Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1992. 25 „Menntaskóli er undirbúningur fyrir lífiö og ef grein eins og reið- mennt er kennd markvisst og skipu- lega á hún fyllilega rétt á sér. Það má ekki gleyma því að hóffarið hefur fylgt mannssporinu frá örófi alda. Þar sem þróun hefur átt sér stað hafa fundist merki eftir hesta,“ sagði Haraldur Haraldsson, reiðmennta- kennari í Menntaskólanum við Sund og framkvæmdastjóri hestamanna- félagsins Fáks, í samtali við DV. Haraldur hefur kennt reiðmennt í MS frá því í haust en þá var fyrst boðið upp á slíkt námskeið sem val fyrir nemendur. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem reiðmennt er kennd í framhaldsskóla, hún hef- ur áður verið kennd í Ármúlaskóla. Reiðmennt og hestamennska al- mennt nær til æ fleira fólks, bæði yngra fólks og eldra, til fatlaðra jafnt sem ófatlaðra. 16 nemendur skráðu sig á námskeiðið hjá Haraldi í haust en það varir allan veturinn. Bóklegtog verklegt nám Haraldur segist hafa farið af stað með bóklegt nám og sinntu nemend- ur því nær eingöngu fyrir áramót. Eftir áramót er stundað verklegt nám jafnhliða hinu bóklega. í bóklega lilutanum er rakin saga hestsins almennt, saga íslenska hestsins, likami hestsins og líkams- gerð, hreyfmg og járning, umhirða og meðferð, stjóm hestsins, reiðtygi, hlýðni og tamningar og síðan þjálfun gangtegunda og áseta. í haust fóm nemendur einnig í vettvangsferð í tengslum við líkamsbyggingu hests- ins. Var Ragnar Hinriksson tamn- ingamaður þá heimsóttur. Eftir áramót sér Haraldur um grunnreiðkennslu í Reiðhöllinni. Þar kennir hann nemendum hvernig þeir geta bætt hestinn og stjórn og ásetu. Þá kennir Erling Sigurðsson reið- kennari hiýðni, stjómun, þjálfun gangtegunda og ásetu. Loks verður Haraldur með jáminganámskeið. Nemendur greiða sjálflr útlagðan kostnað vegna verklegrar kennslu reiðkennara. „Nemendurnir vilja hafa áhrif á námið og hafa komið með tillögur, meðal annars um vettvangsferðir. Með því að leita til hæfileikamanna á hveiju sviði hestamennsku fá krakkamir víðtækari og fjölbreytt- ari þekkingu. Við forum til dæmis að skoða tamningar hjá Guðmundi Haukssyni í Laxámesi í Kjós. Þar kynnast krakkarnir frumtamningu trippa. Þá heimsækjum við væntan- lega stóðhestastöðina í Gunnarsholti og munum auðvitað ríða út. í lok námskeiðsins verður námsmat sem byggist á símati meðan á námskeið- inu stendur, mætingu, fæmi og prófi.“ Annað en hopp og hí Nemendur höfðu knúið fast á um að boðið yrði upp á slíka kennslu sem val og tóku skólayfirvöld þeirri um- leitan vel. Ákvað Haraldur að.taka aö sér starfið og hefur kennt síðan í haust. „Þetta er mjög fjölbreytt námskeið þó um eina grein sé að ræða. Það er nægt námsefni til að kenna reið- mennt í fjögur ár, jafn langan tíma og tekur að læra til stúdentsprófs. Reiðmennt er mjög víðtækt svið. Sem dæmi má nefna að það tekur fjögur ár að læra til sveinsprófs í jámingum í Evrópu. Haraldur segir að þó gífurlegt magn sé til af bókum um hesta og hestamennsku sé ekki hægt að leggja eina einstaka þeirra til grundvallar Haraldur Haraldsson leiðbeinir einum þeirra nemenda sem tekið hafa reiðmennt sem valgrein í Menntaskólanum við Sund. Námið er mikið til bóklegt en verklega kennslan fer fram í Reiðhöllinni og i vettvangsferðum í tamningastöðvar og víðar. DV-mynd Brynjar Gauti á námskeiðinu. „Þetta námsekið er þróunarverk- efni og því eðlilegt að vanti bók sem spannar það allt. Þarna er hins vegar kjörið tækifæri fyrir vel ritfæra og hestglögga menn til að skrifa bók um reiðmennt." Haraldur segir reiðmennt mikið nám sem sé alltaf að hlaða utan á sig. Hann hefur eftir nemendum að þeir hafi sjaldan verið látnir starfa jafn mikið í tímum. „Menn setja hestamennsku ekki mikið í samband við pælingar í bók- um og skriftir en hestamennska er annað og meira en útreiðartúrar, hopp og hí og skemmtanir. Það tollir enginn á námskeiði sem þessu sem tekur hestamennsku sem leikara- skap. Það er þó ekki þar með sagt að við skemmtum okkur ekki og höf- um gaman af.