Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1992.
HÚSBYGGJENDUR - HÚSEIGENDUR
Tek að mér nýbyggingar. Einnig alis konar viðhald
og breytingar á húsum.
Geri tilboð.
Upplýsingar í símum 32826 og 985-20295.
MAGNÚS G. JENSSON
byggingameistari
FYLLINGAREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast
Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum gróíleika.
Sævarhöföa 13 - sími 681833
RÝMINGARSALA
Við rýmum fyrir nýjum vörum.
Stólar - sófar - borð - bókahillur - veggein-
ingar - videoskapar - fataskápar og skó-
skápar.
Nýborg c§3
Skútuvogi 4 - sími 812470 - Reykjavík
DVALARHEIMILIÐ LUNDUR
HELLU
Tilboð óskast í innréttingu á 800 mJ húsnæði í byggingu dvalar-
heimilisins á Hellu. Húsnæði þetta er nú fokhelt.
Verktími er til 30. apríl 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7 Reykja-
vík, til og með fimmtudegi 5. mars geo.i 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni,7, fimmtudaginn
12. mars 1992 kl. 11.00.
IIMNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
■ ■■■■■ HÁR ■■■■■■
U.Ý.T.T
eðlileg að þú færð þá tilfinningu að hafa fengið
þitt eigið hár aftur.
Hringið eða skrifið
jt eftir nánari upplýsingum, 100% trúnaður
« RAKARA- 0G
vf JH \y hArgreiðslustofan
Tjt GREIFESQST
TP HRINQBRAUT119 s 22077 íT'STEIAS
| A ég vil fá meiri upplýsingar um
w Apollo-hár.
Nafn: _______
Heimilisfang:
Póstnúmer: _
mmmmmm hár ííibieI
Matgæðingur vikuiuiar
Stórlúða með
múskatþaki
Hrafnhildur Sigurðardóttir hjá
Samvinnuverðum-Landsýn er
matgæðingur þessarar viku. Hún
býður lesendum upp á stórlúðu
með múskatþaki. Hún segir eigin-
mann sinn reyndar vera aðalmat-
gæðinginn heima fyrir en hún taki
þó stundum til höndum í eldhús-
inu. Hrafnhildur segist hafa mest
gaman af að búa til óvenjulega
rétti, er ekki mikið fyrir að mat-
reiða þessa hefðbundnu íslensku.
„Þessi lúðuréttur er mjög vinsæll
heima hjá okkur. Við gerum lítið
að því að sjóða fisk á hefðbundinn
máta, viljum heldur rétt eins og
þennan. Hann er dæmigerður
hversdagsréttur á okkar heimili,"
segir Hrafnhildur um stórlúðu með
múskatþaki.
Það sem þarf
2-3 stórlúðusneiðar (jafnþykkar)
salt
hvítan pipar
múskat
smjörva
sítrónusafa
í sósuna þarf
1 dós af sýrðum ijóma
2 hvítlauksgeira
Hrafnhildur Sigurðardóttir.
DV-mynd GVA
saxaðan graslauk (helst ferskan)
hnífsodd af Dijon-sinnepi
Þannigerfarið að
Best er að byrja á sósunni. Fínt-
skornum hvítlauksgeirunum er
blandað í sýrða rjómann, þá lófa-
fylh af söxuðum graslauknum og
loks hnífsoddi af sinnepi og öllu
hrært vel saman. Sósan er látin
standa í kæli í hálftíma eða svo.
Þá er það fiskurinn
Ofnfast fat er smurt með örlítilli
smjörvaklípu og lúðusneiðarnar
lagðar í það. Safi úr hálfri sítrónu
er kreistur yfir sneiðarnar. Þetta
er látið stanada í um það bil 5 mín-
útur. Þá er hvítur pipar malaður
yflr, hóflega, og einnig stráð salti.
Loks er fiskurinn þakinn með
múskati (ekki spara það) og bakað-
ur í ofni við 225 gráður í um það
bil 15 mínútur. Tíminn fer eftir
þykkt lúðusneiðanna en ofnbakað-
ur fiskur verður þurr og bragðlaus
sé hann bakaður of lengi.
Með þessu er boriö fram ferskt
salat að hætti hvers og eins.
Hrafnhildur skorar á Ásthildi
Pétursdóttur, starfssystur sína hjá
Samvinnuferðum-Landsýn, aö
vera matgæðingur næstu viku.
„Ásthildur er þekkt fyrir gestrisni
og góðan mat,“ segir Hrafnhild-
ur.
-hlh
Hinhliðin
Langar að hitta Prince
- segir Sigrún Eva Ármannsdóttir söngkona
Sigrún Eva Ármannsdóttir er
oröin landsþekkt söngkona. Him
er ættuð frá Ólafsfirði og valdi
söngbrautina af eintómri tilviljun
fyrir nokkrum ánun. Hún hefur
tvisvar sungiö í Landslagskeppn-
inni og tekur nú í annað sinn þátt
í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Sig-
rún Eva þykir syngja sigurstrang-
legt lag ásamt söngkonunni Sigríði
Beinteinsdóttur. Þar fyrir utan hef-
ur Sigrún Eva sungiö með hljóm-
sveitinni Upplyftingu á Hótel ís-
landi í vetur. Hún segir að breyt-
ingar gætu orðiö hjá sér næsta
sumar ef hún fer í nýja hljómsveit.
„Það verður vonandi mjög spenn-
andi ef af verður," segir söngkon-
an. í kvöld ræðst hvort Sigrún Eva
fer með sigurlaginu til Malmö í
Sviþjóð í vor en það heitir Nei eða
já. „Ég vonast tÍL að lagið verði í
toppbaráttunni," segir söngkonan
hæversk.
Það er Sigrún Eva sem sýnir hina
hhðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Sigrún Eva Ármanns-
dóttir.
Fæðingardagur og ár: 23. janúar
1968.
Maki: Birgir Jóhann Birgisson.
Böm: Engin.
Bifreið: Opel árgerð 1984.
Starf: Söngkona og nemi í Háskóla
íslands í ensku og frönsku.
Laun: Misjöfn.
Áhugamál: Söngur og allt sem er
skemmtilegt, til dæmis að borða.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Fjórar tölur fyrir
nokkrum árum. Þær gáfu ijögur
þúsund.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Hafa það gott. Slappa af yfir
sjónvarpi eða glugga í bækur og
blöð.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Vakna snemma á morgnana.
Uppáhaldsmatur: Úps, hvað á ég
nú að segja. Æth það séu ekki fiski-
bollur með karrísósu að hætti
mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Sennilega er
það vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Ég fylgist
ekkert með íþróttum en gæti nefnt
Jolla (Eyjólf Sverrisson).
Uppáhaldstímarit: Ég kíki stund-
um í tímarit en á ekkert uppáhalds
enda les ég þau eftir efninu sem
þau.bjóða.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Mel Gibson.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Ég læt ekkert uppi um það.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Prince.
Uppáhaldsleikarí: Gerard Depar-
dieu.
Uppáhaldsleikkona: Andie
MacDowell.
Uppáhaldssöngvari: Prince.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Það
veit ég ekki.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Garfield.
Uppáhaldssjónvarpi: Góðar bíó-
myndir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins? Skipti mér ekki af slíkum
málum.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Mér finnst engin standa upp
úr.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Stein-
grímur og Anna Björk þegar þau
unnu saman.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Spaug-
stofumenn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Heimili
mitt.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Leiftur.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Já, að mennta mig og
hafa það gott.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Feröast um landið og syngja.
í fyrrasumar fór ég hringveginn í
Frakklandi.
-ELA