Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 46
58
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992.
Afmæli
Sigurður Ólafsson
Siguröur Ólafsson skipstjóri, Aöal-
götu 20, Suðureyri við Súganda-
fjörð, verður fertugur á morgun,
sunnudaginn30.8.
Starfsferill
Sigurður er fæddur. og uppalinn á
Suðureyri. Hann lauk verslunar-
prófi frá VÍ1972 og sérhæfðu versl-
unarskólaprófi 1973. Einnig prófi úr
öðrum bekk Stýrimannaskólans í
Reykjavík 1981. Sigurður hefur frá
unga aldri unnið við hin ýmsu störf
tengdum sjónum, utan 1974-1977 er
hann var bókari hjá Eimskipafélagi
íslands.
Sigurður og börn hans er nú einu
niöjar Friðberts Guðmundssonar og
Elínar Þorbjarnadóttur er búa í
Súgandafirði. Einnig eru þau og
móðir Sigurðar einu niðjar Valdi-
mars Þorvaldssonar og Kristínar
Benediktsdóttur sem enn búa í Súg-
andafirði. Þó bjuggu þessi hjón alla
sína tíð á Suðureyri og áttu fjölda
barna.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 7.11.1982 De-
borah Anne Ólafsson, f. 25.8.1955,
húsmóður. Foreldrar hennar eru
Noel H. Allen og Anne P. Allen, elli-
lífeyrisþegar í Wellington á Nýja-
Sjálandi.
Börn Sigurðar og Deborah: Kristó-
fer, f. 11.7.1983; Anna, f. 9.5.1985;
og Samúel, f. 25.1.1988.
Systkini Sigurðar eru öll eldri en
hann og eiga tvö til íjögur börn,
nema Ellert, og sum eiga barnabörn.
Þau eru: Valdimar, kvæntur Nönnu
Jónsdóttur; Einar, kvæntur Ragn-
heiði Sörladóttur; Bragi, kvæntur
Hansínu Þórarinsdóttur; Ellert; Ól-
afur, kvæntur Arnbjörgu Ágústs-
dóttur; Kristín, gift Hannesi Hall-
dórssyni.
Foreldrar Sigurðar: Ólafur Frið-
bertsson, f. 1910, d. 1972, skipstjóri
og útgerðamaður á Suðureyri við
Súgandafjörð, og Guðrún Valdi-
marsdóttir, f. 1913, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var sónur Friðberts Guð-
mundssonar, hreppstjóra og útgerð-
armanns á Suðureyri, og Elínar
Þorbjarnardóttur. Foreldrar Guð-
rúnar voru Valdimar Þorvaldsson
bátasmiður og Kristín V. Benedikts-
dóttir.
Meðal skyldmenna Sigurðar eru
m.a. Friðbert Guðmundsson, for-
stjóri Háskólabíós, Ólafur Torfason
Sigurður Ólafsson.
forstöðumaður, Baldur Hermanns-
son eðlisfræðingur og Veturliði
Gunnarsson listmálari.
Til hamingju með afmælið 29, ágúst
75 ára
Björu Guðmundsson,
Skarösbraut 13, Akranesi.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
Sólbakka, Grindavik.
Hún tekur á móti gestum á afmæl-
isdaginn i Verkalýðsfélagshúsinu
að Vikurbraut 46 eftir kl. 15.
KarlS. Sigurðsson,
Brekkuhúsi l, Amameshreppi.
Jóhannes Björnsson,
Baldursgötu 30, Reykjavík.
70 ára
Sigurður Guttormsson,
Hleinargaröi, Eiðahreppi.
Albert Þorkelsson,
Kveldúlfsgötu 22, Borgamesi.
Stelia M. Jónsdóttir,
Hjarðarhaga 56, Reykjavik.
Húneraðheiraan.
JóhannS. Guðmundsson,
Hátúni lOb, Reykjavík.
Ragna Jónsdóttir,
Vallarhúsum 16, Reykjavík.