“ Lífsins elixír Flestir nemendanna hafa eitthvað komið nálægt hestum áður. Harald- ur segir það kost þar sem þá sé auð- veldara fyrir hann að nálgast við- fangsefnið með þeim. „Hins vegar er mjög gott að fá alls óvana nemendur með líka. Óvanir nemendur hjálpa manni líka að nálg- ast efnið frá öðrum hliðum." - En á reiðmennt eitthvert erindi í menntaskóla? „Það á allt rétt á sér í menntaskóla sem tengist lífi og starfi fólks. Hesta- mennska er grein sem fólk endist lengi í og verður lífsins elixír. Það sér maður best á hópi nokkurra eldri borgara sem fara á bak nánast á hveijum degi. Þeir eru eins og ungl- ingar.“ - Ætlarðu að halda þessu áfram? „Ég vil sjá afraksturinn og meta árangurinn með skólamönnum og nemendum. Hvort sem ég eða ein- hver annar tekur að sér þessa kennslu þá er reiðmenntin komin til að vera sem námsgrein í mennta- skóla. Annars vantar hér reglulega reiðmenntun með ákveðinni mark- miðslýsingu og kennslu sem fylgir henni. Það vantar reiðskóla á sama grunni og þeir eru starfræktir víða erlendis. Eins vantar meira af sér- menntuðum reiðmenntakennurum með bakgrunn í uppeldis- og kennslufræðum sem geta farið með þetta námsefni inn í skólana og mat- reitt það þar. Það þyrfti að vera til kennarabraut í hestamennsku á há- skólastigi. Ég er sjálfmenntaöur í hestamennsku eins og margir fleiri en hef haft bakhjarl í menntun úr Kennaraháskólanum sem hefur hjálpað mér mikið við kennsluna í vetur.“ Blindir á bak Haraldur segir nemendur sína hafa orðið fyrir einstakri reynslu í vetur þar sem Fákur og Reiðhöllin tóku að sér reiðnámskeið fyrir Blindrafélag- ið með hjálp nemendanna. „Þetta var alveg frábært. Það er erfitt fyrir okkur sem eigum að telj- ast heilbrigð að átta okkur á hvað þetta fólk leggur gífurlega mikið á sig. Þau komu hér uppeftir, blind og sum í hjólastól, og drifu sig á hest- bak. Við vorum mjög varkár í byijun en fyrr en varði var þetta fólk komið á þeysireið. Tilfinning þess og næmni er svo mikil svo þau voru mjög fljót að komast í samband viö hestana. Einn reið Forseta-Grána, hestinum sem Vgidís reið á í fararbroddi hóp- reiðar á landsmóti hestamanna 1986, og stóð sig eins og hetja. Svona nám- skeið var geysilega göfgandi fyrir okkur og hefði aldrei orðið að veru- leika heiði Reiðhöllin ekki verið til. Aðstaðan í Reiðhöllinni hefur aukið mjög möguleika á að stunda hesta- mennsku og reiðkennslu að vetrar- lagi.“ Að sögn Jóns Alberts Sigurbjöms- sonar, framkvæmdastjóra Reiðhall- arinnar, mun íþrótta- og tómstunda- ráð Reykjavíkur leigja Reiðhöllina frá klukkan 10-18 alla virka daga. Er meiningin að bjóða reiðmennt sem val fyrir nemendur í eldri bekkj- um grunnskóla eftir hádegi og fyrir fatlaða og fleiri sérhópa fyrir hádegi. Einstaka fatlaðir einstaklingar hafa verið í Reiðhöllinni í vetur fyrir til- stilli foreldra en það sem framundan er er fyrsti vísir að skipulegri reið- mennt fyrir fatlaða. Jón Albert segir það þekkt víða erlendis að fatlaðir fari á hestbak í endurhæfingarstarfi^ Reiðhallir, að vísu minni, munu vera að rísa víða um land. „Veturinn er okkar tími þar sem hestamir eru þá við höndina. Reið- hallir gera mönnum síðan kleift að stunda reiðkennslu óháða veðri," sagði Jón Albert. -hlh Fákur og Reiðhöliin sáu um reiðnámskeið fyrir fatlaða með hjálp mennta- skólakrakkanna. Á myndinni sést einn þátttakandi í námskeiðinu á Forseta- Grána. Gott samband myndaðist þarna milli hests og manns. Friðrikka og Elfur eru i 4. bekk i MS. Þær eru mjög ánægðar með reið- menntatímana og segja þá nauðsynlegan valkost i menntaskóla. DV-mynd Brynjar Gauti Reiðmennt er ný valgrein í Menntaskólanum við Sund: Hóffarið hefur fylgt mannssporinu í aldaraðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.