Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992. Kvikmyndir Konur í homabolta Hver hefði trúað því að ein vin- sælasta myndin í Bandaríkjunum þessa dagana fjallar um homabolta og ekki nóg með það heldur er um kvennalið að ræða. Myndin A Le- ague of Their Own hefur veitt myndum eins og Batman Returns og Boomerang með Eddie Murphy í aðalhlutverki verðuga sam- keppni. Það 'er erfitt að sjá hvers vegna myndin höfðar svona vel til bandarískra áhorfenda en A Le- ague of Their Own er dálítið væm- in á köflum þótt inni á miOi komi bráðfyndnir kaflar. Ef fil viO eru margir sem vOja forvitnast meira um kvennadeildina í homabolta sem var sett á laggimar 1943 en myndin fjallar einmitt um fyrsta leiktímabOið. Bandaríska atvinnu- kvennadeOdin í homabolta var stofnuð þegar seinni heimsstyrj- öldin stóð sem hæst og mikiO skort- ur karlkyns leikmanna háði meist- aradeOdinni í homabolta þar sem margir bestu leikmennimir gegndu herþjónustu. Því var mikil hreyfing í þá átt að hvetja konur tO að fara út í atvinnumennsku í íþróttum sem að margra mati hefði aldrei getað komið til greina nokkr- um ámm áður. Margir um hituna En lítum nánar á A League of Their Own. LykOleikmaðurinn í Oðinu er Dottie Hinson sem er leik- in af Geena Davis. Útsendari Uðsins finnur hana í Oregon þar sem hún lifir viðburöasnauðu lífi meðan eig- inmaðurinn gegnir herþjónustu erlendis. Hún samþykkir að koma tO Chicago og leika með liðinu svo framarlega sem systir hennar, Kit KeOer (Lory Petty), fái einnig aö vera með. Þar sem nauðsynlegt var að byggja upp liðið frá grunni var einum eitt þúsund stúlkum smalað saman á Harvey-leOívanginn þar sem velja átti 64 leikmenn í ein fjög- ur lið. Að vísu vom nokkrar sjálf- valdar eins og Marla Hooch (Megan Cavanagh) sem var titluð sem kvenkyns útgáfan af hinni þekktu homaboltahetju Babe Ruth. Þaö má geta til gamans að kvikmynda- tökur fóra í raun og vem fram á Harvey-veOinum en eigandi hans í dag, PhiOip K. Wrigley, átti mikinn þátt í því á sínum tíma að kvenna- deild var stofnuð í homabolta. Sorgirog sigrar Þegar búið er aö velja í Uðin hafa handritahöfundar myndarinnar miklu þrengri ramma tO að vinna innan. Við fylgjumst með vinskap þessara kvenna, hvemig þær reyna að fara framhjá ýmsum boðum og bönnum sem þjálfari þeirra hefur sett, viðbrögðum þeirra þegar ein leikkvennana ákveður að hætta eða þegar þeim er tilkynnt andlát eiginmanns einnar, eins þeirra sem var drepinn á vígvellinum. Áhorf- endur verða síðan vitni aö því hvemig þær verða betri og betri leikmenn með hverjum leik og hvemig þessum konum tekst að vinna á fordómum og öðlast virð- ingu og vinsældir þeirra sem þorfa á hornabolta. En þær em ekki alveg karl- mannslausar því þjálfari þeirra er fyrrverandi hetja í homabolta að nafni Jimmy Dugan sem er leOdn af Tom Hanks. Hann á við alvar- legt áfengisvandamál að stríða og sýnir leikmönnum sínum svo Utla virðingu að hann er sofandi meira eða minna aOa æfingaleikina og raunar einnig fyrsta leOdnn. En smátt og smátt, eins og í öOum góð- um myndum, heiOast hann af bar- áttu og hæfhi þessara kvenna og ákveður að leggja sitt af mörkum Kvennalið í hornabolta. svo að Uöið nái sem bestum ár- angri. Geena Davis Þaö fer lítiö fyrir Tom Hanks í fyrri hluta myndarinnar en þeim mun meira eftir aö Uðiö fer aö sína árangur. Að vísu hefur Tom Hanks látiö hafa eftir sér að hann sé ekki forfalUnn homaboltaaödáandi. Hann hafi ákveðiö að taka að sér þetta hlutverk vegna þess að hann trúði því að A League of Their Own yrði vinsæl. Hver gæti líka neitaö boði um að spUa homabolta hefit sumar með eintómum stelpum og fá þar að auki borgað fyrir það. Þaö er hins vegar Geena Davis sem vinnur hug og hjarta áhorf- enda með frábærum leik sínum. Hún er stoð og stytta Uðsins og eins og aðrar leikkonur í myndinni náði hún furðumikilU leikni með kylf- una og boltann. Raunar fékk Davis Umsjón Baldur Hjaltason næstum engan tíma tíl æfinga eða undirbúnings því að henni var boð- in staða