Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991.
19
Sönglagakeppni Islands í Sjónvarpinu:
3111ögbárust
í Landslagið
Sönglagakeppnin Landslagiö er
nú að fara af staö í þriðja sinn og
hefst kynning í Sjónvarpinu í
næstu viku á þeim tíu lögum sem
keppa til úrslita.
AUs bárust 311 lög í keppnina og
hefur flmm manna dómnefnd stað-
ið í ströngu við að velja úr þeim.
Sjálft úrslitakvöldið, fóstudaginn
29. nóvember, verður dómnefndin
skipuð átta manns. Dómnefndin
mun hafa 70 prósent vægi á móti
hlustendum rásar 2 og áheyrend-
um í salnum á Hótel íslandi, þaðan
sem sjónvarpað verður beint. Al-
menningur getur sent inn at-
kvæðaseðla sem birtast í dagblöö-
um og mun dómnefndin einnig
taka tillit til þess sem á þeim stend-
ur.
Sigurlagið í fyrra var Álfheiður
Björk sem Eyjólfur Kristjánsson
söng. Þar áður sigraði Stjórnin með
laginu Við eigum samleið.
Upphafsmaður keppninnar er
Axel Einarsson hjá Stöðinni hf. og
segist hann hafa fengið hugmynd-
ina að samsvarandi keppni sem
hann sá í Svíþjóö. „Þá uppgötvaði
ég það að auðvitað væri pláss fyrir
íslenska keppni," segir hann og
bætir því við að keppnin hér hafi
gert gífurlega mikið fyrir marga
listamenn. „Þetta hefur verið mikil
auglýsing fyrir þá og útvegað fjölda
fólks vinnu bæði fyrir og eftir
keppnina, auk þess sem verðlaunin
hafa verið vegleg."
Axel segir öil met hafa verið sleg-
in við myndbandsupptöku laganna
í þetta sldpti því hún hafi farið fram
á einum degi, frá því klukkan átta
um morguninn til 23 um kvöldið.
„Það hefur alltaf verið tahð að þetta
myndi taka fjóra til fimm daga og
ég hef aldrei verið sammála því
atriði. Nú vildi ég sanna að það
væri ekki nauðsynlegt. Mér var
sagt að aðeins einn maður á íslandi
gæti gert þetta og það væri Björn
Emilsson á Sjónvarpinu. Og það
var alveg rétt.“ Stöð 2 sá um keppn-
ina í bæði fyrri skiptin en hafnaöi
henni nú, að sögn Axels.
Hann segir alltaf nýja lagahöf-
unda bætast í hópinn en bætir því
við að ekki sé skrítið þó reyndir
menn komist inn með lögin sín.
„Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdótt-
ir er ein þeirra sem aldrei hafa
verið með frumsamið lag áður.
Hún útsetti það sjálf og samdi einn-
ig texta.“
-IBS
Lag Önnu Mjallar Ólafsdóttur er eitt a< þeim tíu lögum sem keppa til
úrslita í Landslaginu að þessu sinni. Anna útsetti lagið sjálf og samdi
einnig textann við það. Með Önnu á myndinni er Svanhildur Jakobsdótt-
ir, móðir hennar.
Sigríður Beinteinsdóttir sem ásamt Grétari Örvarssyni sigraði í fyrstu
keppninni um Landslagið.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN
FYRIR LANDSBYGGÐINA:
99-6272
GRXENI
SÍMINN
-talandi dæmi um þjónustu!
DV
DV
H ö RÐU R T O R F A
Á GEISLADISK OG SNÆLDU
Til sölu REMKO hitablásarar fyrir
steinolíu, rafmagn og gas á góðu verði.
Margar stærðir.
Pallar hf.
Dalvegi 16 - 200 Kópavogur - Símar 42322 - 641020
Þeir eru komnir aftur eftir
nærri tuttugu og fimm ára
fjarveru og eru betri en
nokkru sinni. Þeir gera gott betur
en aö spila og syngja eins og þá
heldur slá sjálfum sér viö og gera
enn betur en áöur fyrr. Þetta er
skyldueign á hvert einasta íslenskt
heimili, munið aö endurnýja
Savannatríóiö.