Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991.
29
Bridge
Örn Arnþórsson ákvað að segja sex spaða yfir sex laufum andstæðinganna þar sem vel gat verið að laufslem-
man stæði. Örn Arnþórsson og Davið Oddsson forsætisráðherra skoða hér Bermudaskálina í höndum Guðlaugs
R. Jóhannssonar. DV-mynd BG
NEC-HM í Yokohama:
•V
Tveir áttalitir
STANGAVEIÐIMENN - STANGAVEIÐIFÉLÖG
Tilboð óskast í stangaveiði í Blöndu og í Svartá,
ásamt veiðihúsi, sumarið 1992. Áskilinn er réttur til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð skilist fyrir 20. nóvember nk. til Halldórs B.
Maríassonar, Finnstungu, 541 Blönduós, sem gefur
nánari uppl. í síma 95-27117.
Stjórn veiðifélags Blöndu og Svartár
DRÆTTI FRESTAÐ
TIL 7. DESEMBER
,HAPPDRÆTTI
OLYMPIUNEFNDAR ÍSLANDS
RÖNTGENTÆKI
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Ríkisspítala, óskar eftir tilboðum í
röntgentæki fyrir röntgendeild Landspítala. Útboðsgögn eru af-
hent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð verða opn-
uð á sama stað mánudaginn 6. janúar 1992 kl. 11.00 i viðurvist
viðstaddra bjóðenda.
IIMNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
og einn sjölitur
í sama spilinu
SVFR
AÐALFUNDUR
STANGAVEIÐIFÉLAGS REYKJAVÍKUR
verður haldinn sunnudaginn 24. nóvember 1991 á
Hótel Loftleiðum.
Eins og að líkum lætur hvarf bar-
áttan um Feneyja-skálina í skuggann
af sigri okkar manna en bandarísku
konurnar sigruðu þær austurrísku
nokkuð auðveldlega.
Heimsmeistarar kvenna eru Deas,
Cohen, Passell, Cahn, Picus og Os-
berg. Fyrirliði þeirra var Kathy Wei,
kona C.C. Wei, þess sem fann upp
Precision-sagnkerfið. Ein kvenn-
Bridge
Stefán Guðjohnsen
anna hefur spilað á bridgehátið Flug-
leiða, eða Lynn Deas.
Við sem erum búnir að dunda við
bridgespilið nokkra tugi ára minn-
umst þess að eina leiðin til þess að
næla sér í 1000 var að dobla andstæð-
ingana og vona síðan að þeir redobl-
uðu. Væru þeir utan hættu þyrftum
við að setja þá þrjá niöur til þess að
næla í þúsundið en væru þeir á hættu
þyrfti aðeins tvo.
í dag er þessu öðruvísi farið. Nú
er hægt að næla sér í 1000 í sókninni
og það var einmitt það sem austur-
rísku konurnar gerðu í eftirfarandi
spih.
A/0
* 103
V Á3
♦ KD985432
+ A
♦ ÁD2
V DG85
♦ G107
+ 832
* 9
V 642
♦ 6
* KDG109765
í opna salnum, þar sem Deas og
Cohen sátu n-s, en Erhart og Bam-
berger a-v, gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass 51auf 5spaðar dobl
redobl pass pass pass
Og á hinu borðinu sátu n-s Fischer
og Weigkricht, en a- v Passell og
Cahn:
Austur Suður Vestur Norður
pass 2grönd 3spaðar pass
4 spaðar pass pass 5 tíglar
pass pass pass
í opna salnum unnu a-v fimm spaða
redoblaða og fengu fyrir það 1000, en
í lokaða salnum keyptu austurrísku
konurnar samninginn í fimm tíglum
og töpuðu aðeins 50. Austurríki
græddi því 14 impa á spilinu.
Sama spil var spilað í einvígi ís-
lands og Póllands um Bermuda-skál-
ina. Þar sátu n-s í opna salnum Jón
og Aðalsteinn, en a-v Szymanowski
og Martens. Sagnir gengu þannig:
Austur Suður Vestur Norður
pass 3grönd 4spaðar 51auf
5 spaðar pass pass pass
Það voru 450 til Póllands.
í lokaða salnum sátu n-s Balicki
og Zmudzinski, en a-v Guðlaugur og
Örn. Staðan var óljósari í sögnunum:
Austur Suður Vestur Norður
pass 31auf 3spaðar 4tíglar
4spaðar Slauf 5spaðar 6lauf
pass pass 6spaðar dobl
pass pass pass
Það var erfitt fyrir Örn að vita hvort
slemman stæði hjá Pólverjunum eða
ekki og hann tók litla áhættu með
því að segja einum hærra.
Stefán Guðjöhnsen
V K1097
♦ Á
Þegar tíu umferðtun af fimmtán
er lokið 1 aðalsyeitakeppni Btidge-
félags Breiðfirðinga hcfur sveit
Árna Loftssonar náö umtalsverðu
forskoti. Spilarar í sveit Árna
Loftssonar eru, auk hans, Sveinn
Rúnar Eiríksson, Bernódus Krist-
___________________________________
insson, Georg Sverrisson og Þórður
Björnsson. Sveit Guðmundar Kr.
Sigurðssonar gerir það heldur ekki
endasleppt en hún hefur fengið 38
stig í íjórum síðustu leikjum. Staða
efstu sveita er þannig:
i;
Arni Loftsson 222
iVI
2. Jón Stefansson 198
3. Gróa Guðnadóttir 188
4. Óskar Þráinsson 167
5. Guðmundur Kr. Sigurðsson 161
6. Haukur Harðarson 154
7. Ljósbrá Baldursdóttir 153
___________________________________
Fundurinn hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn SVFR
Flugvirkjafélag íslands, Borgartúni 22
Sími 621610 - 105 Reykjavík
Aðalfundur F.V.F.Í. verður haldinn að Borg-
artúni 22 mánudaginn 18. nóvember klukk-
an 18.00.
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Önnur mál
Reikningar sjóða félagsins liggja frammi,
félagsmönnum til sýnis, hjá gjaldkera félags-
ins í skýli 4 á Reykjavíkurflugvelli.
Mætið vel og stundvíslega
Stjórnin