Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992. Lesendur________________ Hrópað í örvæntingu Við höfum lánstraust erlendis og svo höfum við kreditkort, segir m.a. i bréfi Snorra. Spumingin Ætlar þú að sjá einhverja jólamyndanna í kvikmyndahúsunum? Friðmey Baldursdóttir nemi: Nei, ég er að fara heim til Akraness og verð þar yfir jólin. Jóhann Halldórsson bílstjóri: Já, ég hef ætlað mér það. Ég fer örugglega á myndina Single White Female. Steinunn Kristinsdóttir nemi: Já, ég fer á Home Alone 2. Hjördis Þóra Jensen verslunarmað- ur: Já, mig langar til að sjá Karlakór- inn Heklu og Home Alone 2. Rakel Skarphéðinsdóttir afgreiðslu- stúlka: Alveg örugglega, ég fer á Home Alone 2, Karlakórinn Heklu og fleiri myndir. Einar Geir Jónsson nemi: Já, Síðasta móhíkanann og einhverjar fleiri. Snorri Bjarnason skrifar: Var einhver að kalla? Var verið að kalla á mig? - Ég heyrði þetta fyrst í Þjóðarsálinni. Þjóðarsálinni? Geta menn ekki talað saman nema i gegn- um þjóðarsál? Þeir sitja þó hlið við hlið á vinnustaö. - Það má ekki láta þjóðina segja álitt sitt, hún er svo heimsk. Það sýndi sig í síðustu kosn- ingum. Hver er þessi maður með tappatogarann? Kannski hann reyni að sprengja sig í gegn? - Hver er hann þessi maður með mikla svarta hárið? Hefur hann eitthvað að segja hér? Kaupum íslenskt, eflum atvinnu í landinu. - Það er ekki til neins, við erum ekki samkeppnisfær. Hvað um íslenskan landbúnað? Burt með hann! Við getum fengið mat gefins frá útlöndum, rétt eins og þeir í Sóm- aiíu. Og útlendingar mega kaupa Laxárdalinn mín vegna. - Hvað um fiskimiðin okkar? Útlendingar geta veitt þennan fisk, það eru þeir sem étann. Og við verðum að staðfesta EES-samninginn fyrir jól. Annars gætum við orðið ein í heiminum. Gengrnn við ekki í EFTA 1970 til að sýna að við gætum keppt við aör- ar þjóðir í iðnaði og hveiju sem var, þótt við værum bæði fá og smá? Gát- um við það? Nei. En það gerði ekkert til, við hættum bara að smíða og sauma og fórum að versla - flytja inn vörur og kaupa verðbréf. Gaf þetta góða raun? - Já, svo sannarlega. Það hafa allir haft nóg að gera. Iðnaðar- menn hafa verið önnum kafnir við að byggja glæsihalhr fyrir ávöxtun- Ásta R. Jóhannesdóttir, deildarstjóri hjá Tryggingastofnun, skrifar: í umræðunni undanfarið um fjár- lagafrumvarpið og sparnað í trygg- ingakerfinu hefur gætt nokkurs mis- skilnings um þátttöku almanna- trygginga í tannlæknakostnaði bama. Almennt er þar talað um að sjúkratryggingamar greiði 85% kostnaöar vegna tannlækninga bama undir 16 ára, aörar en fyrir- byggjandi aðgerðir sem greiðast að fullu, þ.e. em barninu að kostnaðar- lausu. - Það er ekki nema að hluta til rétt. Aðrar reglur gilda um böm Sigurður Gunnarsson skrifar: I fréttum er nú hlakkað yfir viljayf- irlýsingu Útgerðarfélags Akur- eyringa um kaup á meirihluta í er- lendu útgerðarfyrirtæki í Þýska- landi. Þetta er mjög gott mál að öllu leyti og lofsvert framtak hjá þeim í stjórn ÚA. Vonandi verður þetta þeim til verulegs ágóða og öllum sem þar koma við sögu, stjóm og launþeg- um fyrirtækisins. - Enginn sem ég hef heyrt