Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1992. 23 Dansað í Sea World. Færni Yolöndu og dansmeyjanna hennar er ótrúleg. Þær geta sveifl- að mjöðmunum eins og þær séu ekki i nokkrum tengslum við aðra líkamshluta. Það er oft mikið að gera i símanum á skrifstofunni hjá Yolöndu. DV-myndir A.St. o.fl. Húladansmær og stödvarstjóri Flugleiða í Orlando - stjómar afgreiðslu 800 flugfarþega á viku og er prímadonna dansflokks sem sýnir í Sea World Seiðandi eyjatónlistin og undurfagrar meyjarnar eru nátengdar sól og sumri. Yolanda um borð í lítilli bátkænu. Anna Bjamasan, Flórída; Hún er dökk á brún og brá, and- litsfall kynstofns hennar er áber- andi, há kinnbein og ávalar línur, svipurinn lýsir festu en skapar þó traust þegar við fyrstu sýn, brosið er mjög smitandi, húðin fallega brún og hárið hrafnsvart. Slegið nær það næstum niður í mitti. Stundum er því vafið í hring á höfð- inu en einstöku sinnum er hún með það slegið. Þetta er Yolanda Aulava, hawaiisk að ættemi og uppruna, en hefur um árabil búið og starfað í Orlando í Flórída. Yolanda er mörgum íslendingum kunn. Þeir hafa átt við hana við- skipti þótt þeir viti kannski ekki mikið um hana. Hún er nefnilega stöðvarstjóri Flugleiða á Orlando- flugvelh í Flórída. Og vinnur þar af leiðandi við afgreiðslu farþega við brottför Flugleiðavélanna til íslands. En Flugleiðir fljúga aðeins tvisv- ar í viku til Orlando og eins og fleiri vinnur Yolanda því meira en eitt starf. Hitt starfið er afar frá- brugðið stöðvastjórastarfinu. Hún dansar seiðandi húladansa í poly- nesíu-sýningum í Sea World eins oft og hún getur komið því við með stöðvarstjórastarfinu. Vissi lítið um ísland við ráðningu „Ég vissi ekki mikið um ísland þegar ég hóf störf hjá Flugleiðum í febrúar 1988. Ég vissi aðeins að ísland var eyja eins og heimaland mitt nema min eyja er græn en ís- land er hvítt. Síðan hef ég komist að raun um aö við eigum fleira sameiginlegt, eins og t.d. virk eld- flöll og einnig það að fjörusandur- inn okkar er svartur eins og ykkar en hann er hvítur víðast annars staðar í heiminum,“ sagði Yolanda er við hittum hana að máli á skrif- stofu hennar á Orlandoflugvelli. „Skrifstofan" hennar er ekki stór, eiginlega aðeins skrifborðsaðstaða í homi lítils herbergis þar sem gólf- rými er lítið vegna fjölda tækja og annars búnaðar og margir þurfa þar að ganga um. Á töflum á veggj- um má sjá tölur um farþega til hinna ýmsu borga en þessar tölur sýna yfirleitt alltaf að hvert sæti er skipað í Flórídaferðum Flug- leiða. íslendingar eru þar oftast nær í miklum minnihluta. Mikiö ber á Norðurlandabúum, Þjóðveij- um og Frökkum en segja má að fólk alls staðar úr heiminum not- færi sér þessar feröir milli gamla qg nýja heimsins með viökomu á íslandi. Ákveðin en sanngjöm Yolanda er eini starfskrafturinn á Orlandoflugvelli, sem fær laun sín greidd frá Flugleiöum. Aðrir sem lúta hennar stjóm og starfa viö brottfór og komu Hafdísar og Fanndísar, hinna nýju og rómuðu farkosta Flugleiða í Orlandoflug- inu, em starfsmenn fyrirtækis sem annast afgreiðslu allra véla í leigu- flugi sem koma til Orlando, og Flugleiðir kaupa þjónustu af. Það fyrirtæki nefnist Page og er tals- vert fyrirferðarmikiö í flugaf- greiðslu á McCoy flugvellinum í Orlando. Yolanda tekur starf sitt sem stöðvarstjóri Flugleiða alvarlega og sinnir því af árvekni. Hún er ákveðin í skoðunum en gætir þó fyllstu sanngimi. Á slíku þarf oft að halda því stundum er það meö ólíkindum hvað töskum farþega hefur fjölgað í dvöl þeirra í Flórída og margir prísa sig sæla fyrir að það er töskufjöldinn en ekki þyngd þeirra sem gildir í Ameríkufluginu. „Það er vel skiljanlegt vegna mik- illar dýrtíðar á íslandi að flestir farþegar séu með mikinn farangur þegar þeir halda heim frá Or- lando,“ sagði Yolanda. Er við spurðum hana um „heims- frægan" drykkjuskap íslendinga erlendis sagði hún að nokkur vand- ræði