Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992.
Skák
Því miður tefla allt of fáar konur
skák á íslandi og raunar ótrúlega
fáar miðað við þann mikla skáká-
huga sem er í landinu. Síðustu árin
hafa aðeins örfáar konur tekið þátt
í kvennameistaramóti íslands og
ekki hefur heldur þótt svara kostn-
aði að senda kvennasveit á ólymp-
íumót. En nú er ýmislegt sem bend-
ir til að áhugi kvenna sé aftur að
glæðast. Skemmst er að minnast
hundrað kvenna skákmóts í MR
þar sem frú Vigdís Finnbogadóttir
forseti lék fyrsta leikinn. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir íslandsmeistari
stóð fyrir atburðinum og nú er hún
aftur í eldlínunni þar sem hún
freistar þess að verja titilinn frá því
í fyrra á kvennameistaramóti ís-
lands.
Ellefu skákkonur taka þátt í mót-
inu sem er betri þátttaka en mörg
undanfarin ár. Þær eru Guðfríður
Lilja, Eyrún Edda Hjörleifsdóttir,
Sólveig Snorradóttir, Guðný
Hrund Karlsdóttir, Sigrún Þor-
varðardóttir, Ragnheiður Kristj-
ánsdóttir, Helga Guðrún Eiríks-
dóttir, Berghnd Aradóttir, Áslaug
Kristinsdóttir, Halla Gunnarsdótt-
ir og Svava Bjarney Sigbertsdóttir,
sem er yngsti keppandinn, aðeins
12 ára gömul.
Stúlkurnar tefla fimm umferðir
eftir Monrad-kerfi og lýkur mótinu
í dag með tveimur síðustu umferð-
unum sem hefjast kl. 10 og 14.30 í
húsakynnum Skáksambands ís-
lands, Faxafeni 12. Forvitnilegt
verður að sjá hvort Guðfríður Lilja,
sem eins og fram hefur komið í DV
hyggur á nám við Harvard-háskóla
í haust, fær meistaranafnbótina í
veganesti vestur um haf. Án efa
verður keppnin þó hörð og spenn-
andi. T.a.m. teflir Áslaug Kristins-
dóttir, margfaldur landsliðsmaður,
nú aftur í kappmóti eftir flmm ára
hlé og gæti gert stóra hluti. Eftir
tvær umferðir höfðu þær einar
unniö báðar sínar skákir.
En víkjum að körlimum. Er þetta
birtist ætti að liggja ljóst fyrir hvor
þeirra hlýtur nafnbótina „Skák-
iuvitii
Guðfriður Lilja Grétarsdóttir freistar þess í dag aö verja íslandsmeistaratitil kvenna en fleiri konur taka nú þátt
i skákþinginu en mörg undanfarin ár.
15. Rf3 Dc5 16. De4!
Forleikurinn að því sem koma
skal. Drottningin stefnir til h4 þar
sem hún kemst í tæri við svarta
kónginn.
16. - Db4!
I M. I#
1 k iii i 1
k A
A m
A ^ A
A A A A
g IH fi $
ABCDEFGH
Líklegt er að þetta sé afrakstur
heimavinnu Hollendingsins. Jíftir
drottningakaup má svartur vel við
una og þiggi hvítur peðsfórnina
með 17. Bxd5 exd5 18. Dxd5 kemur
18. - Be6 og svörtu mennirnir
vakna til lífsins. Short finnur frum-
lega lausn á vandanum.
17. Bc4! Rb618. b3! Rxc419. bxc4 He8
Hvítur hótaði 20. Ba3. Þótt peða-
staða hvíts hafi riðlast eihtið við
uppskiptin á c4 er meira um vert
að svartur situr uppi með óvirka
stöðu' Svarti kóngurinn er nú
ákjósanlegt skotmark.
20. Hdl Dc5 21. Dh4 b6 22. Be3 Dc6
23. Bh6 Bh8 24. Hd8 Bb7
Ef 24. - Bd7 gefur Short 25. Rd4
Haxd8 26. Rxc6 Bxc6 27. Df4 Hd7
28. Bg5 með yfirburðum á hvítt.
25. Hadl Bg7
Eftir 25. - Dxa4 hefði getað teflst
26. De7! Bxf3 27. Hxa8 Bxa8 28. Hd8
Dal+ 29. Kh2 Bxe5+ 30. f4 Bxf4 +
31. Bxf4 Hxd8 32. Dxd8+ Kg7 33.
Dxa8 með sigurstranglegri stöðu.
26. H8d7! Hf8
Svarið við 26. - Bxe5, eða 26. -
De4 yrði 27. Hxf7! og riddaragaffall
hggur í loftinu.
27. Bxg7 Kxg7 28. Hld4 Hae8 29.
Kvennameistaramóti f slands lýkur í dag:
íslandsmeistaratit-
illinn til Harvard?
meistari íslands 1992“, Helgi Ólafs-
son eða Margeir Pétursson - eða
hvort einvígi þeirra í milli þurfl til
að skera úr. Lokaumferö mótsins
var tefld í gærkvöldi og var ekki
lokið er blaðið fór í prentun. Þessi
stutta skák var tefld í níundu um-
ferö:
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Sævar Bjarnason
Pirc-vörn.
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. f4
Rf6 5. Rf3 Ra6?! 6. e5 dxe5 7. fxe5
Rd7 8. h4 c5 9. Be3 Da5?! 10. h5 gxh5?
