Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Side 20
20
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
Kvikmyndir
Afleiðingar af vinsældum Dansar við úlfa:
Dýrar kvikmyndir verða lengri
(3 tímar) er leikstýrð af Hector
Babenco sem þekktastur er fyrir
Kiss of the Spider Woman. Myndin
gerist við Amazon-fljótið og segir
frá trúboöum, indíánum og stríðs-
mönnum. Aðalhlutverkin leika
Tom Berenger, Kathy Bates, Daryl
Hannah og John Litgow.
Hook (2 tímar og 15 mín.). Sjálf-
sagt skiptir það engu máli hvað
þessi nýjasta kvikmynd Steven Spi-
elberg er löng, Spielberg ásamt
Robin Wilhams, Juhu Roberts og
Dustin Hoffman sjá fyrir því að
áhorfendUr streyma að til að sjá
myndina.
Grand Canyon (2 tímar og 10
mín.) er nýjasta kvikmynd Lawr-
ence Kashdan og segir frá sex borg-
arbúum í Los Angeles. Aðalhlut-
verkin leika Kevin Kline, Danny
Glover, Steve Martin og Mary
McDonnell.
For the Boys (2 tímar og 38 mín.).
Bette Midler og James Caan leika
skemmtikrafta á stríðstímum í
léttri dans- og söngvamynd. Leik-
stjóri: Mark Rydell.
Bugsy (2 tímar og 15 mín.). Barry
Levinson leikstýrir þessari gangst-
ermynd sem fjallar um ævi mafiu-
foringjans Bugsy Siegel. Aðalhlut-
verkin leika Warren Beatty, An-
nette Benning, Harvey Keitel, Ben
Kingsley og Elhot Gould.
The Prince of Tides (2 tímar og
10 mín.). Barbra Streisand bæði
leikstýrir myndinni og leikur aðal-
hlutverkið ásamt Nick Nolte sem
leikur fótboltaþjálfara sem fellur
fyrir sáifræðingi sem að sjálfsögðu
er leikinn af Streisand.
Cape Fear(2 tímar 10 mín). Nýj-
Kevin Costner fyrir miðri mynd í hlutverki saksóknarans Jim Garrison
í JFK.
Þetta er að sjálfsögðu ekki algild
regla. Það hafa komið fram langar
kvikmyndir sem hafa orðið vinsæl-
ar en það eru oftast kvikmyndir
sem hafa fengið þaö orð á sig að
vera langar og engir fyrirfram spá-
dómar um slæmt gengi vegna
lengdar verið í umræðunni áður
en þeim var komið á markaðinn.
Gone With The Wind, The Godfat-
her og Ghandi eru þannig myndir,
svo að dæmi séu tekin.
Dansarvið úlfa
breytti formúlunni
Nú er aht í einu að verða breyting
á þessu fyrirkomulagi og sérfræð-
ingar og framleiðendur rekja það
til hinna miklu vinsælda sem
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
raun ber vitni.
JFK, hin umdehda kvikmynd
Ohvers Stone um morðið á
Kennedy og leitina að morðingjan-
um, er lengsta kvikmyndin. Hún
er hvorki meira né minna en 3
klukkustundir og tíu mínútur. Og
aðalhlutverkið leikur enginn ann-
ar en Kevin Costner.
Until the End of the World (2
tímar og 37 mín.) er nýjusta kvik-
mynd Wim Wenders. William Hurt
leikur mann á flótta aht frá París
th Ástrahu. Aðrir leikarar eru Sol-
Langar kvikmyndir hafa hingað
th verið thtölulega fáar af þeirri
einfoldu ástæðu að erfiðara hefur
verið að koma þeim á framfæri.
Eftir því sem kvikmynd er lengri
er erfiðara að halda athygh áhorf-
andans. Það gefur því augaleið að
langar kvikmyndir þurfa að vera
góðar eigi dæmið að borga sig.
Kvikmyndhúsaeigendum er einnig
illa við að breyta hefðbundnum
sýningartímum sem kvikmynda-
húsagestir hafa vaniö sig á. í gegn-
um tíðina hefur 90 mínútna markið
verið hvað vinsælast hjá þeim. Þeg-
ar kvikmynd er 90 mínútur er með
góðu móti hægt að sýna sýnishom
úr væntanlegum kvikmyndum og
tæma bíósahnn með góðum fyrir-
vara og hér á íslandi er hægt að
hafa hið hefðbundna hlé.
