Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1992, Page 30
38 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1992. & FRÁ 4k Einstök handunnin teppi í * ýmsxnn stærðum, litum og - mynstrum. Otrúlega hagstætt verð! ; Heildsöludreifing: R&G, sími: 625465 “ Mörkinni 1 • Sími (91) 68 31 41 Merming_______________________ dv Háskólabíó - Karlakórinn Hekla: ★★ Karlakór í stuttbuxum Karlakórinn Hekla tekur lagið um borð í skemmtiferðaskipinu Baltica. Karlakórinn Hekla er létt gamanmynd, ein- göngu gerð til að skemmta fólki og sú ætlun tekst ágætlega. Söguþráðurinn er rammíslensk- ur þótt myndin gerist í þremur löndum, enda er kórlíf á íslandi örugglega með hvað mestum blóma í heiminum. Byijunin gæti þess vegna gerst í mörgum bæjarfélögum en í myndinni er það Hveragerði. Þar er starfræktur Karlakórinn Hekla og koma kórfélagar úr ýmsum störfum. Boð hefur komið um utanlandsferðir til Svíþjóðar og Þýskalands og þar sem ekki reynist unnt að velja á milii er ákveðið að þiggja þau bæði og fara til beggja landanna. Mitt í undirbúningnum deyr einn kórfélaginn, hinn þýskættaði Max Werner, en hlýtt hafði Kvikmyndir Hilmar Karisson verið á milli hans og undirleikara kórsins, Mar- grétar Legerlöv sem á ættir sínar að rekja til Svíþjóðar. Eins dauði er annars brauð segir máltækið og dauöi Wemers gerir kómum mögulegt að fara í ferðina með myndarbrag. Það fylgir þó gjöfinni að kórinn verður að taka með sér styttu í mannshæð af Werner og færa mömmu hans í Þýskalandi. Eins og gefur að skilja í grínmynd á borð við Karlakórinn Heklu fer ekki alit samkvæmt áætl- un. Það setur tU dæmis strik í reikninginn þeg- ar kórstjórinn Gunnar hverfur í Svíþjóð og skil- ar sér ekki fyrr en lagt er af stað heim. Þá er erfiðleikum bundið að finna stað fyrir styttuna, en móöirin vill ekkert af honum vita, hvað þá að eignast hús sem hann átti í Hveragerði. í ljós kemur að Max Wemer á tvíburabróður í Þýska- landi og eins og nærri má geta dettur andlitið af kórfélögum þegar þeir sjá hann mitt í tón- leikahaldi í kirkju, enda eftirmynd bróður síns. En allt lukkast þetta þó einhvem veginn hjá kómum þótt forin verði ekki nein sigurför á listabrautinni. Mörg atriði í myndinni em fyndin. Má þar nefna dáleiðsluatriði þar sem Ragnhildur Gísla- dóttir fer á kostmn, söngatriði kórsins undir berum himni í Svíþjóð og styrktarskemmtun kórsins í Hveragerði. Þá era margar persónur bráðskemmtilegar, enda leika margir af fremstu grínleikurum landsins í myndinni. Sigurður Siguijónsson, Randver Þorláksson, ÞórhaUur Sigurðsson (Laddi), Öm Árnason og Rúrik Har- aldsson skapa alhr kómískar persónur. Sameiginlegt öllum aðalpersónunum þremur er áhugi á tónlist. Var það því vel til fundið að fá þjálfaða tónlistarmenn, sem allir hafa einnig leikið, til að leika þær, enda falla þau Egfil Ólafs- son, RagnhUdur Gísladóttir og Garðar Cortes vel inn í hlutverk sín og em trúverðug þegar kemur að tóiUistinni. Karlakórinn Hekla er mynd sem vinnur á. Satt best að segja lofar byijun myndarinnar ekki góðu. Hljóðið er slæmt þegar tónhstin er undanskilin og fyrstu atriðin vandræðaleg en eftir því sem hður á myndina lagast allt og myndin verður heUsteyptari. Ekki verður sagt skUið við myndina án þess að minnast á tónlistarflutninginn sem er kannski það eförminnUegasta þegar upp er stað- ið. Það er Karlakórinn Fóstbræður sem flytur þekkt kórlög, þýsk og íslensk, og flytur þau óað- finnanlega. Svo vel hefur tekist tíl með hljóð- setninguna að erfitt er að ímynda sér annað en að kórinn í myndinni syngi lögin. a en sönn sagaf Meg Ryan og Alec Baldwin leika aðalhluverkin í Sáraskipti. Bíóborgin - Sálarskipti: ★ !4 Hugleiðing um ást Kvikmyndin Sálarskipti er byggö á eftir Craig Lucas, eitt af virtari leik- ritaskáldum Bandaríkjanna. Lucas er mjög umhugað um ástina í ýmsum myndum og með eigin kvikmyndaútfærslu (undir leikstjóm samstarfs- manns síns Rorman René) hefur hann eflaust vUja setja fram dæmisögu mn hvort ástin byggi holdið eða sálina. Peter og Rita byija ástarsamband sitt eins og nútímafólki sæmir, mjög skyndUega. Þau skUjast vart að fyrstu mánuðina og fljótlega ákveða þau að gifta sig. Á giftingardaginn birtist gamaU maður sem vUl fá að kyssa brúðina. Rita verður ekki söm eftir það og í brúðkaupsferðinni fer Peter að gruna að Rita og gamli maðurinn hafi haft vistaskipti. Eftir ágæta byrjun er eins og Lucas hafi ekki vitað hvað hann ætti að gera með þessar aðstæður eða hvemig hann geti best notað þær til að koma boðskap sínum á framfæri. Myndin gengur ekki út á það hvort Peter standi frammi fyrir því að velja milh líkama eða persónu Ritu því það er augljóst ffá upphafi hvort hann viU. Myndin gengur heldur ekki út á örvæntingu Ritu að vera fóst í hrumum líkama því hún var hvort sem er ekkert sérlega lífsglöð. Myndin er frekar eins og uppbygging að ein- Kvikmyndir Gísli Einarsson hverju sem gerist ekki. Hún nær ekki upp neinum áhrifum nema ein- staka sinnum þrátt fyrir að hún sé vel leildn og hefði alveg verið hægt að taka hana alvarlega ef hún væri ekki svo vélræn og útreiknuð. Prelude to a Kiss (Band. - 1992) Handrit: Craig Lucas (Longtime Companion). Lelkstjórn: Norman René (Longtime Companion). Leikarar: Alec Baldwin, Meg Ryan, Sidney Walker, Kathy Bates, Ned Beatty, Patty Duke.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.