hefðu hlotist af því í fyrstu en nú væri það alger undantekning ef vín sæist á einhverjum. Af- greiðsla farþeganna gengur oftast snurðulaust en þess væra þó dæmi aö tungumálaerfiðleikar hefðu valdið vandræðum og að fólk, sem vildi finna út úr hlutunum sjálft, hefði t.d. tekið rangt eftir hliðnúm- eri við brottfór, en þetta em aðeins minni háttar vandræði sem voru leiðrétt án vandræða. Öll fjölskyldan í dansinum Ég beindi talinu aö ferli Yolöndu á danssviðinu og þeim spumingum mínum svaraði hún jafn ljúflega og hinum varðandi flugafgreiðsl- una. „Langflestum litlum stelpum á Hawaii er beint inn á dansbrautina þegar þær em kornungar og þá læra þær húladansinn, alveg eins og litlar stelpur á Vesturlöndum læra ballett. Húladansinn er okkar ballett," sagði Yolanda. „Ég er fædd á Oahu, þriðju stærstu eyjunni í Hawaii, en þar er m.a. höfuðborgin Honolulu. Ég lærði dans mjög ung og hef alla ævi stundað hann, fyrst af ein- skærum áhuga en síðar sem at- vinnu. Ung að ámm kynntist ég eiginmanni mínum, sem er frá Samoaeyjunum 1 Polynesíu. Hann er fjölhæfur listamaður á sviði dans og tónlistar og semur dansana sem dansflokkurinn sýnir á sýn- ingunum í Sea World. Dóttir okkar, Jerusha, sem er ekki nema fimm ára en er einnig komin í dansinn og farin að sýna með dansflokkn- um. Við höfum víða komið fram, m.a. sýndi flokkurinn um tíma hjá Sea World í Ohio,“ sagði Yolanda. Nýstárleg og skemmtileg sýning Það er greinilegt að fæmi dansar- anna í sýningunni er ipjög mikil og áhorfendum þykir mikið til en innilegastu viðtökurnar fær þó Jerasha litla, dóttir Yolöndu, og þegar hún lýkur sínum þætti á hún hugi og hjörtu áhorfenda. Sýningin í Sea World er ákaflega viðamikil og kom mér og samferða- mönnum mínum (og reyndar flest- um sýningargestunum að þvi er virtist) svo sannarlega á óvart. Sýningin stendur í rúma tvo klukkutíma og er jafnan eitthvað að gerast á sviðinu allan tímann. Undursamlega fagrar suðurhafs- eyjadansmeyjar dansa seiöandi og jafnframt heillandi dansa í skraut- legum „strápilsum" í öllum regn- bogans litum. Þá koma einnig fram í sýningunni karldansarar í skrautlegum lendaskýlum. Kynnir sýningarinnar og jafnframt aðal- söngvari greinir i söng frá sögu suðurhafseyjaskeggja, syngur und- ursamlega fallega söngva þeirra og dansararnir sýna dansa frá ýmsum tímabilum í sögu eyjanna, allt frá þvi fyrir daga kristinna trúboða, sem þangaö leituðu, þar til eyjam- ar urðu „ameríkaníseraðar“. Þama kemur fram nýstárlegur eld- gleypir og undraðust allir við- staddir fimi hans og getu. Auðtrúa íslendingar stóðu á öndinni yfir því hvernig hann gat dansað með mörg logandi blys án þess að kveikja í sjálfum sér eða húsinu! Á meðan á danssýningunni stendur er borinn fram mjög ljúf- fengur matur, bæði ávextir, salöt, framúrskarandi fiskur, súrsætt svín, kjúklingur og fleira góðmeti. Hægt er að fara á kvöldsýninguna án þess að kaupa sig inn í garðinn en hún fer fram í veitingastaðnum Aloha Polynesian Luau. - Verða árekstrar milli þessara tveggja ólíku starfa þinna? Hvort starfið á meiri ítök í þér? „Árekstrar eru engir. Þaö er tekið fullt tillit til Flugleiðastarfsins þeg- ar starfsskráin er samin í Sea World sýningunum. Það er erfitt að segja um hvort starfið á meiri ítök í mér, ég elska þau bæði. Ég er alin upp við húladans, hef hann í blóðinu, en ég stundaði nám í við- skiptafræðum og þannig hef ég undirstöðumenntun fyrir starf mitt sem stöðvarstjóri," sagði Yo- landa. - Hefurðu tekiö eftir íslenskum eða annarra landa Flugleiðafarþeg- um á sýningunum í Sea World? „Þaö hefur komið fyrir að ég hef kannast við andlit en farþegamir þekkja mig greinilega ekki enda eiga þeir ekki von á að sjá mig þama upp á sviðinu í litskrúðugu strápilsi," sagði Yolanda og brosti sínu seiðandi og smitandi brosi sem nær ekki aðeins til augnanna held- ur alls andlitsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.