Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Side 29
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992. 37 Karl Steinar Guönason, for- maöur fjárlaganefndar Alþingis, sagði í ræðu á Alþingi aö mikil nauösyn væri á áframlialdandi hagræðingú í rekstri ríkisins. Hann sagði að fram heföi komið i skýrslu Ríkisendurskoðunar að heildarkostnaður vegna bifreiða- notkunar og bifreiðaeignar ríkis- ins hefði árið 1991 numið 1,8 milij- örðum króna, aö meðtöldum af- skriftum. Það er eitt og hálft pró- sent af heildarútgjöldum A-hluta ríkissjóðs á þvi ári. Útgjöld vegna bifreiðanotkunar starfsmanna námu níu hundruð fimmtíu og fjórum milljónum króna árið 1991. Þar af námu ut- gjöld ríkisins vegna leigöra starfsmannabifreiða ri'unum sex hundruð milljónum króna. Á síð- ustu 10 árum hefur þessi kostnað- ur aukist um flörutíu prósent á fóstu verðlagi. Þriðja hverjum starfsmanni ríkisins var greilt fy rir akstur eigin bifreiðar 1991 eða um sex þúsund starfsmönn- um. Heildarakstur þeirra nám 22 mihjónum kílómetra. Aö mati Rikisendurskoðunar fóru um 170 ársverk í þennan akstur. Karl sagði að í skýrslunni kæmi ; fram aö launauppbætur hcfðu oft verið dulbúnar í formi bílastyrks. Eftirliti með greiöslum þeiiTa væri oft ábótavant og reglur um ákvörðun þeirra sniðgengnar. -S.dór Sjömannanefiid: Bændur hættir þátttöku Fuiltrúar Stéttarsambands bænda í sjömannanefnd, Haukur Halldórsson og Ilákon Sigur grimsson, hafa ákveðið að taka ekki frekari þátt í störfum nefnd- arinnar í móunælaskyni við fyr- irhugaðan ; niðurskurö ríkis- stjórnarinnar í landbúnaðarmál- um. Nefndin er skipuð aðilum vinnumarkaðar, bænda og stjómvalda. Hún hefur starfað í tæp tvö ár og lagði meðal annars drög að búvörusamningi sem tók gildi í sumar. Haukur og Hákon segja að með niðurskurðinum séu stjórnvöld að taka til sin ávinninginn af starfi nefndarinnar og hindri þannig aö neytendur njóti aukin- ar hagræðingar í landbúnaði. Þá komi aögerðirnar í veg fyrir að bændur geti bætt samkoppnis- stöðu sína á markaðinum. -kaa Þykjast selja plötufyrir Bamaheill „Ég vil vara fólk við ef þaö er verið að selja eitthvað í nafni Bamaheilla því sölu á plötu þeirri sem seld var í ágóöaskyni fyrir samtökin var hætt 1. nóvember sl.,“ sagði Artlirn- Morthens, formaður samtakanna Barna- heilla, við DV. Aö undanfömu hefur verið hringt í fólk og því boöið aö kaupa geisladisk. Segpa þen* sem hringja, aö diskinn sé veriö að selja til Qáröflunar fyrir Bama- ; heill. „Sú plata sem við seldum hét „Þegar þið eruð nálægt“ með Ingva Þór Kormáksson hljómhst- armann í fararbroddi," sagði Art- húr. „Nú er ekkert slíkt í gangi hjá samtökunum þannig að þeu* sem em þama að verki era að reyna að selja á fölskum forsend- um.