Dansar við úifa hefur notið en hún
er þriggja tíma löng. Með því að
hafa hana svona langa tók Kevin
Costner mikla áhættu því að mikið
var þrýst á hann að hafa myndina
styttii. Áhættan borgaði sig, öðrum
kvikmyndaframleiðendum tii mik-
ihar undranar, og Dansar við úlfa
varð ein vinsælasta kvikmyndin
1990.
í kjölfarið hafa svo þekktir leik-
stjórar og kvikmyndaframleiðend-
ur verið óhræddir við að hafa
myndir sínar eins langar og þeim
hentar og var fyrsti skammturinn
af slíkum myndum settur á mark-
aðinn vestanhafs fyrir jólin og er
öruggt að einhveijar af þeim kvik-
myndum, sem nefndar eru hér,
hefðu orðið styttri ef Dansar við
úlfa hefði ekki orðið jafnvinsæl og
um i Cape Fear.
Warren Beatty leikur Bugsy Siegel i Bugsy og Annette Benning leikur
leikkonuna Virginiu Hill.
veig Donmartin, Sam Neih og Max
Von Sydow.
The Inner Circle (2 tímcU- og 17
mín.) gerist í Rússlandi á Stalíns-
tímanum og segir sögu einkasýn-
ingarmanns Stalíns. Aðalhlutverk-
in leika Tom Hulce og Bob Hosk-
ins. Leikstjóri er Andrei Konc-
haiovsky.
At Play in the Fields of the Lords
asta kvikmynd Martin Scorsese er
að vísu styttri en Goodfellas en hún
er nærri hálftíma lengri en sú Cape
Fear sem gerð var 1956 og mynd
Scorsese er gerð eftir. Það eru Ro-
bert Di Niro, Nick Nolte og Jessica
Lange sem leika aðalhlutverkin í
þessum þriher sem að sögn fær
hárin til að rísa.
-HK
- Sigurbjöm Aðalsteinsson í viðtali í BBCWorld Service í dag
Fyrir stuttu fór Sigurbjörn Aðal-
steinsson með stuttmynd sína,
Ókunn dufl, á stuttmyndahátíð í
Clairmont-Ferrand í Frakklandi en
sú hátíð er sú stærsta sinnar teg-
undar í Evrópu. Hafði myndin ver-
ið vahn ein af sjötíu til keppninn-
ar. Aö sögn Sigurbjöms er þetta
geysistór hátíð og komu 62.000
manns á hátíðina í ár og fer fjöldi
áhorfenda vaxandi með ári hverju.
Ekki vann Ókunn dufl til neinna
verðlauna en henni var vel tekið
og fékk Sigurbjöm boð um aö koma
með hana á stuttmyndahátíð í
Þýskalandi en það er sama hátíð
og mynd Sigurbjöms, Hundur,
hundur, vann verðlaun á í fyrra,
og einnig kom boð á hátíð í Sao
Sigurbjorn Aöalsteinsson leikstjóri ásamt aðalleikurunum í Okunnum
duflum, Valdimar Erni Flygenring og Þresti Leo Gunnarssyni.
Paulo í Brasihu. Sú hátíð hefur það
að markmiði að auka menningar-
tengsl á milli Suður-Ameríku og
annarra heimsálfa og á hverju ári
ferðast stjómendur hátíðarinnar
og veþá þær myndir sem þeim
finnst henta best tíl að kynna bras-
ilískum almenningi ólík menning-
arsvæði. Þá bauðst ítölsk umboðs-
skrifstofa til að taka myndina th
dreiftngar og kynna Sigurbjöm í
leiðinni.
Þess má að lokum geta að í dag,
15. febrúar, er viðtal við Sigurbjöm
Aðalsteinsson í þætti á BBC World
Sevice sem heitír Meridian og er
þessum þættí útvarpað fjórum
sinnum.
