Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Side 33
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991. 45 yfir að hann gerði þá kröfu að stjóm- amefndin yrði lögð niður og að ég yrði einn forstjóri félagsins. Nokkru síðar ræddum við þetta við Kristján Guðlaugsson og Alfreð Elíasson og^ voru þeir hugmyndinni algjörlega andsnúnir og vildu óbreytt fyrir- komulag. Var málið þæft fram og aftur næstu daga og vikur án þess að nokkur niðurstaða fengist. Um miðjan mai var ég farinn að sjá fram á það að ekki fengjust neinar breyt- ingar í gegn og þar með taldi ég brost- inn þann grundvöll sem ég hafði sætt mig við þegar ég kom heim frá New York. Það var fyrirsjáanlegt að nauðsynlega þyrfti að grípa til marg- háttaðra aðgerða hjá félaginu og ég sá ekki fram á að það væri mögulegt miðað við óbreyttar aðstæður. Það var eilíflega reynt að komast að sam- komulagi um alla hluti og láta undan ef menn spornuðu gegn því sem þó var nauðsynlegt að gera. Skrifaði uppsagnarbréf Ég ákvað því að segja upp og fara frá Flugleiðum. Tilkynnti ég Óttarri Möller þetta 19. maí og skrifaði síðan Emi formlegt uppsagnarbréf. í því rifjaði ég fyrst upp aðdraganda sam- einingarinnar og að ég heíði verið eindreginn talsmaður hennar, enda hefði ég séð að sú stefna sem þá var uppi hjá Loftleiðum myndi leiða fyr- irtækið í glötun. „Þessi eindregna afstaða mín skapaði mér óvild, svo vægt sé til orða tekið, og virðist sú óvild vera fyrir hendi enn í dag. Vegna versnandi afkomu Loftleiða og með þrýstingu frá bönkum og rík- isvaldi tókst sameiningin þó loks í apríl 1973, og var mér kennt um að svo fór af þeim Loftleiðamönnum sem í hjarta sínu voru andstæðir sameiningunni," sagði ég í bréfinu. Þessu næst rifjaði ég einnig upp hvers vegna ég féllst á að koma heim og taka sæti í stjórnarnefndinni og minnti á að staðfest hefði verið að þetta skipulag ætti aðeins að gilda til aðalfundarins 1976. Þegar ekki ætti að standa við það sæi ég mér ekki fært að starfa lengur í stjórnarnefnd- inni. „Meðvirkandi um afstöðu mína í máli þessu er sú staðreynd að í starfl mínu hér, nú í nærri tvö ár, hef ég orðið var við óþolandi and- rúmsloft og óvild, sem ég á bágt með að sætta mig við, og sem mér finnst ég ekki eiga skilið eftir þrotlaust og árangursríkt starf í þágu félagsins í 23 ár,“ sagði ég í bréfmu. í lok bréfs- ins óskaði ég síöan eftir því að fá aö taka við mínu fyrra starfi vestan- hafs, einbeita mér að uppbyggingu Air Bahama, en lét þess jafnframt getið að ég væri tilbúinn að fara al- veg frá félaginu, ef ekki semdist. Ég hafði þá þegar haft samband viö góð- an vin minn í New York, Charles Speers. Hann hafði verið yfirmaður allra markasmála hjá American Airhnes, en var nú kominn á eftir- laun. Hann starfaði þó áfram og vann með Dixson Speas ráðgjafafyrirtæk- inu. Hann var mikill vinur minn og kannaði hvaða möguleika ég ætti á því að fá gott starf hjá einhverju bandarísku flugfélagi. Speers var vel kynntur og mikill hæfileikamaður. Hann var t.d. frumkvöðull að fyrsta kreditkortinu, sem ætlað var flugfar- þegum, hinu svokallaða Air Travel Card. Speers athugaði málið fyrir mig og vildi koma mér að hjá Pan American. Það kom þó aldrei til þess að á það reyndi hvort ég fengi stjórn- unarstöðu þar. Ég afhenti Emi Ó. Johnson upp- sagnarbréfið og setti hann hljóðan við lestur þess. Bað hann mig síðan um að draga það til baka meðan reynt yrði að komast að samkomu- lagi. Átti ég síðan nokkra fundi með einstökum stjórnarmönnum sem urlega áherslu á að halda yrði frið- inn, hvað sem það kostaði, og töldu að það gæti kostað ófyrirséð átök ef ég færi, auk þess sem þeir gætu ekki séð annan Loftleiðamann sem gæti komið í minn staö. Ég reyndi í lengstu lög að standa á sannfæringu minni og halda mig við fyrri áform mín. Fannst það vera algjör uppgjöf að láta undan. Fór þó svo að lokum að ég samþykkti, hálfnauðugur, að vera áfram fyrst um sinn. Á stjórnar- fundi, sem haldinn var 8. júní, var svo gengið til atkvæða um tillögu