30.6.1889, d. 8.3.1932. Þau
bjuggu á Suðureyri við Súganda-
fjörð.
Hallbjörn tekur á móti gestum í
Verkalýðshúsinu Bjarnarborg mfili
kl. 16.00 og 19.00 á afmælisdaginn.
Til hamingju með
afmælið 15. júní
95 ára
Friðfinnur Friðfinnsson,
Grundargötu 28, Grundarfirði.
Tyrfingur Einarsson,
Snorrabraut 58, Reykjavik.
40ára
80 ára
Þórdis Ágústsdóttir,
Brautarholti 2, Ólafsvík,
Haildóra Jónsdóttir,
Sæviðarsundi 40, Reykjavík.
75 ára
Kristjana Sigurðardóttir,
Granaskjóli 12, Reykjavík.
70ára
Jakob Sveinbjörnsson,
Barmahlíð 9, Reykjavík.
60 ára
Einar Ingólfsson,
Faxabraut 32C, Keflavík.
Dagbjört Ólafsdóttir,
Álandi7,Reykjavík.
Margrét Stefándóttir,
Kleppsvegi 136, Reykjavík.
50 ára
María Magnúsdóttir,
Hraunbæ 158, Reykjavík.
Karl Sigurðsson,
Bjarkargrund 45, Akranesi.
Henry Bcrg Johansen,
Eyjabakka 13, Reykjavík.
Jens Karel Þorsteinsson,
Vesturbergi 28, Reykjavík.
Lilja Jónsdóttir,
Fjarðarseli 7, Reykjavík.
Valur Steingrímsson,
Arnartanga 61, Mosfellsbæ.
Sigríður Hallgrísmdóttir,
Grímstungu 2, fjallahreppi.
Dröfn Björnsdóttir,
Brúarási 12, Reykjávik.
Amalía Sigrún Guðmundsdóttir,
Þverá II, Akrahreppi.
Guðmundur Guðmundsson,
Hraunbæ 28, Reykjavík.
Jóna Kolbrún Halldórsdóttir,
Strandgötul5, Eskifirði.
Þórunn Ósk Ástþórsdóttir,
Engihlíð 16, Reykjavík.
Þorsteinn Þorsteinsson,
Logafold 108, Reykjavík.
Bergsveinn Jóhannsson,
Bröttukinn 5, Hafnarfiröi.
Magnús Ingólfur Halldórsson,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Júlíus R. Hafsteinsson,
Fífuseli 11, Reykjavik.
Halla Mjöll Hallgrímsdóttir,
Arkarholti 3, Mosfellsbæ.
Utboð
Hellisheiði 1991
Vegagerð ríkisins mun á næstunni bjóða út lagn-
ingu Hlíðarvegar (917) um Hellisheiði frá Hellisá
að Fjallshólum, alls um 8 km.
Helstu magntölur verða h.u.b.: Fyllingar 1 50.000
m3, neðra burðarlag 20.000 m3 og röraræsi 200
m.
Verkinu skal lokið haustið 1992.
Þar sem vinnusvæðið liggur hátt (í 345-655 m
hæð) og framkvæmdatími er af þeim sökum
stuttur verður að leggja áherslu á mikinn fram-
kvæmdahraða.
Þeir verktakar, sem áhuga hafa á þessu verki,
geta fengið afhentan kynningarbækling hjá
Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík
(aðalgjaldkera) frá og með 19. þ.m. Mælt er
með því að væntanlegir bjóðendur kynni sér auk
þess aðstæður á vinnusvæðinu með skoðunar-
ferð þangað.
Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði afhent á
sömu stöðum frá og með 1. júlí 1991 og að til-
boðum verði skilað aðeins viku síðar.
Vegamálastjóri