Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Side 25
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992. Dv____________________Meiming Að vera öðruvísi Samkvæmt sögu Herdísar Egilsdóttur og myndum Erlu Siguröardóttur við hana eru vatnsberar mann- verur sem ganga uppréttar á stuttum afturfótum og hafa græna fingur. Þeir eru með andht eins og venju- legt fólk af hvíta kynstofninum og hár undan þéttum hettum á höíðinu. Það sérkennilegasta við þá er að þeir eru eins konar gangandi sjálfsþurftarbúskapur. Ofan á höíðinu hafa þeir krana sem þeir láta fyllast af vatni á nætumar með því að sofa með fætuma upp í loftið og nota svo á daginn tíl að baða sig úr því og vökva með því ávaxtagarð sem þeir bera í poka firaman á sér. Geysihagleg skepna, hefði Snorri Sturluson sagt. Þeir lifa fjölskyldulífí í grænum hólum á sléttunni og flölga sér með því að sá vatnsberafræjum í tunnur. Bókmenntir Silja Aðalsteinsdóttir Líf vatnsberanna hður áfram tíðindahtið í sælh ró uns ungum hjónum fæðast tvíburar. Reyndar er stelp- an fullkomlega eðlilegt vatnsberabam, en drengurinn, þvílik ógæfa! Hann hefur engan krana á höfðinu, eng- an poka á maganum, fingurnir lofa ekki góðu um gróð- urvænan mann, svona skjannahvítir, og svo er hann í gahabuxum og peysu í staðinn fyrir hvíta samfesting- inn. Er furða þó verði uppi fótur og fit? Sagan um vatnsberana varð fyrst til sem leikrit og örvaði börn til umhugsunar og fjörugrar umræðu í flutningi Alþýðuleikhússins fyrir rúmum áratug. Og enn fá böm grátstafinn í kverkarnar þegar stríðnu vatnsberakrakkamir reka strákinn burt úr sínum hópi og segja honum að fara bara heim til sín! Þau finna auðvitað til samkenndar með drengnum, hann er eins og þau. Lausnin í sögulok er ágæt. Drengurinn á þrátt fyrir aht heima hjá sínu fólki þó að hann sé Ein teikninga Herdísar Egilsdóttur í Vatnsberarnir. svona frábmgðinn því. Það verður bara að rækta meira í magapokum sínum tii að eiga handa honum líka. Vatnsberamir er býsna veruleikafjarlægt ævintýri en það kemur meginhugsun sinni og hoðskap skýrt til skiia og Herdís Egilsdóttir skrifar skemmthegan og fyndinn texta. Erla Sigurðardóttir sýnir hér enn hvað hún er frábær myndskreytari. Vatnsberamir verða fullkomlega eðhleg dýrategund á myndum hennar. Myndin af því þegar drengurinn er að reyna að sofa með fætuma upp í loftið er frábær og líka opnan þeg- ar drengurinn hleypur undan ótugtarskap hinna bam- anna. í baksvip hans er sönn angist. Hins vegar er afleitt að hafa aftur tófu á opnunni þegar fuglinn kem- ur í texta og fuglinn ekki fyrr en á eftir ljóninu. Þar hefur eitthvað farið úrskeiðis. Frágangur á texta er góður fyrir unga lesendur, hn- ur stuttar í tveim mjóum dálkum á síðu og gott hnubh. Herdís Egilsdóttir: Vatnsberarnir. Erla Sigurðardóttir myndskreytti. Almenna bókafélagiö 1992. Regnboginn - Miöjaröarhafiö: ★★ x/2 Slappað af í sólinni Mediterraneo er geðþekk en jafnframt sáraeinfóld ítölsk ádehugaman- mynd sem gerist á sólríkri smáeyju í Gríska Eyjahafinu. Sagan hefst árið 1941 þegar mishtur hópur ítalskra hermanna kemur th eyjunnar th að hemema hana og vemda fyrir Bretum. Eyjaskeggjar láta ekki sjá sig í fyrstu en eftir að her- mennimir eru búnir að einangra sig algerlega fyrir eigin klaufsku þá koma þeir í Ijós. Hæglátur hfsmáti þeirra og steikjandi hitinn eykur á kæru- leysið og upplausnina í hópnum sem var nú nóg fyrir. Ekki sakar að eyjan er karlmannslaus. Svona myndir misheppnast yfir- leitt þegar þær reyna of mikið en Mediterraneo tekst að halda at- hyglinni th enda þrátt fyrir að hún hafi ekki upp á neitt sérstakt að hjóða. Það hjálpar að hún forðast að vera alvarleg frekar en að reyna það og gera það hla (stenst að vísu eyjunni. ekki freistinguna í lokin). Húmorinn er vhjandi barnalegur og sömuleiðis ádehan. Hermennirnir eru geðþekkir og hver efni í að minnsta kosti einn góðan brandara og myndin gerist að mestu innan hópsins. Fyrir utan gleðikonu og hippafjár- hirði kemur htið af húmornum frá samskiptum við eyjarbúana. Myndin hður þæghega í gegn og mun örugglega gera stóra hluti fyrir ferðamannaiðnaðinn í Eyjahafinu. Það fór ekki framhjá neinum hér heima Það búa aðeins meyjar á grisku Kvikmyndir Gísli Einarsson að Mediterraneo fékk óskarsverðlaun í vor og það er ekki í fyrsta skiptið sem val kvikmyndaakademíunnar í Hollywood er út í hött. Það er leiðin- legt að hafa „tapað" fyrir svona froðu. Mediterraneo (ítölsk—1991) Handrit: Vincenzo Monteleone eftir bókinni „Armanta Sagapo". Leikstjórn: Gabriele Salvatore. Leikarar: Diego Abatantuno, Claudio Bigagli, Giuseppe Cederna, Claudio Blsio, Gigio Alberti, Ugo Conti, Memo Dini, Vanna Barba. ofahorrifying' detcrtive in seai Buttherealenemy issomething hisovvnconscience A TRUE STORY JuskR13S!W12S &KKCÍ55 GwBí'íC UKSiHOU.! teaix hcacn t&t&i fawt fmsttfo.'íkS'l (waw»i«KxiKM(S VsnatrGacísGiaaKS taasrtlíiöUEToSKMlUM Ussa m flum ‘fiXJftB* wm m m *A» teM Vs Eft* il Mtt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.