Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 33
ogpr 'T'gffoX og 3UOAQHADUAJ
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992.
„Viö vissum það fyrir aö það var
mikið í húfi og urðum að leggja allt
undir. Ég man að ég leit á vallar-
klukkuna og hún sýndi 48 mínútur.
Ég var þá alveg aö missa vonina,
ákvað að taka ósigrinum karlmann-
lega og óska KA-mönnum til ham-
ingju. Síðan gerist það ótrúlega sem
ekki er hægt að kalla annað en röð
af tilviljunum í þeirri spennu sem
ríkti svo skömmmu fyrir leikslok.
Boltinn kemur svífandi til mín, ég tek
hann í hjólhestaspymu og bang! Þá
varð allt kolvitlaust,“ segir Anthony
Karl Gregory, knattspymumaður úr
Val.
Anthony Karl, eða Tony eins og
hann er jafnan kallaður, komst held-
ur betur í sviðsljósið um síðustu
helgi þegar hann skoraði jöfnunar-
mark Vals gegn KA á síðustu sekúnd-
unum í úrslitaleik mjólkurbikar-
keppninnar. Framlengja varö leik-
inn og er ekki að orðlengja aö Vals-
menn gerðu vonir KA-manna að
engu með þremur mörkum, unnu
leikinn, 5-2.
Hann segir félaga sína oft grínast
með jöfnunarmarkið í úrshtaleikn-
um þar sem hann skoraði með hægri
en Anthony Karl er vinstri fótar
maður. Segja félagar hans í Uðinu
að þó hann fengi 50 sendingar, eins
og þá sem hann skoraði úr á síðustu
sekúndunum í úrslitaleiknum, á æf-
ingu mundi hann klúðra þeim öllum.
En Tony var réttur maður á réttum
staö á réttum tíma.
Margirtitlar
Anthony Karl hefur átt mjög góðu
gengi að fagna í fótboltanum undan-
farin ár. Fjögur ár í röð hefur hann
hampað meiri háttar bikar eftir
keppnistímabil og ekki útséð hvernig
baráttan í Samskipadeildinni endar.
Valsmenn eiga enn möguleika. 1985
varð Anthony Karl íslandsmeistari
með Val, spilaði þó ekki nema örfáa
leiki. 1987 urðu Valsmenn enn ís-
landsmeistarar. 1989 varð Anthony
Karl síðan íslandsmeistari með KA.
Þijú ár í röð, 1990,1991 og 1992 hefur
hann hampað mjólkurbikarnum
ásamt félögum sínum í Val.
Norður yfir heiðar
Leiktímabiliö 1989 er honum mjög
minnisstætt en þá varð hann íslands-
meistari með KA. KA menn urðu að
vinna sinn leik í æsispennandi loka-
umferð til að ná titlinum, léku gegn
Keflyíkingum 1 strekkingi suður í
Keflavík. Það gekk eftir. En af hverju
fór Anthony Karl noröur yfir heiðar?
„Ég var að mestu á varamanna-
bekknum hjá Val 1987 og fékk því
litla leikreynslu. Ég vissi að ég hafði
hæfileikana til að spila en varð að
gera eitthvað til að afla mér leik-
reynslu. Það varð því úr að ég fór
norður. Það var mjög gott að skipta
um umhverfi, bæöi hvað varðaði fót-
boltann og eins sjálfan mig sem per-
sónu. Ég hafði búið í foreldrahúsum
fram að þessu og því ekki nema gott
í alla staði að þurfa að sjá um sig
sjálfur. Þaö var mjög gott að vera
fyrir norðan og ég hugsa alltaf með
hlýhug til Akureyringa."
Vel tekið á Hlíðarenda
Anthony Karl hefur verið Valsari
frá því hann var strákur. Hann byrj-
aði reyndar að æfa með Fram þegar
hann var 5 ára og bjó á Flókagöt-
unni. Nokkrum vinum hans tókst þó
aö fá hann til að mæta á æfingu hjá
Val. Strákurinn misskildi hvenær
hann átti að mæta og datt því beint
inn á æfingu hjá A-liði 5. flokks.
„Ég hélt að ég ætti að æfa meö rusl-
inu en fékk að vera með fyrst ég var
mættur. Nú, það gekk mjög vel á
þessari æfmgu, svo vel að menn
klöppuðu fyrir mér í lokin. Ég var
svo ánægður með móttökurnar að
ég skipti strax um félag og var stöð-
ugt með annan fótinn á Hlíðarenda
upp frá því.“
Anthony Karl spilaði með öllum
flokkum Vals og gekk ágætlega. Spil-
aði hann fimm úrslitaleiki um ís-
landsmeistaratitil með yngri flokk-
unum og fagnaði sigri í þrjú skipti.
Fyrsta meistaraflokksleikinn spilaði
Antony Karl óvænt.
„Það var 1984 og ég var 17 ára. Ian
Ross var þá með liðið og það hafði
ekki gengið nægilega vel í framlín-
unni. Ross boðaði 5 stráka úr 2. flokki
til að fara upp á Skaga þar sem við
áttum leik. Þetta var mjög skrýtiö
þar sem ég hafði ekki einu sinni æft
með meistaraflokki og þekkti ekki
alla þar með nafni. Við fórum með
rútunni uppeftir og í Botnsskála til-
kynnti Ross 16 manna hópinn. Ég var
valinn en gerði mér engar vonir.