í myndinni með eins dags fyrirvara eftir að Debra Winger hafði dregið sig í hlé vegna deilna við leikstjórann um starfssamning. Davis er Ola viö að taka skyndiá- kvarðanir en þegar leOísfiórinn Penny MarshaU hringdi í hana og spurði hvort hún gæti komiö dag- inn eftir tíl Chicago til að vinna að gerð myndarinnar þá stóðst hún ekki freistinguna. Sviti og tár Líklega hefði Davis aldrei tekið að sér hlutverkið hefði hún vitaö hvað það kostaði hana mOdnn svita og mörg tár og óteljandi marbletti. Það kostaði mikla þjálfun fyrir stúlkumar að virka sem atvinnu- menn í homabolta fyrir áhorfend- ur. Davis heldur því fram aö á sum- um marblettunum hafi verið fór eftir sauminn á boltanum sem var notaður, svo mikO vom átökin. í nýlegu viðtaU við kvikmynda- tímarit viðurkenndi Davis að hún hefði aldrei heyrt talað um at- vinnukonur í homabolta áður en hún tók að sér að leika hlutverk Dottie Hinson. Hún komst síðan yfir heinúldarmynd um deilda- keppnina og hreifst af því hve stúlkumar í Oðinu vom miklar íþróttakonur. Að mörgu leyti eru aðstandendur myndarinnar og leikarar að votta þessum íþrótta- konum, sem vom brautryðjendur í kvennahomabolta í Bandaríkjun- um, virðingu sína með A League of Their Own. Líklega sneru marg- ar þessar íþróttakonur aftur til sinna heimUisstarfa þegar stríðinu lauk og karlmennirnir sneru til baka eftir að hafa gegnt herþjón- ustu. En eitt var þó ekki hægt að taka frá þeim; minningarnar frá þessrnn tíma. Margar myndir Þeir sem hafa fylgst með ferh Davis gegnum árin hafa tekið eftir þvi hvernig hún hefur vaxiö með hverri mynd sem hún hefur leikið í. Hún er vel látin af öllum og virð- ist að mörgu leyti vera náttúru- barn, þ.e.a.s. að vera alltaf jafn lát- laus og eðhleg hvað sem á dynur. Eftir að hafa unniö sem fyrirsæta í New York reyndi hún fyrir sér í kvikmyndaleik í myndinni Tootsie (1983) þar sem hún lék á móti Dust- in Hoffman. Eftirfarandi hluti af samtaO sem blaöamaður átti við Davis lýsir henni kannski best. „Við vom aö taka atriði í Tootsie sem gerist í búningsherberginu. Dustin þykir aOtaf gaman að víkja frá textanum í handritinu og skálda eitthvað upp sem honum dettur í hug hveriu sinni og ég tók þátt í þessu með honum eins og ekkert væri eðiilegra. Þá kallaði leikstjóri myndarinnar, Sidney Poliack, á mig og spurði hvort ég væri virkfiega ekki taugaóstyrk og hvort ég hefði ekki gert mér grein fyrir því að ég væri að leika í stór- mynd á móti Dustin Hoffman, þetta væri mitt fyrsta hlutverk og ég væri á nærfotunum einum klæða í atriöinu. Hann var ekkert reiður heldur forvitinn." Davis sagði eins og satt var að hún hefði alls ekkert hugsað út í þetta og henni fyndist ekkert sjálfsagðara en það sem hún væri að gera. Madonna Davis reyndi síöan fyrir sér í sjónvarpsþáttum eins og Buffalo BiO og Sara en með litlum árangri. Henni var síðan boðið kvikmynda- hlutverk í myndinni Transylvania 6-5000 sem tekin var í Júgóslavíu. Þar lék hún á mót Jeff Goldblum sem hún síðar var gift í nokkur ár og lék með í myndinni The Fly árið 1986. Davis lék næst í Beetlejuice (1988) en það var ekki fyrr en í The Accidental Tourist að hún fór að blómstra enda fékk hún óskars- verðlaun fyrir leik sinn í þeirri mynd. En flestir muna þó eftir Davis í myndinni Thelma & Louise þar sem hún lék á móti Susan Sar- andon. Það em fleiri frægir leikarar í League of Their Own en Geena Davis. Sjálf Madonna leikur einn leikmanninn. Þetta er ekki stórt hlutverk og hún fellur alveg í skuggann af Davis. Gagnrýnendur hafa verið aö gera grín að Madonnu fyrir að hún hafi haft meiri áhuga á að sýna Ukama sinn í myndinni heldur en íþróttahæfileika. Hins vegar varð hún að ganga í gegnum sömu þjálfun í hornabolta og aörar leikkonur þótt sagan segi aö hún hafi kaUað á þekktustu karlkyns stjömur í hornabolta til aö gefa sér einkatíma í hvemig ætti að bera sig að tíl að ná árangri. Helstu heimildir: Variety. Entertainment, Empire

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.