Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
23
Fréttir
Hef illinn á Blönduósi en
lyklarnir á H vammstanga
- á meðan kona var í bamsnauð og íbúðarhús brann 1 óveðrinu norðanlands
„Þaö hefði þurft ruðningstæki á
undan slökkviliösbílnum fram í
Vatnsdal og líka á undan sjúkraflutn-
ingabílnum upp í Blöndudal. Veghef-
illinn var á Blönduósi en hins vegar
voru bæði lyklamir og ökumaðurinn
á Hvammstanga," segir Ófeigur
Gestsson, bæjarstjóri á Blönduósi.
Á þriðjudaginn þegar svartasta
óveðrið geisaði fyrir norðan kvikn-
aði í íbúðarhúsi að Nautabúi í
Vatnsdal. Slökkviiiðið var þrjá
klukkutíma að bijótast að bænum
en venjuiega tekur um hálftíma að
keyra þangað. Um nóttina þurfti
björgunarsveitin á Blönduósi að ná
í konu í bamsnauð í Blöndudal og
jafn erfiðlega gekk að komast þang-
að.
„Þetta er afleiðing af endurskipu-
lagningu á starfsemi Vegagerðar rík-
isins sem kom til framkvæmda hér
á Blönduósi fyrir nokkrum ámm og
fólst í því að leggja niður aUa starf-
Háþrýstisúrefmslækningar kynntar á íslandi:
ítalir senda ís-
lendingum tæki
Háþrýstisúrefnislækningar er ný
grein læknavísindanna sem nú er
kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu hér á
landi.
„Þessar lækningar lofa mjög góðu.
Það er hægt að bjarga vefjum, sem
annars myndu deyja, með því að
koma súrefni til þeirra þó svo að
rauð blóðkom komist ekki til vefj-
anna,“ segir Einar Sindrason, for-
stöðumaður Heyrnar- og talmeina-
stöðvar íslands, sem hefur kynnt sér
háþrýstisúrefnislækningar. Hann
leggur á það áherslu að rannsóknir
bendi til að koma megi meðal annars
í veg fyrir kransæðadrep með þess-
ari nýju aðferð.
„Þessar lækningar hafa enn ekki
verið stundaðar hér á landi en ítalsk-
ir sérfræðingar ætla að koma með
háþrýstiklefa hingað og reka hann
okkur að kostnaðarlausu í sex til átta
mánuði," segir Einar.
Hann kynntist forsvarsmanni há-
þrýstilækninga á Ítalíu, Calcedonio
Gonzales, á ráðstefnu þar. Gonzales
fékk mikinn áhuga á íslandi, kom
hingað í brúðkaupsferð og er nú orð-
inn ræðismaður Islands á Ítalíu.
-IBS
Nokkrir fundarmanna á stofnfundi nýrra samtaka meðlagsgreiðenda.
DV-mynd ÞÖK
Meðlagsgreið-
endurmótmæla
Fundurinn beinir þeim tilmælum
til ríkisstjórnarinnar að hún fresti
hækkun meðlagsgreiðslna þar til
ríkisvaldið hefur lagt fram fullmót-
aða stefnu í málefnum meðlagsgreið-
enda.
Þannig hljóðar ályktun sem sam-
þykkt var á fundi meðlagsgreiðenda
á Hótel íslandi sl. fimmtudagskvöld.
Á annað hundrað manns mætti á
fundinn.
Þar tók til máls Sighvatur Björg-
vinsson heilbrigðisráðherra. Hann
tilkynnti fundarmönnum aö ákveðið
hefði verið að hækka meðlagsgreiösl-
ur ekki eins mikið og ráð hefði verið
fyrir gert í fyrstu, eða í 10.300 krónur
í stað 11.300.
Öryrkjabandalagið gaf jólatré
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Fyrir skömmu hélt Öryrkjabanda-
lag íslands samstöðuhátíð sína og að
þessu sinni á Egilsstöðum. Það er í
fyrsta skipti sem hún er haldin utan
höfuðborgarsvæðisins.
Á hátíðinni afhenti Amþór Helga-
son, formaður bandalagsins, jólatré
sem bandalagið gaf Héraðsbúum í
tilefni þess hve vel og myndarlega
hefur verið staðiö að uppbyggingu á
þjónustu fyrir fatlaða á Austurlandi,
en starfsemin er að mestu leyti á
Egilsstöðum. Amþór gat þess að hér
væri um að ræða bæði byggðamál
og réttlætismál fyrir þroskahefta að
geta verið sem næst sínum nánustu.
Um 30 manns starfa nú að málefnum
fatlaðra á Egilsstöðum.
Á samstöðuhátíðinni, sem fram fór
við hús svæðisstjómar við Tjamar-
braut, skemmtu böm með söng og
hljóðfæraleik og séra Vigfús Ingvar
Ingvarsson hélt ræðu auk ávarps
Amþórs Helgasonar.
semi hennar hér og færa hana ýmist
á Hvammstanga eða Sauðárkrók.
Hér á staðnum er enginn ábyrgur
starfsmaður vegagerðarinnar sem
getur tekið ákvarðanir um það að
ræsa út tæki ef þess þarf eins og í
þessu tílfelh," segir Ófeigur.
Hann segir að bæjarstjóm Blöndu-
óss hafi gert athugasemd við þessa
breytingu á sínum tíma og það verði
aftur gert nú.
„Við höfum bent á þessa veikleika
sem nú em ítrekað að koma í ljós.
Það em menn hér á staðnum sem em
fullfærir til að stjóma þessu tæki og
maður hefði haldið að það væri eðh-
legt skipulagsatriði hjá Vegagerð rík-
isins að hafa einhverja neyðaráætlun
tilbúna undir svona kringumstæð-
um. Auðvitaö reynir ekki oft á þetta
vegna þess hversu snjólétt er á þessu
svæði en þegar reynir á það þá er
það hrein skelfing. Við teljum að
tæki, menn og lyklar eigi að vera á
Calcedonio Gonzales og Einar Sindrason á fundinum í gær. DV-mynd BG
staðnum og ef þetta þrennt fer ekki
saman þá er vegagerðin gjörsamlega
vanbúin að bregðast við svona neyð-
artilvikum," segir Ófeigur. -ból
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ HF
- góð bók um jólin!
áSk
1ÁTTU DRAUMINN
RÆTAST!
15% AFSIÁTTUR
Dæmi: UNILUX dýna með tvöföldu gormalagi og yfirdýnu sem lagar sig
fullkomlega að líkamanum kostar: 28.800 - 15% til jóla = 24.480 kr.
Margar gerðir, 20 ára reynsla.