60 ára
50 ára
Sigríður Jóna Clausen,
Barmahlíö 16, Reykjavík.
Sólrún Sveinsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 93, Reykjavík.
Brynjólfur Guttormsson,
Dynskógum 15, Egilsstöðum.
Guðný Aðalsteinsdóttir,
Bollagötu 8, Reykjavík.
Ólafur Kristjánsson,
Eínholti 8b, Akureyri.
Úlfar Víglundsson,
Lindarholti 10, Ólafsvík.
40ára
Halldór G. Axelsson,
Hraunbrún41,Hafnarfirði.
Einar Þórður Andrésson,
Hruna 1, Skaftárhreppi.
Ingibjörg Halldórsdóttir,
Hraunbrún 52, Hafnarfirði.
Benoný Ægisson,
Skóiavörðustíg4c, Reykjavík.
ÖyvindGlömmi,
Stangarholti 18, Reykjavík.
Alda Jóna Ólafsdóttir,
Blikahólum 2, Reykjavík.
Vaka Haraldsdóttir,
Holtagerði 82, Kópavogi.
Halldóra G. Eiríksdóttir,
Grundargerði 6e, Akureyri.
Oddurólafsson,
Vallarási 5, Reykjavík.
Hafdis Óskarsdóttir,
Hverfisgötu 91, Reykjavík,
PállSigurðsson,
Birkibergi22, Hafnarfirði.
Sviðsljós
Patrick Golding var að drekka morgunkaffið sitt þegar GVA tók þessa
mynd. Patrick er Þjóðverji og hann tjaldaði á dálítið óvenjulegum stað -
j fjörunni fyrir framan Sambandshúsið I Laugarnesi. Hann sagðist ekki
hafa haft efni á að búa á tjaldstæðinu í Laugardal og gat þess að eng-
inn hefði ónáðað sig þær fimm nætur sem hann bjó á umræddum stað.
ísland var eitthvað dýrara en hann ætlaði i upphafi og eftir fimm vikur
á íslandi átti hann rétt fyrir rútunni i Leifsstöð. Eins og fjölmargir aðrir
ætlaði hann að dvelja síöustu nóttlna í flugstöðinni.
Kristrún Jónsdóttir
Kristrún Jónsdóttir húsmóðir,
Hamraborg 26, Kópavogi, er sjötug
ídag.
Kristrún er fædd í Selkoti í Þing-
vallasveit og ólst upp í Þingvalla-
sveitinni og í Reykjavík.
Fjölskylda
Kristrún giftist 14.11.1942 Valdi-
mari Lárussyni, f. 28.1.1920, leikara
og fyrrv. lögreglumanni. Hann er
sonur Lárusar Mikaels Stefánsson-
ar, b. að Efra-Vaðli á Barðaströnd,
og konu hans, Jónínu Valgerðar
Engilbertsdóttur frá Melgraseyri
viðísafiarðardjúp.
Kjördóttir Kristrúnar og Lárusar
er Sigrún Björk, f. 16.10.1955, hús-
móðir að Dæli í Víöidal í Vestur-
Húnavatnssýslu, gift Birni Víglundi
Gunnþórssyni bónda og eiga þau
börnin Hrafnhildi Ýr, Vilmar Þór
og Kristin Rúnar.
Systkini Kristrúnar: Guðný, f.
20.12.1919, gift Guðmundi Jónatans-
syni og eru þau bæði látin; Valgerð-
ur, f.15.11.1924, gift Guömundi Valtý
Guðmundssyni bifreiðarstjóra, og
eignuðust þau sex börn en eitt dó í
æsku; Bjarney, f. 15.5.1927, gift Ein-
ari Elíassyni vélstjóra og eiga þau
tvö börn; Bjarndís, f. 24.1.1934, gift
Geir Óskarssyni bifvélavirkja og
eiga þau þrjú böm; óskírö systir, f.
1936, dó fárra mánaða. Allar syst-
urnar sem eru á lífi eru búsettar í
Reykjavík.
