Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992. 41 Drottningin sat á sprengiu í tvö ár -vissi allt um ástarsamtalið og slúðurblaðið Sun geymdi það vandlega Nú er komið á daginn að Elísabet drottning vissi í tvö ár allt um ástarsímtalið fræga sem Díana tengdadóttir hennar átti við James Gil- bey á gamlárskvöld árið 1989. Drottning vissi einnig að slúðurblaðið Sun hafði upptökuna og gætti hennar vandlega. Aðstoðarmenn drottningar áttu því ekki hægt um vik að gera „sprengjuna" óvirka í tæka tíð þótt þeir hefðu fullan hug á því. Það kom að því sprengjan sprakk með ófyrirsjáan- legum afleiðingum. Það sem Díönu og James fór milli umrætt kvöld var gert uppskátt og almenningi gefinn kostur á að hlýða á samtal- ið gegn gjaldi. Um 60 þúsund manns höfðu nýtt sér þá þjónustu þegar síðast fréttist. Af hálfu ritstjóra Sun var upptakan send til Bandaríkjanna til rannsóknar þar sem gengið var úr skugga um að hún væri ekki fólsuð og að kvenröddin, sem þar heyrðist, væri rödd Díönu prinsessu. Það þótti sannaö mál nú í sumar og þá var aUt til reiðu að láta til skar- arskríða. Samsæri skipulagt í höllinni? Mörgum hefur komið á óvart að í sumar skuli gerð svo hörð hríð að erfingjum 1 bresku konungsfjölskyldunni. Lætin byijuðu með bókinni um Díönu þar sem hún birtist sem sjúkhngm- og sárkvalin eiginkona. Hún átti að hafa gert ítrekaðar tilraunir til sjálfsmorðs og hjónaband hennar og Karls prins sagt í molum. Næst lenti Sara Ferguson í hakkavélinni. Hún gaf fullt tilefni til þess sjálf með ósiðlegu lífemi á Frakklandsströnd. Enn beinast svo spjótin að Díönu og leynilegum elskhuga hennar, sem reyndar er ekki svo leynilegur lengur. Sá er James Gilbey, fyrrum bílasali og áhugamaður um kappakstur. Samsæri er það fyrsta sem konunghollum Bretum dettur í hug. Sumir halda því meira að segja fram að menn nákomnir drottning- unni standi á bak Við samsærið. í það minnsta er því haldið fram að þeir hafi átt að geta komið í veg fýrir að áhugaljósmyndari leynd- ist á milli trjánna þar sem Fergie var að stríplast með Johimy Bryan í St. Tropez að prinsessunum tveimur ásjáandi. I tvö ár vissi Elísabet drottning allt um ástar- símtalið. Hún gat ekkert að gert og beið þess að allt færi í háaloft. Karl og Díana hafa aldrei átt samleið i hjóna- bandinu. Hún tók hann fram yfir bilasala enda fylgdi hásæti Bretadrottningar með í kaupunum. Símamyndir Reuter Sérvitur áhugamaður um fjarskipti Fergie fór til Frakklands án þess að hafa með sér öryggisverði og án þess að frönsk yfirvöld væru látin vita. Franskir ráðamenn reiddust þessu og sögðu Bretum að þeir hefðu sett öryggisverði til að gæta Fergie og prins- essanna. Ljósmyndarinn hefði alveg eins get- að verið leyniskytta með manndráp í huga og þá hefðu Frakkar boriö ábyrgðina. f fyrstu var einnig talið aö innanbúðarmenn hjá drottningu hefðu komið málum svo fyrir að upptaka af ástarsamtali Díönu og James komst til blaðanna. Nú þykir það ótrúlegt eft- ir að sá gamh Cyril Reenan var leiddur fram 1 sviðsljósin. Hann er sjötugur áhugamaður um fjarskipti og situr, að sögn nágranna sinna, alla daga inni og hlustar á það sem fer um öldur ljósvakans. Sérgrein hans er að hlerafarsíma. Nágrannarnir kalla hann „Radíó-Cyril“ og hús hans er prýtt mörgum, háum loftnetum. Hann var, eins og venjulega, að hlusta þegar James Gilbey hringdi úr farsíma sínum í Dí- önu. Annars hafði „Radíó-Cyril“ einkum not- að tækni sína til að hlera samtöl hestaeigenda og knapa fyrir kappreiðar til að komast að á hvaða hest væri best að veðja. Díana hefur farið huldu höfði eftir að sagt var frá símtali hennar og ástmannsins. Sama dag og fréttin birtist fyrst var hún þó á góð- gerðarsamkomu í Blackpool og var þá að sögn gráti nær og vildi við engan tala. Svo hvarf hún af sjónarsviðinu rétt eins og Fergie sem einnig hefur tekið þann kost að láta hvergi sjá sig. Tók prinsinn fram yfir bílasalann Vitað er að lengi hafa verið góðir kærleikar með Díönu og James. Hann var oft fylgisveinn hennar meðan hún var ógift og vinir hans segja að ekki megi taka of hátíðlega þótt þau tali opinskátt saman í síma. Þeir höfðu þá ekki heyrt hversu innileg samtöl þeirra eru. Stjömuspeki er eitt af sameiginlegum áhugamálum Díönu og James. Hann er vog en hún er tvíburi. Áhugi James