Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Side 33
MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991,
49
Sviðsljós
Bragi Kristjánsson sjötugur
Bragi Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri póstmálasviðs Pósts og síma,
varð sjötugur þann 27. ágúst síðast-
liðinn. Bragi hefur verið viðloðandi
íþróttir í fjölmörg ár. Hann hefur
meðal annars verið í ólympíunefnd
íslands frá 1951, í stjórn FRI, í stjórn
íþróttasvæðanna í Reykjavík um
árabil og síðast en ekki síst hefur
hann verið í fulltrúaráði Knatt-
spyrnufélagsins Vals í tugi ára.
í tilefni afmælisins bauð Bragi
ásamt konu sinni, Steinunni Snorra-
dóttur, til veislu í Akoges-salnum í
Sigtúni 3. Fjölmargir gestir komu til
að gleðjast með afmælisbarninu og
fjölskyldu á þessum merkisdegi.
Margar ræður voru fluttar honum
til heiðurs en einnig voru nokkrar
óvæntar uppákomur.
Annar sonur Braga og Steinunnar,
HaRdór, er höfuðpaur hljómsveitar-
innar „Vinir Dóra“. Söngkona hljóm-
sveitarinnar, Andrea Gylfadóttir,
sem hefur verið kölluð blúsdrottning
Afmælisbarnið, Bragi Kristjánsson,
dóttur.
ásamt konu sinni, Steinunni Snorra
Afmælisbarnið umvafið kvenfólki. Þessar heiðurskonur, sem komu til að
gleðjast með Braga, eru ræstingakonur í Landsímahúsinu, frá vinstri, Guð-
rún Þórðardóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Bragi, Pálína Hafsteinsdóttir
og Hansína Bjarnadóttir.
íslands, söng við undirleik Karls
Möller og fengu þau mjög góðar und-
irtektir áheyrenda.
Hinn sonurinn, Helgi, sem einnig
er í tónlistinni, en hann er yfirkenn-
ari Tónlistaskóla Hafnarfjarðar, spil-
aði á píanó en dótturdóttir Braga,
Steinunn, spilaði með á blokkflautu.
Einnig spilaði á píanó systursonur
Braga, Kristján Magnússon, en hann
hefur spilað með mörgum þekktum
hljómsveitum og má þar, til dæmis,
nefna hina þekktu hljómsveit KK.
Bragi hefur verið i gufubaðsklúbb i tugi ára. Nokkrir félagar hans úr klúbbn-
um komu til að gleðjast með honum á þessum merkisdegi, frá vinstri,
Gunnlaugur Snædal læknir, Ágúst Bjarnason, skrifstofustjóri og formaður
klúbbsins, afmælisbarnið og Tómas Árni Jónsson læknir.
Ólafur Tómasson póst- og simamálastjóri heilsar upp á afmælisbarnið en
hjá þeim stendur Sigrún Þorleifsdóttir, kaupkona í blómabúðinni Burkna í __
Hafnarfirði. DV-myndir S f'
Douwe Jan
BakkeríNý-
listasafninu
Hollenzki listamaðurinn Douwe
Jan Bakker opnaði sýningu í efri
sölum Nýlistasafnsins laugardaginn
24. ágúst. Sýningin skiptist í þijá
flokka sem eru minnisblöð, frum-
myndir og teikningabrot.
Douwe Jan Bakker ætti að vera
íslendingum vel kunnur því hann
hefur oft komið hingað til lands og
sýnt verk sín. Hann sýndi fyrst í
Gallery Súm árið 1971 og síðast sýndi
hann 1985 í Nýli&tasafninu.
Douwe Jan Bakker er fæddur í
Heemstede í Hollandi 1943 og lagði
stund á Ustnám við Ustaskólana í
Eindhoven og Den Bosch. Hann hef-
ur haldið fjölda sýninga í heimcdandi
sínu og átt verk á farandsýningum
með hoUenskri Ust.
Douwe hefur aðallega helgað sig
langtímaverkefnum sem eru oftast
tengd tungu og merkingu.
Listamaðurinn er hér í boði Ný-
Ustasafnsins' og MyndUsta- og hand-
íðaskóla íslands sem gestakennari.
Sýningin verður opin daglega frá
klukkan 14-18, til 8. september næst-
komandi.
Listamaðurinn Douwe Jan Bakker.
DV-mynd Anna
DANSSKOiI
ASTVAtDSSON A*
BORN
(yngst 4 ára)
UNGLINGAR
Samkvæmisdansar - diskódansar.
FULLORÐNIR
(einstaklingar og pör)
Samkvæmisdansar - nýir og
gamlir.
ROCK’N ROLL
Sértímar í rokki og tjútti.
NÝJUSTU
DISKÓDANSARNIR
/ Suc Machine, Carabian Electric
Boogie o.fl. plús Hip Hop.
EINKATÍMAR
(einstaklingar, pör, smáhópar).
KENNSLUSTAÐIR:
Reykjavík.
Brautarholt 4, Drafparfell 4, Ársel (Árbæ), Fjörgyn (Foldaskóla).
Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Hveragerði.
Innritun daglega frá kl. 10-12 og 13-19 I síma 74444 og 20345. Kennsla
hefst laugardag 14. sept. Skírteini afhent fimmtudag 12. sept kl. 17-21.
Keflavík, Grindavík, Garður, Sandgerði, Njarðvík.
Innritun hefst mánudaginn 9. sept. og er frá 20-21 í síma 68680.
Gestakennari í vetur verður hinn frábæri enski danskenn
ari Keitti Keily.
Vestmannaeyjar: Innritun á næstunni.