Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 28
28
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992.
Meiming
Að rækta eigin garð
í Helgispjalli Matthíasar Johannesen, sem hann
kennir viö þjóðfélagið, er fjallað um mjög fjölbreytileg
efni. Framan af lestri ritsins fannst mér sem eðlilegra
hefði veriö að kenna það við mannkynið eða jörðina,
svo vítt er sjónarhomið. Hvort sem um er að ræða
málefni mannkynsins alls eða íslenska þjóðfélagsins
þá leitar Matthías mjög í smiöju til skálda og heimspek-
inga. Hann ræðir viðfangsefnið út frá íslenskum jafnt
og útlendum bókmenntum og mjög oft eru biblíuleg
stef notuð til að varpa ljósi á viðfangsefnið.
Það fer ekki á milli mála að hér heldur skáld á
penna, eins og segir í kynningu á bókarkápu. Annars
einkennir það þetta rit að engar upplýsingar fylgja því
í formi inngangs eða eftirmála. Ekkert efnisyfirlit er
heldur og engar kaflafyrirsagnir, hvaö þá nafnaskrá.
Matthías lætur einfaldlega gamminn geisa og maður
hlýtur að minnast þess að ljóðagerð hans hefur verið
kennd við formbyltingu (Fyrst með ljóðabókinni
„Borgin hló“ 1958). Svipað virðist manni upp á teningn-
um í þessum pistlum, sem einkennast af öllu öðru
fremur en fastheldni við hefðbundið form.
Bókmenntir
Gunnlaugur A. Jónsson
Umhverfismálin eru Matthiasi mjög hugleikin. Hann
segir vart sé hægt að hugsa sér önnur málefni brýnni
en umhverfisvernd „eins og nú er háttað í heimin-
um“. Hann bendir á að „okkar kynslóð er sú fyrsta
sem þurfi að glíma við vandamál sem skipt geti sköp-
um um það, hvort sú jörð sem börn okkar erfa verður
byggileg eða ekki.“ Það þarf ekki að koma á óvart að
Matthías gerist ljóðrænn þegar hann fjallar um við-
fangsefni sem honum er jafn hugleikið og umhverfis-
verndin: „Við þurfum að hlúa að jörðinni; láta hana
njóta sáðmannsins sem býr í hvers manns brjósti;
verma hana sólmjúkum lófum sem eru af sama efni
og hún sjálf.“
Ógnir atómaldar mynduðu baksvið ljóðaflokksins
„Sálmar á atómöld" (1966, 2. útg. 1991) þar sem mörg
hin sömu stef koma fram og hér, sbr.: „En hvenær
höfum við áður þurft/ að bera kvíðboga fyrir jörð-
inni/ að hún brenni í kjarnorkubáli/ hverfi, tortím-
ist?“ (Sálmur 14). Eins og heiti ljóðabálksins raunar
ber með sér er hið trúarlega efni fyrirferðarmikið þar.
Matthías Johannessen fjallar um fjölbreytileg efni í
bók sinni.
Matthías er alls ekki einn um að fjalla um umhverfis-
vernd á trúarlegum nótum. í þeim efnum hefur löng-
um verið vitnað til þess boðs sem manninum er gefið
í 1. Mósebók (1:28) um að gera sér jörðina undirgefna.
Hefur því jafnvel verið haldið fram að í því boði, eða
kannski frekar misskilnings á því boði, sé að finna
hina hinstu orsök vistkreppu samtímans.
Trúarleg stef koma mjög við sögu í glímu Matthíasar
við umhverfismálin. Sú staðreynd að hann talar um
sköpunarverk bendir strax í þá átt, en einnig ýmsar
minnisstæðar fúllyrðingar hans, sbr.: Náungakærleik-
ur er umhverfisvemd (s. 79). Kristnidómurinn er eins
konar þjóðfélagsleg umhverfisvernd (s. 82). Matthías
lætur lesandann ekki velkjast í vafa um afstöðu hans
til kristnidómsins. Hann segir boðskap Krists bestu
gjöf sem okkur hefur verið gefin og hann er þeirrar
skoðunar að því fé sem rennur til kynningar á boð-
skap Krists úr sameiginlegum sjóði þegnanna sé varið
til almannaheilla. Um stöðu Sjálfstæðisflokksins fáum
við að vita að hann eigi meira sameiginlegt með kristi-
legum demókrataflokkum en öðrum flokkum.