-HK
WoodyAllen
frumsýniríParís
Shadows and Fog heitir nýjasta kvik-
mynd Woddys Ahen og hann kaus að
hafa heimsfmmsýningu á myndinni í
París síðasthðinn miðvikudag. Mynd-
in, sem er í svart/hvítu, er látin gerast
í ónafngreindri borg í Mið-Evrópu á
þriðja tug aldarinnar. Ahen leikur
sjálfur aðalhlutverkið, Max Kleinman,
skrifstofublók sem er neydd th að
ganga th hðs við hóp manna sem eltist
við fjöldamorðingja. Þar sem hann
veit ekki nákvæmlega hvaða hlutverk
hann hefur innan hópsins fer aðra að
grana að hann sé moröinginn. Sem í
fyrri myndum Allens leikur Mia
Farrow stórt hlutverk. Aðrir þekktir
leikarar, sem leika í myndinni, eru
Jodie Foster, Donald Pleasance, Kathy
Bates, Kate Nelhgan, Lály Tomhn,
John Malcovich og Madonna. Ahen
segir að skýringin á að hann frumsýni
í París sé einfaldlega sú að Evrópubúar
kunni best að meta myndir hans: „Það
komu fleiri að sjá Alice í París en í
öllum Bandaríkjunum."
Kurosawaheldur
ótrauðuráfram
í næstu viku verður Akira Kurosawa
82 ára. Það er þó engin elhmörk að sjá
á þessum japanska snilhngi en fáir
mánuðir eru síðan síðasta kvikmynd
hans, Rhapsody in August, var fram-
sýnd. Þegar hann gerði hina persónu-
legu mynd Drauma fyrir rúmum
tveimur áram héldu flestir að það yrði
síðasta mynd hans en gamh maðurinn
heldur ótrauður áfram og hefur tíl-
kynnt að næsta kvikmynd hans muni
heita Madadayo og verður hún byggð
á ævi japanska prófessorsins og
skáldsins Hyakken Uchida sem lést
1971, þá 82 ára. „Ég hef haft ánægju .
af að lesa skáldsögur Hyakken," segir
Kurosawa „og hef alltaf haft hug á að
kvikmynda ævi hans en margt spaugi-
legt henti hann í lifanda lífi og hef ég
trú á að myndin verði gamansöm."
Madadayo á að kosta 12 milljónir doll-
ara og verður hún framsýnd eftir rúmt
ár.
Þýskir kvikmynda-
gerðarmenn
mótmæla
Þrjátíu þýskir kvikmyndagerðar-
menn og leikarar hafa birt opinbert
bréf þar sem þeir láta í ljósi vanþóknun
á að Europa, Europa skuli ekki vera
framlag Þýskalands við óskarsverð-
launin í ár. í Europa, Europa er sögð
saga Solomon Perel, sem er pólskur
gyöingur sem lifði af síðari heimsstyrj-
öldina með því aö þykjast vera félagi
í æskudeild Hitlers. I bréfinu segir að
myndin geti ekki annað en vakið ahs
konar póhtískar ákvarðanir og snerti
ábyrgðartilfinningu allra Þjóöveija.
Þeir sem undirrita bréfið era meðal
annarra leikaramir Hanna Schygulla
og Jurgen Prochnow og leikstjórarnir
Volger Schlondorff, Wolfgang Peter-
sen, Werner Herzog og Margarethe
von Trotta. Þess má geta að Europa,
Europa var vahn besta erlenda kvik-
myndin af gagnrýnendum í New York
fyrr á árinu og hlaut sömu verðlaun
hjá erlendum gagnrýnendum í Holly-
wood fyrir stuttu.
M.Butterfly
kvikmynduð
M. Butterfly, leikritið sem sýnt er í
Þjóðleikhúsinu, verður að kvikmynd á
næsta ári. Ástralski leikstjórinn Peter
Weir átti að leikstýra verkinu en hefur
hætt við og nú er tahö líklegt að það
verði David Cronenberg sem leikstýr-
ir. Hlutverk franska diplomatsins
veröur í höndum Jeremy Irons. Ein-
hver bið verður þó á því að upptökur
hefiist því þessa stundina er Cronen-
berg að leikstýra The Singing Detec-
tíve með A1 Pacino í aðahilutverki.
Margir sjónvarpsáhorfendur muna
öragglega vel eftir hinni frábæru
bresku þáttaröð sem mynd Cronen-
bergs er byggð á.