Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Qupperneq 40
U1
o.
-m:
■H
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991
Jón Baldvin:
Þetta er mál
þingflokksins
„Fjárlagaafgreiðslan er þess eðlis
að nú þegar hafa verið teknar ýmsar
bindandi ákvarðanir, til dæmis strax
þann 9. júlí þegar ríkisstjórnin ákvað
útgjaldaramma ráðuneyta. Það er
því ekki hægt að verða við ósk þess-
ara flokksmanna. Auk þess er þetta
mál þingflokksins. Hins vegar verða
öll meginmál og stefnumál að sjálf-
sögðu tekin til umræðu í flokks-
stjórn," segir Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðuflokksins.
Þrettán framámenn í Alþýðu-
flokknum hafa farið fram á það við
stjórn flokksins að þegar í stað verði
haldinn fundur í flokksstjórn til að
ræða fjárlagagerðina. Þess er krafist
að engar skuldbindandi ákvarðanir
verði teknar fyrr en flokksstjórn hafi
lagt blessun sína yfir þær.
Jón Baldvin segist tvisvar hafa orð-
ið að aflýsa fyrirhuguðum flokks-
stjórnarfundi að undanförnu. Ekki
hafi veriö fundarfært vegna sumar-
leyfa flokksmanna. Hann segist nú
stefna að því að halda fundinn næst-
komandifimmtudag. -kaa
Framleiönisjóður:
ElduráOtrateig:
v Ikveikja með
bensíni?
Eldur kom upp i mannlausri íbúð
á Otrateig 20 rétt eftir miðnætti að-
faranótt sunnudagsins. Eigendur
íbúðarinnar, sem höfðu nýverið fest
kaup á henni og unnið að endurbót-
um, m.a. lagningu parkets á gólf,
voru ekki fluttir inn.
Nágranni, sem varð eldsins var, fór
með slökkvitæki og réðst til atlögu
við eldinn. Tókst honum að slökkva
eldinn áður en slökkviliöið kom á
staðinn. íbúðin var síöan reyklosuð.
Talsverðar skemmdir urðu á nýju
parketinu. Af ummerkjum að dæma
virtist sem bensíni hefði veriö hellt
niður á tveimur stöðum í íbúðinni
ogeldurlagðurað. -ELA
> \
LOKI
Sighvatur gat nú sparaö
meö því að leika sjálfur
í áróðursmyndinni!
CIIaIii Lamm UIAii aIIIm
ciietii dofh diou OTtir
að foreldrar sæktu þau
Sérstakt neyðarathvarf unglinga
hefur veríð sett upp í miðbænum
um helgar í samvinnu lögreglu og
Æskulýðs- og tómstundaráðs
Reykjavíkur. Neyðarathvarfið er
ætlað til að geyma börn og unglinga
innan sextán ára aldurs þar til for-
eldrar koma og sækja ungana sína,
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar, upplýsingafulltrúa lögregl-
unnar, var þetta reynt í fyrsta
skipti nú um helgina með góðum
árangri. EOefu böm voru tekin
aðfaranótt laugardags og náðist í
foreldra þeirra allra.
_ „Foreldrar tóku þessu vel,“ sagði
Ómar Smári en benti á að ef ekki
næðist í foreldrana yröu börnin
vistuð á sérstökum stað þar til þau
yrðu sótt. Börnin reyndu engar
mótbárur er lögreglan hirti þau í
miðbænum enda ekki staður fyrir
svo unga krakka og útivistartimi
þeirra liðinn.