Foreldrar Kristrúnar voru Jón
Bjarnason, f. 8.10.1888, d. 21.10.1976,
trésmiður í Selkoti í Þingvallasveit
og síðar í Reykjavík, og Guðrún Ein-
arsdóttir, f. 10.10.1894, d. 26.9.1951,
Kristrún Jónsdóttir.
frá Læk í Dýrafirði.
Kristrún verður ekki heima í dag.
Vísnaþáttur
Jón frá Borgarholti
Jón Þórðarson frá Borgarholti í
Snæfellssýslu, 1902-92, gaf út tvær
Ijóðabækur og fræðibók í bók-
menntasögu. Hann var kennari við
Austurbæjarbamaskólann í
Reykjavík, mikill náttúmunnandi,
íþróttamaöur á yngri árum og
hvers manns hugljúfi. Hér eru
nokkrar stökur úr bókum hans og
eitt kvæði.
Ljúft er mér að stilla strengi
stefia hljóði,
þín að minnast litlu ljóöi.
Ennþá Ijóma árdagssólar
er að finna
yfir sporum okkar kynna.
Man ég vel, hve létt þér löngum
lét að buga
öldurót í ungum huga.
Augna þinna glettnisglampar
gleði kveiktu,
burtu öllu angri feyktu.
Hispurslaus í háttum öllum
hröð í svörum.
Léttur gáski lék á vömm.
Ljóst ég fann, - þótt léðir glettni
lausa tauma,
alvömnnar undirstrauma.
Man ég enn og heyri hljóma
hlustum mínum
vængjuð orð af vörum þínum,
er þú lést um himna og heima
hugann líða
skyggnum sjónum vegu víða,
rýndir gátur römmum slungn-
ar
rökkvans dróma,
lífs og dauða leyndardóma.
Rjúpnaskyttan
Einn fór upp til fjalla
öllum byggðum fiær.
Grundir, hlíð og híalla
Vísnaþáttur
huldi vetrarsnær.
Öðrum frárri í ferðum
fanna byngi tróð,
gyrður rómu gerðum
garpur í vígamóð.
Atalt augum renndi
yfir heiðar storð.
- Hljótt til hæða sendi
hjartnæm bænarorö:
Gef af gæsku þinni
gull og lán í hönd,
að ég fyrstur finni
fengsæl veiðilönd.
Velkt í veðra þjósti
vítt um hlíð og skörö,
sat í svölum gjósti
soltin ijúpnahjörð.
Hugur hló í barmi,
- hér var fagurt land -
hetjan hraustum armi
hreif úr skeiðum brand.
Fugla felldi hrönnum.
- Flokknum gegnum óð.
Vaskur í vígahrönnum
valköst um sig hlóð.
Vopnahrynu hljóma
hátt um alla jörð
bergmál enduróma.
Orusta var hörð.
Margir ótta ærðir
undan flýðu á braut,
banasárum særðir
seldir kvalaþraut.
Og í fylgsnum fialla
fiarri vígaslóð,
línið ljósra mjalla
litaði hjartablóð.
Vígljóst var ei lengur.
- Veiði lýkur för.
Slíðraði dáðadrengur
dreyra roðinn hjör.
Fuglum fyllti sekki.
Fjalla kvaddi geim.
- Ef hann týnist ekki
eflaust kemst hann heim.
Til Jakobínu Johnson, íslensku
skáldkonunnar í Vesturheimi.
Ljóöin þín:
Þau eru sýnir sólarátta,
svanakvak og ljúflingsmál,
blíður draumur bjartra nátta,
berglind tær frá landsins sál.
í þeim finn ég alda og þjóða
andardrátt og hjartaslög,
hyldjúp köf til helgra sjóða,
himinflug um storð og lög.
Að lokum þessi staka:
Hún var undur létt í lund,
ljúfa hrund ég kenni.
Eina stund á Edensgrund
átti ég stund með henni.
Jón úr Vör.
Fannborg 7, Kópavogi.