Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Lyngmói 8, Njarðvík, þingl. eig. Steinsmíði hf., fer fram í
dómsal embættisins fimmtudaginn 21. nóvember nk. kl. 10.00. Uppboðs-
beiðandi er Eggert B. Ólafsson hdl.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugveiii
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta, á eftirtalinni eign:
Engihjalli 3, 5. hæð D, þingl. eigandi Stórhýsi hf„ fer fram á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 19. nóvember 1991 kl. 13.00. Uppboðsbeiðendur eru Magn-
ús Norðdahl hdl., Guðjón Ármann Jónsson hdl„ Veðdeild Landsbanka
íslands., Bæjarsjóður Kópavogs og Ólafur Gústafsson hrl.
BÆJARFÓGETINN I KÓPAVOGI
1RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnstæknifræðingur/
rafmagnsverkfræðingur
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða rafmagns-
tæknifræðing/rafmagnsverkfræðing með aðsetur á
Blönduósi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir svæðisrafveitu-
stjóri á Blönduósi.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist fyrir 6. desember nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Ægisbraut 3
540 Blönduós
LÆRIÐ AÐ FLAKA!
Fiskvinnsluskólinn og Starfsfræðslunefnd
fiskvinnslunnar gangast fyrir námskeiði í
handflökun þann 20. og 21. nóvember nk.
Dagskrá:
20. nóvember
Kl. 08.00-10.00 Bókleg kennla. Hráefni, hreinlæti,
kæling, pökkun.
Kl. 10.00-16.00 Verkleg kennsla við flökun.
Kl. 16.00-17.00 Bókleg kennsla. Reiknuð út nýting.
21. nóvember
Kl. 08.00-15.00 Verkleg kennsla við flökun.
Kl. 15.00-16.00 Bóklegt, farið yfir aðalatriði og reiknuð
út nýting.
Kl. 16.00 Námskeiðsslit.
Leiðbeinendur: Jörundur Garðarsson fisktæknir
Arnar Sverrisson flakari.
Námskeiðið verður haldið i Fiskvinnsluskólanum,
Hvaleyrarbraut 13, Hafnarfirði.
Þátttökugjald: 11 þúsund krónur (innifalin bókleg gögn og veitingar).
Þátttaka tilkynnist í síma 91-52044 í síðasta lagi 18. nóvember.
fiskvinnslunnar FISKVINNSLUSKÓLINN
HATIÐNIMEINDYRAFÆLUR
Eru meindýr, t.d. mýs, í híbýlum þínum? Láttu þá
hátíðnimeindýrafæluna halda þeim hreinum.
Hátíðnimeindýrafælan fælir burt flestöll meindýr, t.d.
mýs, rottur, flugur og önnur skordýr.
Skaðlaust fyrir flest húsdýr.
Hátíðnimeindýrafælan fæst á eftirtöldum stöðum:
Kópavogi og Hafnarfirði
Reykjavík
Akranesi
Borgarnesi
Stykkishólmi
Byko
Húsasmiðjunni
Axel Sveinbjörnssyni
Kaupfélagi Borgfirðinga
Skipavík
Steiniðjunni Timbursölunni (safirði
Vélsmiðju Bolungarvíkur Bolungarvík
Kaupfélagi Húnvetninga Blönduósi
Kaupfélagi Skagfirðinga Sauðárkróki
Versl. Sigurðar Fanndal Siglufirði
Skapta hf. Akureyri
Radíónausti Akureyri
Kaupfélagi Þingeyinga Húsavík
Stáli hf. Seyðisfirði
Árvirkjanum Selfossi
Kaupf. Suðurn., járn og skip Keflavík
HNOÐRI HF.
heildsölubirgðir - sími 687744
Matgæðingur vikunnar_r
Karfi í gráð-
ostasósu
Ásgeir Jónsson, matgæðingur vikunnar. DV-mynd Brynjar Gauti
„Allt frá því ég var unglingur hef
ég haft gaman af matargerð," segir
Ásgeir Jónsson, söngvari og mat-
gæðingur vikunnar. „Mest þykir
mér gaman að elda fisk og þess
vegna vel ég einfaldan fiskrétt fyrir
DV. Ég nota karfa í þann rétt og
finnst það best en einnig má nota
ýsu, steinbít eða skötusel. Þá þarf
kannski fleiri kryddtegundir og
lengri eldunartíma. Annars finnst
mér karfinn hafa verið bestur í
þennan rétt,“ segir Ásgeir.
