Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Side 21
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
21
Um 18-20 hreindýr hafa verið á vappi í kringum Eskifjarðarkaupstað. DV-mynd Emil
Hart í ári hjá hreindýrum
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Síðustu vikur hefur harðnað á
dalnum hjá hreindýrunum þar sem
snjór er yfir öllu uppi á heiðum. Þau
leita til byggða þar sem auðveldara
er fyrir þau að krafsa sig niður úr
snjónum til þess að ná sér í eitthvað
matarkyns að bíta og brenna.
Um 18-20 dýr hafa verið á vappi í
kringum Eskifjarðarkaupstað og
virtust þau öll vera fremur gæf. Það
ber hins vegar ekki allt upp á sama
dag í þessum efnum, því oft er þraut-
in þyngri fyrir veiðimenn hreindýra
að finna þau þegar veiði á þeim er
heimil á haustin.
Það tekur oft marga daga og ómælt
erfiði auk kostnaðar veiðimanna að
finna þau. Dýrin halda sig þá gjaman
í óbyggðum þar sem erfitt er að nálg-
ast þau og enn meira erfiði að koma
veiðinni til byggða.
Efst á óskalistanum hans!
HANZ
KRINGLUN N I
Aðgangurað
Símatorginu
takmarkaður
Póstur og sími lokaði fyrir helgi
hluta þjónustu Símatorgsins fyrir
notendum sem ekki eru í stafræna
símakerfinu.
„Við erum að fyrirbyggja vandræði
sem gætu skapast vegna takmarka-
lausrar notkunar annarra heimihs-
manna en rétthafa símans á þjónustu
Símatorgsins. Við teljum hiiís vegar
eðlilegt að hafa þessa þjónustu í staf-
ræna kerfinu. Þeir sem eru í því geta
lokað fyrir hana hjá sér eða fengið
sundurliðaða reikninga," segir
Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi
Pósts og síma.
Hrefna sagði að reyndar hefðu eng-
ar kvartanir komið enn frá símnot-
endum vegna hárra .reikninga sem
mætti rekja tfi notkunar Símatorgs-
ins.
Samkvæmt nýrri reglugerð um
Símatorgsþjónustu eru það dýrari
gjaldflokkamir sem aöeins eru opnir
notendum í stafræna símakerfinu.
Þeir ódýrustu eru opnir fyrir alla.
Gjaldflokkamir em fimm og er verð-
ið frá 12,50 upp í 66,50 á mínútuna.
í reglugerðinni er ákvæði um að
efni, sem ætlað er börnum sérstak-
lega, megi ekki taka lengri tíma en 8
mínútur og það á að vera í 1. gjald-
flokki. Ekki má bjóða upp á efni sem
brýtur gegn almennum siðgæðisregl-
um.
„Við fognum þessari reglugerð. Við
höfum verið talsmenn þess að reglur
séu um símatorgsþjónustuna því það
er mjög auðvelt að misnota svona
starfsemi. Reglugerðin er mjög góð
en okkur finnst hún líka mjög ströng
þar sem þeir sem ekki eru í stafræna
kerfinu geta ekki nýtt sér alla þjón-
ustuna,“ segir Páll Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri íslensku síma-
þjónustunnar hf.
-IBS
Fær ekki að opna krá
Þórhallur Asnuindssan, DV, Sauðárkróki:
„Jú, það er rétt. Ég er búinn að
berjast í talsverðan tíma fyrir því að
fá að opna hérna ölkrá eða lítið kafíi-
hús en það hefur ekki gengið hingað
tfi. Ég er samt ekki búinn að gefast
upp og held að þetta komi með tíman-
um. Það er eins og ýmis nýbreytni
eigi erfitt uppdráttar hérna en maður
má þó ekki trúa því að verið sé að
passa upp á hagsmuni annarra,“ seg-
ir Jónas Skaftason á Blönduósi sem
rekið hefur ferðaþjónustu í gamla
pósthúsinu síðustu tvö sumur.
Jónas hefur í tvígang fengið synjun
á leyfi tfi reksturs ölkrár. Hann segir
skiptar skoðanir innan áfengi-
svamanefndar sem tvívegis hefur
fengið málið tfi meðferðar. „Ég hef
orðið var við það t.d. í hálendisferð-
um að ferðafólk vill gjaman eiga
þess kost að fá sér öl í krús eða jafn-
vel eitthvað sterkara í glas. Fólk vill
gjaman í sumarfríinu geta veitt sér
ýmsa hluti og notið lystisemda lífs-
ins. Húsnæðið hjá mér býður upp á
að ónæði þyrfti ekki að hljótast af
starfsemi sem þessari. Að þetta kæmi
til með að auka drykkjuskap hérna
í bænum held ég að sé alveg af og
frá.“
Hlé í loðnubræðslunni
Pétur Kristjánssan, DV, Seyöisfiröi:
Undanfarið hefur engin loðna bor-
ist á land á Seyðisfirði og bræðslur
því ekki í gangi.
Nýlega var skipað út um átján
hundmð tonnum af lýsi hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins. Þar hefur ver-
ið tekið á móti um 22 þúsund tonnum
af loðnu og 5.500 tonnum af síld tfi
bræðslu á þessari vertíð. Búið er að
framleiða tæp 4.100 tonn af lýsi og
5.100 tonn af mjöh.
Að sögn Gunnars Sverrissonar
verksmiðjustjóra gengur þokkalega
að selja afurðimar.
AGJAFAHLAÐBORÐ
Góðar jólagjafir fyrir athafnafólk
Borvélastatíf kr. 4.300,-
Topplyklasett kr. 3.119,-
Al verkfærataska kr. 6.281
: Hleðsluskrúfvélar kr. 5.351,
Skúffurekki kr. 2.353,-
Borvélar kr. 6.941
hjólatjakkar kr. 5.708,-
10" borðsög
kr. 28.747,-
Vinnuborð kr. 6.790,- ['
Lóðstöðvarkr. 11.946,-
Loftskrall kr.7.505,-
Skrúfjárnasett kr. 1.403,-
Lóðboltar kr. 2.017,-
Mikið úrval góðra jólagjafa á sannkölluðu jólaverði. Lítið inn, það
er heitt á könnunni.