ræða þetta mál hefur and- mælt þessu. Samstaðan í fyrirrúmi. En þetta stingur þó verulega í stúf við yfirlýsingar íslendinga margra hverrá sem hamast gegn því að er- lendir aðilar kaupi hlut í íslenskum fyrirtækjum, að ekki sé nú talað um þegar minnst er á að erlendir aðilar hyggist kaupa meirihluta í einhveiju íslensku fyrirtæki. - Svona skinhelgi og heimsku virðist erfitt að uppræta. Það er öllum til tjóns að þeir fáu er- lendu aðilar sem vilja gjaman kaupa sig inn í íslensk fyrirtæki megi ekki gera það fyrir yfirgangi afturhalds- DV áskilur sér rétt til aó stytta aðsend lesendabréf arfyriræki, verslunarmiðstöðvar, blaðaútgáfur, bíla- og tölvuinnflutn- ing o.fl. Margt fólk hefur þurft til starfa við að höndla í þessum höllum. Hvað um gjaldeyri fyrir öllum þessum innflutningi? Ekkert mál, við höfum haft lánstraust, og svo gáfum við bara gjaldeyrisverslunina fijálsa. Alhr hafa fengið kreditkort til að nota þegar þeir fljúga út í heim og taka út gjaldeyri til verslunar, skemmtana - eða bara til að leggja 6-15 ára í Reykjavík. Reglurnar sem gengu í gildi í sum- ar kveöa á um að fyrirbyggjandi meðferö sé ókeypis fyrir þennan ald- urshóp en foreldrar í Reykjavík greiða 15% kostnaðar, fari börn þeirra 6-15 ára til skólatannlæknis, en 32% kostnaðar fari þau til einka- tannlæknis. Þessi 85% greiðsluþátttaka Trygg- ingastofnunar á því aðeins við böm utan Reykjavíkur og böm yngri en 6 ára í Reykjavík, og þau sem fara til skólatannlæknis. Endurgreiðslur vegna 6-15 ára Reykjavíkurbama hjá afla sem hrópa „landsala" eða „valdaafsal" í hvert sinn sem svona mál era á döfinni. Það er þó ahra verst að ríkisstjóm- in sem þó er með ríflegan meirihluta er ekkert betri en stjómarandstaðan í þessum efnum. Ráðamenn era í raun dauðhræddir við andóf og ein- angrunarstefnu þeirra sem lengst af hafa ráðið flestu hér í þessum efnum inn á banka erlendis. Hvað um vinnu fyrir unglinga þegar við eram hætt aö smíða, sauma og landbúnaður hefur dregist í svaðið? - Námslánum var komið á og þannig var ungling- um tryggð afkoma í skólum, jafnvel til þrítugs eða lengur. Hvað um börn- in okkar þegar allar mæður eru komnar út á vinnumarkaðinn? - Var einhver að kaha? Hver var að kalla, var verið að kaha á mig? einkatannlækni er 68% kostnaðar. Þessi umræða hefur valdið starfs- fólki Tryggingastofnunar, sem starf- ar við endurgreiðslu tannlækna- reikninga ómældum óþægindum vegna misskilnings sem gætt hefur hjá almenningi í kjölfar hennar. Ég bið því þá sem hlut eiga að máh að kynna sér þær reglur sem nú era í gildi, þær eru ítarlega til- greindar í tannlæknabækhngi Tryggingastofnunar ríkisins sem hggur frammi á tannlæknastofum, hehsugæslustöövum og víðar. þótt að nafninu th væri talið að hér væra fijálslyndar stjómir við völd inn á milli. - Það er ósk ahra hugs- andi manna að frumkvæði stjómar ÚA verði th þess aö svipta hulunni af þeirri hræsni sem hér ríkir í sam- skiptum við erlenda viðskiptaaðha. Hún hefur staðið íslensku efnahags- lífi fyrir þrifum til þessa. Og er mál að hnni. Reykjavíkurböm og tannlæknakostnaður: Hærra greiðsluhlutfall hjá