Kristjáns Guðlaugssonar og var hún samþykkt. Við þá atkvæðagreiðslu sat ég hjá. Aðalfundurinn var síðan haldinn lítt bærileg hugsun að þurfa að búa viö slíkt. Ég held að flestum stjómar- mönnum hafi verið vandinn ljós, en þá skorti kjark til þess að taka ákvarðanir sem talist gátu óþægileg- ar. Flugmannadeilan Eitt af þeim erfiðu málum, sem við höfðum við að glíma um þetta leyti, var mikil togstreita hjá atvinnuflug- mönnum. Sæmilega hafði gengið að sameina flestar deildir félaganna og koma reglu á skrifstofuhaldið. Það var helst að um nokkra yfirmönnun væri að ræða í sumum deildanna vegna hiks og óákveðni þegar þurfti Stjórnarfundur í Flugleiðum. Frá vinstri: Ottarr Möller, Kristinn Olsen, Bergur G. Gíslason, Alfreð Elíasson, Krist- ján Guðlaugsson, Örn Ó. Johnson, Birgir Kjaran, Sigurður Helgason, Svanbjörn Frimannsson og Einar Árnason. lögðu mjög hart að mér að vera áfram og lofuðu að vinna að þeim breytingum sem ég fór fram á. 1. júní sat ég t.d. fund með Óttarri Möller þar sem hann lýsti þeirri skoðun sinni aö níu menn ættu að vera í stjóm félagsins, fimm frá Loftleiðum og fjórir frá Flugfélagi íslands og síð- an ættu að vera þrír varamenn frá Flugfélaginu og tveir frá Loftleiðum. Þetta var í samræmi við óskir mínar. Enn málamiðlun Daginn eftir var haldinn mikill átakafundur. Fyrst ræddum við sam- an, ég, Alfreð og Kristján, en síðan komu Óttarr Möller og Örn Ó. John- son á fundinn. Kristján hafði sig mjög í frammi á fundinum og heimt- aði ellefu manna stjóm í félaginu, að hann yrði áfram stjórnarformað- ur og að stjómamefndin sæti óbreytt áfram. Sögðu þeir bæði beint og óbeint að ef ekki yrði fallist á þetta væm mikil átök framundan. Á þess- um fundi kom glögglega fram sú andúð sem þeir Kristján og Alfreð höfðu á mér og var ljóst að þeir vildu leggja flest í sölurnar til þess að hindra að ég tæki við sem eini for- stjóri félagsins. Óttarr og Örn reyndu að malda í móinn og ná samkomu-' lagi en ekki var við neina eftirgjöf komandi af hálfu Kristjáns og Al- freðs. Um kvöldið var ég boðaður á fund þeirra Arnar, Óttarrs, Axels Einars- sonar og Bergs G. Gíslasonar og stóð sá fundur næturlangt. Þeir lögðu gíf- 10. júní og þar gátum við tilkynnt 512 milljóna króna hagnað, þrátt fyrir að farþegum hefði fækkað nokkuð milli áranna 1973-1975. Þetta, eitt út af fyrir sig, staðfesti árangur af sam- einingunni, en ég vissi í hjarta mínu að árangurinn hefði þó getað verið miklu betri. Ósáttur við málalok Þeir sem kjörnir voru í stjóm á aðalfundinum vom: Alfreð Elíasson, Bergur G. Gíslason, Birgir Kjaran, Einar Árnason, Kristinn Olsen, Kristján Guðlaugsson, Óttarr Möller, Sigurður Helgason, Sigurgeir Jóns- son, Svanbjörn Frímannsson og Örn Ó. Johnson. í varastjóm voru kjörn- ir Dagfinnur Stefánsson, Grétar Br. Kristjánsson, Ólafur Johnson og Thor R. Thors. Brigir Kjaran lést 12. ágúst og tók Ólafur Johnson þá sæti hans í aðalstjórninni, en Halldór H. Jónsson tók sæti í varastjórninni og var það upphafið að stjórnarsetu hans í Flugleiðum. Ég var mjög ósáttur við þessi mála- lok. Ég sá fram á að enn myndi drag- ast að koma á nauðsynlegum umbót- um í félaginu og stíga skrefið til sam- einingarinnar til fulls. Þá fannst mér það veikleikamerki hjá stjóminni að geta ekki tekið af skarið og ræddi það sérstaklega við þá Örn 0. Johnson og Óttarr Möller að ég skildi ekki uppgjöf þeirra. Þá sá ég líka fram á að sú óvild, sem ég mætti hjá Alfreð og ýmsum gömlum Loftleiðamönn- um, myndi halda áfram og það var að taka á málunum. Hjá flugmönn- unum var hins vegar stál í stál. Allt frá sameiningunni höfðu flugvélarn- ar verið reknar í nafni gömlu félag- anna og undir þeirra merkjum og flugmennirnir, öðmm fremur, litu á sig sem Flugfélagsmenn eða Loft- leiðamenn og voru þeir í tveimur stéttarfélögum. Ákveðið var að setja upp sérstakan starfsaldurslista og láta flugmenn hafa forgang í störf eftir honum. En reglur þessara tveggja félaga um röðum á listanum voru mismunandi og sýndu flug- mennirnir mikinn