11. Bc4! cxd4
x i * X
i Á 4 A ii 1
m
A 1
ÉL i
th
A A A A
S tgr 5
ABCDEFGH
12. BxU+! KxU 13. Rg5+ Kg8 14.
Dxh5 Rxe5 15. De8+ BfB 16. 0-0 Bf5
17. Dxa8 Rc6 18. Re6 Kf7 19. Dxb7
De5 20. Hxf5+ Dxf5 21. Hfl
- og svartur gafst upp.
Áskorendumir
tefldu bestu skákina
Garrí Kasparov heimsmeistari
mun setjast andspænis nýjum
áskoranda í Los Angeles í ágúst-
mánuði á næsta ári. Hvort sá heitir
Jan Timman eða Nigel Short kem-
ur í ljós í janúarmánuði er þeir
heyja einvígi um áskorunarréttinn.
Margt bendir til þess að einvígi
Shorts og Timmans verði fjörugt
og skemmtilegt. Þeir kappar eru
þekktir fyrir annað en þunglama-
legan skotgrafahernað og semja
heldur ekki um jafntefli fyrr en að
fuhreyndu. Eins hefur þeim fram
að þessu tekist bærilega upp í inn-
byröisskákum.
Júgóslavneska skákritið Inform-
ator, eða Ljóstri, eins og nefna
mætti það á íslensku, er öllum
skákáhugamönnum vel kunnugt.
Það hefur komið út tvisvar sinnum
árlega síðan 1966 og þrisvar á ári
síöan í fyrra. Þar eru helstu skákir
tímabilsins á undan birtar með
skýringmn meistaranna.
Fyrir skömmu kom 54. hefti
Ljóstra út sem hefur að geyma 628
Umsjón
Jón L. Árnason
skákir frá fyrri hluta ársins og
ýmsilegt fleira áhugavert. Meðal
þess sem jafnan vekur nokkra at-
hygli er listi yfir bestu skákimar
úr síðasta hefti sem níu manna
dómnefnd stórmeistara velur.
Að þessu sinni hlaut skák Shorts
og Timmans frá Interpohs-skák-
mótinu í Tilburg sl. vetur flest stig
dómnefndarmanna, sem eru Larry
Christiansen, Artur Jusupov,
Lubomir Kavalek, Viktor Kortsnoj,
Milan Matulovic, Oscar Panno,
Zoltan Ribli, Jan Smejkal og Jonat-
han Speelman. Þeir Jusupov, Mat-
ulovic og Speelman gefa skákinni
hæstu einkunn eða 10 stig og sam-
tals fær hún 73 stig. í 2. sæti er sig-
urskák Anands gegn Kasparov frá
Reggio Emilia með 70 stig og sigur-
skák Kasparovs gegn Anand frá
Tilburg kemm- í 3. sæti með 64 stig!
Nafn eins íslendings er að flnna
á hstanum. Það er Jóhann Hjartar-
son, sem er í hlutverki þolandans
gegn Vaganjan, en skák þeirra, sem
tefld var í Þýskalandi, hafnar í 12.
sæti yfir bestu skákir tímabilsins.
Short tefldi verðlaunaskákina við
Timman frá Tilburg af miklu list-
fengi. Þetta er léleg skák en þó auð-
ug af frumlegum hugmyndum.
Mörgum mun eflaust þykja ein-
kennhegt hvemig Short gerir sér
það að leik í miðtafhnu að
„skemma" peðastöðu sína og gefa
meira að segja biskupaparið um
leið. En þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að við þetta fær hann frjálst
sph fyrir menn sína og nær að
beina spjótum sínum að svarta
kónginum. Þetta eitt hefði þó varla
nægt th verðlauna. Lokin á skák-
inni eru sérlega skondin - ekki á
hveijum degi sem Timman fær
slíka meðferð.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Jan Timman
Aljekínsvörn
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3
g6 5. Bc4 Rb6 6. Bb3 Bg7 7. De2 Rc6
8. 0-0 0-0 9. h3 a5 10. a4 dxe5 11.
dxe5 Rd4 12. Rxd4 Dxd4 13. Hel e6
14. Rd2 Rd5
Þessi leikur er endurbót Tim-
mans á eldri skák Shorts frá breska
meistaramótinu þar sem svartur
lék 14. - Bd7 en náði ekki aö jafna
taflið.
Df6+ Kg8 30. h4 h5 31. Kh2 Hc8?
Skásta vömin er 31. - Bc8 en
Short rekur þá taflið áfram til vinn-
ings á hvítt á eftirfarandi hátt: 32.
g4! hxg4 (ef 32. - Bxd7 33. gxh5 gxh5
34. Dg5+ og vinnur) 33. Rg5 (hótar
34. h5) g3+! 34. fxg3 Bb7 35. Re4
Dxa4 36. h5 Dxc2+ 37. RÍ2 gxh5 (ef
37. - Df5 38. hxg6! og vinnur) 38.
Hd3 Be4 (hvaö annað?) 39. Hd2 Dbl
40. Hdl Dc2 41. H7d2 Dc4 42. Hd4
og hvítur vinnur.
33. Kg3! Hce8 34. Kf4! Bc8 35. Kg5!
- Og eftir þessa óvæntu „kóngs-
sókn“ gafst Timman upp. Hvítur
leikur næst 36. Kh6 og óveijandi
mát á g7 blasir við.
-JLÁ