Karhnn beiö með að tilkynna byijun-
arliðið þar til í búningsklefanum og
það fór satt að segja um mig skjálfti
þegar ég heyrði nafnið mitt. Mér
gekk ágætlega í leiknum þó svo að
við töpuðum honum, 0-1.“
Anthony Karl segist hafa tekið
knattspyrnuna hæfilega alvarlega á
þessum tíma. Hann var í vaktavinnu
á Borgarspítalanum og vann mikið.
Hann datt úr hðinu og átti ekki aftur-
kvæmt sem fastur maður í hópnum
fyrr en 1987 þegar hann sphaði
nokkra leiki. Fyrsta markið í fyrstu
dehd lét bíða efir sér, kom fyrst gegn
KA vorið 1988. Og þau áttu eftir að
verða fleiri. Anthony Karl hefur alls
skorað 35 dehdamörk með meistara-
flokki, þar af 8 með KA. Þegar viðtal-
ið var tekið hafði hann skorað 8
mörk í Samskipadehdinni og þrír
leikir þá eftir.
Hann hefur ekki átt sæti í landshð-
inu þó margir telji að hann eigi þang-
að fullt erindi. Hann hefur alls leikið
5 landsleiki og skorað tvö mörk, gegn
Færeyjum.
Konan þreyttari
en ég
Anthony Karl kvæntist nú nýlega
Theodóru Sæmundsdóttur förðunar-
meistara. Þau hjón eiga eina dóttur,
Ólöfu Söru, sem er 2 'A árs. Hann
hefur unnið hjá knattspyrnuskóla
Vals í sumar en annars er hann á
lokaspretti í Háskólanum þar sem
hann tekur stjórnmálafræði sem að-
alnámsgrein en viðskiptafræði sem
aukanámsgrein.
„Ég er að manna mig upp í að fara
að safna heimhdum fyrir BA-ritgerð
en knattspyrnan hefur átt hug minn
allan í sumar. Tilveran gengur varla
út á annað hjá manni og ekkert pláss
fyrir önnur áhugamál. Það er nóg að
leggja fótboltann á herðar eiginkon-
unni. Það eru æfingar nær hvert
kvöld og svo leikir þannig að þetta
reynir á þolinmæöi hennar. Theo-
dóra hafði engan áhuga á knatt-
spymu þegar viö kynntumst en var
fljót að komast inn í þetta og fylgist
nú með öhum leikjum þar sem ég er
meö. Hún lifir sig svo inn í þetta og
æsingurinn er svo mikill að hún er
stimdum þreyttari en ég eftir leiki,“
segir Anthony Karl og kímir.
Langar í
blaðamennsku
Anthony Karl er einkabarn. Móðir
hans er íslensk en faðirinn banda-
rískur. Móðir hans er Ólöf Karlsdótt-
ir en fósturfaðir Sigurjón Jóhanns-
son leikmyndateiknari og hönnuður.
Faðir Anthonys Karls býr í Ohio í
Bandaríkjunum og þar á hann þijár
hálfsystur. Þeir feðgar hittust stutta
stund fyrir fáeinum árum þegar Ant-
hony Karl var í keppnisferö með Val
í nágrenni Chicagoborgar. Annars
er sambandið vestur ekki mikið.
- En lífiö er ekki bara knattspyrna,
hvað hyggstu gera þegar þú leggur
skóna á hhluna?
„Ætli ég verði ekki með til þrítugs,
maður er orðinn svo háöur knatt-
spymunni. Þó það sé gott að fá frí á
haustin fer maður að fá fiðring strax
upp úr áramótum og fer þá út að
hlaupa í slyddunni. Annars hef ég
áhuga á að fara aö vinna eftir að
skólanum lýkur. Mig langar mikið
að reyna fyrir mér í blaðamennsku,
hún hehlar mig. Annars göngum við
með þá hugmynd í maganum að fara
jafnvel th útlanda og búa þar. Það
er bara hoht fyrir mann að komast
aöeins af skerinu."
- Þú ert ekkert að hugsa um at-
vinnumennsku eða slíkt?
„Nei, þær grhlur hafa elst af mér,
ég er 26 ára og fer aö verða öldungur
í knattspyrnu." -hlh
Anthony Karl skoraði tvö mörk í
framlengingunni, ahs þrjú mörk í
leiknum. Er það í fyrsta sinn sem
þessi skæði framherji skorar þrennu
í leik með meistaraflokki. Sú þrenna
gat ekki komið á betri tíma fyrir
Valsmenn.
„Það er náttúrlega alveg stórkost-
legt að snúa leik við alveg á síðustu
sekúndunum. Strax eftir markið
dofnaði maður upp og sjö sekúndum
seinna, þegar dómarinn flautaði leik-
inn af, varð algert spennufah. Þá
vissi ég hins vegar innst inni að við
mundum klára dæmið, sem við og
gerðum,“ sagði Anthony Karl þegar
blaðamaður DV heimsótti hann á
heimhi hans á Teigunum í vikunni.
Hann var glaður í bragði þar sem
Valur burstaði Breiðabhk, 5-0,
kvöldiö áður. Skoraði Anthony Karl
tvö markanna.
Markvarðahrellirinn Anthony Karl Gregory ásamt konu sinni, Theodóru Sæmundsdóttur, og dóttur, Ólöfu Söru. Theodóra fylgist með öllum leikjum Anth-
onys Karls og lifir sig inn í þá.— DV-mynd Brynjar Gauti
Anthony Karl Gregory, maður dagsins í knattspyrmmni:
Fékk skjálíta þegar
nafnið mitt var kallað