Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 13
Meiming
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
Stjömubíó: Meðleigjandi óskast ★★★
Ekki er allt
Tímapantanir
Sími 13010
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTIG
I Stofnuð 1918
sem symst
Það er tvennt sem heldur kvikmyndinni Meðleigj-
andi óskast (Single White Female) uppi, stórgóður leik-
ur í aðalhlutverkum og ágætis handrit. Aðalhlutverk-
in eru að meginhluta til í höndum Bridget Fonda og
Jennifer Jason Leigh.
Bridget Fonda er þegar farin að skapa sér nafn sem
stórgóð leikkona en hún er af mikilli leikaraætt. Hún
er dóttir Peter Fonda og sonardóttir Henry’s Fonda
og á því ekki langt að sækja hæfileikana. Ekki er Jenni-
fer Jason Leigh síðri í sínu hlutverki í myndinni.
Kvikmyndir
ísak Örn Sigurðsson
Myndin fjallar um unga athafnakonu, Alhe Jones
(Fonda) sem hættir við brúðkaup á síðustu stundu
vegna framhjáhalds kærastans. Hún býr ein í stórri
íbúð og óar við aö vera þar ein í stórborginni New
York. Hún auglýsir því eftir meðleigjanda og skilyrðið
er að hann sé einhieyp kona af hvita kynstofninum.
Margir sækja um en Allie líst best á vingjamlega
stúlku, Hedra Carlson (Leigh), sem býður af sér góðan
þokka við fyrstu kynni. Hún flytur inn og í fyrstu
kemur þeim afskaplega vel saman. En ekki er allt sem
sýnist því Hedra er haldin alvarlegri geðveilu sem
kallast tvíburaþráhyggja. Spennan eykst í samskiptum
þeirra og alvarlega slær í brýnu á milli þeirra.
Leikstjóri myndarinnar, Barbet Schroeder, vinnur
mjög vel úr handritinu og spennan er mögnuð upp á
Bridget Fonda leikur annað aðalhlutverkið í myndinni.
skemmtilegan hátt með góðri kvikmyndatöku. Hand-
ritið að myndinni er ágætt, en sem slíkt alls ekki nýtt
af náhnni. Myndir af þessari tegund tröllríða nú kvik-
myndahúsunum og hafa gert síðustu ár. Kvikmyndim-
ar The Hand That Rocks The Cradle, Basic Instinct,
Fatal Attraction og Single White Female, em efnislega
allar byggðar upp á keimlíkan hátt. Sú formúla sem
framreidd er í þeim myndum er pottþétt uppskrift að
góðri spennumynd. Þær íjalla allar um ógnvænleg
samskipti persónu við geðvehan andstæðing.
Stjörnubió: Meðleigjandi óskast. (Single White Female)
Leikstjóri: Barbet Schroeder.
Aðalleikendur: Bridget Fonda, Jennifer Jason Leigh.
Geisladiskur óperusöngvarans
ÓLAFS ÁRNA BJARNASONAR
tenórs
er kominn
* Öpcruaríiu' og íslensk sönglög *
Ólafur Vignir Albertsson leikur meö á píanó
Fæst gegn símapöntunum: 34894 - 666184
ÚTSÖLUSTAÐUR:
MIÐBÆJARRADÍÓ, HVERFISGÖ.TU 18
(gegnt Þjóðleikhúsinu)
UAtt