Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1992, Blaðsíða 32
44
LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992.
Helgarpopp
Ian Anderson, söngvari Jethro Tull, í einkaviðtali við DV:
Aðaláherslan
lögð á tónlistina
Jethro Tull, eins og hljómsveitin verður skipuð á Akranesi. Athygli vekur að auk lans Andersons og Martins Barre
eru þrir liðsmenn Fairport Convention í hljómsveitinni að þessu sinni.
„Eg er löngu farinn aö hlakka til
að koma til íslands," segir Ian Ander-
son, söngvari og flautuleikari Jethro
Tull. „Það hefur nokkrum sinnum
komið til greina að heimsækja ykkur
á liðnum árum en ekki orðið af því
fyrr en nú. Ég ætla því að eyða einum
degi lengur en félagar mínir í hljóm-
sveitinni til að reyna að kynnast ein-
hverju af því af eigin raun sem ég
hef heyrt að sé aö sjá og heyra á ís-
landi.“
Ian Anderson er í sumarfríi þessa
dagana. Eigi aö síður gefur hann sér
tíma til að ræða við íslenska blaða-
menn í síma. Segja frá sjálfum sér
og hljómsveitinni sem hann hefur
haldið úti í tæpan aldarfjórðung. Og
er jafnvel til í að ræða um hina at-
vinnuna sína, laxarækt. Anderson
hefur árum saman stundað fiskeldi
í Skotlandi.
„Ég reikna svo sem ekki með að
fara og skoða íslensk fiskeldisfyrir-
tæki meðan ég verð hjá ykkur,“ seg-
ir hann. „Ég hef séð fjöldann allan
af slíkum fyrirtækjum í ýmsum lönd-
um á liðnum árum og þau eru raun-
ar hvert öðru lík. Ég veit að vísu að
íslendingar hafa ákveðna sérstöðu
vegna heita vatnsins og sérstaks
strandeldis. En ég held að ég geti
varið tíma minum á landinu betur.
Ég gæti líka farið og hlustað á Black
Sabbath kvöldið eftir að við spilum
á Akranesi. Mig langar þó frekar til
að keyra um. Jafnvel fá mér göngu-
ferð, setjast inn á veitingahús og
spjalla viö einhvem sem nennir að
tala við mig. Ég held að ég kynnist
lapdi og þjóð betur á þann hátt held-
url en að skoða laxa eða hlusta á
bpéska rokkhljómsveit!"
Fáir áheyrendur
Heimsókn Jethro Tull til íslands
er angi af ferð hijómsveitarinnar um
Bandaríkin og Kanada.
„Raunar byrjum við í Bretlandi
áður en við komum til íslands," segir
söngvarinn. „Ástæðan er meðal ann-
ars sú að ég verð að halda mér í þjálf-
un. Ef hljómsveitin spilar ekkert í
þijá til fjóra daga verðum við að
æfa. Öðmvísi er ég ekki í nægilegri
þjálfun til að vera á sviðinu í tvær
klukkustundir. Það er einfaldlega
svo erfitt að ekki mega líða meira en
tveir til þrír dagar milli hljómleika.
Ef það gerist er einum degi eytt í að
, æfa sig upp aftur. Besta fyrirkomu-
lagiö er því að spila þijú kvöld í röð
og hvíla sig síðan þaö fjórða.“
Ian Anderson segir að hljómleika-
ferðin, sem Jethro Tull leggur í í
september, sé nokkuð öðmvísi en
venjulega. Yfirbragðið er látlausara
en oft áður og áhersla frekar lögð á
órafmagnaða hlutann af tónlist
hljómsveitarinnar en það rokkað-
asta. Hann flýtir sér að taka fram að
auðvitað verði rafmagnshljóðfæri
með í fórinni. Hins vegar séu hann
og félagar hans að láta gamlan
draum um að leika í htlum hljóm-
leikasölum og leikhúsum, sem rúma
tvö til þijú þúsund manns, rætast.
Þeir nái með því móti betur til áheyr-
enda en þegar leikið er í íþróttahöll-
um, stórum hljómleikasölum eða
jafnvel útileikvöngum.