Lögregian ætlar ekki að gefa upp
hvar þetta nýja athvarf er en að
sögn Omars er það í námunda við
miðbæinn. „Við munum halda
þessu áfram um helgar. Bæði lög-
reglumenn að störfum og sérstakt
eftirlitsfólk frá Æskulýðsráði mun
fylgjast með að ung börn og ungl-
ingar séu ekki að þvælast í miö-
bænum. Allir undir sextán ára
aldri mega búast við að vera hand-
samaðir og fluttir í athvarfið. Þeir
fá síðan að vera í okkar umsjá þar
til næst í foreldrana," sagði Óraar
Smári. „Reynsla helgarinnar af
þessari nýjung var mjög góð svo
ástæða er til að halda þessu áfram.“
Talið er að á milli sex og átta
þúsund manns hafi verið saman-
komin í miðbæ Reykjavíkur aðf-
aranótt laugardagsins. Ölvun var
áberandi en ekki var þó mikið um
bókanir vegna slagsmála eða ann-
arra óláta. Þegar hreinsunardeilu
borgarinnar kom til starfa um
klukkan hálfsex um morguninn
þurfti lögregla að rýma bannn svo
hægt væri að lireinsa hann. Aö
sögn lögreglu gekk það bærilega
þó nokkrir rugludallar vildu
staldra lengur við. Flest þetta fólk
var á aldrinum 19-25 ára.
Mun rólegra var í miðbænum
aðfaranótt sunnudagsins enda veð-
ur verra en nóttina áður.
-ELA
„Það fer ekki hjá því að framlögin
til. sauðfjárræktarinnar bitni á öðr-
um útgjaldaþáttum landbúnaðar-
mála. Þeir verða minni en ella fyrir
vikið. Þannig get ég til dæmis ekki
gengiö jafn langt í jarðrækt og skóg-
rækt og ég hefði kosið,“ segir Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra.
Halldór hefur nú lagt til við ríkis-
stjórnina að framlög til Framleiðni-
sjóös verði skert um 300 milljónir á
næstu fjárlögum. Alls er honum ætl-
að að ná útgjöldum ráðuneytis síns
niöurumháttítvomilljarða. -kaa
Heilbrigðisráðuneytið:
Auglýsingin um
650 þúsund
„Auglýsingamyndin var gerð hjá
Myndbæ pg kostaði á bilinu 300-350
þúsund. Áætlað er að sýna hana í
viku, þrisvar eftir aðalkvöldfréttir
og 5-6 sinnum fyrir ellefufréttir.
Þessar sýningar kosta samtals um
300 þúsund krónur," sagði Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson, formaður
lyfjanefndar heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytisins, er hann var
spurður um kostnað við umdeilda
auglýsingamynd frá ráðuneytinu um
lyfjakaup sem sýnd hefur verið í
sjónvarpinu að undanförnu. -JSS
Hraðakstursmálið:
Akvörðun í dag
Heimsókn Mauno Koivisto, forseta Finnlands, lýkur í dag en hann hefur dvalist hér síðan á fimmtudag. Hann
hefur bæði skoðað landið og rætt við forráðamenn þjóðarinnar, Myndin er tekin er hann gróðursetti tré á Þingvöilum
i gær ásamt Vigdisi Finnbogadóttur, forseta íslands. DV-mynd GVA
Lögreglan í Reykjavík tekur
ákvörðun um það'í dag hvort bíl-
stjóri Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra verður sviptur
ökuréttindum vegna hraðaksturs.
Bílstjórinn fór í skýrslutöku hjá
lögreglunni í Reykjavík á föstudag.
Þar sagði hann það misskilning að
ráðherra hefði hvatt sig til að sinna
ekki stöðvunarfyrirmælum lög-
reglumanna þegar ráðherrabifreiðin
mældist á um 130 km hraða. Bílstjór-
inn kveðst heldur ekki hafa ekið eins
hratt og mæhngin sagði. Eramburð-
arskýrslur lögreglumanna úr Kefla-
vík voru væntanlegar til Reykjavík-
urímorgun. -ÓTT
Veðrið á morgun:
Hlýtt aust-
an- og norð-
austanlands
Á morgun verður vestan- og
suðvestanátt, smáskúrir við suð-
ur- og suðvesturströndina en
bjart og fremur hlýtt austan- og
norðaustanlands.
ÞJÓFAVARNIR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI
Vönduð og viðurkennd þjónusta
VARI
Állan sóíarTiringinn
Öryggisþjónusta
síðan 1 9ó9