á kappakstri er hins vegar hans mál þvi Díana er lítið gef- in fyrir æsilegar íþróttagreinar. James er góð- ur ökuþór og slapp með skrekkinn í fyrradag þegar ljósmyndari Sun ók á hann eftir æsileg- aneltingarleik. James er ógiftur, 35 ára gamall og myndar- legur. Sagt er að Díana hafi tekið Karl prins fram yfir hann á sínum tíma vegna þess að prins er jú eigulegri eiginmaður en bílasah. Nú á hún að sjá eftir öllu saman. Vinir James segja að hann sé mjög ljúfur 1 umgengni og ólíkur Karh á ahan hátt. Prinsinn er að sögn Díönuogannarraleiðinlegurdrumbur. -GK Díana prinsessa hefur oft grátiö þann tima sem hún hefur verið gift Karli prins. I ! „Eg græt þegar þú grætur" Þrátt fyrir að samtal Díönu Breta- prinsessu og James Gilbey, fyrrum bílasala, í símanum á gamlárskvöld árið 1989 sé óskýrt á köflum þá hefur tekist að ráða í flest það sem þar kemur fram. Á einum stað segir James: „VUtu lækka í sjónvarpinu?“ Díana svarar og segir að hún vilji ekki að það heyr- ist sem hún er að segja. James skhur ekki hvað hún á við. Það verður stutt vandræðalega þögn áður en Díana segir: „Strákamir!" Rétt á eftir kahar hún: „í baðher- berginu mínu, Hinrik,“ og er þá aug- ljóslega að sinna syni sínum sem er annar í erfðaröð bresku krúnunnar, næstur á eftir Karh fóður sínum. Hávðinn í sjónvarpinu hefur hins vegar angrað þá mjög sem vilja heyra aht sem James og Díönu fór á mihi. Næst ræða þau fyrirhugaðan fund á þriðjudag en samtahð fór fram á laugardagskvöldi. James segir: „Ég get ekki beðið eftir að heyra frá Ken hvemig honum hefur gengið að skipuleggja stefnumótið. Veistu að ég mun hugsa um þig allan tímann. Ég hugsa til þín á miðnætti. Þá ætla ég að halda fast utan um þig.“ Eftir þetta fer hann að tala um að þau verði ef th vhl að fresta fundin- um um 48 klukustundir og James stynur upp: „Ég vona bara að Ken segi ekki nei!“ Hver þessi Ken er veit enginn en hann virðist hafa ver- ið eins konar mihigöngumaður. James heldur áfram og segir: „Þú verður að fara mjög varlega, breiða yfir sporin." Og Díana svarar: „Þú getur rétt ímyndað þér hvort ég geri það ekki.“ Díana er ákveðin í segjast ætla að hitta nálastungulækninn sinn því þá gruni engan neitt þótt hún komi ekki í fjölskylduboð hjá drottningunni. Hún hlær að hugmyndinni. James segir: „Elsku krúsidúhan mín, hlæðu meira. Ég er hamingj- samur þegar þú ert hamingjusöm. Ég græt þegar þú grætur.“ Hann heldur áfram og segir í sífehu: „Ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig, ég elska þig... “ James hefur enn orðið og segir: „Nú er klukkan orðin fimm mínútur yfir ehefu. Við erum vön að tala sam- an á þessum tíma. Er þér nokkuð illa við þótt ég tah svona lengi við þig.“ Díana svarar og nú er eins og röddin bresti: „Nei, það er yndislegt. Það hefur enginn talað svona við mig áður, enginn." James svarar: „Það er svo gaman að geta glatt þig.“ Nú virðist Díana vera orðin æst og reið. Hún segir: „Djöfullinn. Ég veit ekki hvað ég hef gert þessari and- skotans fiölskyldu. Ég þoh ekki allar þessar aðdróttanir. Ég þoh ekki aha þessa innilokun.“ Og nú hefiir Díana orðið og segir: „Veistu! Hún amma hans starir ahtaf á mig. Henni er ekkert iha við mig - hún vorkennir mér - og svo lítur hún annað og brosir. Mér hður mjög illa þegar hún gerir þetta.“ Amman en Ehsabet drottingarmóöir, amma Karls prins. James Gilbey þykir ásjálegur maö- ur. Hann er áhugamaður um kapp- akstur og stjörnuspeki. Næst fara þau að tala um „rauð- hausinn" í fjölskyldunni og eiga þá augljóslega við Söru Ferguson. „Hún er nú alveg á rassgatinu. Hún veit ekkert hvað hún á að gera til að kom- ast inn undir hjá fjölskyldunni," seg- ir Díana og hlær. Þau tala lika um vini sína og hlæja mikið að undarlegum kynhneigðum leikara sem þau þekkja bæði. Ekki hefur tekist að ráða í hver þaö er. Hvergi er vikið beinum orðum að Elísabetu drottningu nema ef vera skyldi að Díana eigi við hana þegar hún talar um „fjölskylduna“. Karl prins fær heldur ekki beinar glósur en oft kemur fram aö Díana er óánægð í hjónabandinu og höur illa. Verzlunarskóli íslands - íþróttahús Enn er nokkrum tímum óráðstafað um helgar í íþróttasal VÍ næsta vetur Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma 688400. I \ I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.