Hann segist prófa sig áfram í
matargerðarlistinni og þessi réttur
sé kominn upp úr mörgum öðrum
sem hann hefur fengið víða um
heim. „Rétturinn er fljótiagaður og
ódýr og það skiptir oft fólki mestu
máli,“ segir matgæðingurinn. Og
uppskriftin hljóðar svo:
800 g roðflétt karfaflök
1 bolli mysa
1 peh rjómi
1 lauf gráðostur
2 bananar
smjörklípa til steikingar
estragon krydd
hveiti
örlítið salt
Fisknum er velt upp úr hveitinu
og steiktur stutta stund á hvorri
hlið. Því næst er mysunni hellt yfir
og gráöosturinn brytjaður út í.
Estragon er stráð yfir pönnuna eft-
ir smekk. Þetta er látið sjóða aðeins
niður áður en rjómanum er bætt
saman við. Þá er suðan látin koma
upp. Undir lokin eru bananar
skornir að endilöngu og síðan til
helminga látnir á pönnuna en þeir
mega aðeins hitna í gegn.
Rétturinn er borinn fram með
hrísgrjónum eða kartöflum. „Ég
ætla að skora á frænda minn og
listakokkinn Ásgeir Sæmundsson
að vera næsti matgæðingur. Hann
er útlærður snillingur í matargerð
og ég veit að hann lumar á ein-
hverju góðu. Ásgeir hefur oft boðið
mér í mat og það hefur aldrei
brugðist," sagði Ásgeir Jónsson og
vildi að síðustu segja: „Verði ykkur
að góðu.“
-ELA
Hinhliðm
Biladella helsta
áhugamálið
- segir framkvæmdastjóri Sjómannafélags Reykjavíkur
Jónas Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannafélags Reykjavík-
ur, sýnir á sér hina hliðina að þessu
sinni. Jónas segist sáttur við samn-
ingana sem náðust á dögunum
milh undirmanna á kaupskipum
og kaupskipaútgerðarinnar og seg-
ir það markmið sitt aö vinna enn
betur að málefnum sjómanna.
Sjálfur er Jónas reyndur sjómað-
ur því hann var til sjós í tíu ár og
fór víöa. Hann var þó ekki í áætlun-
arsiglingum heldur var hann á
skipum sem fluttu freðfisk.
Fullt nafn: Jónas Garðarsson.
Fæðingardagur og ár: 8. október
1955.
Maki: Harpa Helgadóttir.
Börn: Marta María, 14 ára, Jón Sig-
urður, 12 ára, Hulda Hrund, 6 ára,
og Guðlaug Dagmar, 4 ára.
Bifreið: Chevrolet Blazer, árgerð
'86.
Starf: Framkvæmdastjóri Sjó-
mannafélags Reykjavíkur.
Laun: Samkvæmt samningum.
Áhugamál: Bíladella er helsta
áhugamálið af mörgum.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég hef aldrei spilað
í lottóinu.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að ljúka kjarasamningum
þegar svona stendur á.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
Jónas Garðarsson.
gera? Að borga reikninga.
Uppáhaldsmatur: Svartfugl.
Uppáhaldsdrykkur: Heineken bjór.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég fylgist
litið meö íþróttum.
Uppáhaldstímarit: Car and Driver.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Sophia Loren.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Fyrir nokkrum dögum hefði
ég helst viljað hitta Hörö Sigur-
geirsson.
Uppáhaldsleikari: Richard Gere.
Uppáhaldsleikkona: Julia Roberts.
Uppáhaldssöngvari: Enginn sér-
stakur.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hrollur.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Hall-
grímur Thorsteinsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bogi
Ágústsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn
sérstakur, ég fer lítið út að
skemmta mér.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Mér er
liklega skylt að segja Fylkir því það
félag er í hverfinu þar sem ég bý.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að vinna enn betur
að málefnum sjómanna.
Hvað gerðir þú í sumarfriinu? Ég
ferðaðist meðal annars sjóleiðis um
ísafiarðardjúp.
-IBS