Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Page 16
16 MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991. Erlendmyndsjá Þeir gera ýmislegt, Ástralir, þegar þeir kanna hvort sjúkrabílar þeirra séu nógu traustir. Hér er áhættubílstjóri að velta einum slíkum í Melbourne til að kanna hvort ný tegund veltigrinda uppfylli þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Áttu barn á skólaaldri? Þá geturðu hugsanlega haft áhuga á Dans-Nýjung Barnabæ sem kynnir nýtt á Is- landi: 9 mánaða námskeið fyrir börn á aldrinum 5-7 ára. Kennt verður frá kl. 8-12 og^íðan 13-17. Hvað vilt þú gera fyrir barn þitt??? .. .vandaðu valið! Hjá okkur læra börnin dans, söng, leiklist, slökun, framsögn, fram- komu, kurteisi, borðsiði, að vinna með liti, við bökun, lestur, teikn- un. Þegar námskeiðinu lýkur halda börnin sýningu á því sem þau hafa lært og veita viðurkenningum skólans viðtöku. Þau verða í alvöru- leikbúningum sem skólinn lætur í té. Unnið verður úr hinum frábæru barnabókum sem Vaka-Helgafell gefur út og Gáski segir frá. Öll kennsla miðast við að vera barni þínu til gagns og gleði. Ath., takmarkaður fjöldi nem- enda. Skólinn tekur til starfa mánudag- inn 9. sept. Skírteinaafhending verður laugardaginn 7. sept. kl. 14.00-18.00. Upplýsingar í síma 677270 alla daga þessa viku frá 13-18 <aySajl iÞ— Hermaður gengur meðfram fullri lest af skriðdrekum í lestarstöðinni í Ljublj- ana í Júgóslavíu. Skriðdrekarnir voru á leið á heræfingar í Bosníu en þeim æfingum varð að aflýsa þar sem lestarsamgöngur röskuðust vegna stríðs- átakanna i Króatíu. Tvær gamlar stríðskempur faðmast og kyssast við götuvígi í Moskvu eftir að valdaránstilraun harðlínumanna fór út um þúfur á dögunum. Stríðshetj- urnar og unglingar, sem voru í liði með þeim, neituðu að fara að skipunum Jeltsins Rússlandsforseta og rifa viggirðingarnar niður. Það var glatt á hjalla hjá þeim George Bush Bandaríkjaforseta og John Major, forsætisráðherra Bretlands, úti á sjó undan sumarhúsi forsetans í Mainefylki fyrir helgi. Bush er mikill stangaveiðimaður og hann gat ekki verið þekktur fyrir annað en að bjóða Major að bleyta færi með sér. Starfsmaður Hagenbeckdýragarðsins í Hamborg sprautar örsmáum tölvukubbi inn í 45 daga gamlan kinverskan hlébarða. Með þessu móti á að verða hægðarleikur að þekkja þennan hlébarða frá öðrum bræðrum hans. Hlébarðinn var fyrsta dýrið í dýragarðinum sem merkt er á þennan hátt og fékk hann því viðurnefnið Kubbur. Simamyndir Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.