Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1992, Síða 47
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1992. 59 Mikill áhugi á Ford-keppninni: Sjötíu stúlkur sendu inn myndir - úrslitin verða kynnt 19. mars á Hótel Sögu Tæplega sjötíu stúlkur hafa sent myndir af sér í Ford-keppnina sem sýnir aö áhugi á fyrirsætustörfum meðal íslenskra stúlkna er gríðar- lega mikiil. Myndirnar verða nú sendar til Ford Models í New York þar sem valdar verða stúlkur til að taka þátt í úrslitakeppninni. Ekki er ljóst hversu margar stúlkur verða í úrshtum. Þaö ræðst hjá Ford Models. Vonandi verður hægt aö tilkynna þátttakendur í úrsht- um í næsta helgarblaði DV. Sjálft úrslitakvöldið verður fimmtudaginn 19. mars. Þá verður Ford-stúlka ársins 1992 valin með pompi og prakt. Sú stúlka sem hlýt- ur þann titil mun fara til Los Ange- les í júlí og taka þátt í keppninni Supermodel of the World. Sigur í þeirri keppni gefur tæplega fimmt- án milljón króna samning við Ford Models auk glæsilegra gjafa. Hugsanlegt er að íleiri stúlkur en sigurvegarinn fái tilboð frá Ford Models en skrifstofan er starfrækt í New York, París og Japan. Auk þess eru umboðsaðilar Ford Mod- els í London, á Ítalíu, í Þýskalandi og víðar. Í fyrra áttu þrjár stúlkur kost á að fara í prufumyndatökur hjá Ford Models en þær höfnuðu boðinu. Slíkt þykir undarlegt þegar litíö er til þess að mörg hundruð stúlkur óska eftir slíkum mynda- tökum dag hvem hjá Ford Models skrifstofunni. Færri komast að en vilja. fVrirsætustarfið er erfitt og heimurinn harður á þeim vett- vangi. Engu að síður virðist starfið heillandi í fjarlægð hjá mörgum. Þegar að alvömnni kemur er stundum sem áhuginn þverri eða stúlkurnar treysti sér ekki til að leggja land undir fót og hefja bar- áttuna. Mörgum íslenskum stúlkum hef- ur vegnað vel í fyrirsætustörfum á erlendri grundu. Aðrar hafa reynt fyrir sér en síðan snúiö heim aftur. Það er sennilega með þetta starf eins og mörg önnur - það á ekki við alla. Hins vegar em miklir pen- ingar í boði hjá eftírsóttum fyrir- sætum og ferðalög viða um heim. Það verður gaman að vita hvaða stúlkur lenda í úrslitum Ford- keppninnar að þessu sinni og jafn- framt verður forvitnilegt að vita Þessi stúlka, Vendela, er norsk/sænsk og er ein eftirsóttasta fyrirsæta heims. Eileen Ford uppgötvaöi hana er hún var á feröalagi um Noröur- lönd. Vendela er orðin þekkt sem andlit Elisabet Arden snyrtivara. Hún er orðin margmilljóneri á fyrirsætustörfum. hvort einhverrar þeirrk bíður heimsfrægð. Úrslitín munu fara fram á Hótel Sögu þar sem boðið verður upp á fjölbreytt skemmtíat- riði. Áður en að þeirri stund kemur verða stúlkurnar kynntar í helgar- blaði DV. Áður en stígið verður á svið munu stúlkurnar fá námskeið hjá Unni Arngrímsdóttur og Mód- elsamtökunum. -ELA dv_____________________Merming Laugarásbíó - Hundaheppni: ★ lA Slysast milli staða Martín Short hefur aldrei náð að slá í gegn í bíómyndum eftir umtals- verðar vinsældir í sjónvarpi vestra. Sennilegasta ástæðan er sú að hann hefur verið frekar óheppinn í myndavali, yfirleitt lent í slöppum gaman- myndum sem leyfa honum ekki að njóta sín. Nýjasta mynd hans er eng- in undantekning. Short leikur Eugene Proctor, óheppnasta mann heims, sem getur ekki forðast skakkafóll, ef það er á annaö borð mögulegt að hann verði fyrir þeim. Forríkur yfirmaður hans ræður hann til þess aö finna dóttur sína, sem hvarf sporlaust í Mexíkó, en hún er líka svona stjamfræðilega óheppin og sálfræðingur fyrirtækisins fékk þá hugmynd að Eugene gæti bókstaflega slysast á að finna hana. Með honum til Mex- íkó fer einkaspæjari, Campanella, leikinn af Danny Glover, en hann hafði áður leitað stúlkunnar án árangurs. Campanella trúir tæplega á óheppni Eugene, en þeir eru ekki lengi að komast á slóð hennar. Pure Luck er endurgerö tíu ára gamallar franskrar myndar, „La Kvikmyndir Gísli Einarsson Chevre“ eða Geitin, og er það fimmta mynd franska leikstjórans Francis Veber sem fær sömu meðferð (hinar eru: The Toy, Buddy, Buddy, Man with One Red Shoe og Three Fugitives). Eitthvaö af fyndniimi hefur skol- ast í burt því það er ekki nærri því nógu mikið eftír tíl þess að halda uppi mynd í fvdlri lengd. Hugmyndin á bak við Eugene Proctor er býsna góð og það eru nokkur frábær atriði með honum en inn á milli þeirra kemur í ljós hve næfur- þunnt handritíð er og samsþil Glovers og Shorts nær ekki að bæta það upp (Gerard Depardieu og Pierre Richard léku í frummyndinni). Myndin dettur allt of mfitíð niður á milli hrakfallanna og þegar lengra líður á fer einhæfnin að verða þreytandi. Ég er viss um að Frakkamir kunnu betur að fara með þetta efni. Pure Luck (Band. 1991), 96 mln. Handril: Herschel Wingrod, Timothy Harris (Trading Places, My Stepmother Is an Alien) eftir kvlkmynd Francis Veber, „La Chevre". Lelkarar: Martin Short (Three Fugitives), Danny Glover (Predator 2), Sheila Kelley (Some Girls, Soapdlsh). FLUOLEIDIR Aðalfundur Flugleiða hf. Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 1992 í Höfða, Hótel Loftleiðum, og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrif- stofu félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hæð, frá og með 12. mars kl. 14.00. Dagana 13. til 18. mars verða gögn afgreidd frá kl. 9.00 til 17.00 og á fundardag til kl. 12.00. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12.00 á fundardegi. Stjórn Flugleiða hf. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.