“ , -JSS Snjóflóðasvæðiö á Siglufirði: Sjálfsagt var að f lytja út - sagðiGuðmundurDavíðsson öm Þórarinssan, DV, njótunu „Við yfirgáfum húsið klukkan 23 á mánudagskvöldið. Þá höfðu al- mannavamir í bænum mælst til að nokkur hús yrðu yfirgefin. Mér brá óneitanlega svolítið þegar við voram beðin að fara. Ég hafði ekki hugsað út í hættu af snjóflóði, enda ekki búið í þessu húsi áður,“ sagði Guð- mundur Davíðsson á Siglufirði þegar fréttamaður hitti hann rétt eftir að hann flutti aftur inn. Þá voru al- mannavarnir bæjarins nýbúnar að aflýsa hættuástandi. Guðmundur og fjölskylda hans búa í Suðurgötu en við þá götu voru ein- mitt þrjú hús yfirgefin. Einnig var flutt úr nokkrum húsum annars staöar í bænum þar sem snjóflóða- hætta voföi yfir. Guðmundur keypti húsið síðastliðið haust en hann bjó áður niðri í miðbæ og hafði því aldr- ei áöur þurft að hafa áhyggjur af snjóflóðum. Fjölskyldan flutti sig um set í ann- að hús sem þau eiga á Siglufirði meðan hættuástand varði. Guð- mundur lét þess getið að þau hefðu ekki verið í neinum vandræðum, vinir og kunningjar buöu þeim að vera og voru aliir boðnir og búnir að hjálpa við þessar aðstæður. Feðgarnir Guðmundur og Daði Már ánægðir heima í stofu úr allri hættu vegna snjóflóða. DV-mynd Örn Þórarinsson Fréttir Nýs vettvangs um að gjalddögum vegna fasteignagjalda í Reykja- vík, verði tjölgað úr þremur í sex og að leyft verði að greiða með greiðslukortum. Markús Öm Antonsson borgar- stjóri sagöi að ekki heföi verið mikið um kvartanir vegna þess að gjalddagarnir væru þrír og hann sagði einnig að ekki væri hægt að bera þetta fyrírkomulag saman við þaö sem gerist hjá nágrannasveitarfélögunum þar sem þar væru fasteignagjöldin til muna hærri. Ölína Þorvarðardóttir taldi að þeim sem þætti í lagi að borga þrisvar yrði ekki íþyngt þó gjald- dagamh-yi'ðusex. -sme Af koma smá- bátabest í úttekt sem Landssamband smábátaeigenda fékk Háskóla ís- lands til aö gera um arðsemi smá- bátaflotans í samanburði við aöra útgerðarflokka kemur í ljós aö enginn útgerðai-flokkur í landinu hefur jafn góöa afkomu og smá- bátamir. Árið 1989 sýndir smábátaút- gerðin 8,4 prósent hreinan hagn- að en sá útgerðarflokkur sem næstur kom sýndi 3,7 prósent haganð. Og það sem meira er. Smábátaútgerðin er eini útgerð- artlokkurinn sem landaði afla sínum til vinnsiu hér heima sem sýndi hagnað þetta ár. Stærsti þáttur þessa mismunar á afkomu er olíukostnaðurinn. Þá kemur fram í skýrslunni að smábátarnir færa að landi jafn- bestahráefnið. -S.dór ækuraar um Valla hafa farið sigurför víða um lönd. Um leið og bókin er opnuð hefst æðis- gengin leit að furðufuglinum Valla sem hefur einstakt lag á að láta sig hverfa í mannhafínu. Valli leynist víða: Á ströndinni, íþróttavellinum, tjaldstæðinu, járabrautarstöðinni - alls staðar í iðandi mannþrönginni. Hann ferðast einnig um tímann og hann má fínna ef grannt er leitað á meðal hellisbúa, Fom-Egypta, Rómverja, víkinga, riddara, smábænda, Asteka, geimvera og margra annarra. Bók sem getur reynst erfitt að ná af pabba og mömmu! ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ H F -góð bók um jólin! > Opiö virka daga kl. 10.00 - 19.00 og laugardaga kl. 13.00 - 17.00 Engin útborgun Raðgreiðslur til allt að 18 mánaða Skuldabréf til allt að 36 mánaða AT otaðir bílar í miklu úrvali! Bílaumboðið hf Krókhálsi 1,110 Reykjavík Sími 686633 og 676833 Toyota Corolla ’88, sjálfsk., stgr.v. 640.000, tilboðsv. 560.000. BMW 518í ’86, stgrv. 680.000, til- boðsv. 550.000. Toyota 4Runner, árg. 1991. Verð 2.250.000 stgr. BMW 518i, árg. 1991. Verð 1.990.000, tilboðsverð 1.850.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.