einkatannlæknum Meirihlutaeign hér og erlendis Aðalstöðvar Útgerðarfélags Akureyrar. - Bréfritari fagnar framtaki fyrirtæk- Isfns. Margtóljóst um ElS-málið Jóna Vigfúsdóttir hringdi: Margt er enn óljóst um EES og vih fólk gjaman fá skarpari og einbeittari upplýsingar um flesta þætti þess. Tökum dæmi. Ef stríð brytist út á svæðinu værum við þá skyldug til að standa að því stríði - með fjárhagslegum til- kostnaði eða mannafla? Við eram nú þcgar í vandræð- um með að halda EES-þjóðunum frá fiskimiðunum. Ef samningur- inn verður samþykktur, missum við þá ekki stjórn á þeim málum? Og það sem mestu varðar. Er nokkur leið til baka? Getum við e.t.v. dregið okkur út úr samtök- unum? Væri nú ekki viturlegra að leita nú þegar eftir fríverslun- arsamningi við Bandaríkin? Fjármálafrí- svaéði fýkur burt Kristján skrifar: Nú er komið fram sem margir spáðu að engar forsendur era fyr- ir stofnun fjármálafrisvæðis hér á landi. Við getum sjálfum okkur um kennt. Við erum ahtof áfjáðir í skattheimtumálum og tilfinn- ingasamir, t.d. gagnvart banka- ieynd. Þetta skaðar okkur og úti- lokar að hingað komi starfsemi í einu eða öðra formi. LitilreisnyfirRÖSE Óskar skrifnr: Nýlega mátti lesa frétt um að NATO undirbyggi nú hugsanlega hemaðarlega íhlutun í fyrrver- andi lýðveldum Júgóslavíu. Það var ekki seinna vænna að margra mati. - Á sama tíma stóð yfir í Stokkhólmi fundur utanrikisráð- herra aðhdarríkja Ráðstefhunn- ar um „öryggi og samvinnu í Evrópu". - Þar samþykktu þessir herramenn ályktun þar sem þeir viku sér undan að taka afstöðu til dehunnar um hvort breyta ætti vopnasölubanni Sameinuðu þjóöanna til að þjóðir Bosníu- Hersegovinu gætu varið sig. - Þaö er htil reisn yfir þessari RÖSE- samkundu. ~ Og svo á þetta lið að vera þess umkomiö að veija Evrópu! Launaðilífgjöfina Ágústa Baldursdóttir skrifar: Er Snati fæddist kom hann síð- astur í heiminn af 4 hvolpum. En naflastrengurinn slitnaði ekki. Til aö bjarga honum varð hús- bóndinn að klippa á. - Snati, sem var minnstur, varð eftir hjá móð- ur sinni og óx og dafnaði og er nú rúnhega 2 ára. Svo bar við að húsbóndínn gekk að hálfu leyti úr axlarliöi og hafði óbærilega verki svo hann varð að fá verkjatöflur. Dag einn er húsbóndi aö stríða Snata sínum. Afleiðingarnar voru þær að hundurinn beit um og ofan við únlið hægri handar. Þar hékk hann smástund. Aht í einu heyrð- ist smellur og fylgdi þessu sárs- auki rétt sem snöggvast. - En bólgan hvarf og verkurinn líka. Hvergi má skera Hjálmar hringdi: Úrtölur og volæði íslendinga vegna timabundinna efnahags- erfiðleika eru lýsandi einkenni þjóðar sem hefur búið við ahs- nægtir áratugum saman og hvergi sparaö og ekkert Iótið á móti sér. Hver starfsstéttin á fæt- ur annarri mótmæhr og krefst þess að ahs staðar annars staðar verði skoriö niöur en hjá henni. Auðvitaö verður að skera niöur í hehbrigðisgeiranum og velferð- armálunumjafntog annars stað- ar. Það er ekkert sjálfsagt að að- stoða alla láglaunahópa. Aðeins sannaihega sjúkir ogfatlaðir eiga að njóta félagslegrar lijálpar. - Engir aðrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.