Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Page 18
Veiðivon
Fluguhnýtingar eru vinsælar hjá veiðimönnum nú og það er hnýtt á mörg-
um stöðum þessa dagana. DV-mynd G.Bender
Hafnarfjörður:
Veiðibúð
Lalla opnuð
Það þótti nokkrum tíöindum sæta
þegar veiðibúð var opnuð í Hafnar-
firði fyrir fáum dögum. En veiðibúð
hefur ekki verið til í Hafnarfirði mjög
lengi. En Valdimar Long seldi veiði-
vörur á sínum tíma fyrir mörgum
árum og eitthvað hafa kaupmenn
haft þetta sínum búðum. En engin
sérbúð með veiðivörur hefur verið í
Hafnarfirði í fjölda ára.
Það var Veiðibúð Lalla sem var
opnuð fyrir fáum dögum í Hafnar-
firði og er eigandi Lárus S. Guðjóns-
son. Búðin var opnuð með pomp og
prakt að viðstöddu fjölmenni.
Tilraunin að opna veiðibúð í Hafn-
arfirði er góð og einhver sagði að tími
hefði verið til kominn.
„Mér líst vel á þetta og ég held að
það sé þörf fyrir svona búð héma í
Hafnarfirði," sagði Lárus S. Guðjóns-
son í vikunni. „Ég er tveggja ára
veiðidellumaður, fékk delluna fyrir
tveimur árum. Þá gaf konan mér
flugustöng og þá fóru hjóhn að snú-
ast fyrir alvöru," sagði Lárus enn-
fremur.
-G.Bender
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1992.
Veðurfarið gerir
dorgveiðimönn-
um lífið leitt
Ótrúlega gott veðurfar síðustu þrjá
vetur er að gera dorgveiðimenn grá-
hærða. Vetur eftir vetur er tíðarfarið
þannig að ekki er hægt að dorga.
Um síðustu helgi átti að halda dorg-
veiðikeppni í Hvammsvík í Kjós en
það var ekki hægt. ísinn var alls
ekki nógu traustur fyrir veiðimenn-
ina. Ekki er búið að ákveða hvenær
keppnin í Hvammsvík verður haldin.
Það þýðir ekkert að ákveða dorg-
veiðikeppni fyrirfram, veðurfarið
sér um það.
Við fréttum af einum dorgara sem
ekki hefur getað dorgað í þrjá vetur.
Þó hefur hann reynt að fara fimmtán
sinnum að dorga en ekkert gengið
ennþá.
Litla-Flugan
með góða sendingu
Litla-Flugan sendi frá sér flugu-
hnýtingahandbók og pöntunarlista
fyrir skömmu. Liggur mikil vinna í
henni og listinn er mjög vel gerður.
Þar má fmna allt milh himins og
jarðar sem maður þarf að nota í
fluguhnýtingum. En Kristján Krist-
jánsson segir meðal annars um
fluguveiðina.
„Á undangengnum árum hefur
áhugi á stangaveiðum vaxið gifur-
lega, og í kjölfarið hafa fleiri og fleiri
veiöimenn uppgötvaö þá skemmtun,
sem fluguveiði er. En hversu
skemmtilegt sem það er að ráða yfir
tækni tfi að kasta flugu fyrir fisk, þá
er þaö ekki nema hálf ánægjan. Það
að hnýta sínar eigin flugur og veiða
á þær lokar þeim töfrahring sem lax-
og silungsveiði er. Þar opnast ný
veröld í stangaveiðinni, með enda-
lausa möguleika og reynir enn frekar
á útsjónarsemi veiðimannsins.“
Þetta er hveiju orði sannara hjá
Kristjáni og lýsir máhnu vel.
Þjóðar-
spaug DV
Heiðra
skaltu
í prófi í kristnum fræðuin i
bekk einum í Reykjavík voru
nemendurnir beðnir um aö skrifa
upp boðorðin tíu. Fiestir gátu það
nú en þó vafðist eitt þeirra greini-
lega fyrir einum nemandanum,
þvi á prófblaðinu hans stóð í stað
hins eiginlega boðorðs.
„Hciöra skaltu eiginkonu ná-
unga þíns.“
Púkarnir
Bjarni Benediktsson, sem þá
var ráðherra, kvaddi sér lújóðs á
þingfundi i ársbyrjun 1961. Hann
vildi leiðrétta ýmsar prentvillur
sem slæðst höfðu inn í þingsá-
lyktunartillögu ríkisstjórnarinn-
ar um lausn landhelgisdeilunnar.
Halldór Ásgrímsson, afi Halldórs,
þingmanns Framsóknarflokks-
ins, greip þá fram 1 fyrir Bjarna
og sagði:
„Prentvillupúkinn virðist vera
eitthvað mótfallinn tillögura ykk-
ar.“
Bjami svaraði þá um hæl:
„Já, eins og fleiri púkar.“
Það var kvöld eitt á tímum
heimsstyrjaldarinnar siðari, að
gamall sjómaður gekk niður á
Ægisgarð. Sá hann þar sitja á
garðbrúninni tvær ástandsstelp-
ur sem voru að reykja og þvaðra
einhvetja „rúm-ensku“ sín á
milli.
Karlinn býður þeim gott kvöld
og spyr hvað þær séu að gera.
Stelpumar fóru að skellihlægja
og svömðu glettnislega:
„Viö emm að fiska, gamli
skröggur.“
„Jáhá, og sitjið á beítunni,"
svaraði karl þá og gekk í burtu.
-G.Bender
T
Þeir voru margir sem mættu þegar Veiðibúð Lalla var opnuð í Hafnarfirði
fyrir fáum dögum. DV-mynd Rög/Guð
Finnur þú íimm breytingai? 143
Pabbi og mamma eru þvi miður ekki heima. Nafn:.........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: SHARP stereo
ferðaútvarpstæki með kas-
settu að verðmæti kr. 6.380 frá
Hljómbæ, Hverfisg. 103.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.941.
Bækurnar, sem eru í verðlaun,
heita: Á elleftu stundu, Falin
markmið, Flugan á veggnum, Leik-
reglur, Sporlaust. Bækurnar eru
gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 143
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
fertugustu og fyrstu getraun
reyndust vera:
1. SigurðurG.Árnason
Króki, Ásahreppi, 851 Hella.
2. Málfríður Jónsdóttir
Stekkholti, Biskupstungum,
801 Selfoss.
Vinningarnir verða sendir
heim.