„Ég fékk hugmyndina þegar ég fór
á hljómleika með Eric Clapton fyrir
nokkra,“ segir Ian Anderson. „Ég fer
reyndar ákaflega sjaldan á hljóm-
leika. En, sem sagt, ég fór að hlusta
á Eric. Og ég hreifst af látleysinu á
þessum hljómleikum. Það var ekki
einn rótara að sjá. Eric og strákarnir
hans gengu bara fram á svið, stungu
hljóðfæmnum í samband og byij-
uðu. Allt ákaflega einfalt, rétt eins
og í gamla daga. Lítið af ljósum eða
öðrum græjum sem tengjast hljóm-
leikahaldi. Ékkert sem minnti á Mic-
hael Jackson eða Madonnu. Þarna
var fólkinu eingöngu boðið upp á
spilamennsku. Hún ein varð að
standa fyrir sínu.
Þá datt mér í hug að prófa að fara
í enn eina ferðina en smækka aht.
Ferðast bara í einum bíl, hafa fimm
til sex starfsmenn auk hljóðfæraleik-
aranna, ferðatöskumar og helst ekki
mikið meira. Auðvitað er aht í lagi
að bjóða upp á heilmikið tilstand við
hljómleikahald. Stundum læðist þó
að manni sá grunur að tilstandið sé
til að fela eitthvað. Að það sé ekki
allt í lagi með tónlistina sem hljóm-
leikar eiga þó fyrst og fremst að snú-
ast um. Þannig get ég ímyndað mér
að það væri ósköp htið gaman á
hljómleikum hjá Pet Shop Boys eða
Erasure ef sviðsdótið væri skihð eftir
heima.
Nú, við fómm sem sagt í svona
hljómleikaferð um Evrópu í maí,
spiluðum í litlum húsum og lögðum
höfuðáhersluna á órafmögnuðu lög-
in okkar. Þessir hljómleikar vom
hljóðritaðir og um miðjan september
ætlum við að gefa út plötu með hljóð-
ritunum frá þessari ferð. Platan á að
heita A Little Light Music. Okkur
fannst síðan rétt aö bjóða fólki vestan
hafs upp á svipaða hljómleika og í
Evrópu, sér í lagi þar sem Jethro
Tuh hefur aldrei spilað í smásölum
í Bandaríkjunum. Þetta hafa yflrleitt
límsjón
Ásgeir Tómasson
verið tuttugu tíl fimmtíu þúsund
manna hallir sem við höfum verið í.
Gamaltog nýtt
Ian Anderson segir að á hljómleik-
unum á Akranesi verði blandað sam-
an nýjum lögum og gömlum. Af nógu
er að taka. Jethro Tuh hefur sent frá
sér um tuttugu plötur á nær aldar-
íjórðungsferli.
„Sum lög Jethro Tuh hafa elst bet-
ur en önnur,“ segir hann. „Laghnan
stendur fyrir sínu og textamir eiga
enn erindi. Þessi lög flytjum við á
hljómleikum okkar. Eg spÚa ekki lög
sem eiga ekki erindi lengur og hafa
ekkert gildi annað en að riíja upp
gamlar minningar. Til dæmis spilum
við ekki lagið Teacher. Þaö hefur
aldrei verið á dagskránni og á aldrei
eftir að veröa þaö. Mér er ekkert illa
við þetta lag. Það er bara poppað
rokklag og það virkar ekki á hljóm-
leikum. Og það er eitthvað við text-
ann sem ég kann ekki við. Kannski
er það bara tengt gamalli minningu
aö ég vil ekki spila þetta lag. Þegar
þaö kom út var hjá okkur starfsmað-
ur sem var sannfærður um að lagið
væri um hann. Sú var ekki reyndin
en hann trúði mér ekki! Teacher er
dæmi um gömul lög sem fá ekki að
vera með.
Hins vegar em ákveðin lög á
„fastaseðhnum", ef við getum kallað
það svo,“ heldur Ian Andersón
áfram. „Þetta em lög eins og Aqua-
lung, Locomotive Breath, Thick as a
Brick, Too Old to Rock and Roh og
fleiri. Síðan bætum við nýrri tónlist
við. Sumt getur jafnvel veriö glæ-
nýtt, eins eða tveggja daga gamalt
lag, sem okkur langar til að prófa á
áheyrendum. Þannig reynum við að
bjóða jöfnum höndum upp á nýtt efni
og annað sem hefur fengið að eldast.