ósveigjanleika. Flugrekstrardeildin var undir stjórn Alfreðs Elíassonar og tókst honum ekki að ná neinum tökum á málun- um. Hann leit fyrst og fremst á sig sem Loftleiðamann og varð það til þess að flugmenn frá Flugfélaginu tortryggðu hann enn frekar og voru ekki tilbúnir til neinnar samvinnu. Kom þetta mál hvað best upp á yfir- borðið er Flugleiðir tóku breiðþotu í notkun. Það var skoðun mín að nauðsynlegt hefði verið að taka á málinu strax og fá stjórnvöld til þess að skipa sáttanefnd eöa úrskurðar- nefnd, eins og raunar var gert síðar þegar deilan var komin út í óefni. Kristjánvíkur En þótt hugmyndin um breytt stjórnskipulag hafi veriö slegin af fyrir aöalfundinn 1976 var flestum fullljóst að einungis var um tíma- spursmál að ræða hvenær yrði að breyta skipulaginu. Erni Ó. Johnson fannst, ekki síður en mér, andrúms- loftið í fyrirtækinu bæði þrúgandi og erfitt og vildi auk þess gjarnan fara að minnka við sig störf. Vorið 1977 ræddum við þessi mál oftsinnis og Örn reyndi einnig að tala Loft- leiðamenn til og fá þá til þess að fall- ast á tillögur sem voru í sama dúr og þær sem áður höfðu komið fram, að ég yrði einn forstjóri fyrirtækis- ins. En við það var ekki komandi. Þeir Kristján og Alfreð lýstu yfir því að ég væri enginn Loftleiðamaður og að þeir myndu aldrei láta félagið í mínar hendur. Það varð hins vegar að samkomulagi að ég tæki við stjómun tveggja deilda sem Örn hafði áður, innanlandsfluginu og stjómunarsviðinu. Þegar sú tillaga var borin upp á stjómarfundi í félag- inu brást Áifreð hinn versti við og bauðst til þess að taka stjórnunar- sviöið sjálfur. Og enn var reynt að halda friðinn. Vitanlega sáum við að það var óráð að bæta á hann svo umfangsmiklu verkefni og varð að ráði að Örn var áfram yfirmaður stjórnunarsviðs, en ég tók hins vegar við innanlandsfluginu. Ekki tilbúinn til þess að fara Samkvæmt samkomulaginu, er gert var við sameininguna 1973, skiptust þeir Örn Ó. Johnson og Kristján Guðlaugsson á um að gegna stjómarformennsku í Flugleiðum. 1. júni 1977 rann tímabil Kristjáns út og Örn tók við stjórnarformennsk- unni að nýju. Kristján var hins vegar kjörinn varaformaður. Eftir samein- inguna var látið heita svo að Kristján gegndi lögfræðistörfum fyrir Flug- leiðir, en sú var ekki raunin, þar sem annar maður annaðist þau störf. Hafði Kristján því ekki annað hlut- verk hjá félaginu en að gegna stjórn- arformennskunni. Þegar hann hætti því starfi þótti eðlilegt að hann léti af störfum og rýmdi skrifstofu sína, enda var hann kominn á áttræðisald- ur. En Kristján var ekki tilbúinn til þess að fara og öllum til mæðu þurfti að fara með máhð fyrir stjórnarfund. Sá fundur var haldinn 2. júní 1977. Dagfinnur Stefánsson flutti tillögu á fundinum um aö afgreiðslu málsins yrði frestað, en Örn Ó. Johnson lýsti því strax yfir að það myndi engu breyta. Var síðan gert hlé á fundinum og ræddu þeir Svanbjörn Frímanns- son og Halldór H. Jónsson þá eins- lega við Kristján og lögðu aö honum að fara frá félaginu. En Kristján lét ekki segjast og þurfti þvi að koma til atkvæðagreiðslu. Var samþykkt með 5 atkvæðum gegn 4 að Kristján færi. Sat ég hjá við þá atkvæðagreiðslu. Strax og niöurstaðan var fengin stóð Kristján upp og gekk á dyr. Eftir brottfor hans var gerð breyting á herbergjaskipan í skrifstofubygging- unni og fengum við Örn þá loksins viðunandi skrifstofur og gátum tekið á móti mönnum, sem áttu erindi við okkur, án þess að þurfa að hlaupa í önnur herbergi. (Nokkrar millifyrirsagnanna eru blaðsins.) LABALL áDENGSA & félögum tívnitu/, Dengsa þekkja allir úr sjónvarpi.nu, hann þekkir lika alla „svo vel ‘, hann er svo mikiö svoleiöis. Hann bíöur líka öllum á jólaball meö sér og félögum sínum. Þaö koma fullt af krökkum, Hemmi Gunn, Glámur og Skrámur, jólasveinninn og margir, margir aörir í heimsókn. Sungin eru öll alvöru jólalögin, auk þess sem Dengsi, Hemmi og fleiri taka lagið. Þaö veröur svo mikið skemmtilegt, Jaaaááú.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.