Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Page 8
8
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
Kynntu þér kostina.
’r.éfA
SIÐUMULA 37 SIMI 687570
Hágæða farsími sem lætur hvorki
fjarlægðir aftra sér.
ne
SIMONSEM, einn fullkomnasti
farsími i heimi,
hefur allt sem hina vantar.
Útboð ^
Vegagerð ríkisins óskar eftir til-
boðum í eftirtalin verk á Norður-
landi eystra:
1. Norðurlandsvegur'í Öxnadal, Engimýri -
Varmavatnshólar. Lengd kafla 9,6 km, magn
260.000 rúmmetrar. Verki skal lokið 1. ágúst
1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 17. febrúar nk. Skila skal tilboðum á
sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 2. mars 1992.
2. Eyjafjarðarbraut eystri, um Þverá. Lengd kafla
0,8 km, magn 30.000 rúmmetrar. Verki skal lok-
ið 1. júlí 1992. Útboðsgögn verða afhent hjá
Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðal-
gjaldkera) frá og með 17. febrúar nk. Skila skal
tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
9. mars 1992.
Vegamálastjóri
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til
sýnis þriðjudaginn 18. febrúar 1992 kl. 13-16 í porti bak
við skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík, og víðar.
2. stk. Volvo 240 fólksbifreið bensín 1989
1. stk. Dodge Aries fólksbifreið bensín 1989
1. stk. Lada station bensín 1987
1. stk. Fiat 127 Panorama bensín 1985
1. stk. Jeep Wagoneer 4x4 bensín 1988
1. stk. Ford Econoline E-350 XLT 4x4 bensín 1985
1. stk. Ford Bronco XLT 4x4 bensín 1983
1. stk. Ford F-250 pickup m/húsi, 4x4 bensín 1979
1. stk. Mitsubishi Pajero 4x4 dísil 1987
1. stk. Daihatsu Feroza ELII 4x4 bensín 1990
1. stk. Mitsubishi L-300 4x4 bensín 1987
2. stk. Nissan Partol pickup 4x4 dísil 1986
3. stk. Lada Sport 4x4 bensín 1989
2.stk. Subaru 1800 station 4x4 bensín 1986-87
2. stk. Toyota Tercel station 4x4 bensín 1986-88
3. stk. Dodge Maxi Wagon B-350 bensín 1987-88
2.stk. MazdaT-3500 sendiferðabifr. m/lyftu dísil 1985
1.stk. Chevrolet Suburban bensín 1983
1.stk. Ford T ransit sendiferðabifreið bensín 1983
1. stk. Mercedes Benz 207 D - dísil 1982
1.stk. Volvo N-10 vörubifr. m/krana, 6x2 dísil 1982
1. stk. M. Benz1622vörubifr., pall/sturtul. disil 1983
2.stk. Ski-Doo vélsleðar bensín 1983-84
1. stk. Polaris Galaxy vélsleði bensín 1980
1. stk. Case dráttarvél dísil 1985
1. stk. M. Benz0307 fólksflutningabifreið dlsil 1978
Til sýnis hjá vegagerð ríkisins, Grafarvogi
1. stk. vélaflutningavagn, 31 tonn 1971
1. stk. COMA bílkrani, 3,5 tonn 1983
1. stk. snjóvængur fyrir veghefil 1971
Til sýnis hjá vegagerð ríkisins, Borgarnesi
1. stk. Bucyrus Erie bilkrani 1962
Til sýnis hjá vegagerð ríkisins, Borgartúni 5
1. stk. færiband
Til sýnis hjá Rarik, Egilsstöðum
1. stk. Nissan Patrol pickup (skemmdur), 4x4, dísil 1985
Tilboðin veröa opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30
að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna
tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
ll\ll\lKAUPASTOFI\lUI\l RÍKISIIMS
__________nORC'.AM IIJNI 7 1()f> Rí YKJAVIK
Matgæðingur vikuimar_________________dv
Fljótlegur
fiskréttur
Vilborg Þórarinsdóttir, þjónustu-
stjóri íslandsbanka í Bankastræti,
er matgæðingur vikunnar. Vilborg
segist hafa mjög gaman af að elda
góðan mat. Hún lætur aðallega til
sín taka um helgar, segist ekki hafa
eins gaman af eldamennsku hvers-
dags.
„Ég hef mjög gaman af stórum
matarboðum og þá læt ég til mín
taka í eldhúsinu. Það er svo gaman
að borða góðan mat og gera vel við
gesti,“ segir Vilborg.