Við þurfum ekki að fara langt til að hafa áhrif í
umhverfismálum því að fyllingin er „ekki fólgin í því
að æða til suðurskautslandsins né norðurpólsins ...
Hún var fólgin í því að rækta eigin garð.“
Ég get tekið undir með Matthíasi er hann segir: „Góð
bók er mesti nautnamiðill sem ég þekki" (s. 153). Eitt
einkenni góðra bóka er að þær vekja til umhugsunar,
kveikja fjölbreytilegar hugmyndir. Það gerir þessi bók.
Matthias Johannessen
Þjóðfélagiö. Helgispjall.
lóunn 1992 (245 bls.)
HEILDSÖLU-BAKARÍ
Ódýri brauða- og kökumarkaðurinn
Suðurlandsbraut 32
Opinn mánudaga-föstudaga kl. 8.00-18.00.
Seljum öll brauð og kökur á heildsöluverði.
Verðdæmi: Smá- söluv. Okkar verð Sparn- aður
Formbrauð, hvít og heilhveiti 116,00 93,00 23,00
Formbrauð, hvítog heilhv., sneidd 126,00 93,00 33,00
Öllgróf brauð 162,00 130,00 32,00
Jólakökur 286,00 229,00 57,00
Vínartertur 296,00 236,00 59,00
Djöflatertur 668,00 534,00 193,00
Rúnstykki m/birki 38,00 30,00 8,00
Kúmenhringir 44,00 35,00 9,00
Vínarbrauð 72,00 58,00 14,00
Snúðar 73,00 59,00 14,00
Dagsgömul brauð seld með 50% afslætti frá smásöluverði.
Verðdæmi: Smá- söluv. Okkar verð Sparn- aður
Öll formbr., gróf og fín, sneidd 126,00 58,00 68,00
Öll gróf sérbrauð, sneidd 162,00 81,00 81,00
Brauðskurður ókeypis.
OPIÐ AÐFANGADAG OG GAMLÁRSDAG KL. 8.00-14.00
Ódýri brauða- og kökumarkaðurinn
Suðurlandsbraut 32 - sími 688406
Stöndum undir nafni!
Sviðsljós
Afmælisbarnið ásamt gallhörðum Völsurum. F.v.: Einar Jónsson, Sigfús
Halldórsson, Lolli, Magnús Bergsteinsson og Jón Kristjánsson.
Lolli íVal:
Fæenn
fiðring í
tærnar
Ellert Sölvason, betur þekktur
sem Lolli í Val, átti sjötíu og fimm
ára afmæh sl. flmmtudag og af því
tilefni tók hann á móti gestum í
félagsheimili Vals að Hlíðarenda.
Fjölmargir gestir sóttu kappann
heim á þessum tímamótum og
margar ræður voru fluttar og þ.á
m. ein af Ellert B. Schram, forseta
ÍSÍ.
í stuttu spjalli við DV sagðist
Lolh ahtaf vera jafn áhugasamur
um knattspymuna en hann varð
sjálfur sjö sinnum íslandsmeistari
og lék fyrstu landsleikina fyrir ís-
land. Lolh, sem vinnur hluta úr
degi á lögfræðiskrifstofu, mætir á
alla heimaleiki Vals og þrátt fyrir
aldurinn segist hann enn sparka í
boltann stöku sinnum enda fái
hann alltaf fiðring í tærnar á vorin.
Einar Sæmundsson, fyrrverandi formaður KR, og Björgvin Schram, fyrr-
verandi formaður KSÍ, voru í afmælinu.
Jón Bergmann, Agúst Bjarnason og Örn Ingólfsson tóku lagið fyrir Lolla.
DV-myndir Sveinn