Ég get reyndar bætt því við,“ segir
Ian Anderson að lokum, „að hljóm-
leikar okkar á íslandi verða auðvitað
ólíkir því sem við bjóðum upp á í
Boston, fyrsta viðkomustað okkar í
Bandaríkjunum. Við sphuðum þar í
fyrra, hittifyrra og árið þar á undan.
Við eram hins vegar að koma í fyrsta
skipti th íslands og verðum að ganga
út frá að fæstir þeirra sem koma og
hlusta á okkur á Akranesi hafi áður
verið á Jethro Tull hljómleikum. Þar
af leiðandi miðum við dagskrána viö
aö fólk er aö sjá þessa gömlu karla í
fyrsta skipti. Og við ætlum að sjá th
þess að það gleymi þeim ekki í bráð.“
Söngvari hljómsveitarinnar De-
ep Jimi And The Zep Creams.
Deep Jimi:
Þrjár plöt-
ur gefnar
útá
nokkrum
Þaö er mikið um að vera hjá
Keflavikurhljómsveitinni Deep
Jimi And The Zep Creams um
þessar mundir. Fyrir örfáum
dögum kom út íjögurra laga
hljómleikaplatan Blowup, fimm
laga stúdíóplata er væntanleg á
næstu dögum og i janúar næst-
komandi kemur út önnur til við-
bótar. Sú verður meö fimmtán
lögum, fmmsömdum.
Tónlistina af þessum plötum
ætla tjórmenningarnir í Deep
Jimi and The Zep Creams að
kynna á útgáfutónleikum á Hótel
Borg á fimmtudagskvöldið kem-
ur. Og þeir láta ekki deigan síga
því að kvöldið eftir spila þeir á
Tveimur vinum. Þá verður
frumsamda tónlistin hvíld en
þess i staö dregnar upp gamlar,
þekktar rokklummur sem hljóm-
sveitin vakti fyrst á sér athygli
fyrir.
Júlíus Guðmundsson, trommu-
leikari Deep Jimi And The Zep
Creams, segir aö hljómsveitin sé
aö mestu hætt að spila sjöunda
og áttunda áratugar rokkiö sem
hún sérhæfði sig í th að byrja
með. Þess í stað hefur fmmsamda
tónlistin tekið völdin. „Það þýðir
ekkert fyrir okkur aö bjóða upp
á hana erlendis," segir hann.
„Þar er meira en nóg af hljóm-
sveitum sem sérhæfa sig í þess
háttar tónlist Viö einbeitum okk-
ur því aö okkar eigin lögum.“
Deep Jimi And The Zep Creams
eru saraningsbundnir hjá Atco i
Bandaríkjunum. Júlíus segir að
maður frá útgáfunni hafi heyrt
þá spha og boðið hljómsveitinni
aö taka upp plötu.
„Við fórum út til aö freista gæf-
unnar og löbbuðum á milli
klúbba og báöum um að fá að
spila,“ segir hann. „Þetta gekk
merkhega vel. Það gerðist reynd-
ar strax að útsendari frá Atco
heyrði í okkur. Sömuleiðis sýndi
einn frá Columbia áhuga. Hann
kom einum sjö sinnum th aö
hlusta. Þeir vhja heyra oft í
hljómsveitunum áöur en þeir
bjóöa þeim útgáfusamning.“
Þegar fimm laga platan sem
væntanleg er á næstunni hefur
verið á raarkaðnum í fjórar vikur
eða svo hyggjast fjórmenningam-
ir í Deep Jimi And The Zep Cre-
ams fylgja henni eftir meö hljóm-
leikaferö. Júlíus Guðmundsson
sagði að það væri enn ekki komið
í Ijós hversu viöa hljóinsveitin
færi. Sérstakt fýrirtæki sér um
aö skipuleggja þá kynningu. Þeg-
ar stóra platan kemur út eftir
áramót fylgja síðan enn meiri
ferðalög og sphamennska.