Hún segist hafa prófað sig áfram
í eldamennskunni og gerir oft til-
raunir á kunningjum sínum. Hún
fer stundum eftir kokkabókum en
reynir oftar en ekki að fara út fyrir
þær, prjóna einhveiju við sjálf eða
leika af fingrum fram.
Vilborg ætlar að bjóða lesendum
DV upp á fljótlegan og góðan fisk-
rétt. Eins og sést á uppskriftinni
eru mál ekki tíunduð sérstaklega.
Hér er spilað eftir bragðlaukunum.
í réttinn þarf:
ýsuflök
salt og pipar
safa úr sítrónu
karrí
rjóma
hveiti
ólífuolíu og smjör
ost
kínverska sojasósu
Þannig er farið að:
Ýsuflökin eru skorin í bita og látin
liggja í sítrónusafa um stund. Fisk-
Hinhliðin
Stefni á ÓL1996
- segir Elsa Nielsen, íslandsmeistari í badminton
in „Magic“ Johnson.
Uppáhaldsleikari: Örn Árnason.
Uppáhaldsleikkona: Edda Björg-
vinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Cat Stevens.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Guffi í Andrési önd.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðar
bíómyndir og íþróttir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Get ekki tekið
afgerandi afstöðu.
Hver útvarpsrásanna fmnst þér
best? Stjarnan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Pálmi
Guðmundsson á Stjörnunni.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Hemmi Gunn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Þar sem
fjörið er hverju sinni.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: TBR, að
sjálfsögðu.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að komast á ólympíu-
leikana 1996, halda heilsunni og
vera hamingjusöm.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
lokaði mig inni í Hagkaupi til að
vinna fyrir vetrinum. í ágúst fór
ég síðan í æfingabúðir í Austur-
ríki. Ég hef engin ákveðin plön
varðandi næsta sumar.
-hlh
Framtíð Elsu Nielsen í badmin-
ton virðist björt en hún varð ís-
landsmeistari í badminton annað
árið í röð á dögunum, aðeins 17 ára
gömul. Elsa hefur iðkað badminton
frá því hún var 9 ára og hefur unn-
ið marga sigra, meðal annars orðiö
íslandsmeistari í unglingaflokki.
Elsa er í 2. bekk Menntaskólans við
Sund, á stærðfræðibraut. Mestur
hennar tími fer í námið og badmin-
tonæfingar. Segja má að badminton
sé fjölskylduíþrótt en yngri bróðir
hennar, Tryggvi, er íslandsmeist-
ari í A-flokki og foreldrar Elsu spila
báðir badminton. Elsa sýnir les-
endum DV á sér hina hhðina að
þessu sinni.
Fullt nafn: Elsa Nielsen.
Fæðingardagur og ár: 26. júní 1974
Maki: Enginn.
Böm Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemi í Menntaskólanum við
Sund.
Laun: Engin.
Áhugamál: íþróttir, teikning og
skrautskrift og að hitta vini, þá
sjaldan að tími gefst til.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég spila ekki í
lottói.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að fara í bíó, ferðast og hitta
skemmtiiegt fólk.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að fara í tollinn fyrir pabba.
Elsa Nielsen. DV-mynd BG
Uppáhaldsmatur: Lambalæri með
grænum baunum.
Uppáhaldsdrykkur: Coca-Cola.
Hvaða íþróttamaður fmnst þér
standa fremstur í dag? Enginn sér-
stakur.
Uppáhaldstímarit: íþróttablaðiö.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Kvikmyndaleikarinn Bruce
Willis.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Körfuboltamanninn Erw-
Vilborg Þórarinsdóttir.
inum er síðan velt upp úr hveiti
sem kryddað hefur verið með
karrí, salti og pipar.
Fiskurinn er léttsteiktur í ólífuol-
íunni á pönnu. Honum er síðan
raðað í eldfast fat og ostsneiðum
ofan á. Smávatni er hellt á pönnuna
og soöið upp. Sojasjósu og ijóma
er hellt saman við og hitað vel.
Sósunni er síðan hellt yfir fiskinn
í fatinu, því stungið inn í ofn og
rétturinn bakaður í ofni í um 15
mínútur við 200 gráða hita.
Með fiskinum eru bornir fram
DV-mynd Hanna
steiktir bananar, mango chutney
og hrísgrjón. Bananarnir eru sér-
lega ljúffengir með þessum rétti.
Þeir eru skornir eftir endilöngu og
steiktir stutta stund í smjöri.
Vilborg skorar á Hrafnhildi Sig-
urðardóttur, sölumann hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn, að vera
matgæðingur næstu viku. Hún seg-
ir Hrafnhildi mjög góðan kokk sem
örugglega eigi gómsæta uppskrift
handa lesendum.
-hlh